Morgunblaðið - 12.09.1993, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
Clinton Bandaríkjaforseti býr sig undir vaxandi mótbyr á þingi
Barist gegn fríverslun og
nvju sjúkratryggingakerfi
BILL Clinton kom nýlega heim til Washington úr fyrsta leyfinu
sem hann hefur tekið sér eftir að hann varð Bandaríkjaforseti.
Hann hafði eytt tímanum við golf á svölum grundum Víngarðs
Mörtu, eyjar undan ströndum Nýja-Englands en nú tók við illþol-
andi sumarsvækjan í höfuðborginni. Pólitíska veðurfarið er ekki
heldur gott. Efnahagurinn virtist um hríð vera að rétta úr kútn-
um en nú er spáð aðeins 2% hagvexti á árinu, ekki rúmlega 3%
eins og fyrir nokkrum mánuðum. Stuðningur almennings við íhlut-
un í Sómalíu fer minnkandi, stefnan í Bosníumálunum er ekki
trúverðug og mörgum Bandaríkjamanninum finnst að landið sé
í þessum málum orðið að gisl í höndum Sameinuðu þjóðanna.
Clinton tókst að vísu með naumindum að þröngva fjárlögunum
í gegn um þingið en forsetinn mætir æ harðari andstöðu við tvö
stórmál; samninginn um Fríverslunarbandalag Norður-Ameríku,
NAFTA, og hugmyndir sínar um endurbætur á heilbrigðiskerfinu.
Stund milli stríða
CLINTON Bandaríkjaforseti var nýlega í Flórída þar sem hann
kannaði ástand mála á svæðum sem urðu illa úti er fellibylurinn
Andrés geisaði þar í fyrra. Hér sést hann slaka á með dóttur
sinni, Chelsea.
Ráðgjafar forsetans eru margir
hræddir um að Clinton eigi
fyrir höndum beiska ósigra á þingi
næstu tvo mánuðina er hann reyn-
ir að þoka þessum tveim mikilvægu
málum áleiðis. Bent er á að átrún-
aðargoð Clintons, Franklin Roose-
velt, þurfti að beijast við sameinað
þingmannalið repúblikana og all-
margra íhaldss-
amra demókrata
frá Suðurrílq'un-
um á fjórða ára-
tugnum er hann
reyndi að koma
á ýmsum breyt-
ingum í anda
aukinna ríkisumsvifa; frá 1937
tókst þeim yfirleitt að stöðva fram-
gang þessara mála. Þótt langt sé
um liðið er þetta mynstur að
nokkru leyti enn fyrir hendi á þingi.
Gagnrýnendur Clintons segja
hann ekki hafa gert sér grein fyrir
því að hann verði að sveigja stefnu
sína meira inn á miðju hins póli-
tíska litrófs ætli hann sér að vinna
meirihluta þingsins á sitt band.
Einnig sé ljóst að hann verði að
fá stuðning ýmissa miðjumanna
úr röðum repúblikana til að bæta
sér upp liðsflótta úr þingmannahóp
demókrata þegar erfiðasta hags-
munatogstreitan hefjist fyrir al-
vöru. Fram til þessa hefur hann
ekki sýnt neina viðleitni til að
treysta stöðu sína með þessum
hætti.
NAFTA í skotlínunni
Staðfesta verður NAFTA-samn-
inginn um fríverslun, sem Banda-
ríkjamenn, Kanadamenn og Mex-
íkanar hyggjast gera með sér, fyr-
ir árslok til að halda áætlun. Óttinn
við samkeppni hefur valdið því að
öflug hagsmunasamtök í Banda-
ríkjunum reyna nú allt sem þau
geta til að fella samninginn. Er
óspart spilað á ótta launþega við
að atvinnuleysi verði fylgifískur
NAFTA þegar láglaunaríkið Mex-
íkó fái óheftan
aðgang að
bandarískum
mörkuðum með
vörur sínar.
Clinton erfði
samninginn frá
forvera sínum,
George Bush, og segist styðja hann
en hefur verið svo tvíbentur í þeim
stuðningi að margir þingmenn hafa
talið alveg óhætt að fara sínu fram.
Klofningurinn í demókrataflokkn-
um vegna þessa máls er sagður
vera hinn dýpsti frá því í Víetnam-
stríðinu. Dick Gephardt, leiðtogi
meirihluta demókrata í fulltrúa-
deildinni, hefur lýst því yfír að
hann styðji ekki samninginn og
David Bonior, þingflokksstjórn-
andi, segist munu berjast gegn
NAFTA út í rauðan dauðann.
Flestir hafa talið víst að samning-
urinn fengi traustan meirihluta í
öldungadeildinni en á miðvikudag
fullyrti Max Baucus, áhrifamikill
demókrataþingmaður frá Mont-
ana, að tækist ekki að leysa deilur
um stuðning við hveitirækt við
Kanada myndu a.m.k. 15 af 100
liðsmönnum deildarinnar skoða
hug sinn vandlega áður en þeir
styddu samninginn.
Launþegasamtökin, umhverfis-
verndarsinnar, leiðtogar blökku-
manna, einangrunarsinnar af
hægri vængnum og að sjálfsögðu
Ross Perot, sem fékk nær fímmt-
ung atkvæða í forsetakosningun-
um, hafa nú einnig brugðið brandi
sínum gegn samningnum. Deilur
um 2.000 blaðsíðna plagg sem
Ijallar að miklu leyti um tollalækk-
anir á kúlulegum og rofum og þess
háttar tæknileg atriði eru orðinn
farvegur fyrir óánægju þjóðarinnar
með menningarlega hrörnun,
ótraustari efnahag og óteljandi
dæmi' um græðgi stjórnmálaleið-
toga í hvers kyns bitlinga og mút-
ur frá fulltrúum sérhagsmunaaf-
lanna.
Óreyndir lyálparkokkar
Sumir kenna óreyndum ráðgjöf-
um um vaxandi erfíðleika Clintons
á þingi. Hann hafí safnað í kring-
um sig of mörgum vinstrisinnuð-
um, Harvard-menntuðum ung-
mennum, fullum af heilagri vand-
lætingu krossfaranna. Sumt af
þessu fólki kunni hvorki mann-
ganginn né mannasiðina í stjórn-
málavafstrinu. Sem dæmi er nefnt
að Bob Dole, leiðtogi minnihluta
repúblikana í öldungadeildinni,
hafi þurft að fá lánað eintak af
heilbrigðismálatillögum vinnuhóps
forsetans hjá starfsbróður sínum
úr röðum demókrata.
Sjúkratryggingar og
atvinnuleysi
Margir demókratar á þingi eru
taldir ólíklegir til að styðja tillög-
urnar um tryggingakerfi fyrir þær
35 milljónir manna, talan er reynd-
ar umdeild, sem álitið er að njóti
ekki sjúkratrygginga í landinu.
Hagfræðingar launþegasamtak-
anna vara við því að verði lítil fyrir-
tæki á borð við veitingastaði neydd
til að kaupa sjúkratryggingar fyrir
starfsmenn sína muni launakostn-
aður þeirra geta vaxið um 50%. í
yfirgripsmestu skýrslunni fram til
þessa er því spáð að störfum fækki
um þijár milljónir verði tillögurnar
að veruleika.
Clinton hefur einmitt gert bar-
áttuna gegn atvinnuleysi að einu
helsta markmiði sínu og séu þessir
útreikningar hagfræðinganna rétt-
ir er erfítt að sjá hvernig forsetinn
ætlar að samræma sjónarmiðin.
„Þetta er svo fy'ári ósveigjanlegt,"
sagði einn af ráðgjöfum stjórnar-
innar um tillögudrögin. Hann telur
Clinton of hallan undir hefðbundna
vinstrimennsku. „Það er treyst í
blindni á verðstöðvun í staðinn fyr-
ir að láta markaðslögmálið um að
sníða af vankantana".
Er Clinton var kjörinn frambjóð-
andi demókrata var hann alment
talinnm geta endurnýjað demó-
krataflokkinn með því að hreinsa
af honum orðspor bruðls og allt
of mikilla ríkisumsvifa. Að þessu
leyti hefur hann valdið mörgum
vonbrigðum. Enginn virðist t.d.
hafa neina trú á því lengur að
hægt verði að fjármagna aukin
útgjöld ríkisvaldsins af trygginga-
kerfinu með sparnaði í rekstri eins
og stjórnvöld í Hvíta húsinu teysta
á. Grunsemdir aukast stöðugt um
að lausnin verði einfaldlega hærri
skattar.
Til atlögu við drekann
Þrátt fyrir margvíslega gagn-
rýni hljóta jafnt aðdáendur Clint-
ons sem sanngjamir andstæðingar
að hylla hann fyrir að leggja til
atlögu við jafn erfítt mál og heil-
brigðiskerfið þar sem þrautseig
hagsmunaöfl eru fyrir á hveiju
fleti. Kerfið er stórgallað, mun
dýrara en í öðmm vestrænum lönd-
um og afraksturinn samt lélegri
að mörgu leyti. Vandinn er sá að
Clinton hlaut aðeins um 43% at-
kvæða í nóvember sl. Þau 57% sem
ekki kusu hann völdu fremur Bush,
sem að minnsta kosti í orði kveðnu
var andvígur útþenslu ríkisbákns-
ins og Perot sem sennilega er það
í reynd. Clinton á því ekki hægt
um vik, getur ekki höfðað til þess
að meirihlutinn hafi sýnt vilja sinn
í forsetakjörinu og þarf auk þess
að beijast við uppreisnarmenn úr
eigin flokki á þingi.
BAKSVID
eftir Kristján Jónsson
HONDA, HONDA, HONDAH
91 HONDA ACCORD 2.2L EXI 4ra dyra, Deluxe útgáfa af Honda Acc-
ord, ekinn 45 þús. km. óaðfinnanlegur, vínrauður, ABS, hraðastilling,
rafmagn í rúðum, speglum, sæti, loftneti, samlæsingar, sóllúga, vindskeið-
ar, vökva- og veltistýri, sjálfskiptur, leðurstýri, sérinnrétting, 15“ álfelg-
ur, ný Michelin sumardekk, GoodYear vetrardekk, vél 150 din, bein inn-
spýting. Nýr 2.950.000 Verð/tilboð 1.850.000
92 HONDA CIVIC ESI 4ra dyra, ekinn 24 þús. km. eins og nýr, stein-
grár, sjálfskiptur, rafmagn í rúðum, speglum, samlæsingar, vökvastýri,
14“ felgur, VTEC 125 din 1600 vél, bein innspýting. Nýr 1.700.000
Verð/tilboð 1.500.000 UPPLÝSINGAR ( SÍMUM 91-654103, 678888.
BREYTT HEIMILISFANG
SKRIFSTOFUR LÍF E YRISSJ ÓÐANN A ERU
FLUTTAR FRÁ SKÓLAVÖRÐUSTÍG16
AÐ
SKIPHOLTI 50C,
105 REYKJAVÍK
LÍFEYRISSJÓÐUR VERKSMIÐJUF ÓLKS
LÍFEYRISSJÓÐUR SÓKNAR
LÍFEYRISSJÓÐUR VERKSTJÓRA
LÍFEYRISSJÓÐUR MATREIÐSLUMANNA
KYNNINGARKVOLD
DJUPSLOKUNARNAMSKEIÐ
Djúpslökun er leið til að losa þig við andlega og líkamlega vanlíð-
an. Djúpslökun gefur þér möguleika að uppgötva meira af sjálfum
þér og gerir þér kleift að nýta betur þá hæfileika sem í þér búa.
Vinsamlegast hafið með teppi og lak.
Leiðbeinandi;
Verð:
Tími:
Staður:
Erna Lúðvíksdóttir.
1.000 kr.
14. sept. kl. 19.30 (1 klst).
Hugland, Skeifunni 7, sími 8 11114.
ÚTSALA - ÚTSAIA
SÍÐASTIDAGUR!
ÍJLPUR MEÐ OG ÁN HETTU ÓTRÚLEGT ÚRVAL
LÉTTIR JAKKAR, ULLARJAKKAR OG KÁPUR.
Opið í dag, sunnud. kl. 10-17. Póstsendum.
sæ
Raðgreiðslur.
\<#HI/I5IÐ
Laugavegi 21, sími 25580
ÁRNAÐ HEILLA
Ijósmynd/ Herborg og Svava
HJÓNABAND. Gefin voru saman
þann 12. júní sl. af sr. Tómasi
Guðmundssyni í Kotstrandarkirkju,
Dagmar Björg Jóhannesdóttir og
Agúst Þór Gestsson. Heimili þeirra
er að Víkurbraut 50, Grindavík.