Morgunblaðið - 12.09.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNUDAGUR 12. SEPTBMBBR 1993
FRJALSIÞROTTIR
Kínveijamir koma
Ótrúlegur árangur kínverskra hlaupakvenna vekur upp spurningar um hvort Kínverjar
hafi sótt í smiðju fyrrum kommúnistaríkja í Evrópu við að „framleiða" afreksíþróttamenn
í halarófu
KÍNVERSKU stúlkumar í hala-
rófu í 3.000 metra hlaupinu á
HM í Stuttgart þegar rúmur
hringur er eftir en þær komu
á mark í sömu röð. Fremst fer
Yunxia Qu, þá Linli Zhang og
Lirong Zhang. Bættu þær
árangur sinn mjög mikið.
KÍNVERSKAR hlaupastúlkur vöktu athygli er þær sigruðu með
miklum yfirburðum í 1.500, 3.000 og 10.000 metra hlaupi á
Heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í Stuttgart í fyrra mán-
uði. Frammistaða þeirra vekur eðlilega upp spurningar um
það hvort nýtt stórveldi, sem móta muni frjálsíþróttir þegar
riý öld gengur í garð, sé að rísa upp. Glæsilegt heimsmet
tvítugrar hlaupakonu, Wang Junxia, í 10 kflómetra hlaupi í
vikunni ýtir ungir vangaveltur af þessu tagi. Eini kunni frjáls-
íþróttamaður Kína til þessa er Zhu Jianhua sem setti heims-
met í hástökki, 2,39 metra, árið 1984 en auk þess höfðu þeir
átt sæmilega góða kvenkastara. Kínverjar hafa lagt á það
gífurlega áherslu í seinni tíð að komast í fremstu röð í íþrótt-
um. Annars vegar hefur tilgangurinn verið pólitískur; að sýna
yfirburði sósíalísks samfélags gagnvart því borgaralega, rétt
eins og í Austur-Þýskalandi á sínum tíma. Hins vegar hefur
að því verið fundið við Kfnverja þegar þeir hafa falast eftir
því halda Ólympíuleiki, að þetta fjölmennasta ríki heims þætti
ekki stórveldi á íþróttasviðinu.
Kínverjar hafa sótt í smiðju fyrr-
um kommúnistaríkja í Evrópu
og ráðið til sín þjálfara sem urðu
atvinnulausir eftir
hrun kommúnis-
Asgeirsson mans Þar- Vaknað
skrifar hafa grunsemdir um
að þeir hafi einnig
farið að fordæmi Austur-Þjóðveija
og noti óleyfileg meðul við kerfís-
bundna framleiðslu afreksmanna.
Sjálfir neita þeir þessu staðfastlega
og segja árangur stúlkanna því að
þakka að þær æfi líklega helmingi
rneira en aðrar hlaupakonur. Meðan
Kínveijar senda ekki keppendur út
fyrir landssteinana nema á heims-
meistaramót og Ólympíuleika, sum-
ir segja til að komast hjá lyfjapróf-
um, verða þeir að lifa við grunsemd-
ir af þessu tagi, hvort sem slíkar
fullyrðingar eru settar fram af öf-
und eða rökstuddum grun. Vitað
er að lyfjaprófun hefur verið í lág-
marki í Kína og í þeim þremur til-
vikum sem Alþjóðafijálsíþróttasam-
bandið (IAAF) hefur sent sérsveitir
sínar þangað á síðustu tveimur
árum til að lyfjaprófa þarlenda
íþróttamenn hafa keppnismenn ekki
staðist prófíð. Alls eru fallistamir
átta, þar á meðal Wang Yawen,
unglingaheimsmeistari í kúluvarpi
kvenna i fyrra.
Úf af fyrir sig er sérkennilegt
að Kínveijar skyldu ekki hafa látið
til sín taka miklu fyrr, miðað við
fólksfjölda. Um þetta hefur verið
ijallað og hefur því verið spáð að
sú stund hlyti að renna upp að þeir
létu að sér kveða á íþróttasviðinu.
Það er eins og þeir hafi beðið eftir
réttu augnabliki og héðan í frá má
gera ráð fyrir að soldátar kínver-
skrar íþróttamaskínu streymi fram
á fijálsíþróttavöllinn.
Árangur kínverskra, hlaupa-
kvenna á HM í Stuttgart þarf svo
sem ekki að koma mjög á óvart.
Segja má að frammistaðan þar
hafí verið rökrétt framhald af
heimsmeistaramóti unglinga í Seoul
í Suður-Kóreu í fyrrahaust þar sem
Kínveijar eignuðust átta heims-
meistara í kvennagreinum af 17;
sigruðu í sex hlaupagreinum af 10,
kúluvarpi og kringlukasti. En hvað
sem öllu líður þá má segja að
frammistaða Kinveijanna í Stuttg-
art auðgi fijálsíþróttaflóruna, burt-
séð frá því hvort menn gleðjast
yfir árangri þeirra eða taka honum
með fyrirvara.
Það er engin skylda að fagna
sigri með brosi út að eyrum eða
einhveijum látalátum, en kínversku
stúlkumar auðsýndu litla gleði á
verðlaunapallinum á HM í Stuttg-
art. Enda hlutu þær blendnar við-
tökur áhorfenda sem undruðust
frammistöðu þeirra. Til dæmis var
púað á Liu Dong er hún hljóp sigur-
þring með kínverska fánann eftir
1.500 metra hlaupið, yfirburðir
hringjunum, 800 metrum, á 2:03
mínútum og strax vöknuðu spurn-
ingar um hvort slíkt væri hægt með
leyfilegum aðferðum.
í „þrælkunarbúðum“
Kínveijar höguðu undirbúningi
íþróttamanna sinna fyrir HM öðru
vísi en aðrar þjóðir. Keppnismenn-
irnir voru hafðir í sérstökum æf-
ingabúðum í fjóra mánuði fyrir
mótið og æfingar miðuðust við það
eitt að ná hámarks árangri í Stuttg-
art. Það gekk eftir því flestar
hlaupakonur þeirra settu persónu-
leg met í keppninni. í nokkrum til-
vikum settu þær kínverskt, Asíumet
eða jafnvel heimsmet í unglinga-
flokki.
Á sama tíma og kínversku
hlaupakonurnar dvöldu í æfinga-
búðum flengdust vestrænar hlaupa-
konur milli móta í Evrópu í leit að
gulli og grænum skógum og til að
mæla styrk- og veikleika hvetjar
annarra. Þeir gleymdu einfaldlega
Kínveijunum sem komu þeim í opna
skjöldu, áttu engin svör þegar þær
tóku völdin, virtust standa kjurrar
í sporunum. Var það ekki fyír en
í 1.500 metra hlaupinu í lok móts-
ins sem menn áttu einhver svör við
samvinnu kínversku hlauparanna.
Írsku hlaupadrottningunni Soniu
O’Sullivan tókst þá að fylgja þeim
eftir, komst upp á milli þeirra á
lokasprettinum en átti enga mögu-
leika gegn sigurvegaranum Liu
Dong sem er 19 ára og kom í mark
20 metrum á undan. Tók hún á
sprett þegar 300 metrar voru eftir
og setti kínverskt met (4:00,50
mín.).
O’Sullivan hefur verið afar sigur-
sæl á hlaupabrautinni á undanförn-
um tveimur árum en eftir hlaupið
sagðist hún verða að auka æfingar
stórum til að komast upp að hlið
kínversku stúlknanna. Bandaríska
hlaupakonan Lynn Jennings, marg-
faldur heimsmethafí í víðavangs-
hlaupum og bronsverðlaunahafi í
10 km í Barcelona, undraðist árang-
ur þeirra kínversku. Er hún frétti
af heimsmeti Wang í 10 km féll
hún í grát og sagði: „Eitthvað mik-
ið er að, íþróttinni til vansa. Árang-
ur kínversku stúlknanna og fram-
farir eru úr öllu samhengi við það
hennar þóttu ekki eðlilegir. Augu
manna beindust að öðrum keppend-
um sem verið hafa í sviðsljósinu.
Flestir bjuggust við að aðrar
hlaupakonur berðust um verðlaun,
kínverskar hlaupakonur höfðu ekki
sést á mótum utan heimalandsins
frá Barcelona-leikunum, engum
sögum fór af afrekum þeirra og
geta þeirra því óviss. Yfírburðir
þeirra í fyrstu hlaupagreininni,
3.000 metrunum, voru svo miklir
að jafnvel helstu sérfræðinga sló
hljóða. Luku þær síðustu tveimur
Reuter
Með lokaðan munninn!
WANG Junxia setur heimsmet í 10 kílómetra hlaupi í Peking sl. miðviku-
dag. Á heimsmeistaramótinu i Stuttgart sigraði hún með miklum yfirburð-
um. Svo fyrirhafnarlítill var sigur Wang að hún gat hlaupið með Iokaðan
munninn lengst af en frægir hlaupagarpar sem fylgdust með hlaupinu
undruðust það mjög og sögðu það til marks um þjálfun hennar.
eðlilega. Þær hljóta að hafa haft
eitthvað rangt við. Ein megin
ástæðan fyrir því að ég lagði lang-
hlaup fyrir mig var að þau virtust
laus við svindl, menn uppskáru í
samræmi við æfingar. Nú er búið
að koma óorði á þau líka og það
dregur úr ánægjunni.“
Stjórnað úr stúkunni
Hlauparar verða jafnan að
treysta á sjálfan sig þegar inn á
hlaupabrautina er komið, andi
keppnisreglanna gerir m.a. ráð fyr-
ir því. En stúlkurnar kínversku
hlupu eftir fyrirmælum ofan úr
stúku og því var eins og þær væru
hluti af gangverki einhverrar mask-
ínu fremur en einstaklingar sem
yrðu að spjara sig á eigin spýtur.
Uppi í stúku í Stuttgart höfðu kín-
verskir þjálfarar og aðstoðarmenn
komið sér fyrir á vissum stöðum
meðfram hlaupabrautinni vopnaðir
merkjafánum til að gefa hlaupurun-
um fyrirmæli. Hvort þeir ættu að
halda hraða eða greikka sporið eða
hvenær þær skyldu láta til skarar
skríða og hefja endasprett. Stúlk-
urnar vissu hvert þær áttu að líta
eftir skilaboðum og kölluðust síðan
á og skiptust á upplýsingum á
hlaupabrautinni, að sögn keppi-
nauta þeirra.
Samvinna af þessu tagi hefur
nánast verið óþekkt á stórmótum
af þessu tagi. Að vísu hafa kenýsk-
ir og eþíópskir hlauparar haft mikla
samvinnu á heimsmeistaramótum í
víðavangshlaupum en mun minni á
fijálsíþróttavellinum. Og merkja-
sendingar þjálfara úr stúku eru í
sjálfu sér ekki ólöglegar en þær
stríða gegn góðum siðum. Lögðust
þær alla vega illa í aðstandendur
annarra keppenda og þegar kom
að 1.500 metra hlaupi kvenna í lok
mótsins var í því gert að reyna að
trufla þessar merkjasendingar,
enda virtust þær kínversku ekki
jafn öruggar með sig og í fyrri
greinum og komust tvær hlaupa-
konur upp á milli þeirra kínversku
á lokasprettinum.
Ótrúlegar framfarir
Kínversku hlaupakonurnar, sem
eru flestar undir tvítugu, voru ótrú-
lega vel þjálfaðar að sjá. Þær slóu
9
auto