Morgunblaðið - 12.09.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR SUNNÚDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
KNATTSPYRNA
íslandsvinur með
Aberdeen gegn Val
James Bett leikur öðru sinni á Laugardalsvelli á þriðjudag.
í gegn á þriðja degi mótsins, í 3.000
metra hlaupinu þar sem þær komu
þrjár fyrstar í mark. Þær létu
skoskri stúlku, Yvonne Murray eft-
ir að leiða hlaupið fyrstu tvo kíló-
I metrana og treystu á góðan enda-
sprett sem sú skoska á venjulega
engin svör við. Á næstsíðasta hring,
I þegar um 700 metrar voru eftir í
' mark var eins og þær skiptu hrein-
lega um gír og skutust á eldingar-
hraða í burtu. Hlupu þær eftir
stærð, sú stærsta fremst. Aðrir
hlauparar virtust ekki komast úr
sporunum, möguleikar þeirra á
verðlaunum gufuðu upp á örskots-
stundu. Hélst stærðarröð þeirra
kínversku í mark og breytti engu
þótt þær virtust ætla að keppa inn-
byrðis um sæti á beinu brautinni í
lokin. Yunxia Qu sigraði á nýju
lands- og mótsmeti (8:28,71 mín.),
unglingaheimsmeistarinn frá í
fyrra, Linli Zhang, varð önnur á
nýju unglingaheimsmeti (8:29,25)
og Lirong Zhang vann bronsverð-
launin á nýju persónulegu meti
(8:31,95).
Lítill byrjunarhraði eyðilagði
) möguleika á heimsmeti en tími Qu
síðustu tvo kílómetrana jafngildir
fimmta besta tíma frá upphafi í
| 2.000 metra hlaupi. Framfarir Qu
eru talsverðar því hún átti aðeins
73. besta tíma heims í 3.000 metra
hlaupi í fyrra en hljóp 26 sekúndum
hraðar nú. Þess ber þó að geta að
hún varð þriðja í 1.500 metra hlaup-
inu á Ólympíuleikunum í Barcelona
í fyrra. Svipaða sögu er að segja
um Linli og Lirong, hvorug þeirra
var meðal 35 bestu í nokkurri grein
í fyrra. Linli bætti sinn besta árang-
ur um 16 sekúndur í hlaupinu í
Stuttgart.
Líkleg til afreka
Á næstsíðasta degi mótsins sigr-
uðu Kínveijar tvöfalt í 10 km hlaupi
1 kvenna og staðfestu þar með að
upp væri að rísa stórveldi í milli-
lengda- og langhlaupum kvenna.
| Wang Junxia sigraði á nýju kín-
versku meti (30:49,30 mín.) og
náði fjórða besta tíma frá upphafi.
| Bætti hún persónulegt met sitt í
hlaupinu um 1 mínútu og 40 sek-
úndur, en hún var aðeins í 56. sæti
á heimslistanum í fyrra. Zhong
Huandi varð önnur, einnig á per-
sónulegu meti (31:12,55), en hún
varð fjórða í Barcelona í fyrra.
Árangri Wang var slegið upp sem
nýju unglingaheimsmeti en á blaða-
mannafundi eftir hlaupið gaf hún
til kynna að hún væri of gömul til
að setja unglingamet. Kom í ljós
daginn eftir að fæðingarár hennar
hafði verið rangfært á þátttökutil-
kynningunum. Hún fæddist árið
1973 en ekki 1975 og var því orðin
of ári of gömul til að setja unglinga-
H met.
Wang hljóp mjög léttum og hröð-
um skrefum og virðist búa yfir afar
a hagkvæmum hlaupastíl til lang-
hlaupa. Svo fyrirhafnarlítill virtist
sigurinn að hún er líkleg til meiri
■ afreka á næstu árum. Áreynslan
var ekki meiri en svo fyrri hluta
hlaupsins að hún hljóp með lokaðan
munninn, andaði bara með nefinu!
Undraðist margur hlaupagarpur-
inn, sem fylgdist með mótinu, yfir
þessu. En að baki liggja miklar
æfingar, segir tvítuga stúlkan frá
fjallahéraðinu Qinghai. „Síðasta
vetur æfði ég að staðaldri í 2.000
metra hæð yfir sjávarmáli og hljóp
að jafnaði 30-40 kílómetra á dag,
stundum 50. Undirbúningurinn
miðaðist við þetta mót og ég kom
kvíðalaus til leiks. Takmarkið var
að setja nýtt Asíumet og það tókst,“
sagði Wang eftir hlaupið. Hún ér
.* sögð hafa hlaupið maraþon á
• 2:24.07 stundum í vor en vafi leik-
ur á hvort vegalengdin hafi verið
- nákvæmlega rétt. Aðeins fjórar
■ konur hafa hlaupið á betri tíma.
^ Lygilegt heimsmet!
Wang setti glæsilegt heimsmet í
10 km hlaupi í vikunni, hljóp á
29:31,78 mínútum og bætti heims-
met norsku stúlkunnar Ingrid Krist-
_L iansen um 43 sekúndur á kínverska
meistaramótinu á miðvikudag.
Kristiansen var þekkt fyrir miklar
æfingar, jafnvel meiri en margur
karlmaðurinn, og það skilaði henni
miklum árangri. Wang virðist hafa
farið sömu leið því eftir methlaupið
sagði hún: „Árangurinn er að þakka
margra ára ströngum æfingum.
Síðasta árið hef ég hlaupið sem
svarar einu maraþonhlaupi á hveij-
um einasta degi. Það eru miklar
æfingar, sjálfsögun og sjálfsfórn
sem er galdurinn. Það er alveg
undir einstaklingnum sjálfum og
vilja hans komið hvort árangaur
næst.“
Með heimsmetinu er Wang fyrst
kvenna til að hlaupa 10' km á
skemmri tíma en 30 mínútum. Og
séu upplýsingar kínversku frétta-
stofunnar Xinhua um gang hlaups-
ins réttar er árangurinn miklu
meira en lygilegur. Samkvæmt
millitímum í hlaupinu, sem Xinhua
sendi út um heimsbyggðina, hefur
Wang hlaupið fyrri helming hlaups-
ins á 15:31,40 mínútum en seinni
hlutann á 14:00,38. Það jafngildir
því að hún hafi bætt heimsmetið í
5.000 metra hlaupi um 37 sekúndur
í seinni hluta 10 km hlaupsins!!!
Stakk af á iokaspretti
Á lokadeginum fór öll spenna úr
1.500 metra hlaupinu er Liu Dong
hristi nokkra af bestu hlaupakonum
allra tíma af sér með miklum spretti
þegar rúmur hálfur hringur var
eftir eða tæpa 300 metra frá marki.
Slík var hröðunin að hún náði strax
20-30 metra forskoti og kom þrem-
ur sekúndum á undan næstu stúlku
í mark. Bætti Liu sinn besta árang-
ur, persónulegt met, um nær fimm
sekúndur í hlaupinu.
Hvar eru karlamir?
Þar sem kínverskar hlaupakonur
hafa slegið svo rækilega í gegn
vaknar eðlilega sú spurning hvort
karlarnir þeirra getið hlaupið líka?
Slíkar spurningar voru lagðar fyrir
kínverska fijálsíþróttaleiðtoga í
Stuttgart. „Jú, jú,“ var svarað, „en
þeir eru heima að undirbúa sig fyr-
ir kínverska meistaramótið sem
fram fer í Peking í næsta mánuði.
Mótið og góð frammistaða þar
skiptir miklu fyrir einstaka lands-
hluta.“ Svör af þessu tagi ollu tor-
tryggni og menn spurðu sig m.a.
hvort karlarnir hefðu ekki verið til-
búnir til að komast í gegnum lyfja-
próf með nokkurri vissu. Hvort enn
hafi verið of mikið „púður“ í vöðvum
þeirra. (Þekkt eru dæmi þess að
íþróttamenn fyrrum austantjalds-
ríkja hafi ekki verið sendir til keppni
ef vafi hefur leikið á að þeir myndu
standast lyfjapróf á viðkomandi
móti. Þánnig voru Rússar með skip
í höfninni í Montreal 1976 þar sem
vísindamenn gerðu tilraunir á kepp-
endum þeirra síðustu daga fyrir
mótið til að ganga úr skugga um
að þeir gætu keppt með nokkurri
vissu um að þeir féllu ekki á lyfja-
prófí.) í vikunni sagði Weng Qingz-
hang, varaformaður lyfjanefndar
Ólympíunefndar Kína, að kínverskir
karlmenn hefðu ekki náð sérstökum
árangri í hlaupum og virtist sem
kínverskar konur væru betur gerðar
til að standast mikið æfíngaálag
en karlar.
Fá þær Benzana?
Sigurvegarar í öllum greinum á
HM í Stuttgart fengu ekki aðeins
gullverðlaunapening um hálsinn,
blómvönd og tuskukanínu. Hver um
sig fékk glæsibifreið af gerðinni
Mercedes Benz að verðmæti um
30.000 dollara. Flutningskostnaður
til Kína og tollar nema margfaldri
þeirri upphæð og hafa hlaupakon-
umar ungu ekki efni til að borga
það. Hermt var að þjóðhetjurnar
nýju þyrftu ekki að borga nein gjöld
af bílunum og Benz-verksmiðjurnar
taka á sig flutningskostnað. Yunxia
Qu, sigurvegari í 3.000 metra
hlaupinu, sagðist ekki hafa bílpróf
og ætlaði því að gefa föður sínum
rennireið sína.
FYRIR liðlega átta árum, nánar
tiltekið 29. maí 1985, tryggði
landslið Skotlands í knatt-
spyrnu sér rétt til að leika í
úrslitakeppni Heimsmeistara-
mótsins í Mexíkó ári sfðar með
því að vinna íslenska landsliðið
1:0 á Laugardalsvelli. íslend-
ingaráttu síst minna íleiknum,
en lánið lék við Skota og 15.600
áhorfendur sáu James Bett
gera sigurmarkið þremur og
hálfri mfnútu fyrir leikslok. Bett
eða Jasa eins og hann er kall-
aður, lifir og hrærist í íslensku
umhverfi, en mætir aftur á
Laugardalsvöll n.k. þriðjudags-
kvöld, þegar Valur tekur á
móti skoska liðinu Aberdeen.
„Ég hlakka mikið til að leika
aftur á Laugardalsvelli," sagði
Jasa við Morgunblaðið áður en
hann fór til Edinborgar vegna
leiks í skosku úrvalsdeildinni í
gær, laugardag. „Ég á aðeins
góðar minningar frá íslandi og
það snertir mig sérstaklega að
fá tækifæri til að spila þar.“
Leikur Vals og Aberdeen er fyrri
viðureign félaganna í 1. um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa í
knattspymu, en
Ef[.r seinni leikurinn
Steinþór verður ytra eftir
Guöbjartsson hálfan mánuð. Jasa,
sem verður 34 ára í
vetur, hóf ferilinn 17 ára gamall
hjá Áirdrieonians í Skotlandi og
vakti þegar mikla athygli. Hann lék
einn og hálfan leik með Val í ís-
landsmótinu 1978, en gerði síðan
samning við belgíska félagið Loker-
en, þar sem hann var í tvö ár. 1980
skipti hann yfír í Rangers í Skot-
landi og var þar næstu þijú árin,
en síðan tvö ár aftur hjá Lokeren
áður en hann fór til Aberdeen þar
sem hann hefur verið síðan. Jasa
er kvæntur Auði Rafnsdóttur, sem
lék m.a. handknattleik og knatt-
spyrnu með Val, og eiga þau þijá
syni, Brynjar Lee 9 ára, Calun Þór
11 ára og Jim Baldur 13 ára, en
eldri strákarnir hafa leikið með
yngri flokkum KR í sumarfríum,
síðast með 4. flokki fyrr í sumar.
Undarieg tilfinning
Jasa sagðist muna vel eftir lands-
leiknum 1985 og hann væri sérstak-
lega ofarlega í huganum þessa dag-
ana. „Það var erfíður leikur og
minnir okkur í Aberdeen á að við
eigum erfiðan leik fyrir höndum.
Allir, sem tengjast liðinu, segja að
það sé nánast formsatriði fyrir okk-
ur að komast áfram, því við séum
atvinnumenn en þeir áhugamenn,
en þetta er ekki svona auðvelt. Við
vorum síðast í Evrópukeppni fyrir
tveimur árum og lentum á móti FC
Kaupmannahöfn í fyrstu umferð.
Þá voru viðbrögðin fyrir leikina
eins, en við töpuðum og féllum úr
keppni.
með frönskum og sósu
‘995.-
TAKIÐMED i i i i ’ TAKIDMEÐ
- tilboð! - tilboð!
Mnn
Við komumst ekki í Evrópu-
keppni í fyrra, en nú erum við þar
og það er viss spenna í leikmönn-
um. Allir eru meðvitaðir um hvað
gerðist fyrir tveimur árum og ætla
ekki að láta söguna endurtaka sig,
en erfíðast verður að láta hug fylgja
máli. Samt held ég að allir geri sér
grein fyrir að það er mjög erfítt
að leika á íslandi og enginn getur
sagt að eitthvað sé öruggt í knatt-
spyrnu.
Ég hlakka til fararinnar og sér-
staklega til leiksins, en tilfinningin
að fara að leika aftur á íslandi er
undarleg. Auðvitað geng ég til leiks
með því hugarfari að sigra, en jafn-
vel það snertir ýmsa strengi og fjöl-
skyldan er ekki á einu máli um
hvort liðið hún eigi að styðja.“
VIII Ijúka feriinum aíslandi
Leikmenn Aberdeen og helstu
stuðningsmenn koma í leiguflugi til
Íslands á mánudag og fer hópurinn
aftur til Skotlands á miðvikudag.
Liðið hefur þrisvar áður dregist
gegn íslensku liði í Evrópukeppni.
Fyrst gegn KR í Evrópukeppni bik-
arhafa 1967, síðan gegn ÍA í sömu
keppni 1983 og aftur gegn ÍA í
keppni meistaraliða 1985. Skoská"
liðið hefur aðeins tapað einu stigi
í þessum sex viðureignum, gerði
1:1 jafntefli heima við IA 1983 eft-
ir að hafa unnið hér 2:1. Liðinu
hefur vegnað vel á nýhafínni leiktíð
í Skotlandi, er á toppnum með sjö
stig eftir fimm umferðir eins og
Motherwell og Heart, en tapaði fyr-
ir Rangers eftir framlengingu í
skosku bikarkeppninni erfiðleikum
1983.
Samningur Jasa við félagið renn-
ur út eftir tæpt ár. Óráðið er hvað
þá gerist, en fjölskyldan hefur
ákveðið að flytja til íslands fyrr en
síðar. „Við erum að athuga með
kaup á húsi í Reykjavík og enn
blundar í mér að ljúka ferlinum á
íslandi."
HRAÐNÁMSTÆKNI HJÁ MÍMI
Skemmtu þér og vertu mörgum
sinnum fljótari að læra.
Nýjustu kennsluaðferðir auðvelda
þér námið.
ENSKA „
ÞYSKA
SPÆNSKA
3.000
Tíu vikna námskeiö
hefjast 22. sept.
| 1000|^^2£tí2ís2- Símar
Flöldl kennslustunda 50 100 150 200 10004 og 21655
Sarah Biondani,
enskukennari og
kennslustjóri