Morgunblaðið - 19.09.1993, Side 14

Morgunblaðið - 19.09.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993 mmm pól vbuuu sm BHKI mHETJUHUM Upplausn ríkir á kægri vængnum og fyrrum kommúnisttum er spáó sigri i kosningunum i dag Andúó á st jórnmálamönnum Hanna Suchocka skreytir kosningaspjald Lýðræðisfylkingarinnar. Líkt og myndin sýnir hafa Iistamenn götunnar látið forsætisráðherrann reka tunguna framan í kjósendur og textanum hefur verið breytt þannig að í stað „Efnahagurinn í fyrirrúmi“, sem er kosningaslagorð flokksins, segir: „Fyrst hrynur efnahagurinn.“ eftir Ásgeir Sverrisson NÓBELSVERÐLAUNASKÁLDH) Alexander Solzhenitsyn lýsti ný- verið vonbrigðum manna í Rúss- landi vegna efnahagsþrenginga og misskiptingar auðsins á þann veg að landar hans væru teknir að þrá á ný hið „fullkomnajafnræði hinna allslausu." í Rússlandi líkt og víðar í Sovétríkjunum sálugu hafa versn- andi lífskjör orðið til þess að þeim fjölgar ört sem teknir eru að sakna hinna gömlu daga, sem að sönnu voru ekki góðir en báru þó fátt óvænt í skauti sér. Nú sjá margir ofsjónum yfír uppgangi hinna framtakssömu, og eignatilfærslan og mafíustarfsemin hefur sann- fært þá sem fyrir utan standa að allt illt komi úr vestri. Afkomu- öryggið er ekkert, algjör upplausn ríkir á mörgum sviðum þjóðlifsins og hugarfar margra mótast enn af reglum alræðisins. Þessi lýsing hefur nú um nokkurt skeið átt við um Rússland og önnur fyrrum lýð- veldi Sovétrílganna en að hana megi einnig að nokkru leyti heim- færa upp á Pólland heyrir til tíð- inda. Alltjent hefur andúð á stjórn- málamönnum og vaxandi óánægja getið af sér pólitískt minnisleysi í Póllandi; vera kann að vonsviknir kjósendur leiði flokk fyrrum kommúnista til sigurs í þingkosn- ingunum sem fram fara í dag. Pólverjar fóru fremstir í flokki er þjóðirnar í Austur-Evrópu risu upp gegn alræði kom- múnismans. Samstaða, verkalýðs- hreyfingin óháða, var sú fyrsta sem hlaut viðurkenningu stjómvalda í Austur-Evrópu og Lech Walesa, raf- virkinn frá Gdansk, varð samnefnari fyrir lýðræðiskröfur og frelsisþrá pólsku þjóðarinnar. Nú er Walesa vændur um þijósku, ofríki og ein- ræðistilburði og einungis nokkur hundruð manns sáu ástæðu til að taka þátt í hátíðarhöldum sem boðað var til fyrir skömmu er þess var minnst að 13 ár voru liðin frá því starfsemi Samstöðu var heimiluð. Upplausn hefur einkennt pólsk stjórnmál frá því í þingkosningunum 1991. Einungis innvígðir geta talið upp alla þá sem gegnt hafa starfi forsætisráðherra á þessu tímabili en fasti punkturinn í stjómmálalífi landsins hefur verið Lech Walesa forseti. Nú þegar almenningur virð- ist telja ríkjandi ástand óviðunandi og kröfur um atvinnuöryggi og stöð- ugleika verða sífellt háværari er Walesa skyndilega ekki lengur sam- einingartáknið sem vísar fram ,á veginn í átt til lýðræðis og kapítal- isma. Persóna forsetans er orðin samnefnari fyrir upplausnina. Efnahagur á uppleið Pólveijar ákváðu að endurskipu- leggja efnahagslíf landsins með mjög snöggum hætti er kommúnisminn leið undir lok og hlutu fyrir mikið lof hagfræðinga á Vesturlöndum. Ávallt var vitað að þessi umskipti, sem þykja söguleg á vettvangi hagfræði, myndu kosta miklar fómir og það mat reynd- ist rétt; lífskjörin versnuðu til muna, ævintýralegar verðhækkanir riðu yfir og sala ríkisfyrirtækja gat af sér mikið atvinnuleysi. Nú benda hagtöl- ur hins vegar til þess að botninum sé náð og raunar er því spáð að hag- vöxtur verði á bilinu 3-4% á þessu ári. Flest þendir til þess að tilraunin hafi tekist. Margir ráðamenn innan Kommún- istaflokksins gengu í gegnum ákveðna sálarhreinsun á árunum 1989-1990, sumum var sparkað og nýir menn tóku við. Stofnað var „Lýðræðisbandalag vinstri manna,“ sem í raun átti, á yfirborðinu að minnsta kosti, fátt sameiginlegt með kommúnistum fortíðarinnar og nor- rænum vinstri sósíalistum. Þannig lýstu talsmenn forvera þessara sam- taka yfir því í samtali við Morgun- blaðið vorið 1990 að þeir væm fylgj- andi einkavæðingu, viðskiptafrelsi og aðild Póllands að Evrópubanda- laginu og Atlantshafsbandalaginu væri hún í boði. Hinn pólitíski ágreiningur snerist einkum um hversu hratt skyldi farið og hvernig milda mætti áhrif þeirra miklu um- skipta sem væru í vændum. Því er það svo að þótt talað sé um flokk fyrrum kommúnista í Pól- landi ber að varast að leggja þau samtök fyllilega að jöfnu við þau sem starfa t.a.m í Rúmeníu eða Sovétríkj- unum sálugu. Þannig hafa þingmenn „Lýðræðisbandalags vinstri manna“ stutt löggjöf um einkavæðingu á pólska þinginu, Sejm. Sigur þessa flokks í þingkosningunum myndi því ef til vill fyrst og fremst hafa sálræn áhrif bæði innanlands sem utan. Verði flokkurinn stærstur þing- flokka í Póllandi og leiðtogi hans, Alexander Kwasniewski eða einhver samstarfsmar.na hans næsti forsæt- isráðherra munu með réttu eða röngu vakna efasemdir um að fram- hald verði á umbótastefnunni. Hinir tortryggnu óttast að Kwasniewski sé í raun valdalaus, hentugur og orðheppinn fulltrúi gömlu forrétt- indastéttarinnar. Umskipti í þessa veru kunna aftur að hafa áhrif erlendis og verða tæp- ast til þess að greiða fyrir aðild Póllands að Evrópubandalalaginu eða NATO, sem stjórnvöld hafa lagt ríka áherslu á. Erlend fjárfesting gæti og dregist saman í Póllandi og haft er fyrir satt að Borís Jeltsín Rússlandsforseti hugsi til þess með hryllingi að fyrrum trúbræður hans taki við stjómartaumunum í Varsjá. Upplausn á hægri vængnum Hvaða líkur eru á því að fyrrum kommúnistar fari með sigur af hólmi í kosningunum í dag? Þær eru um- Fölnandi Ijómi frelsishetjunnar ÞRÁTT fyrir að Lech Walesa, for- seti Póllands, njóti afreka sinna vegna yfirburðastöðu í stjórn- málalífi landsins er Ijóminn um hann tekinn að fölna. Forsetinn hefur verið vændur um valdníðslu og hroka og í nýlegri könnun kváðust 45% þeirra sem þátt tóku ekki treysta honum. talsverðar ef marka má skoðana- kannanir. Þó ber að hafa í huga að flokkaflóran hefur verið fjölskrúðug þar eystra og því nánast útilokað að einhver einn flokkur tryggði sér yfirburðastöðu í póiskum stjórnmál- um. í kosningunum 1991 fengu 29 flokkar og kosningasamtök fulltrúa á þingi. Nú hafa verið sett lög þess efnis að 5% atkvæða þurfi til að til- tekinn flokkur fái kjörinn fulltrúa og 8% er þörf í þeim tilfellum þar sem kosningabandalög hafa verið mynduð. Þar sem upplausnin og flokkadrættirnir hafa einkum verið á hægri væng pólskra stjórnmála aukast möguleikar sameinaðra vinstri manna. Flokkar kaþólskra, sem beittu sér fyrir setningu laga um fóstureyðingar, sem trúlega eru hin ströngustu í Evrópu, hafa átt mjög undir högg að sækja í kosn- ingabaráttunni. Einhveijir þeirra munu heyra sögunni til eftir þing- kosningarnar í dag. Flokkur fyrrum kommúnista sæk- ir einkum fylgi sitt til eldra fólks, sem lífskjaraskerðingin hefur bitnað. einna verst á og fyrrum flokksgæð- inga auk þess sem óánægjufylgið virðist ætla að vera óvenju mikið. Því er haldið fram að flokkurinn fái hugsanlega 20% atkvæða. Það væri mikill sigur ekki síst sökum þess að velgengni flokksins í síðustu kosn- ingum vakti athygli víða um heim en þá fékk hann um 12% greiddra atkvæða. Flokkurinn hefur því tryggt sér fastan sess í pólskum stjórnmálum. Umbótasinnar gegn markaðsöflum Hið sama verður ekki sagt um hægri vænginn og þar ber Lech Walesa mikla ábyrgð. Árið 1991 hleypti hann af stað miklum átökum innan Samstöðu, sem leiddu til þess að hreyfmgin klofnaði í nokkra smá- flokka. Ein skýringin á þessu var sú að Walesa vildi stuðla að sundrungu til þess að ekki kæmi fram neinn einn maður sem ógnað gæti yfir- burðastöðu hans í pólskum stjórnmál- um. Þetta tókst forsetanum. Forsæt- isráðherrar komu og fóru sem og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.