Morgunblaðið - 12.09.1993, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
23
íslenskur prófess-
or í Stokkhólmi
SAM
SÆNSKA ríkisstjórnin ákvað á
fundi sínum 12. ágúst i samræmi
við samhljóða álit dómnefndar
að veita dr. Guðna A. Jóhannes-
syni stöðu prófesors í húsagerð
við byggingaverkfræðideild
Kungliga Tekniska Högskolan í
Stokkhólmi frá 1. september
1993. I nýjum háskólalögum sem
tóku gildi 1. júlí í ár var skipun
nýrra prófessora flutt af borði
ríkisstjórnarinnar til háskólanna
þannig að þessi staða er ein af
þeim síðustu sem veittar eru með
svokölluðu ríkisstjórnarumboði.
Guðni er fæddur í Reykjavík
1951, sonur hjónanna Jóhannesar
Guðnasonar og Aldísar Ásmunds-
dóttur. Hann varð stúdent frá MR
1971, stundaði nám í eðlisverkfræði
við HÍ og verkfræðiháskólann í
Lundi og lauk doktorsprófi frá
byggingaverkfræðideild LTH 1981.
Hann hafði síðan starfað við rann-
sóknir við háskólana í Lundi og
Umeá, Rannsóknastofnun bygging-
ariðnaðarins og rekið ráðgjafar-
stofu í Reykjavík. Frá 1990 hefur
Guðni gegnt sérstakri prófessors-
stöðu við KTH með orkunýtingu í
húsum sem sérsvið. Eiginkona
Guðna er Bryndís Sverrisdóttir
safnkennari.
Ráðgjafi
um skipu-
lag land-
græðslu-
mála
MÁNUDAGINN 13. september
kl. 17.00-19.00 mun Ástralíubú-
inn Andrew Campbell halda
opinn fyrirlestur á vegum Land-
græðslu ríkisins og Landvernd-
ar í Háskóla íslands, Lögbergi
stofu 102. Fyrirlesturinn nefnist
Verndun lands, nýjar leiðir. Þar
gefst öllu áhugafólki um land-
græðslu og gróðurvernd tæki-
færi á að hlýða á erindi hans.
Andrew hefur starfað sem
skógfræðingur, sauðfjárbóndi og
landbúnaðarráðunautur en kemur
hingað frá Hollandi. Þar dvelur
hann um stundarsakir við rann-
sóknir á því hvaða áhrif markmið
um vistvæna landnýtingu hafa á
landbúnaðarstefnu, rannsóknir,
ráðgjöf og fræðslu;
Andrew er einn af helstu leið-
togum í uppbyggingu „Landcare"-
hreyfingarinnar í Ástralíu; bylt-
ingu í starfsháttum sem spratt upp
af tímamótasamkomulagi bænda-
samtakanna, landgræðslunnar og
náttúruverndarsamtaka þar í landi
um að nú væri búið að þrasa nóg,
nú væri kominn tími til að gera
eitthvað. Starfið er fært niður á
„grasrótina" og allt kapp lagt á
að virkja bændur og áhugafólk og
gera þá sem nýta land að hinum
eiginlegu vörslumönnum landsins.
Hér er um að ræða veigamikla
breytingu á starfsháttum, sem fel-
ur m.a. í sér endurskipulagningu
á hlutverkum allra aðila sem haft
geta áhrif á nýtingu og ástands
lands.
Reynsla Ástrala af breytingum
sínum á starfsháttum í verndun
jarðvegs og gróðurs er að verða
fyrirmynd að skipulagsbreyting-
um hjá mörgum öðrum þjóðum.
Andrew Campell hefur því frá
mörgu að segja sem boðberi nýrra
tíma.
(Fréttatilkynning)
Við KTH standa nú yfir um-
fangsmiklar skipulagsbreytingar.
Samningaviðræður standa nú yfir
um að gera háskólann að sjálfseign-
arstofnun, sem hafi tekjur sínar
m.a. af hlutabréfum sem nú eru í
ríkiseign en verða færð yfir til
stofnunarinnar. Skólinn fær einnig
greitt iyrir kennslu eftir sérstöku
framleiðni- og gæðamati og mun
sem fyrr hafa stóran hluta tekna
sinna af útseldum rannsóknarverk-
efnum. Einnig er verið að breyta
skipulagi kennslu á þann veg að
nemendur í mismunandi verkfræði-
greinum fá sem líkasta fræðilega
undirstöðu fyrstu þrjú árin og þar
með möguleika og frelsi til þess að
velja saman námskeið úr mismun-
andi greinum verkfræðinnar í hin-
um sérhæfða seinni hluta.
(Fréttatilkynning)
ALFABAKKA
FORSYNING
I KVOLD KL: 9
Tina
v
Wliat's love pt to do with it'
Sannsöguleg mynd um ævi Tinu Turner
Nú geturðu eignast Macintosh Colour Classic,
með 80 Mb harðdisk, á frábæru verði!
Með Macintosh Colour Classic færð þú aukna orku í lærdóminn.
Með þessari tölvu er ótrúlega einfalt og þægilegt að skrifa ritgerðir
og skýrslurnar fá fagmannlegt útlit. Og nú er hægt að semja, hanna,
teikna, leiðrétta... og yfirleitt allt sem þér dettur í hug án þess að
læra eina einustu tölvuskipun.
Colour Classic er hönnuð með námsmenn í huga. Hún er öflug
og það fer svo lítið fyrir henni að hún kemst alls staðar fyrir - bæði
heima og í skólanum. Tölvan er með innbyggðan Trinitron-skjá,
sem getur sýnt allt að 256 liti samtímis og það með skerpu og birtu
sem á sér ekki líka í þessum verðflokki. Líkt og allar aðrar
Macintosh-tölvur er hún einföld í notkun og hver sem er getur lært
að nota hana á örskömmum tíma.
Nú áttu tækifæri á að slást í hóp þeirra hundruð þúsunda um
heim allan, sem nota Macintosh-tölvur til að gera námið auðveldara.
Macintosh Colour Classic er nú á sérstöku tilboðsverði og því er
ekki eftir neinu að bíða. Jafnframt viljum við minna á
hinn frábæra StyleWriter II, en hann getur prentað
texta og myndir sem gefa leysiprentuðum skjölum
ekkert eftir. Verð á Colour Classic ásamt StyleWriter II
er aðeins 117.789,- kr. (afb. verð) eða 111.900,- stgr.
Macintosh Colour Classic kostar aðeins 79.900 ,- kr. stgr.
Afborganaverð er 84.105,- kr.
í þessu verði er innifalið 4 Mb vinnsluminni, 80 Mb
harödiskur, 16 MHz 68030 örgjörvi, Kerfi 7.Í, skjár með
512 x 384 punkta upplausn, innbyggður hljóðnemi og
hátalari auk margs annars. Þar fyrir utan má tengja við
tölvuna ýmis jaðartæki, t.d. prentara, skanna, auka-
harðdisk og geisladrif.
Apple-umboðið
*r' Skipholti 21, Rvk. Sími: 91-624800