Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
35
ATVINNUA UGL YSINGAR
Sölumaður
Matvælafyrirtæki á Norðurlandi óskar eftir
að ráða sölumann til starfa á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
Umsækjendur sendi inn upplýsingar um ald-
ur og fyrri störf til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „Sölumaður K - 2“.
Innkaupastjóri
Þekkt og traust framleiðslufyrirtæki
á matvörumarkaðnum óskar að ráða
innkaupastjóra.
Starfið:
★ Innkaup hráefna og sérvara.
★ Samningagerð með það að markmiði að
fá mestu gæði á hagstæðu verði.
★ Leit að hentugum vörum á
vörusýningum.
Hæfniskröfur:
Leitað er að ungum viðskiptamenntuðum
aðila með a.m.k. 2 ára starfsreynslu. Við-
komandi þarf að hafa næmt markaðsinnsæi
og vera fastur fyrir í samningum. Góð
enskukunnátta og Norðurlandamál skilyrði.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússon frá
kl. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Innkaupastjóri" fyrir 18.
september nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Framleiðslustjóri
íslenska saltfélagið hf. á Reykjanesi óskar
nú þegar að ráða framleiðslustjóra til þess
að annast daglega stjórnun og sjá til þess
með frumkvæði sínu að skipulag og rekstur
verksmiðjunnar gangi vel. Framleiðslustjór-
inn er yfirmaður fyrirtækisins hér á landi.
Verksmiðjan framleiðir matarsalt og nýþróað heilsusalt með eimingu
á jarðsjó. Framleiðslan er samfelld, 24 klst. á sólarhring 7 daga vik-
unnar í tœrandi umhverfi, sem gerir miklar kröfur um áreiðanlegt
fyrirbyggjandi viðhald.
Verksmiðjan, sem er ný, samanstendur af rörum, tönkum, eimingar-
kerfum, dælum, lokum og stýribúnaði, skilvindum og þurrkurum auk
búnaðar til þurrvinnslu á salti. Framleiðslan er hafin og unnið er að
endanlegri skipulagningu framleiðslunnar og að ná stöðugleika í
rekstrinum.
Starfsmenn eru 35, þar með talið starfsmenn á rannsóknar- og til-
raunastofu og viögerðar- og viöhaldsdeild.
Starfið krefst háskólamenntunar á sviði
framleiðslustjórnunar og a.m.k. 5 ára starfs-
reynslu við hliðstætt stjórnunarstarf í fram-
leiðslufyrirtæki, þar sem viðkomandi hefur
borið ábyrgð á áætlanagerð og framleiðslu-
stjórnun. Þekking á matvælaframleiðsu er
æskileg, góð enskukunnátta nauðsynleg. .
Við bjóðum sjálfstætt ábyrgðarstarf í ungu
og kraftmiklu fyrirtæki sem hefur umtals-
verða vaxtarmöguleika.
íslenska saltfélagið er dótturfyrirtæki fyrirtækisins Saga Food Indg-
redients A/S, sem er í meirihlutaeign hollenska fyrirtækisins Akzo
Chemicals, sem er eitt af stærstu fyrirtækjum Hollands og stærsti
saltframleiðandi í heiminum. Aðrir eigendur eru íslenskir sjóðir og
íslensk fyrirtæki og eitt danskt fyrirtæki.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir á
dönsku eða ensku til Ráðningarþjónustu
Hagvangs hf., merktar: „Framleiðslustjóri
225“, fyrir 22. september nk.
Hasva ngurhf
L—7' Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Auglýsingahönnun
á Akureyri
Fyrirtækið er gróskumikil prentsmiðja og
útgáfufélag á Akureyri.
Starfið felst í hönnun á auglýsingum, bækl-
ingum og öðru kynningarefni. Allt hjá fyrir-
tækinu er unnið með aðstöðu tölvu. Um
framtíðarstarf er að ræða og aðstoðað verð-
ur við útvegun húsnæðis.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi sé vanur
auglýsinga- og tímaritahönnun. Menntun frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands eða sam-
bærilegum skóla æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 17. septem-
ber nk. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólavörðustíg 1a - 101 Reykjavlk - Sími 621355
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra Reykjanesi
Forstöðumaður og
deildarþroskaþjálfar
óskast!
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykja-
nesi óskar eftir að ráða til starfa forstöðu-
mann við sambýli fatlaðra í Njarðvík.
Óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðrum fag-
menntuðum starfsmanni með uppeldisfræði-
lega menntun og reynslu af stjórnunarstörfum.
Ennfremur óskar Svæðisskrifstofan eftir að
ráða deildarþroskaþjálfa til starfa við sam-
býli fatlaðra í Kópavogi og Hafnarfirði.
Forstöðumenn og deildarþroskaþjálfar taka
þátt í framsæknu starfi í málefnum fatlaðra
á vegum Svæðisskrifstofu með öflugum fag-
legum stuðningi í formi handleiðslu, nám-
skeiða og víðtæku faglegu samstarfi með
öðrum stjórnendum hjá Svæðisskrifstofu.
Umsóknarfrestur er til 24. september.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 641822
og umsóknareyðublöð liggja frammi á Svæð-
isskrifstofu Reykjaness, Digranesvegi 5 í
Kópavogi.
Ifl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með upp-
eldismenntun óskast til starfa á eftirtalda
leikskóla:
Fellaborg v/Völvufell, s. 72660.
Eingöngu í 50% starf e.h. á eftirtalda leik-
skóla:
Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855.
Heiðarborg v/Selásbraut, s. 77350.
Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860.
Steinahlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280.
Ægisborg v/Ægisfðu, s. 14810.
Einnig vantar fólk með sömu menntun í 50%
starf e.h. á skóladagheimilið Stakkakot
v/Bólstaðarhlfð, s. 814776.
Þá vantar starfsmann með sérmenntun í
stuðningsstarf á leikskólann Njálsborg
v/Njálsgötu, s. 14860.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar og forstöðumenn.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
- 1 Jóhann Ólafsson & Co
★ Sölustjóri
Óskum að ráða sölustjóra til starfa hjá fyrir-
tækinu Jóhann Ólafsson & Co. hf.
Starfssvið sölustjóra:
★ Erlend innkaup, samningagerð og birgða-
stýring.
★ Dagleg stjórnun, skipulagning og fram-
kvæmd sölu.
★ Skipulagning og framkvæmd markaðs-
setningar, vörukynninga og auglýsinga.
★ Efling tengsla við núverandi viðskipta-
vini, öflun nýrra og greining á þörfum
þeirra fyrir vörur og þjónustu.
Við leitum að manni með reynslu af sjálf-
stæðum og skipulögðum vinnubrögðum.
Þekking og reynsla af störfum við heildsölu-
dreifingu nauðsynleg. Mjög góð enskukunn-
átta nauðsynleg. Algjör krafa um sjálfstæð
vinnubrögð og frumkvæði. Viðkomandi þarf
að vera reiðubúinn til að axla ábyrgð og
starfa markvisst að settum markmiðum.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okk-
ar, merktar: „Sölustjóri 160“, fyrir 20. sept-
ember nk.
Haeva ngurM
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Sölustarf.
Mata hf., innflytjandi á ferskum ávöxtum og
grænmeti, óskar eftir að ráða nú þegar sölu-
mann til starfa.
Leitað er að duglegum, „reyklausum" ein-
staklingi. Æskilegt er að viðkomandi hafi
reynslu af sölumálum og eigi gott með að
umgangast fólk.
Nánari upplýsingar veitir Eggert Á. Gíslason
í síma 91-681300.
Skriflegar umsóknir sendist til Mata í síðasta
lagi 16. september 1993.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Frá Háskóla íslands
Háskólabókasafn óskar eftir að ráða eftirfar-
andi starfsmenn til tímabundinna starfa.
Tvo bókaverði. Menntun í bókasafnsfræði
eða önnur háskólamenntun æskileg.
Aðstoðarmann til ýmissa starfa í bókasafn-
inu. Góð almenn menntun æskileg.
Launakjör samkvæmt samningum opinberra
starfsmanna.
Upplýsingar um störfin veitir háskólabóka-
vörður í síma 694324.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Háskóla íslands, starfs-
mannasviði, aðalbyggingu fyrir 20. septem-
ber nk.