Morgunblaðið - 12.09.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
KVIKMYNDIR/ SAMBÍÓIN hafa tekið til sýninga mynd sem gerð er eftir handriti fram
leiðandans John Hughes um Denna Dæmalausa og nágranna hans, hr. Wilson, sem
Walter Matthau leikur. Meðal annarra leikenda eru Joan Plowright og Christopher Lloyd
Klíkan
MARGRÉT, Denni og Jói.
Hittir hann?
DENNI fékk viðurnefnið dæmalausi af því að það er engin leið að vita upp á hverju
drengurinn tekur.
Tímarnir breytast en
ekki Denni dæmalausi
ÞAR SEM Denni dæmalausi kemur við fylgja
vandræði í kjölfarið. Oftast er það hinn lang-
þjáði og uppstökki nágranni strákpjakksins,
hr. Wilson, sem situr í súpunni, enda er Denni
dæmalausi oftar en ekki að baksa við einhver
uppátæki í garðinum handan girðingarinnar
sem skilur að heimili þessara fjandvina. Undan-
farin 40 ár eða svo hefur sagan um hinn 6 ára
Denna dæmalausa verið rakin á síðum um 1.000
dagblaða um allan heim. Nú er John Hughes,
konungur krakkamyndanna — sá sem gerði
Home Alone, Mr. Mom og Ferris Bueller’s Day
Off, svo fátt eitt sé rakið — búinn að kvik-
mynda ævintýri Denna og Wilsons. Þótt Denni
sé sí og æ að hrella hr. Wilson með ótrúlegum
uppátækjum þykir karlinum vænt um strákinn
og getur ekki án hans verið þótt hann viður-
kenni það seint sjálfur. Þegar á reynir snúa
þeir bökum saman gegn sameiginlegum óvini
honum til hrellingar en þeim tveimur og áhorf-
endum til óblandinnar gleði og ánægju. Þetta
er ekki fyrsta myndin sem gerð er um Denna
og Wilson en áreiðanlega sú best heppnaða.
Hún fellur ekki síst vel í kramið hjá yngstu
áhorfendunum sem fæstir hafa séð Tímann og
kynnast Denna í fyrsta skipti á hvíta tjaldinu.
Foreldrar Denna
dæmalausa heita
Henry og Alice, alveg eins
og foreldrar stráksins
Denna sem varð fyrirmynd
af myndasöguhetjunni.
Henry „Hank“ Ketcham
var lengi búinn að velta
fyrir sér hugmynd að
myndasögu sem gæti fallið
í kramið hjá dagblaðales-
endum. Einn góðan veður-
dag uppgötvaði hann að
það var óþarfí að leitaiangt
yfir skammt. Sonur hans
sjálfs, hann Dennis, var svo
erfiður og uppátækjasam-
ur að það hálfa væri nóg.
Hann var bara fjögurra ára
en sín á milli voru Hank
og Alice farin að kalla hann
Denna dæmalausa, Dennis
the Menace. Hank settist
niður við teikniborðið og
skömmu síðar var mynda-
sögustrákurinn Denni full-
skapaður; freknóttur, úfin-
hærður, í blettóttum bux-
um og með útataðar hend-
ur.
Þegar þetta var hafði
Hank þegar getið sér gott
orð í myndasögubransan-
um. Hann hafði unnið við
teiknimyndagerð hjá Walt
Disney áður en hann sneri
sér að myndasögugerð en
nú fyrst sló hann ærlega í
gegn. Denni birtist fyrst á
prenti í 18 dagblöðum víðs
vegar um Bandaríkin, á 31.
árs afmælisdegi pabba
síns, 14. mars 1951. Fyrir
lok þess árs voru lesendur
100 dagblaða farnir að
fylgjast með stráknum og
árið 1959 birtist Denni
dæmalausi í fyrsta skipti
annars staðar en á síðum
blaða þegar gerður var um
hann sjónvarpsþáttur sem
var vinsæll á fyrstu árum
sjónvarps á Islandi. Þá
hafa nýlega verið gerðar
teiknimyndir fyrir sjónvarp
um strákinn sem um þessar
mundir eru syndar í sjón-
varpi um víða veröld. Arið
1987 var gerð um hann
sjónvarpsmynd en litlum
sögum fer af gæðum þeirr-
ar myndar.
Persónur og leikendur
Hinar klassísku sögu-
hetjur Denna dæmalausa
— auk stráksins sjálfs og
hr. Wilsons — eru kona
Wilsons, hún Martha; for-
eldrar Denna, sem heita
Henry og Alice eins og fyrr
sagði, hundurinn hans
Denna og vinir hans tveir,
þau Jói, sem er minnstur,
og Margrét, stelpunnar í
hópnum. Hún áræðin og
frek en góður vinur Denna
þótt stundum bitni skamm-
arstrik hans ekki síður á
henni en hr. Wilson.
í myndasögunum var
enginn vondur kall en í
myndinni um Denna dæ-
malausa heitir vondi kall-
inn Sammi fjaðurhnífur og
er leikinn af Christopher
Lloyd, sem lék skrýtna vís-
indamanninn í Back to the
Future-myndunum og lék
t.d. líka í myndinni um
Addams-fjölskylduna. Hr.
Wilson er leikinn af Walt-
her Matthau, sem flestir
kannast við en hann hefur
leikið í 50 bíómyndum frá
árinu 1955 og fékk m.a.
Óskarsverðlaun árið 1966
fyrir leik í aukahlutverki í
myndinni The Fortune
Cookie.
Eiginkonu Wilsons,
hana Mörtu, leikur enska
leikkonan Joan Plowright.
Hún er talin ein fremsta
sviðsleikkona Englands,
hefur hlotið fjölda verð-
launa og viðurkenninga
fyrir sviðsleik og kvik-
myndaleik, m.a. var hún
tilnefnd til Óskarsverð-
launa nýlega fyrir leik í
myndinni Enchanted April.
Fyrrverandi eiginmaður
Joans Plowright var Laur-
ence heitinn Olivier, sem
flestir munu sammála um
að hafi verið einn allra
mesti leikari aldarinnar.
20 þúsund vildu leika
Denna
Mömmu Denna dæma-
lausa leikur Leu Thomp-
son, sem m.a. lék möm-
muna í Back to the Future-
myndunum, en pabbann
leikur Robert Stanton, sem
hefur leikið í A League of
Their Own og Bob Rob-
erts, en er annars næstum
því eins lítið þekktur og sá
sem leikur Denna sjálfan.
Það gerir sjö ára strákur
sem heitir Mason Gamble
og var valinn í hlutverkið
úr hópi 20 þúsund umsækj-
enda.
Framleiðandi myndar-
innar John Hughes, skrif-
aði handritið sem kvik-
myndin var gerð eftir hefur
verið kallaður konungur
krakka- og unglingamynd-
anna. Hann auglýsti um
öll Bandaríkin eftir strák
til að leika í myndinni.
Umsækjendurnir áttu að
senda inn myndbönd með
sjálfum sér og undirtekt-
irnar voru frábærar því
hvorki fleiri né færri en 20
þúsund myndbönd bárust.
Þegar búið var að horfa á
þau öll stóð valið á milli
10 stráka. Þeir voru látnir
koma til Chicago þar sem
myndin var gerð og þar fór
fram eins konar úrslita-
Vinir
ÞAR SEM Denni dæmalausi er á ferð er hundurinn
hans skammt undan.
Nágrannarnir
HERRA og frú Wilson eru nágrannar Denna dæma-
lausa og fjölskyldu hans.
keppni, sem aðallega fólst
í því að láta þá leika á
móti hr. Wilson og sjá
hvemig útkoman yrði, því
myndin stendur og fellur
með Denna og hr. Wilson.
Vanur úr auglýsingum
Mason Gamble og Walt-
her Matthau náðu strax
svo vel saman að úrslitin
voru ráðin og John Hughes
og leikstjórinn, Nick
Castle, vom sammála um
að þarna væri Denni dæ-
malausi lifandi kominn.
Mason hefur aldrei áður
leikið aðalhlutverk í kvik-
mynd en hann lék lítið hlut-
verk í myndinni Groundhog
Day sem var sýnd í
Stjörnubíói fyrr á árinu.
Hann hefur líka leikið í fjöl-
mörgum sjónvarpsauglýs-
ingum, m.a. fyrir Pepsi og
General Mills, sem fram-
leiðir t.d. Cherioos og
Cocoa Puffs. Pabbi Masons
er leikari og strákurinn
fékk sitt fyrsta hlutverk
þegar hann var fjögurra
ára og fór með pabba sín-
um að sækja um hlutverk
í leikriti. Pabbinn fékk ekki
hlutverkið en í salnum var
umboðsmaður sem leist vel
á strákinn og nú er það
Mason Iitli sem er orðinn
tekjuhæsti leikarinn í fjöl-
skyldunni.