Morgunblaðið - 19.09.1993, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 19.09.1993, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993 35 ATVIN N1IA UGL YSINGA R Útgefendur Vanur þýðandi (þýska, enska) getur bætt við sig verkefnum í haust og í vetur. Upplýsingar í síma 96-23996. Aðstoðarmann vantar í prentsmiðju, vanan og reglusaman. Þarf að geta hafið störf strax. Umsóknum skal skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir 23. september merktum: „Ekki reykingar - 3863“. lL ST. JÓSEFSSPÍTALI LANDAKOTI Hjúkrunarfræðingar Okkur vantar hjúkrunarfræðinga á eftirtaldar deildir: Augnlækningadeild 1B Hjúkrunarfræðing á 60% næturvaktir. Á deildinni eru 16 rúm og er hún lokuð um helgar. Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Sigur- jónsdóttir, hjúkrunarstjóri, s, 604380. Hafnarbúðir Hjúkrunarfræðing á næturvaktir við hjúkrun aldraðra. Lítil og heimilisleg deild. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Jóna Her- mannsdóttir, hjúkrunarstjóri, s. 604300. Lyflækningadeild 3B Hjúkrunarfræðing á vaktir eða eftir sam- komulagi. Á deildinni eru 16 rúm. Nánari upplýsingar veitir Þórunn Kristjáns- dóttir, hjúkrunarstjóri, s. 604330 Góður aðlögunartími. Leikskólapláss fyrir alla aldurshópa á góðum leikskólum. Starfskraftur Einn af umbjóðendum mínum hefur beðið mig um að auglýsa eftir starfskrafti. Um er að ræða tiltölulega stórt fyrirtæki á sviði útflutnings- og innflutningsverslunar. Leitað er eftir starfsmanni, sem annast mundi sölu og samningagerð á frystum sjáv- arafurðum. Staðgóð þekking á sjávarútvegi og góð mála- kunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl., merktar: J - 4751“, fyrir 28. sept. nk. BÖKHALD OG ENDURSKOÐUN Jón Ólafsson LÖGGILTUR ENDURSKOÐANDI SKIPHOLTI 35 105 REYKJAVlK SlMI 680522 txi Þroskaþjálfi í Seljahverfi í Breiðholti er sambýli fyrir fatl- aða unglinga. Sambýlið tók til starfa í maí sl. og er öll starfsemi enn í mótun. Þar bráð- vantar þroskaþjálfa til starfa. Um er að ræða vaktavinnu. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og ber að skila umsóknum til Svæðisskrifstofu. Nánari upplýsingar veitir Kristrún í síma 870370. Svæðisskrifstofa málefna fatiaðra, Nóatúni 17, 105 Reykjavík. Framtíðarstarf 22 ára stúlka óskar eftir framtíðarstarfi við skrifstofustörf. Hefur próf úr Skrifstofu- og ritaraskólanum og reynslu. Upplýsingar í síma 683715 eftir kl. 17.00. Petrína. Lögfræðingur Lögfræðiskrifstofa Guðjóns Ármanns Jóns- sonar hdl. óskar að ráða löglærðan fulltrúa í fullt starf. Starfssvið fulltrúans yrði að mestu leyti á sviði innheimtumála en á lög- fræðiskrifstofunni er rekin viðamikil starf- semi á því sviði. Skriflegum umsóknum sé skilað til skrifstof- unnar eigi síðar en mánudaginn 27. sept. nk. kl. 15.00, en munnlegum fyrirspurnum svara Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Sif Konráðsdóttir hdl. á opnunartíma skrifstof- unnar. Guðjón Ármann Jónsson hdl. SUÐURLANDSBRAUT 30 5. HÆÐ • 108 REYKJAVÍK S 687999 Lögreglumaður Laus er til umsóknar afleysingastaða aðstoð- arvarðstjóra á Seyðisfirði. Staðan veitist frá 18. október nk. til 1. október 1994. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi í lög- regluskóla ríkisins. Skriflegar umsóknir skulu hafa borist fyrir lokun skrifstofunnar fimmtudaginn 30. september nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir undirrit- aður í síma 97-21407. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði, 15. september 1993, Lárus Bjarnason. BESSASTAÐAHREPPUR Bókasafn Bessastaðahrepps auglýsir eftir umsóknum um stöðu forstöðu- manns Bókasafns Bessastaðahrepps. Um er að ræða hlutastarf. Æskilegt er að umsækjendur hafi próf í bóka- safns- og upplýsingafræðum. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Bessa- staðahrepps í síðasta lagi þriðjudaginn 28. september 1993 kl. 12.00. Sveitarstjóri Bessastaðahrepps. Við leitum að góðum auglýsingateiknara Vaka-Helgafell vill ráða hugmyndaríkan og hressan auglýsingateiknara til starfa. Hann þarf að geta unnið sjálfstætt, tekið þátt í hópvinnu og verður að kunna á teikni- og hönnunarforrit á Macintosh-tölvum. í boði er skemmtilegt starf, góð laun og aðlaðandi starfsumhverfi. Ef þú heldur að þetta sé starf fyrir þig, sendu þá inn skriflega umsókn til Vöku-Helgafells, Síðumúla 6, 108 Reykjavík, merkt: „Auglýs- ingateiknari" fyrir 28. september 1993. VAKA-HELGAFELL VINNU- OG DVAIARHEIMIU SJÁLFSBJARGAR Endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar Staða sjúkraþjálfara til afleysinga er laus til umsóknar í eitt ár. Um er að ræða 100% stöðu sem veitist frá 1. janúar 1994 eða fyrr. Umsóknir skulu sendar Kristínu E. Guð- mundsdóttur, yfirsjúkraþjálfara, sem veitir nánari upplýsingar í síma 29133 mánudag og þriðjudag kl. 10-12 báða dagana. LANDSPITALINN Reyklaus vinnustaður BARNASPITALI HRINGSINS Nú þegar vantar hjúkrunarfræðing í dag- vinnu. Um er að ræða starf á sjúkradeild. Semja má um starfshlutfall og tímalengd ráðningar. Þeir sem vilja kynna sér hvað í boði er, leiti nánari upplýsinga hjá Hertu W. Jónsdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra, í síma 601000/601033. SKURÐDEILD LANDSPÍTALANS Við skurðdeild Landspítalans eru lausar 2 stöður skurðhjúkrunarfræðinga. Starfsemi deildarinnar er ákaflega fjölbreytt og býður upp á mörg tækifæri. Boðið er upp á aðlög- un með reyndum skurðhjúkrunarfræðingi. Upplýsingar veitir Svala Jónsdóttir, hjúkrun- arstjóri skurðdeildar, í síma 601317, og Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 601366 eða 601300. BLOÐSKILUNARDEILD LANDSPÍTALANS Hjúkrunarfræðingar óskast á blóðskilunar- deild Landspítala. Um fullt starf eða hluta- starf getur verið að ræða. Starfið felst í hjúkr- un sjúklinga í blóð- og kviðskilun. Góð aðlög- un er í boði og góður vinnutími. Upplýsingar gefur Björk Finnbogadóttir, hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601285, eða Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 601303 og 601300. HUÐ- OG KYNSJUKDOMADEILD LANDSPÍTALANS Staða hjúkrunardeildarstjóra á húð- og kyn- sjúkdómadeild Landspítalans á Vífilsstöðum er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 30. september 1993. Upplýsingar gefur Bjargey Tryggvadóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri, í síma 602828. ENDURHÆFINGAR- OG HÆFINGARDEILD LANDSPÍTALANS í KÓPAVOGI Oskum að ráða þroskaþjálfa í deildarstjóra- stöðu á barnadeild - deild 20. Staðan veitist frá og með 1. janúar 1994. Umsóknarfrestur er til 15. október nk. Nánari upplýsingar veita Sigríður Harðar- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, og Hulda Harðardóttir, yfirþroskaþjálfi, í síma 602700 frá kl. 8.00-16.00. RIKISSPIT AL AR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.