Morgunblaðið - 12.09.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
31
Söluaukning
HUGI Hreiðarsson markaðssijóri garnbúðarinnar Tinnu afhend-
ir Margréti Andreasdóttur og Hafsteini Ágústssyni, eigendum
verslunarinnar Innrömmun og hannyrðir, viðurkenningarskjöld
vegna aukinnar garnsölu.
Gam selt í átján
hundruð peysur
EIGENDUM verslunarinnar
Innrömmun og hannyrðir í
Mjódd var nýlega veittur við-
urkenningarskjöldur fyrir
söluaukningu. Síðustu tólf
mánuði hefur sala verslunar-
innar á garni aukist um 65%
og lætur nærri að garn hafi
verið selt í 1.800 peysur, að
því er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
Það var garnbúðin Tinna sem
veitti viðurkenninguna, en fyrir-
tækið flytur inn garn frá verk-
smiðjunni Sandnes í Noregi.
Innrömmun og hannyrðir flutti
í nýtt húsnæði fyrir ári, en var
áður við verslunarmiðstöðina í
Leirubakka. Eigendur verslunar-
innar eru hjónin Hafsteinn Ág-
ústsson og Margrét Andreas-
dóttir.
Forsætisráðuneytið
Nefnd vegna
lýðveldis-
hátíðar
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
skipað nefnd er geri tillögur til
ríkisstjórnar um og undirbúi há-
tíðarhöld i tilefni af þvi að hálf
öld er liðin frá stofnun lýðveldis
á íslandi árið 1994.
I nefndinni eiga sæti Matthías
Á. Mathiesen fv. utanríkisráðherra,
sem er formaður nefndarinnar, Jón
Helgason alþingismaður, Svavar
Gestsson alþingismaður, Elín G.
Ólafsdóttir kennari, Þuríður Páls-
dóttir yfirkennari, Haraldur Bessa-
son rektor og Ingólfur Margeirsson
rithöfundur.
----♦ ♦ ♦--
Dræm veiði
loðnumiðum
DRÆM veiði hefur verið á loðnu-
miðunum. Loðnan er fremur
dreifð og hvassviðri hefur hamlað
veiðum. Rúmlega 310 þúsund tonn
hafa borist á land á vertiðinni.
Bjami Ólafsson AK var á leið til
Akraness á föstudag með 1.050 tonn
af loðnu en siglingin þangað af mið-
unum er um 50 tímar. Stefán Ragn-
arsson skipstjóri sagði að dræm veiði
hefði verið á miðunum. Hann sagði
að loðnan gengi dreifð og hvassviðri
hefði gert skipunum erfitt fyrir við
veiðarnar.
Nefnd fjallar
um prófanir
og eftírlit
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
skípað nefnd er hefur það hlut-
verk með höndum að móta sam-
ræmda heildarstefnu á sviði skoð-
unar, prófunar og eftirlits á veg-
um hins opinbera.
Meginverkefni nefndarinnar eru
eftirfarandi:
- að gera úttekt á umfangi og eðli
opinberrar eftirlits- og öryggis-
starfsemi í landinu.
- að meta á hvem hátt samræm-
ingu og samþáttun verkefna hjá
ólíkum eftirlits-, skoðunar- og
prófunaraðilum verður við komið.
- að láta gera hagkvæmnismat með
samanburði núverandi fyrirkomu-
lags við líklega valkosti.
- að láta endurskoða gildandi reglu-
gerðir.
- að gera tillögu um framtíðarskip-
an.
Tillaga nefndarinnar um framtíð-
arskipan skal miða að eftirtöldum
markmiðum:
- að heildarkostnaður við opinbert
eftirlit lækki.
- að þjónusta á sviði prófunar,
skoðunar go eftirlits batni.
- að hagrætt verði í eftirlitsstarfi
hins opinbera með samræmingu
aðgerða skyldra aðila og sam-
þættingu verkefna.
- að beinn kostnaður hins opinbera
lækki með flutningi þjónustu frá
ríki og sveitarfélögum út á fijáls-
an markað.
- að beina gjaldtöku til þeirra aðila
sem þjónustunnar njóta.
Er nefndarmönnum ætlað að ljúka
störfum fyrir áramót.
í nefndinni eiga sæti Eyjólfur
Sveinsson, forsætisráðuneyti, sem
er formaður nefndarinnar, Ari Ed-
wald, dómsmálaráðuneyti, Sturlaug-
ur Tómasson, félagsmálaráðuneyti,
Halldór Árnason, fjármálaráðuneyti,
Dögg Pálsdóttir, heilbrigðis- og
tiyggingamálaráðuneyti, Sveinn
Þorgrímsson, iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneyti, Brynjólfur Sandholt,
landbúnaðarráðuneyti, Ragnhildur
Hjaltadóttir, samgönguráðuneyti,
Halldór Árnason, sjávarútvegsráðu-
neyti, og Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
umhverfisráðuneyti. Hagsýsla ríkis-
ins mun Ijá nefndinni starfsmann.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og iangafi,
POULO. BERNBURG
hljómlistarmaður,
Stigahlfð 12,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt laugardagsins 11. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingunn Bernburg,
Gunnar Bernburg, fris H. Bragadóttir,
Kristján Bernburg, Thérése De Cauwer Bernburg,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall ástkærrar eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
VILBORGAR JÓNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
(rafossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Vífilsstaðaspítala.
Jón Þorvarðarson,
Guðmundur Jónsson, Ólína Melsteð,
Rósa B. Jónsdóttir, Jóhann Jónsson,
Friðgeir Jónsson, Árný V. Steingrfmsdóttir,
Sigrfður H. Jónsdóttir, Bjarni Helgason,
Bryndís I. Jónsdóttir, Árni Björnsson,
Helgi Jónsson, Gréta Skaptadóttir,
Hallfríður J. Jónsdóttir, Ingvar Á. Oskarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birtíng afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsfjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Akjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi.
Waldorfbrúðugerð
Kvöld- og helgarnámskeið.
Upplýsingar í síma 44637.
Hildur Guðmundsdóttir.
MÁLW-mmusT
Dag- og kvöldtímar fyrir byrjendur og lengra
komna. Málað með vatns- og olíulitum.
Undirstöðuatriði og tækni. Myndbygging.
Upplýsingar og innritun eftir kl. 13.00 alla
daga. Kennari Rúna Gísladóttir listmálari,
simi 611525.
V___________________________^
Laufið
Frönsku stretchbuxumar vinsœlu komnar. Nýir litir.
Fallegar peysur - hagstœtt verð
, Iðnaðarhúsinu, s. 11845.
JUDOOCKARATE <
AIKIDO OC TAEKWON-DO
FYRIR KRAKKAÁ
ALDRINUM 6-12 ÁRA
INNRITUN
HAFIN.
ELDRI
NEMENDUR
VELKOMNIR
BUÞOPEILD ÞRÓTTAR
MÖRKIN 8, V/SUÐURLANDSBRAUT, SIMI 679400
IQd(n8
skólatilboð
Lágir Svartir Stærðir 31-41 Verð 4.500,- Grófur sóli
Háir
Svartir
Stærðir: 31-41
Verð 4.900,-
Grófur sóli
Póstsendum samdægurs
Skóverslun Kópavogs
Skór og sportvörur
Hamraborg 3 sími 41754