Morgunblaðið - 12.09.1993, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ARNÓR KRISTJÁN SIGURÐSSON,
Stekkjarkinn 15,
Hafnarfirði,
lést þann 5. september.
Jarðarför fór fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Sigurður Arnórsson, Þóra Flygenring,
Guðni Þór Arnórsson, Rósa Grétarsdóttir,
Þorgerður Arnórsdóttir, Grétar Eiríksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR GÍSLASON,
Efstasundi 16,
verður jarðsunginn frá Áskirkju, þriðju-
daginn 14. september
kl. 15.00.
Börn hins látna.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa-
langamma,
ANNA JÓNSDÓTTIR,
Skagabraut 37,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju, þriðjudaginn 14. septemþer
kl. 14.00.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu vinsamlegast láti Sjúkrahús
Akraness njóta þess.
Hörður Bjarnason, Guðrún Eyjólfsdóttir,
Geir Valdimarsson, Lóa Gísladóttir,
Jón Valdimarsson, Sigrfður Helgadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLGRÍMUR PÉTURSSON,
Hjallabraut 3,
Hafnarfirði,
sem lést 5. september sl., verður jarð-
sunginn frá Víðistaðakirkju, Hafnarifirði,
þriðjudaginn 14. september kl. 13.30.
Hulda Björgvinsdóttir,
Sigrún Hallgrímsdóttir, Ásgeir Þorsteinsson,
Stefán Hermanns,
Hulda Ásgeirsdóttir, Guðjón Guðmundsson,
Hilmar Ásgeirsson, Ingibjörg Helgadóttir,
Heimir Ásgeirsson og langafabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG THEÓDÓRSDÓTTIR,
Þórufelli 16,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, mánudaginn 13. septem-
ber kl. 15.00.
Sveinn Jóhann Sveinsson, Lilja Sveinsdóttir,
Bjarni Sveinsson, Lára Aðalsteinsdóttir,
Rúnar Loftur Sveinsson,
Elías Rúnar Sveinsson,
Guðmundur A.S. Grönli, Wenthe Grönli,
Marta María Sveinsdóttir, Gunnar Einarsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við fráfall
GUÐMUNDAR BRAGA
TORFASONAR.
Sonja Larsen Knútsdóttir,
Guðný Guðmundsdóttir,
Björk Jónasdóttir, Karl Kuschner,
Sjöfn Jónasdóttir,
Elfsabet Jónasdóttir, Rögnvaldur G. Einarsson,
Torfi Birgir Guðmundsson,
Berglind Guðmundsdóttir, Jón Helgi Sigurðsson,
og barnabörn.
Ingibjörg Theodórs-
dóttir - Minning
Fædd 7. júní 1918
Dáin 1. september 1993
Þegar konan mín hringdi til mín
í vínnuna og sagðist vera með sorg-
arfréttir frá Íslandi, spurði ég hana:
„Er það mamma?“ Það er bara
hálft ár síðan pabbi kvaddi þennan
heim eftir langa og harða baráttu
síðustu árin. Allan tímann bjó hann
heima og allan tímann hjúkraði
mamma honum, þótt hún væri slæm
til heilsu sjálf.
Við töluðum um þegar pabbi dó,
að nú gæti mamma slappað aðeins
af og reynt að safna kröftum að
nýju, hugsa svolítið um sjálfa sig
og gert það sem hún vildi. Mamma
varð 75 ára 7. júní þetta ár, og af
því tilefni buðu böm hennar henni
til Noregs í heimsókn til mín.
Þetta var í fyrsta skipti í sjö ár
sem hún var hjá okkur, vegna veik-
inda pabba. Það mátti sjá að eftir
fyrstu vikuna í „letinni" var hana
farið að klæja í finguma eftir að
gera eitthvað þarflegt. Það er ekki
furða eftir að hafa verið samfellt í
vinnunni í 50 ár, því að þannig var
lífið hjá móður minni.
Við vorum sjö systkini sem ól-
umst upp saman hjá mömmu og
pabba við fjárhagslega hörð lqor.
Við vorum þó ein ríkasta fjölskyida
landsins þegar talað er um móður-
ást. Ég hef oft og mörgum sinnum
látið hugann reika til baka til upp-
vaxtar míns og allt það sem Ingi-
björg móðir mín lagði af mörkum
fyrir mig og systkini mín frá fæð-
ingu og þar til við fluttumst að
heiman og eftir það.
Það er ekki hægt með fáum orð-
um að þakka fyrir lífíð sem mamma
gaf okkur bömunum og þakka fyr-
ir þá væntumhyggju sem hún sáði
í okkur. —
Allan tímann var hún að hjálpa
öðrum áður en hún hugsaði um
sjálfa sig. Það var alltaf mikið um
fólk í heimsókn hjá okkur og maður
gat verið viss um að mamma væri
búin að baka hálfan metra (uppá-
við) af pönnukökum kl. 15 hvem
sunnudag. Þá mætti öll fjölskyldan
heima hjá mömmu og pabba án
þess að tilefnið væri sérstakt.
Móðir mín var af þeirri kynslóð
sem ólst upp og ól upp böm áður
en það varð venjulegt að hejtt vatn
og þvottavél væru í hveiju húsi.
Ein af mínum fyrstu minningum
um móður mína er frá þeim tíma
þegar við bjuggum inni í Herskála-
kamp við Suðurlandsbraut. Mamma
fór með okkur krakkana niður í
þvottalaugarnar í Laugardalnum.
Það var um það bil fjögurra km
ganga með þvottinn og krakkana í
halarófu á eftir. Hún þvoði þvottinn
í heitu vatni sem rann þama á
staðnum. Þegar þvotturinn var
hengdur til þess að láta vatnið
renna úr honum var öllu liðinu skellt
í sturtu sem maður gat notfært sér
á staðnum. Þetta var fyrir mig allt-
af hápunktur þvottalaugaferðanna.
Það hefur mikið breyst frá þeim
tíma á Islandi, bæði til hins betra
og verra. Mamma og pabbi vom
gift í 48 ár eða þar til pabbi dó fyrr
á þessu ári. Það hef ég oft hugsað
um, hversu gott það var að fá að
alast upp á slíku fínu heimili sem
mamma og pabbi sköpuðu okkur.
Þetta em fá orð til móður minnar,
sem ég lít á sem eina af íslands
stóm hetjum.
Blessuð sé minning þín, móðir
mín.
Guðmundur.
Einn er sá sem bíður þín
er þú gengur þínar eigin götur.
Hann bíður þess að
þú snúir við og komir til hans,
því að hann elskar þig.
Það er Jesús.
Hann vill hjálpa þér,
hann einn mepar það.
Hann hinn máttugi frelsari.
Komdu því til hans.
Þessu versi hafði mamma trú á.
En mikið er skrítið að hugsa til
þess að móðir mín sé dáin, hún var
alltaf til staðar þegar ég þurfti á
henni að halda, alltaf heima. Það
er ekki nema hálft ár síðan við
kvöddum pabba sem dó í febrúar
síðastliðinn, en þeim mömmu varð
sjö bama auðið, sex drengja og
einnar stúlku. Það var mikil vinna
hjá þeim að koma þessum hópi
upp, en með dugnaði fórst þeim það
vel úr hendi.
Mér varð hugsað til þess þegar
ég var sex til sjö ára, þá bjuggum
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Boðahlein 20,
Garðabæ.
Guðrún Ágústa Óskarsdóttir,
Haraldur Baldursson, Gyða Guðmundsdóttir,
Birna Baldursdóttir, Svavar Davíðsson,
Lilja Hanna Baldursdóttir, Atli Aðalsteinsson,
börn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SIGRÚNAR BALDVINSDÓTTUR,
fyrrum húsfreyju f Ásbyrgi.
Sigurveig Erlingsdóttir, Jónas Jónsson,
Hulda Erlingsdóttir, Jónas Hallgrímsson,
Kristín Erlingsdóttir, Hrafn Magnússon,
Baldvin J. Erlingsson, Guðrún H. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
við á Grundarstígnum, en við
mamma fórum þá oft inn í þvotta-
laugar til að þvo þvott. Þar var
mamma að þvo allan daginn og ég
fékk að þvo líka á litlu bretti. Aldr-
ei heyrði maður mömmu kvarta þó
að þægindin væru ekki til staðar,
heldur leysti hún starf sitt vel af
hendi.
Þegar ég var unglingur og var
að fara út að skemmta mér byijaði
kvöldið hjá okkur vinkonunum oft
hjá mömmu og þá var hún að spá-
í bolla fyrir okkur og það var oft
glatt á hjalla þá.
Það sem einkenndi móður mína
var létta skapið og hennar mikla
gjafmildi. Henni fannst hún alltaf
verða að gefa öllum það sem hún
átti, en hún sagði oft að guð gæfi
það til baka hinum megin.
Mamma átti 15 barnaböm og ég
veit að þau eiga eftir að sakna þess
að fá ekki ullarsokkana og vettling-
ana sem amma pijónaði á þau, en
þau eiga sjálfsagt eftir að njóta
þeirra áfram því að amma var búin
að pijóna það mörg pör á þau í
gegnum árin.
Þegar ég er að skrifa þessar lín-
ur, segir sonur minn með trega að
hann sakni þess svo að fá ekki
pönnukökurnar hjá ömmu á sunnu-
dögum, en mamma var sérfræðing-
ur í að baka þær. Það var viðkvæð-
ið hjá mömmu að það væri sama
hvort menn voru skyldir eða óskyld-
ir, aldrei færi neinn svangur frá
hennar heimili.
Mig langar til að þakka Guð-
mundi bróður og hans fjöiskyldu
fyrir þær ánægjulegu vikur í ágúst-
mánuði síðastliðnum sem mamma
var hjá þeim í Noregi.
Það eru ótal minningar sem koma
upp í huga mér núna sem væri of
langt mál að skrifa um. En við
geymum minningamar um góða
móður í huga okkar.
Foreldrar mínir voru gift í 49 ár,
en aðskilnaðurinn var ekki nema
sex mánuðir. Ég veit að þau hafa
hist á ný. Ég vona að góði Guð
gefi okkur styrk núna, því að stórt
skarð er höggvið í fjölskyldu okkar.
Fyrir aðeins einu og hálfu ári misst-
um við bróður okkar, en nú veit ég
að þau era öll komin saman. Ég
bið góðan Guð að geyma þau.
Marta Sveinsdóttir
ogfjölskylda.
Blómastofa
Friöfinm
Suðuriandsbraut 10
108 Reylqavík. Sími 31099
Opiö öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öil tilefni.
Gjafavörur.