Morgunblaðið - 19.09.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1993
19
verki hins sérkennilega Hinriks,
sem er Assiríufræðingur og lifir
og hrærist í veröld sem var 1200
fyrir Kristsburð. Þorsteinn náði að
skapa mjög skýra og skemmtilega
týpu; gáfaðan klaufabárð sem er
að reyna að vera til í nútíma sem
er honum fullkomlega framandi.
Eins og svo oft í sýningum á
stóra sviði Borgarleikhússins eru
útlit sýningarinnar mjög vel unnið.
Leikmyndin er ríkmannlegt heimili
Klinkes, án þess að þar sé einhver
íburður. Þetta er smekklegt heimili
og ber því vott að vera íverustaður
einstaklinga sem eru ósköp eðlileg-
ir. Það er því leiðinlegt að leikurinn
skuli undirstrika að þarna búi frem-
ur óeðlilegt fólk. Búningarnir eru
mjög skemmtilegir. Karlarnir eru,
eins og karlar á öllum tímum, í
ýmsum tilbrigðum (mjög tempruð-
um þó) við þann einkennisbúning
sem tilheyrir þeim. Teinóttu jakka-
fötin eru „períódubúningar" karla
í þessum vissa þjóðfélagsstiga og
enginn ögrar þeirri staðreynd -
nema auðvitað Hinrik í sínum Ass-
iríu-rannsóknarbúningi, enda tal-
inn undarlegur. Kjólar kvennanna
sérlega skemmtilegir í sínum
tempruðu pastellitum og búningur
Spanskflugunnar í skærri hrópandi
mótsögn; ljóst að hver karakter
hefur sitt litróf. Tónlistin er flutt
af þeim Carli Möller, píanóleikara,
Guðmundi Steingrímssyni, slag-
verksleikara, og Árna Scheving,
sem leikur á bassa. Hún var vel
leikin, þótt hún hefði mátt hafa
meiri kraft (eins og sýningin í heild)
og samleikurinn milli leikhópsins
og tónlistarmannanna var eitthvað
það skemmtilegasta í sýningunni -
sem tónlistarmennimir léku þó bet-
ur.
Hvað leikstjórn varðar, eru
margar góðar hugmyndir í sýning-
unni, eins og samleikur leikara og
tónlistarmanna er dæmi um, en hún
er unnin af of mikilli varkárni, sem
ræna hana ijöri og gera hana dálít-
ið seigfljótandi.
Aðrir stjórnmálaflokkar en
Kristilegi demókrataflokkurinn
(CDU) eru heldur ekki á því að
styðja Heitman. Stærsti stjómar-
andstöðuflokkurinn, Jafnaðar-
mannaflókkurinn (SPD), mun lík-
lega bjóða fram Johannes Rau,
fyrmm forsætisráðherra Nordr-
hein-Westphalen, í forsetaembætt-
ið og Fijálsir demókratar lögðu til
skamms tíma mesta áherslu á að
Genscher yrði forseti (þó svo að
hann hefði aldrei gefið kost á sér).
Það eru þó ekki allir á móti því
að Heitmann verði fyrir valinu
þegar Sambandsþingið velur nýjan
forseta í apríl næstkomandi. í for-
ystugrein í dagblaðinu Frankfurter
Allgemeine Zeitung segir að vissu-
lega skipti það máli hvaðan maður-
inn komi þegar í fyrsta skipti verð-
ur kjörið í æðsta embætti samein-
aðs Þýskalands. Heitmann, sem
hafi staðið sig vel í embætti dóms-
málaráðherra Sachsen, eigi skilið
að verða forseti.
Efasemdir um Maastricht
Ef Heitmann verður fyrir valinu
gæti vel farið svo að hann muni
ekki alltaf vera sammála ríkis-
stjórn Helmuts Kohls í mikilvæg-
um málum. Fyrr í vikunni lét hann
til dæmis í ljós skoðanir í Evrópu-
málum, sem ganga þvert á stefnu
kanslarans. I viðtali við spænska
dagblaðið E1 Pais sagði Heitmann
að hann hefði efasemdir um ágæti
Maastricht-samkomulagsins um
efnahagslegan og pólitískan sam-
runa Evrópubandalagsins. „Maas-
tricht-samkomulagið er ekki út-
koma langvarandi umræðu um
sameiningu Evrópu heldur tilskip-
un að ofan. Evrópa verður að vaxa
úr grasrótinni, frá íbúunum. Það
er ekki hægt að búa hana til með
valdi. Það er ekki hægt að ná fram
evrópskum samruna með því að
þröngva honum upp á þjóðirnar
gegn vilja þeirra," sagði Heitmann.
I3IOMISGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
Útvarpsfréttir og Morgunblaðið um Andoxunarefni
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
í hádegisfréttum útvarps 15. sept '93 var skýrt trá rannsóknum vísindamanna um að hæfilegt magn af Beta Karotíni,
Seleni og E-vítamíni drægi úr hættu á krabbameini og öðrum alvarlegum sjúkdómum. Morgunblaðið birti svipaðar
upplýsingar í grein 11. júni '93 og tímaritið Newsweek var með
ítarlega umfjöllunum málið 7. júní '93.
Umrædd bætieftii eru nefnd ANDOXUNAREFNI og virka sem
nokkurs konar þráavarnarefni i líkamanum. C-vítamín og
fáein önnur bætieftú teljast einnig í þeirra hópi. Þau hemja
skaðleg sindurefni (stakeindir) og draga þannig úr
hættu á ýmsum algengum og alvarlegum sjúkdómum.
Haft er eftir einum helsta sérfræðingi Dana á þessu sviði
að margir vísindamenn telji framför á sviði
andoxunarefna einhverja mestu tfamför
læknavísindanna í seinni tíð.
ANDOX inniheldur andoxunarefnin í hæfilegum styrkleika.
Fœ’“
Ghei
Guli miöinn trygglr gaeðin.
í apótekum og beilsuhillum
matvöruverslana.
eilsuhúsið