Morgunblaðið - 14.09.1993, Page 34

Morgunblaðið - 14.09.1993, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEITEMBER 1993 + Hörmuleg byijun Shorts -___________Skák______________ Margeir Pétursson HEIMSMEISTARINN í skák, Gary Kasparov, 30 ára, hefur tekið ör- ugga forystu í byrjun í einvígisins við Englendinginn Nigel Short, 28 ára. Kasparov vann þriðju skákina á laugardaginn og hefur nú hlotið tvo og hálfan vinning, en Short aðeins hálfan. Alls verða tefldar 24 skákir. Þrátt fyrir rýra uppskeru hefur Englendingurinn sýnt af sér afar góð tilþrif, en tímahrak hefur mjög háð honum í ölium skákunum þremur. I þriðju skákinni átti hann aðeins 5 mínút- ur til að leika 14 leiki á meðan Kasparov átti helmingi meiri tíma. Skákin á laugardaginn fór afar rólega af stað. Byijunin var spánski leikurinn rétt eins og í fyrstu skák- inni. Jonathan Speelman, einn helsti aðstoðarmaður Shorts, var ánægður með stöðuna eftir 11 leiki. En Short virtist ragur við að taka af skarið eftir að hafa hlotið gagnrýni fyrir vanhugsaðar framrásir í fyrstu skák- inni. Þetta hik notfærði Kasparov sér til að ná biskupaparinu og ívið betri stöðu. Speelman gat ekki annað en viðurkennt að Short tefldi byijanirn- ar ekki nægilega hlutlægt. Kasparov byggði stöðu sína hægt og örugglega upp og Short átti í raun vart um annað að velja en freista þess að ná árás á hvíta kóng- inn. Báðir eyddu miklum tíma og þegar til tíðinda dró í 26. leik var ljóst að mikill darraðardans væri framundan. Þá var orðið ljóst að sókn Short stæðist ekki ströngustu kröfur, en Kasparov urðu á mistök i vörninni og gaf kost á glæsilegri og snarpri árás. En á úrslitastundu sagði tímahrakið ti! sín, Short láðist ■v að leika bráðnauðsynlegum millileik og með einföldum riddaraleik náði heimsmeistarinn að hrinda sókninni. Með manni meira fyrir aðeins tvö peð veittist honum eftirleikurinn síð- an auðveldur. Kasparov viðurkenndi eftir skák- ina að heppnin hefði verið með hon- um. Short var fremur daufur í dálk- inn en sagðist tefla stíft til vinnings og í því væri fólgin mikil áhætta. Það virðast nú sárafáir veðja á sigur Shorts í einvíginu. Fyrir þriðju skákina höfðu veðbankar þegar Kasparov við upphaf þriðju skákarinnar. A minni myndinni er Jonathan Speelman, aðstoðarmaður Shorts og félagi í enska landsliðinu, sem var ánægður eftir 11 leiki, en fljótlega kom annað hljóð í strokkinn. lækkað möguleika hans í 1:5, en lík- ur á sigri Kasparovs 5:6. Það er samt alltof snemmt að afskrifa Short. Hann hefur vaxið með hverri raun á leiðinni í HM og verið undir í þremur síðustu einvígjum sínum, þó aldrei hafi munað tveimur vinningum hon- um í óhag eins og nú. Það er ekki hægt að segja að Gary Kasparov hafí sýnt nein snilld- artilþrif í einvíginu fram að þessu. Samt hefur hann náð að vinna tvær skákir af þremur. Sú spuming hlýtur að vakna, hvað verði um Short þegar Kasparov fer að ná sínum hættuleg- um sóknum og að nýta yfirburða- þekkingu sína á byijunum. 3. einvígisskákin: Hvítt: Gary Ka- sparov Svart: Nigel Short Spánski leikurinn 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - 0-0 8. a4 Enn treystir Kasparov sér ekki til að mæta Marshall árásinni sem kem- ur upp eftir 8. c3 — d5 og beitir „Anti-Marshall“ afbrigði. í fyrstu skákinni svaraði Short þessu óvænt með 8. — b4, en nú velur hann eðli- legri leik. 8. - Bb7 9. d3 - He8 10. Rbd2 - Bf8 11. c3 - h6 Hér eða í næsta leik var mögulegt að leika d7—d5. Öfugt við fyrstu skákina teflir Short nú fullrólega eftir byijunina. 12. Ba2 - d6 13. Rh4! í þessari rólegu stöðu hefur Kasp- arov tíma til að næla sér í biskupa- parið. Svartur getur ekki leikið 13. — Re7 vegna 14. Db3! 14. Rg6 - Re7 15. Rxf8 - Kxf8 16. f3 Styrkir miðborðið og undirbýr að leika d3—d4 við tækifæri. Hvítur stendur nú betur að vígi, svartur á t.d. ekki lengur kost á d6—d5, því þá kæmi hvítur strax riddara í öfluga stöðu á c5. 16. - Had8 17. b4 - Rg6 Opnun stöðunnar yrði hvítum í hag og eina áætlun Shorts er því að reyna að byggja upp sóknarfæri á kóngs- vængnum. 18. Rb3 - Bc8 19. Bbl - Rh5 20. axb5 - axb5 21. Be3 - Rh4!? 22. Ha2 Short er ekki farinn að hóta að fórna á hvítu kóngsstöðuna, en Ka- sparov treystir samt vamirnar. Hann virtist ekki yfir sig ánægður með stöðuna, sumir áhorfenda þóttust sjá að hann væri orðinn rauður á eyrun- um. Það er að sögn enskra skákský- renda merki þess að honum hafí yfír- sést eitthváð. 22. - He6 23. d4! I mörgum kennslubókum stendur að sókn á væng beri að svara með aðgerðum á miðborði. 23. - Hg6 24. Khl Kasparov varð að svara hótuninni 24. - Dh3. 24. - He8 25. dxe5 - Hxe5 Það kom ekki til greina fyrir Short að gefa kost á drottningakaupum í stöðunni, en samt notaði hann fimm mínútur á leikinn og átti 14 mínútur eftir fram að 40 leik, en Kasparov 13. Short hefur nú náð að koma öll- um mönnum sínum i sóknina, sem er athyglisverður árangur útaf fyrir sig, en gallinn er sá að þeir þvælast nokkuð hver fyrir öðrum og Ka- sparov á tvær leiðir til að vinna lið í stöðunni, 26. f4 og 26. g4. Leið sú sem hann velur er líklega traustari. 26, g4 - Hf6 í þennan leik fóru hvorki meira né minna en níu dýrmætar mínútur og Short átti aðeins fimm mínútur eftir. Hann getur ekki komist hjá því að fórna manni fyrir tvö hvít peð á kóngsvæng, 26. — Rf6 er svarað með 27. Bf2. Eins og kemur í Ijós í framhaldinu hefur Short séð mjög langt á þessum níu mínútum og eft- ir skákina benti hann á að sterkasti leikur Kasparovs í stöðunni væri 27. Rd4! sem tryggir hvítum vinnings- stöðu. Þá er bæði 27. — Rf4 og 27. — c5 svarað með 28. Rf5! Ef hvítur tekur manninn strax nær svartur hins vegar öflugu spili eftir 27. gxh5?! - Rxf3. 27. Bd4? 27. - Rg3+!! Stórkostlegur leikur og miklu sterkari en 27. — Rxf3? 28. Bxe5 — Dxg4 29. Ha8 og hvítur vinnur auð- veldlega. 28. hxg3 — Rxf3 29. Bxe5 — Dxg4 30. Hh2 - Rxel! 31. Dxel « b c d • ( g h 31. - dxe5?? Með glæsilegri taflmennsku hefur Short skapað sér stórhættuleg færi, en hér bregst honum bogalistin með afdrifaríkum afleiðingum. Nauðsyn- legt var að skjóta inn milliskákinni 31. — Df3+! 32. Kgl og leika síðan 32. — dxe5. Hvítur á þá við miklu erfiðari vandamál að stríða en í skák- inni og jafntefli er líklegasta niður- staðan. Besti leikur hvíts er þá 33. Hd2 (Nú gengur 33. Rd2 ekki vegna 33. - Dxc3) en eftir 33. - Bh3 34. Bd3 — Kg6 35. Kh2 — Dh5 á hvítur vart neitt betra en að bjóða upp á jafntefli með 36. Kgl, því 36. Be2 — Bg4+ 37. Kgl - Bf3! 38. Bxf3 — Dxf3 39. Hg2 — Hd6 er mjög varasamt. Eftir þessi mistök Shorts á Kasparov einfaldan varnar- leik dregur tennurnar úr svörtu sókn- inni. Með mann yfir fyrirtvö peð eru vinningsmöguleikar hvíts orðnir miklir. 32. Rd2 - Hd6 33. Bc2 - Be6 34. Kgl - Kg8 35. Rfl - Dg5 36. De3 - Dd8 37. Hd2 - c6 38. Hxd6 — Dxd6 39. Dc5 — Dxc5+ * Skákþing Islands 'Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson jafnir í efsta sæti ___________Skák_______________ Bragi Kristjánsson FIMM umferðir hafa verið tefldar í landsliðsflokki á Skák- þingi íslands, BYKO-mótinu, þegar þessar línur eru ritaðar. Keppnin um Islandsmeistaratit- ilinn stendur á milli stórmeist- aranna. Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson hafa 4 vinninga hvor, en Hannes Hlífar Stefáns- son hefur 3 vinninga og eina frestaða skák. í umferðum helg- arinnar bar það helst til tíðinda, að Jóhann vann Hannes Hlífar og Þröstur Þórhallsson vann Helga Ólafsson. íslandsmót kvenna er teflt á sama stað og hafa verið tefldar þrjár umferð- ir. Keppendur eru aðeins fjórir, og er staðan þessi: 1. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 1 lh v. (af 2); 2. Anna Björg Þorgrímsdótt- ir, l'/i v.; 3. Helga Guðrún Ei- ríksdóttir, V2 v. (af 1); 4. Guðný Hrund Karlsdóttir, Vi v. (af 2). Það var mikið um að vera í Skákmiðstöðinni í Faxafeni 12 um helgina. Helgarmót var teflt í Skákskóla íslands, þar sem 30 þátttakendur tefldu fimm umferð- ir, en sjötta og síðasta umferð var í gærkveldi (mánudag). Efstu menn fyrir síðustu umferð voru: 1.-2. Kristján Eðvarðsson og Magnús Örn Úlfarsson, 4'A v. hvor; 3.-4. Ólafur B. Þórsson og Ingvar Þ. Jóhannesson, 4 v.; 5.-7. Arnar E. Gunnarsson, Bergsteinn Einarsson og Davíð Kjartansson, 3 V2 v. hver. Til viðbótar við þessi þijú skák- mót gátu skákunnendur fylgst með heimsmeistaraeinvígjunum á Englandi og Hollandi, en leikirnir berast jafnóðum frá þeim. Keppnin í landsliðsflokki hefur verið skemmtileg, en eins og við er að búast, eru það stórmeistar- arnir, sem beijast um sigurinn. Þröstur Þórhallsson gæti þó hugs- anlega blandað sér í baráttuna um efstu sætin, en hann vann mikil- vægan sigur á Helga Ólafssyni í mikilli baráttuskák í Ijórðu um- ferð. Helgi lenti í þrengingum í byrjun, en í tímahrakinu gerðist margt. Þröstur fórnaði manni, en Helgi fann snjalla vörn og fékk unnið tafl, sem hann lék niður í tap í framhaldinu. Jóhann og Helgi Ólafs hafa teflt mjög vel á mótinu og virðast ekki líklegir til að gefa eftir. Hannes Hlífar tapaði fyrir Jóhanni í fimmtu umferð og á eft- ir að hafa svart gegn Helga Ólafs í kvöld, en hann stendur vissulega vel að vígi með 3 vinninga og fre- staða skák. Um aðra keppendur er það helst að segja, að Guðmund- ur Gíslason hefur staðið sig vel til þessa, og Haukur Angantýsson hefur barist mjög vel, þótt ekki hafi hann ráðið við stórmeistarana þijá. Björgvin og Jón Garðar hafa hins vegar teflt langt undir styrk- leika. Staðan í landsliðsflokki er þessi eftir 5. umferð: 1.-2. Helgi Ólafs- son og Jóhann Hjartarson, 4 v. hvor; Hannes Hlífar Stefánsson, 3 v. og frestaða skák; 4. Guðmundur Gíslason, 3 v.; 5. Þröstur Þórhalls- son, 2V2 v. og frestaða skák; 6.-7. Andri Áss Grétarsson og Sævar Bjarnason, 2V2 v.; 8.-9. Helgi Áss Grétarsson og Tómas Björnsson, 2. v. hvor; 10.-11. Björgvin Jóns- son og Haukur Angantýsson, U/2 v. hvor; 12. Jón Garðar Viðarsson, IV2 v. Við skulum að lokum sjá stór- meistaraslaginn í fimmtu umferð. Hvítt: Jóhann Hjartarson. Svart: Hannes Hlífar Stefáns- son. Spánski leikurinn. 1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 — Bé7, 6.Hel - b5, 7. Bb3 - d6, 8. c3 - 0-0, 9. h3 - Bb7 (Þessi Ieið er þekkt eftir margar geysiflóknar skákir í heimsmeist- araeinvígjum Kasparovs og Karpovs. Aðrir algengir leikir í stöðunni eru 9. — Ra5, 9. — Rb8 og 9. — h6.) 10. d4 - He8, 11. Rg5 - Hf8, 12. Rf3 - He8, 13. Rbd2 - (Friðsemdarmenn hafa notað þetta afbrigði til að þráleika með 13. Rg5 - Hf8, 14. Rf3, en Jó- hann hefur ekki áhuga á slíku. 13. - Bf8, 14. a4 - h6, 15. Bc2 - g6 (I heimsmeistaraeinvígjunum Kasparov — Karpov var leikið hér 15. — exd4, t.d. 16. cxd4 — Rb4, 17. Bbl - c5, 18. d5 - Rd7, 19. Ha3 - f5!?, 20. Hae3 - Rf6, 21. Rh2 — Kh8, 22. b3 — bxa4, 23. bxa4 — c4I, 24. Bb2 — fxe4, 25. Rxe4 — Rfxdö með gífurlega flók- inni stöðu (20. einvígisskákin- í Lyon 1990).) 16. d5 - Re7?! (Riddarinn stendur illa á þess- um reit. Betra var 16. — Rb8, t.d. 17. b3 — c6, 18. c4 — bxc4, 19. bxc4 — a5, 20. Hbl — Dc7, 21. Rb3 - Ba6, 22. Bd3 - Rbd7, 23. Bd2 — cxd5, 24. Bxa5 — Da7, 25. cxd5 — Bxd3, 26. Dxd3 — Rc5, 27. Rxc5 — Dxa5, 28. Rb3 — Dxa4 með jöfnu tafli (Ivansjúk — Ljúbojevic, Monakó 1993).) 17. b3 - c6, 18. c4 - Dd7, 19. Rfl - Rh5, 20. Re3 - Rf4, 21. h4 - bxc4.) (Hannes hefði ef til vill átt að reyna að loka taflinu á drottn- ingarvæng.) 22. bxc4 - a5, 23. g3 - Rh5, 24. Rd2 - Rc8, 25. Rb3 - Rb6, 26. Bd2 - cxd5, 27. cxd5 - Rxa4, 28. Rc4 - Hab8, 29. Rbxa5 - Rc5, 30. Be3 - Dc8?! (Hannes vill halda opnum möguleika á að leika Dh3 ásamt Rxg3, en hann hefði betur leikið 30. — Dc7, til þess að geta í 32. leik drepið til baka á b8 með hrók. í því tilviki hefði svartur komist hjá að drepa með peði á c5 eins og í skákinni, og gefa hvíti þannig valdað frípeð á d5.) 31. Hbl - Ba6, 32. Hxb8 - Dxb8, 33. Bxc5 — Bxc4, 34. Rxc4 — dxc5 (Hvítur á nú unnið tafl, vegna valdaða frípeðsins á d5, sem er dyggilega stutt af riddara á c4 og drottningu.) 35. Dd3 - Rf6, 36. Kg2 - Dc7, 37. Hbl - Hb8, 38. d6 - Dd8, 39. Hal - Rd7 (Svartur hefði getað reynt að tefla vörnina virkt, en það hefði litlu breytt, t.d. 39. — Hb4, 40. Bb3 - Db8, 41. Ha3 - Db7, 4.2. Rxe5! — Dxe4+, (42. — Hxe4, 43. Df3), 43. Dxe4 - Hxe4, 44. d7 - Be7, 45. Rxg6! - Rxd7, 46 Ha7 — c4, 47. Rxe7+ — Hxe7, 48. Ba4 og vinnur skiptamun.) 40. Ha7 - Ha8, 41. Hc7, Hc8, 42. Ba4 - Rb6, 43. Hxc8 - Rxc8, 44. d7 - Re7, 45. Rxe5 - Bg7 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.