Morgunblaðið - 12.09.1993, Side 41
MORGUNBLABIÐ
%
I SEFl'EMBKR 1993
Túlkarnir spreyta sig
Islenskir túlkar æfðu sig í að túlka frá íslensku yfir á Norðurlanda-
málin á pallborðsumræðum í lok norræns túlkanámskeiðs.
Fáir íslenskir túlkar
þrátt fyrir aukna þörf
ÞRÁTT fyrir að íslendingar hreyki sér gjarnan af málakunnáttu sinni,
hefur þörfin fyrir túlka aukist með auknu ráðstefnuhaldi og starfi á
alþjóðavettvangi. Á námskeiði sem haldið var hér á landi fyrir nor-
ræna túlka í vikunni, kom fram að fáir íslenskir túlkar eru starfandi
hér, enn sem komið er. Talið er að þörfin fyrir túlka hérlendis aukist
á næstu árum, eins og raunin hefur orðið í öðrum Evrópulöndum, t.d.
innan Nörðurlandaráðs og Evrópubandalagsins.
Lars H. Anderssen, formaður
Félags löggiltra dómtúlka og skjala-
þýðenda, segir íslenska túlka nú
vera um tuttugu. „Hér á landi er
ekki boðið upp á neina menntun
fyrir túlka, þeir verða í raun að
þjálfa sig sjálfir. Mikilvægast er að
koma á aukinni samvinnu milli túlka
og ráðstefnuhaldara svo að túlkar
fái tækifæri til að æfa sig, en þeirra
starf tengist aðallega ráðstefnu-
haldi,“ segir Lars.
Á námskeiðinu, sem túlkar frá
öllum Norðurlöndunum sóttu, var
staða túlkunar á íslandi rædd í pall-
borðsumræðum. í þeim tóku þátt
Ársæll Harðarson, frá Ráðstefnu-
skrifstofu íslands, Kristján Árnason
frá íslenskri málnefnd, Snjólaug
Olafsdóttir, hjá íslandsdeildar
Norðurlandaráðs, Sveinn Jónsson
frá Radíóstofunni og Kate Kartsten
ráðstefnutúlkur frá Finnlandi. Allt
efni umræðanna var túlkað yfir á
hin Norðurlandamálin.
Staða íslenskunnar á alþjóðlegum
ráðstefnum, hvort heldur er hér eða
erlendis er engin, að sögn Kristjáns
Árnasonar. Sagði hann að þrátt fyr-
ir að íslendingar væru margir hveij-
ir stoltir af málakunnáttu sinni,
væri þátttaka þeirra á ráðstefnum
oftar en ekki þeim annmörkum háð
að þeir segðu það sem þeir gætu
en ekki alltaf það sem þeir ætluðu.
Vitnaði hann í formann dönsku
málnefndarinnar sem sagði það
grundvallaratriði í þátttöku þjóða í
alþjóðlegu samstarfi að allar þjóðir
gætu fengið vinnuskjöl og tjáð sig
á móðurmáli sínu.
Snjólaug Ólafsdóttir sagði það
vera draumsýn að ímynda sér að
kjarni málsins kæmist alltaf til skila
í túlkun á milli ólíkra mála, þó hún
væri ekki þar með að mæla gegn
túikum. Sagði Snjólaug það vera
ráðleggingu sína til allra þeirra sem
hygðust sækja ráðstefnur og fundi
að gera allt sem í þeirra valdi stæði
til að ná tökum á erlendum málum.
Auk þess hve fáir túlkar eru hér-
lendis, er tæknibúnaður og aðstaða
til túlkunar heldur bágborin, enda
varla markaður fyrir slíkan búnað
enn sem komið er. Þetta kom fram
í máli Sveins Jónssonar og Ársæls
Harðarsonar. Sögðu þeir að með
áformum um að markaðsetja landið
sem ráðstefnuland hlyti þetta hins
vegar að breytast á næstu árum.
Meðal áheyrenda á umræðunum
var Lena Fluger, túlkur frá Dan-
mörku. Hún sagði reynslu dönsku
fulltrúanna í EB vera þá að léttir
væri að geta notað túlk. „Danir eru
eins og Islendingar, stoltir af mála-
kunnáttu sinni og fyrstu árin notuðu
Danir sárasjaldan túlka í EB-starf-
inu. Nú nýta nær aliir Danir sér
túlka á fundunum. Sömu sögu er
að segja um Hollendinga sem eru
miklir málamenn en nota túlka mik-
ið.
Skemmtidagskrá með Ladda og félögum á Hótel Sögu
Létt úttekt á landanum
ÖNNUR frumsýning á
skemmtidagskránni Er það
satt sem þeir segja um land-
ann? verður 2. október næst-
komandi á Hótel Sögu.
Skemmtidagskráin, sem er í
höndum Ladda, Olafíu Hrann-
ar Jónsdóttur, Hjálmars
Hjálmarssonar og Haralds
Sigurðssonar, en í leiksljórn
Björns G. Björnssonar, var
frumsýnd í febrúar síðastliðn-
um. „Við feng^um mjög góð
viðbrögð þá og sýndum fyrir
fullu húsi alveg fram undir
sumarið, þannig að ákveðið
var að taka aftur upp þráðinn
þar sem frá var horfið í vor,“
sagði Iflálmar í samtali við
Morgunblaðið.
Sýningin er skemmtifræðileg
úttekt á landanum, að því er að-
standendur hennar segja, þar sem
leikararnir koma fram í gervi
þekktra persóna úr dægurlaga-
heiminum. Þannig bregður Ólafía
Hrönn sér meðal annars í hlutverk
Bjarkar, sem nú er að slá í gegn
úti í hinum stóra heimi og Hjálm-
ar m.a. í gervi Bubba. Þá líta „fé-
lagar úr KK“ inn.
Breytt og betrumbætt
Sú breyting hefur orðið frá því
í fyrra að hljómsveitin Saga klass
ásamt söngkonunni Berglindi
Björk hefur komið í stað hljóm-
sveitar Björgvins Halldórssonar.
Hljómsveitin er með í skemmti-
dagskránni og spilar síðan fyrir
dansi fram til klukkan 3. „Við
höfum einnig lagfært og betrum-
bætt sum atriðin; i rauninni aðlag-
að þau að breyttum aðstæðum í
þjóðfélaginu,“ sagði Hjálmar.
Aðspurður kvað hann ekki mik-
inn mun vera á áhorfendum frá
einu kvöldi til annars. „Það virð-
ast allir vera staðráðnir í því að
skemmta sér. Eg man ekki eftir
neinu kvöldi sl. vetur þar sem
áhorfendur voru daufir, eins og
stundum kemur fyrir í leikhúsi,"
sagði hann.
Þríréttaður kvöldverður, þar
sem hægt er að velja milli tveggja
matseðla, er innifalinn í verði sýn-
ingarinnar, sem er 4.300 krónur.
Björk
Ólafía Hrönn
Jónsdóttir
bregður sér í
ýmis gervi.
Hér má sjá
hana í hlut-
verki Bjark-
BubbiogKK
Hjálmar Hjálmarsson og Laddi taka lagið saman sem Bubbi og
KK.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræöumaður Hafliöi Kristinsson.
Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kaffisala
verður í dag, sunnudag, í kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut
58-60, kl. 14.30-18.00. Allur
ágóði rennur til starfs kristni-
boðssambandsins í Afríku.
Kristniboðsfélag karla.
l)ngt fótk
m
YWAM - Island
Almenn samkoma í Breiðholts-
kirkju í kvöld kl. 20.30.
Fögnum og verum glöð í Drottni.
Söngur, lofgjörö, vitnisburðir og
fyrirbænir.
Allir velkomnir.
Nýja
/
// postulakirkjan,
Ármúla 23,
2. hæð
Guösþjónusta sunnudag, 12.
sept., kl. 11.00. Holger Kirsc-
hen, presfur messar. Hópur frá
Bremen í heimsókn. Ritningar-
orð: „Sá sem trúir er eigi óðlát-
ur“ (úr Jesaja 28:16).
Verið velkomin f hús Drottins!
KFUM/KFUK, SÍK
Háaleitisbraut 58
Almenn samkoma I kvöld kl.
20.30. Edda Björk Skúladóttir
segir frá dvöl sinni í Kenýu og
sýnir myndir. Hugleiðingu hefur
Gunnar Þór Pétursson.
Allir eru velkomnir á sam-
komuna!
fomhjálp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir. Barna-
gæsla. Ræðumaður Kristinn
Ólason. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
(SLENSKI
ALPAKLÚBBURINh
FERÐAFÉLAG
0 ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 12. sept. kl. 10.30
Víðiker - Hvalvatn - Botnsdal-
ur. Gangan hefst við Víðiker síð-
an liggur leiðin að Hvalvatni og
niður í Botnsdal í Hvalfirði.
Verð kr. 1.400,-.
Kl. 13 - Brynjudalur - Hrfsháls
- Botnsdalur - þjóðleið. Ekið I
Brynjudal og gengin gömul þjóð-
leið yfir Hrísháls sem skilur að
Botnsdal og Brynjudal.
Verð kr. 1.100,-.
Brottför er frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, og Mörkinni
6.
Feröafélag Islands.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.
Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á Omega
kl. 14.30. Athugið! Kvöldbiblíu-
skóli Orðs Lífsins hefst næst-
komandi föstudagskvöld kl.
20.00. Allir hjartanlega velkomn-
ir og aðgangur ókeypis.
ísklifurnámskeið
ÍSALP
Helgina 25,- 26. sept. verður
haldið ísklifurnámskeið (SALP.
Fyrir byrjendur verða kennd und-
irstöðuatriði ísklifurs. Fyrir
lengra komna veröur farið I
tækni, og æft klifur. Skráning
hjá Páli Sveinssyni í símum
689048 og 685610.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamvera kl. 11.
Einar Gautur Steingrímsson tal-
ar, krakkastarf, barnakirkja o.fl.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30.
Högni Valsson prédikar. Athugið
breyttan samkomutíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar:
Mánudag kl. 20.00 Grunn-
fræðsla.
Miðvikudag kl. 20.30 Samkoma
í Óskakaffi, Selfossi.
Fimmtudag kl. 20.30 Lækning-
arsamkoma, kennt um guölega
lækningu.
Föstudag kl. 20.30 Unglinga-
samkoma (13-15 ára).
Laugardag kl. 21.00 Samkoma
fyrir ungt fólk (16 ára og eldri).
„Drottinn blessar þá
er óttast hann"
Sunnudagur: Samkoma I dag
kl. 16.30 með Judy Lynn.
Þriðjudagur: Samkoma kl. 20.30
með Judy Lynn.
Miðvikudagur: Samkoma kl.
20.30 með Judy Lynn.
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Bresku miðilshjónin, June og
Geoffrey Hughes, starfa á veg-
um félagsins frá 13. sept. til 1.
okt. og verða með einkatima,
námskeið, skyggnilýsingu o.fl.
Geoffrey er með einkatíma í
andlegum tarrotlestri og June
er með einkatíma í hefðbundinni
sambandsmiðlun.
Bókanir eru hafnar í símum
félagsins 18130 og 618130.
Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan
- Vegurinn
Hafnargötu 84, Keflavík.
Samkoma kl. 11.00 árdegis.
Jesús Kristur er svarið.
Allir velkomnir.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferðir sunnudaginn
12. september
Kl. 8.00 Básar við Þórsmörk.
Kl. 10.30 Þingvallagangan.
Ferðir um næstu helgi:
Dagsferð sunnud. 19. sept.
Kl. 10.30 Skipsstígur, gomul
þjóðleið milli Grindavíkur og
Njarðvíkur.
Haustlita- og grillveislu-
ferð íBása 17.-19. sept.
Nú fer Þórsmörkin og Goðaland-
ið að skarta sínum fegurstu lit-
um. Fjölþreyttar gönguferðir
með fararstjórum. Sameiginleg
grillveisla og kvöldvaka á laugar-
dagskvöld. Miðasala á skrifstofu
Útivistar, opið frá kl. 12-17.
Útivist.