Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 33
JHergpinfrta&tfc
ATVINNURAD-
OG SWIÁAUGLÝSINGAR
i AUGLYSINGAR
ffl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Fóstra, þroskaþjálfi eða starfsmaður með
aðra uppeldismenntun óskast í stuðnings-
starf í leikskólann Brekkuþorg.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 679380.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Fulltrúastarf
Einkaleyfastofan óskar að ráða starfsmann
í heilsdagsstarf frá 15. nóvember næstkom-
andi.
Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum við
skráningu vörumerkja og einkaleyfa. Tölvu-
vinnsla tengist öllum þáttum starfsins.
Reynsla í notkun tölva og í almennum skrif-
stofustörfum er því mikilvæg.
Viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslensku
máli. Kunnátta í ensku og Norðurlandamál-
um er mikill kostur.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar í
síma 91 -609450, daglega milli kl. 10 og 12.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsfer-
il, fyrri störf og færni á ofangreindum svið-
um, sendist Einkaleyfastofunni, Lindargötu
9, 150 Reykjavík, fyrir 22. september nk.
Snyrtivöruverslun
Starfskraftur vanur í sérverslun óskast strax.
Vinnutími frá kl. 13.00-18.00.
Æskilegur aldur 25-35 ár.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
17. september merktar: „GT 3861".
Lánasérfræðingur
á Norðurlandi
Þjónustufyrirtæki á fjármálasviði auglýsir
nýja stöðu sérfræðings í lánamálum á Norð-
urlandi. Sérfræðingurinn mun hafa aðsetur
á Akureyri.
Helstu verkþættir starfsins:
★ Aðgerðaráætlanir í lánamálum.
★ Afgreiðsla lánamála.
★ Eftirlit með lánamálum/lánþegum.
Kröfur til umsækjenda:
★ Viðskiptafræðingur eða önnur sambæri-
leg menntun.
★ Frumkvæði og eftirfylgni í starfi.
★ Lipurð í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Sérfræðingur 165“, fyrir 20. september nk.
Hasyaneurhf
IL
ST. JÓSEFSSPlTALl
LANDAKOTI
Laus er til umsóknar staða yfirdeildarstjóra
á röntgendeild Landakotsspítala. Um er að
ræða stjórnunarstarf, en æskilegt er að við-
komandi hafi góða kunnáttu í tölvusneið-
mynda- og ísótóparannsóknum.
Laun samkvæmt kjarasamningi Röntgen-
tæknafélags íslands og St. Jósefsspítala,
Landakoti.
Upplýsingar veitir Guðrún Friðriksdóttir í
síma 604354.
Aðalbókari
Fyrir hönd umbjóðanda okkar auglýsum við
eftir aðalbókara. Umbjóðandi okkar er stórt
fyrirtæki í Reykjavík. Umsækjendur þurfa að
hafa góða reynslu af alhliða bókhaldsstörfum
og vera vel menntaðir á því sviði.
Umsóknir sendist til Endurskoðunar og
reikningsskila hf. fyrir 20. september nk.
merktar: „Aðalbókari".
Endurskoðun og reikningsskil hf.,
Stangarhyl 5,
110 Reykjavík.
Þjónustustjóri
Stórt framleiðslufyrirtæki í Reykjavík óskar
að ráða þjónustustjóra til starfa. Um er að,
ræða bæði sölu- og viðgerðarþjónustu.
Starfsmannafjöldi deildarinnar verður 4-6
menn.
Hjúkrunarfræðingar
- hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast sem fyrst, eða
eftir nánara samkomulagi, til starfa við
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði.
í boði eru góð laun, góður ferðastyrkur, hús-
næði á staðnum og barnagæsla.
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra-
hús méð sex stöðugildi hjúkrunarfræðinga.
Sjukrahúsið er flutt í nýtt húsnæði þar sem
öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er
mjög góð.
Aðalviðfangsefnin eru á sviði öldrunarhjúkr-
unar, en einnig er fengist við margskonar
medicinsk vandamál, bæði bráð og langvar-
andi.
Ýmis sérstök heilbrígðisvandamál eru einnig
tekin til meðferðar á sjúkrahúsinu. Nætur-
vaktir hjúkrunarfræðinga eru í formi bak-
vakta, heima.
Hafir þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj-
andi starfi með góð laun, hafðu þá samband
við Þóru (hjúkrunarforstjóra) í síma 97-21406
sem gefur nánari upplýsingar.
Sjúkrahús Seyðisfjarðar.
Sölumaður
Óskum að ráða sölumann til starfa hjá fyrir-
tæki í fiskútflutningi.
Starfssvið sölumanns: Öflun hráefnis. Er-
lend markaðssetning og framkvæmd sölu.
Gerð samninga við erlenda kaupendur og
innlenda framleiðendur.
Við leitum að manni með reynslu af er-
lendri sölustarfsemi og þekkingu á sjávarút-
vegi og fiskvinnslu. Góðir tekjumöguleikar
fyrir duglegan og áhugasaman sölumann.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Sölumaður - 224“ fyrir 18. sept-
ember nk.
Þjónustustjóra er ætlað að móta deildina
og nýtingu þeirra sölutækja sem henni til-
heyra, afla nýrra viðskiptasambanda og
styrkja þau sem fyrir eru.
Við leitum að framsæknum og skipulögðum
stjórnanda til að takast á hendur nýtt og
krefjandi starf. Þarf að hafa haldgóða tækni-
þekkingu og söluhæfileika. Starfsreynsla er
skilyrði.
í boði er framtíðarstarf hjá traustu og ábyrgu
fyrirtæki sem býður góðum starfsmanni
áhugavert tækifæri.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Þjónustustjóri 205“ fyrir 21. sept-
ember 1993.
Hagvaneur hf
Hagvangur hf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir