Morgunblaðið - 12.09.1993, Page 48
N * A • M • A • N
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
’sím^eatWO^sÍMBRÉF'cJim, 'fÓSt'ÍóLF^ÍoiÍi/ AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Jón Baldvin
um húsaleigubætur
Niðurstaðan
samþykkt í
’þing'flokki
JÓN Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins segir að
niðurstaða ríkisstjórnarinnar um
húsnæðisbætur við afgreiðslu
frumvarps til fjárlaga sé í fullu
samræmi við samþykkt þing-
flokks Alþýðuflokks um málið.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra, sem gekk af ríkis-
stjórnarfundi á föstudag þegar af-
greiðsla fjárlagafrumvarpsins var
tekin á dagskrá, kvaðst í Morgun-
blaðinu í gær telja sig óbundna af
afgreiðslu ríkisstjórnar á frumvarp-
-Jnu. í fréttum Bylgjunnar í gær var
haft eftir Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra að ráðherra sem ekki standi
að fjárlagafrumvarpi geti ekki setið
í ríkisstjórn.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
að á síðasta ríkisstjómarfundi fyrir
afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins
hefði félagsmálaráðherra lýst fyrir-
vara í mörgum liðum við fjárlaga-
frumvarpið. „Málið var rætt í þing-
flokki Alþýðuflokksins og þar var
að minni tillögu samþykkt að leggja
höfuðáherslu á húsaleigubótamálið,"
—"sagði Jón Baldvin. Hann sagði að
þremur fulltrúum þingflokksins,
Karli Steinari Guðnasyni, formanni
fjárlaganefndar, Össuri Skarphéð-
inssyni umhverfisráðherra og Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra, hefði verið falið að leita
eftir samkomuiagi um málið við for-
sætisráðherra. „Það var gert og það
tókst, þannig að þetta samkomulag
var gert á ríkisstjórnarfundinum síð-
astliðinn föstudag í fullu samræmi
við samþykkt þingflokks Alþýðu-
flokksins."
Röng útganga
Aðspurður um stöðu og framtíð
Jóhönnu innan ríkisstjórnarinnar
sagði Jón Baldvin: „Ályktanir af
málinu eins og það stendur nú getur
hver og einn dregið."
Hver eru viðbrögð Jóns Baldvins
við útgöngu Jóhönnu? „í leikhúslíf-
inu er mér sagt að sé talað um vit-
lausar innkomur og rangar útgöng-
ur. Þetta flokkast undir hið síðar-
nefnda,“ sagði hann.
V#1
Á bæjarhlaðinu
Morgunblaðið/RAX
VALTYR Blöndal Guðmundsson bóndi í Bröttuhlíð í Svartárdal, sem gáir þarna til veðurs, hefur ekki lagt orfið og ljáinn með öllu á hilluna. Hann
notar þessi gömlu þarfaþing enn til að slá heimatúnið í Bröttuhllíð.
Flugmálastjórn ekki tryggð fyrir flugslysum vegna mistaka á flugstjórnarsvæðinu
Ríkið gæti verið bóta-
skylt vegna flugslysa
Komnir á þurrt
FÉLAGARNIR Sigurjón Andrésson og ívar Guðjónsson, sem var bjargað
úr Klettsvík í Vestmannaeyjum eftir að Zodiac-gúmbátur þeirra fauk um
koll, voru farnir að baksa við að koma utanborðsmótor bátsins í gang
strax um miðnætti á föstudagskvöldið, aðeins 2 'A tíma eftir að þeir var
bjargað. 7 mánaða gömul tík af íslensku kyni sem lenti í volkinu með
þeim var ekki langt undan. Myndin er tekin í bílskúr á heimili foreldra
Ivars þar sem Zodiac-báturinn var kominn í hús. Þeir félagar voru þeir
fyrstu sem nutu aðstoðar frá Þór, hinum nýja björgunarbát Björgunarfé-
-«áags Vestmannaeyja.
HJÁ Flugmálastjórn er nú til athugunar að kaupa trygging-
ar fyrir hugsanlegu manntjóni og fjárhagstjóni vegna flug-
slysa í lofti sem relg'a mætti til mistaka við flugumsjón á
flugsljórnarsvæði Reykjavíkur, samkvæmt upplýsingum
Hauks Haukssonar varaflugmálasijóra.
Að undanförnu hefur nokkuð verið
rætt um þann möguleika meðal
flugmálayfirvalda að ef farþegaþot-
ur færust á íslenska flugumsjónar-
svæðinu og orsakirnar yrðu raktar
til mistaka í fiugumferðarstjóm
gætu aðstandendur látinna farþega
og viðkomandi flugfélög farið í
skaðabótamál gegn íslenska ríkinu
og hugsanlega fengið dæmdar bæt-
ur sem næmu milljörðum króna.
Bæði Keflavíkurflugvöllur og
Reykjavíkurflugvöllur eru þegar
tryggðir fyrir tjóni og að sögn Pét-
urs Guðmundssonar, flugvallar-
stjóra á Keflavíkurflugvelli, hefur
ábyrgðartryggingu sem keypt er
erlendis vegna tjóns á flugvélum á
flugvellinum verið haldið í gíldi um
langt árabil.
Legið við slysum
Þrívegis hafa leiðir tveggja far-
þegaþotna skorist í nánast sömu
hæð á íslensku flugumferðarsvæði
á undanförnum ámm. 11. ágúst sl.
flugu tvær risaþotur, frá SAS og
Air Canada, mjög nærri hvor ann-
arri yfir íslensku flugumferðar-
svæði og var tveimur flugumferðar-
stjórum vikið frá vöktum tímabund-
ið á meðan rannsókn á meintum
mistökum við flugumferðarstjórn
Morgunblaðið/Sigurgeir
fer fram. Árið 1990 voru tveir flug-
umferðarstjórar sakfelldir af saka-
dómi Reykjavíkur fyrir að hafa ekki
sýnt nægilega árvekni og aðgæslu
þegar leiðir DC-8 vélar frá SAS
með 186 farþega innanborðs og
Boeing 747 fra British Airways
með 375 farþega skárust j svipaðri
hæð 2. júní árið 1986. í miðjum
febrúar árið 1990 lá einnig við stór-
slysi þegar ratsjármerki frá Boeing
747-vél ísraelska flugfélagsins E1
A1 kom ekki fram á ratsjárskjám
flugumferðarstjórnar en aðeins
nokkur hundruð metrar skildu þot-
urnar að þegar leiðir þeirra skárust
í 33 þús. feta hæð.
Aðrar þjóðir eru í auknum mæli
farnar að kaupa tryggingar vegna
flugslysa í háloftunum. Hefur Flug-
málastjórn haft til skoðunar tilhög-
un slíkra trygginga á Nýja Sjálandi
en þar hafa verið birtar ákveðnar
reglur um bótafjárhæðir vegna
flugslysa á ábyrgð flugumsjónar.
Flugmálayfirvöld á Nýja Sjálandi
kaupa svo endurtryggingu á al-
mennum tryggingamarkaði. Bóta-
upphæðirnar sem boðnar eru á
Nýja Sjálandi nema 126 þúsund
bandaríkjadölum eða tæplega 9
milljónum króna fyrir hvern látinn
farþega. Bætur vegna farangurs
nema um 24 þúsund kr. fyrir hvert
kíló og bætur vegna flugvélar mið-
ast við tryggingaverðmæti hennar.
Ef árekstur yrði á milli stærstu
farþegaþotna, sem fullhlaðnar geta
borið 4-500 farþega, vegna mistaka
við flugumferðarstjórn, gætu há-
marksbætur vegna farþega sem
færust numið allt að tíu milljörðum
króna og að viðbættum bótum
vegna flugvéla og farangurs gæti
upphæðin verið á annan tug millj-
arða króna.
Haukur Hauksson sagðist telja
brýnt að skoða þessi mál vel og
bera okkur saman við aðrar þjóðir
hvernig standa skuli að tryggingum
vegna flugumferðarstjórnar á ís-
landi.
Banaslys í
Garðabæ
BANASLYS varð á Bæjar-
brautinni í Garðabæ skömmu
fyrir klukkan eitt aðfaranótt
laugardagsins. Ekið var yfir
rúmlega þrítugan mann sem
lá á götunni, en ökumaður
segir að hann hafi ekki séð
manninn enda skyggni mjög
slæmt er þetta varð, rigning
og dimmt.
Að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði hafði borist til-
kynning skömmu áður um að
maður væri að hlaupa í veg
fyrir bíla á Bæjarbrautinni. I
þann mund sem lögreglan ætl-
aði að kanna málið varð slysið.