Morgunblaðið - 12.09.1993, Qupperneq 36
86
ATVINI\IA/RÆ^/&WIÁ;$lMMWUi£t sropgææKE»'.flMB
ATVINNUAUGl YSINGAR
Skósmiður
Vegna mikillar vinnu óskum við eftir að ráða
skósmið, meistara eða svein.
Vinsamlega skilið inn umsóknum á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „T - 4743“.
D D
i
KRINGLUNNI
SKOVIÐGERÐIR LYKLASMIÐI SKILTAGERÐ HNIFABRYNING
Lítil fiskvinnslustöð
með búnað til frystingar, söltunar og fersk-
fisksvinnslu, og er í nálægð við fiskmarkaði,
óskar eftir samstarfsaðila. Sameign og stjórn
á vinnslu og útflutningi höfð í huga.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „S - 10953“, fyrir 30. september nk.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Yfirmaður
launadeildar
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar eftir
að ráða til starfa yfirmann launadeildar. í
starfinu felst umsjá launa- og starfsmanna-
málefna fyrir stofnunina, túlkun kjarasamn-
inga auk ýmissa sérverkefna varðandi launa-
og starfsmannamál. Viðskiptafræði- eða
hagfræðimenntun og/eða reynsla á þessu
sviði æskileg.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 94-4500 eða í hs. 94-4660.
Skrifstofustarf
Bandalag íslenskra skáta óskar eftir að ráða
konu/mann til almennra skrifstofustarfa sem
fyrst. Leitað er að starfsmanni sem getur
starfað sjálfstætt, hefur metnað, frumkvæði
og reynslu m.a. í ritvinnslustörfum. Þekking
á starfsemi skátahreyfingarinnar er æskileg
en þó ekki nauðsyn.
Umsóknir ásamt nauðsynlegum upplýsing-
um sendist skrifstofu BIS, Snorrabraut 60,
105 Reykjavík, fyrir 18. september 1993.
Deildarstjóri
hugbúnaðar
Þekkt fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og
þjónustu óskar að ráða deildarstjóra.
Starfið: Stjórnun tækni- og söludeildar.
Áætlana- og tilboðsgerð ásamt virkri þátt-
töku í beinni sölu og markaðssetningu.
Leitað er að vel kynntum aðila með góð
sambönd og haldgóða reynslu af sjálfstæð-
um ábyrgðarstörfum gjarnan tengt fjármál-
um og samningagerð.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitirTorfi Markússonfrá
kl. 9-12 í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs merktar: „Deildarstjóri11, fyrir 23.
sept nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
A
iS&J
KOPAVOGSBÆR
Laus störf við
Sundlaug Kópavogs
Laus eru störf við baðvörslu kvenna og laug-
arvörslu. Góð sundkunnátta áskilin.
Upplýsingar um störfin gefur forstöðumaður
Sundlaugar Kópavogs í síma 642560.
Umsóknarfrestur er til 20. september nk.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra.
Laust starf skólaritara
Starf skólaritara við Kópavogsskóla er laust
til umsóknar.
Starfið er tímabundið afleysingastarf.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 40475.
Umsóknum ber að skila til starfsmannastjóra
fyrir 20. september nk.
Starfsmannastjóri.
Þjónustufulltrúi
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur að
bæta við þjónustufulltrúa. Við auglýsum eftir
ábyrgum aðila til að hafa yfirumsjón með
ákveðnum verkefnum. Viðkomandi verður að
vera vel skipulagður og geta unnið sjálf-
stætt. Við leitum að aðila sem hefur reynslu
af eða áhuga á markaðsmálum og hefur
þekkingu á tölvum.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl.
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
fyrir 20. september merktar: „Gallup -
10849“.
Lærdómsríkt
sölustarf
Starfsfólk óskast til sölustarfa næstu fjóra
mánuði. Um er að ræða vandaða vöru sem
notið hefur hylli landsmanna.
Starfsmenn fá vandaða þjálfun, starfa í
skemmtilegu umhverfi og hljóta góða umbun
ef árangur er góður.
Vinsamlega leggið inn umsókn til auglýsinga-
deildar Mbl. merkta: „Sala - 12830“ fyrir 17.
september 1993.
BORGARSPÍTALINN
Lækningaforstjóri
Staða lækningaforstjóra á Borgarspítalanum
er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1.
janúar 1994 og verður ráðið í stöðuna til 5
ára. Um er að ræða nýja stöðu skv. nýsam-
þykktu skipuriti Borgarspítalans, sem tekur
gildi í upphafi næsta árs. Lækningaforstjóri
er yfirlæknir spítalans og læknisfræðilegur
forsvarsmaður stofnunarinnar út á við. Hann
á sæti í framkvæmdastjórn spítalans. Meðal
verkefna framkvæmdastjórnar eru stefnu-
markandi áætlanagerð, skipulagning á starf-
semi spítalans, fjárhagsáætlanagerð, sem
og kostnaðargát. Leitað er að lækni með
reynslu af störfum á sjúkrahúsi. Mikilvægt
er að viðkomandi hafi til að bera leiðtoga-
hæfileika, m.a. sköpunargáfu og hafi jákvæð
viðhorf til fólks. Hann þarf að vera tilbúinn
að leita nýrra lausna og eiga sér framtíðar-
sýn um gæðaspítala.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá fram-
kvæmdastjóra spítalans sem jafnframt tekur
við umsóknum um stöðuna.
Umsóknarfrestur er til 2. okt. nk.
Yfirverkstjóri
Frystihús á Austurlandi óskar eftir að ráða
í starf yfirverkstjóra/framleiðslustjóra. Starf-
ið er laust frá og með 1. október nk. Starfsem-
in er hefðbundin bolfisk- og síldarfrysting.
Starfsmenn eru um 70. Umsóknir óskast
sendar til Morgunblaðsins merktar: „MB -
1313“ fyrir 17. september nk.
Sölumaður óskast
Þekkt teppaverslun óskar eftir starfskrafti
sem gæti hafið störf 15. nóvember nk.
Snyrtilegur klæðnaður og fáguð framkoma
áskilin.
Umsókn með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf ásamt meðmælum sendist
fyrir 25. sept. nk. í pósthólf 8064,128 Reykja-
vík.
Hafnarfirði
Hjúkrunarfræðinga vantar á hjúkrunardeild
á kvöld- og helgarvaktir.
Sjúkraliða vantar í hlutastarf á hjúkrunar-
deild.
Starfskraft vantar í 50% starf á hjúkrunar-
deild við umönnun og afþreyingu heimilisfólks.
Upplýsingar um störfin gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 653000.
■\4oiuSau
SvmU
Framreiðslunemar
Óskum eftir nemum í framreiðslu.
Verða að geta hafið störf strax.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri á staðn-
um í Sigtúni 38, mánudag og þriðjudag, milli
kl. 15 og 18.
SÖLU- OG MARKAÐSSTARF
Stórt fyrirtæki í matvælaiðnaði á
höfuðborgarsvæðinu leitar eftir áhugasömum
sölumanni.
Óskað er eftir starfsmanni sem hefur reynslu
af sölustörfum á neytendamarkaði.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á
vinnubrögðum við markaðssetningu; hafa
frumkvæði að nýjum söluaðferðum og
jafnframt að sinna sölustörfum af fullum
krafti. Starfsmaður þarf að hafa bíl til
umráða. Starfið er lifandi og krefst
þjónustulundar og samstarfshæfileika.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Með
allar umsóknir verður farið með sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum verður
svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær
kröfur sem að ofan greinir er boðið að senda
inn umsókn fyrir 20. september nk. til:
jUSINNA hf.
REKSTRAR- OG STJÓRNUNARRÁÐGJÖF
Bæjarhrauni 12
220 Hafnarfjöröur
Sími 91-653335
Telefax 91-651212
KPMG Sinna hf veitir ráðgjöf á ýmsum sviðum
stjórnunar- og starfsmannamála og einnig sérhæfða
ráðningarþjónustu. KPMG Sinna hf er í samstarfi
við KPMG Management Consulting.