Morgunblaðið - 12.09.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993
47
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
HREIN BORG
Reylq'avík er svo falleg og
hrein borg! Að undan-
förnu héfur þessi setning
ósjaldan borist að eyrum. Nú
síðast frá brottfluttum íslend-
ingum í heimsókn á Fróni og
frá frönsku ferðafólki. Þeir áttu
ekki til orð, sögðu að ef eitt-
hvert hús væri illa útlítandi þá
væri verið gera við það eða
mála. Sama með göturnar og
höfnina, alls staðar verið að
lagfæra og snyrta. Og það er
laukrétt. Borgin okkar er orðin
einstaklega snyrtileg og falleg
í útliti.
Og nú er tiltölulega stutt í
að gamli Mið-
bærinn rísi
endurnýjaður
upp eftir mikla
hreingemingu
og endurbæt-
ur. Sumt þegar
komið í fram-
tíðarhorf, eins
og Gijótaþorp-
ið, sem með
sínum gömlu
húsum er orðið
mikið augna-
yndi. Þetta
hefur verið
mikið átak,
ekki síst end-
urnýjun á
gömlu lögn-
unum og göt-
unum í gamla
bænum, sem
var orðið æði
lasið. Jafnvel Amarhóllinn að
verða grænn og sléttur aftur.
Þegar umferðarteppunni gegn
um bæinn linnir við opnun
nýrrar brautar um hafnarbakk-
ann spái ég því að Reykvíking-
ar fari aftur að leggja leið sína
„niður í bæ til að spássera“.
Ekki síst þegar höfnin með
skipum, jafnvel skemmtiferða-
skipum, verður orðin aðgengi-
leg. Tjörnin dregur að, þar sem
nú er verið að gera upp gamla
Iðnó, og nyrðri hluti Miðbæjar
ætti eftir þessa miklu yfirhaln-
ingu líka að laða að.
Rígmontinn á laugardeginum
yfír aðdáun frönsku gestanna
um hreinlegt yfírbragð borgar-
innar, tóku að læðast að lúmsk-
ar efasemdir um hve djúpt
hreinlætið risti, ekki bara í
höfuðborginni, heldur meðal
íslendinga. Þama á lygnum
sjónum - það er ekki oft lygna
vestur við Grandann - blasti
við hvítur flekkur sem stækk-
aði ekki langt frá landi. Á
sunnudagsmorguninn hafði
fuglinn setið þama í þéttum
hóp á afmörkuðum bletti.
Ósköp fallegt bara ef maður
vissi ekki hvaða æti dregur
mávinn að. Þama undir gub-
bast úr endanum á nýju skolp-
lögninni allt samansafnaða
gumsið frá stóram hluta bæjar-
ins, sem í sumar var leitt þarna
óhreinsað út. Maður fylgist
með fuglaskaranum í ætinu
þarna undir, hvemig hann fær-
ist nær landi með aðfallinu -
var býsna nálægt í sunnudags-
eftirmiðdagsætinu sínu - og
fylgir því svo heldur fjær á
útfallinu. Guði sé lof fyrir logn-
ið á sunnudaginn, svo hægt var
að njóta veðurs á svölunum.
Ekki er það nú oft sem rokið
ber ekki sjávarlöðrið og það
sem því fylgir inn yfír Vest-
urbæinn.
Upp í hugann skaut frásögn
í blaðinu mínu frá fyrra sunnu-
degi vestan af fjörðum. Þegar
komumaður kvaddi sjávarbæ-
inn sat mávurinn á iskössunum
við höfnina og hámaði í sig
nýveidda rækjuna. Þaðan hefur
rækjan eflaust farið inn í frysti-
húsið þar sem stúlkurnar setja
reglum samkvæmt vandlega á
sig hárnetin og fara í sloppana,
svo að fyllsta hreinlætis sé
gætt meðan þær handfjatla
þessi matvæli.
Enn ein myndin ýtti undir
þessa ásæknu spurningu um
hve langt inn úr yfírborðinu
hreinlætið risti hjá okkur. Sú
birtist á sjónvarpsskerminum.
Verið var að opna nýjan barna-
leikvöll, sem unglingar höfðu
vandað sig
mikið við að
gera sem best
úr garði.
Myndavélin
rásar um svæð-
ið. Þarna situr
kona á brúninni
á sandkassan-
um, sem börnin
eiga að fara að
leika sér í, með
vænan hund í
bandi. Hann er
að snusa ofan í
kassanum.
Konan sat hin
rólegasta, enda
engin merki um
að við henni og
hundinum yrði
amast.
Skömmu áður
birti ljósmynd-
ari Tímans myndir, sem hann
hafði tekið af nýopnuðum lei-
kvelli í Smáíbúðahverfínu. Þar
blöstu við þessa „myndarlegu
drellur" þegar hann leit niður
í sandkassann. Hann myndaði
hund á vellinum en sá engin
smábörn, enda hafði blaðamað-
ur skömmu áður heyrt á tal
einnar móðurinnar, sem var
óskaplega svekkt yfír að hafa
hvað eftir annað fengið krakk-
ana heim af vellinum svo útb-
íaða í hundaskít að hún hafði
orðið að stinga þeim beint í bað
og hverri spjör í þvottavélina.
Ætli við séum í raun ekki enn
farin að skynja hvað getur fal-
ist í saur, mannasaur, hunda-
saur, saur sjófugla, sem éta
úr skolpræsunum? í blöðum
má nú lesa að skæð veirasýk-
ing sé komin upp í hundum,
svokölluð Parvo smáveirasótt,
sem ekki hefur verið hér áður.
Eigendur eru að skrifa um
áliyggjur sínar af hundunum
sínum, sem eðlilegt er. Litlu
krílin! En hvað með hin litlu
krílin í sandkössunum? Eða
sofandi í vögnum á svölum í
vindáttinni frá útopnun skolp-
ræsis?
Kannski eram við bara enn
bansettir sóðar, þar sem það
sést ekki. Ytra borðið er að
verða nokkuð gott, en líklega
er hin innbyggða tilfínning fyr-
ir hreinlæti ekki enn „komin
til að vera“, eins og þeir segja
í fréttunum.
Er ekki til á íslensku eitthvað
sem heitir „að þvo hendur sín-
ar“? Hefur löngum þótt brúk-
legt. En eins og Piet Hein seg-
ir í þýðingu Helga Hálfdánar-
sonar:
Já handaþvottur
er vondur vani,
það verður að lokum
þurr hver krani
og hvergi að finna
vitundar vott
af vatni í ærlegan
handarþvott.
NAMSAÐS TOÐ
við þá sem viCja ná vaíái á námi sinu í skóía
- gnmnskóía - framfiaídsskóCa - fiáskóCa
FYRIR HVERJA? Námsaðstoð ert.d. tyrir:
• þá sem þurfa að ná sér á strik í skólanámi
• þá sem hafa skipt um skóla og þurfa að ná
upp yfirferð í nýja skólanum
• þá sem vilja rifja upp námsefni fyrir frekari
skólagöngu eða til nota í daglega lífinu
10. bekkingar athugið!
Undirbúningur fyrir samræmd próf í ÍSLENSKU
STÆRDFRÆÐI, ENSKU og DÖNSKU!
• Stutt námskeið - misserisnámskeið
• Litlir hópar - einstaklingskennsla
• Reyndir kennarar með kennsluréttindi
• Mikið ítarefni - mikil áhersla lögð á námstækni
Strætisvagnaferðir eru úröllöm borgarhverfum,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ
Og hvað segja nemendurnir um þjónustuna?
"Ég vildi að ég hefði byrjað fyrr"
"Besta kennsla sem ég hef fengið"
"Allt skýrt út fyrir mér á einfaídan hátt"
"Gcíður undirbúningur fyrir próf"
"Mjög góðir kennarar"
"Ég hækkaði mig um fimm heila íeinkunn"
"Ég lærði þriggja ára námsefni á einu ári"
"Mjög vingjarnlegt andrúmsloft"
Skólanemar athugið! Námsaðstoð í byrjun
annar nýtist ykkur alla önnina. Geymið ekki
að undirbyggja nám ykkar þar til það er
orðið of seint. Munið «ið nám tekur tíma.
Upplýsingar og innritun kÍ. 14.30- 18.30
virka daga í síma 79233 og í símsvara
allan sólarhringinn. Fax: 79458
Nemendaþjónustan sf.
Þangbakka 10, Mjódd.
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 1993
4
TUNGUMÁL
ENSKA - DANSKA
NORSKA - SÆNSKA
FRANSKA - ÍTALSKA
SPÆNSKA - ÞÝSKA
KATALÓNSKA
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA
stafsetning
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
INNANHÚSS-
SKIPULAGNING
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
ÍSLENSK SKÓGERÐ
2 vikna námskeið
12 kennslustundir
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
25 kennslustundir
LJÓSMYNDUN I
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
UÓSMYNDUN II
7 vikna námskeið
24 kennslustundir
LETURGERÐ OG
SKRAUTRITUN
7 vikna námskeið
21 kennslustund
MYNDLIST
9 vikna námskeið
38 kennslustundir
TRÉSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennsiustundir
VIDEOTAKA
ó eigin véiar
1 viku námskeið
14 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
FRJÁLS
FATAHÖNNUN
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
KJÓLASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
PRJÓNANÁM-
SKEIÐ
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÓKFÆRSLA
6 vikna námskeið
24 kennlustundir
VÉLRITUN
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
MARKAÐSMÁL
OG SALA
6 vikna námskeið
18 kennslustundir
Tölvunámskeið:
WINDOWS OG
WORD PERFECT
FYRIR WINDOWS
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
EIGIN ATVINNU-
REKSTUR
Nómskeiðió er haldiö
í samstarfi við
lénþróunarfélag
Kópavogs
2 vikna námskeið
20 kennslustundir
ARABÍSK
matargerð
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
GERBAKSTUR
2 vikna námskeið
10 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna-, pasta- og
grænmetisréttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
SKAPANDI
LISTÞJÁLFUN
fyrir börn og
unglinga
6 vikna námskeið
9 kennslustundir
LISTÞJÁLFUN
fyrir fagfólk sem
vinnur með börnum
og unglingum
6 vikna námskeið
18 kennslustundir
BARNABÆKUR
5 vikna námskeið
10 kennslustundir
BRIDS
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
LITUR OG LÝSING
1 viku námskeið
6 kennslustundir
Starfsmenntunarsjóðirýmissa stéttarfélaga styrkja
félagsmenn sína til náms íKvöldskóla Kópavogs,
t.d. BSRB, BHMR, Sókn, VR og starfsmannaf. Kópavogs.
Kennsla hefst 22. september.
Innritun og upplýsingar um námskeiðin
6.-16. september kl. 17-21 í símum: 641507 og 44391
og á skrifstofu skólans í Snælandsskóla.