Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
9
Stakir franskir jakkar.
Verð frá kr. 16.100,-
TESS
N t
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
S. 622230.
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Allir muna eftir Aromatic,
vinsælustu kaffikönnunni á
markaönum.
Moccamaster frá Techni-Vorm
er verðugur arftaki.
MOCCAMASTER
- glæsileg og traust kaffikanna
Fæst í naestu
>-Qftækiaverstun_
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
m TIL WHITUNm
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 Iftra, útvegum aðrarstærðir
frá 400-10.000 lítra.
ELFA-VARMEBARONEN
Hitatúba / rafketill 12kw, 230v.
1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt
að 1200kw.
ELFA-VORTICE
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG B g"g"
GREIÐSLUSKILMÁLAR. BKf"
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - •& 622901 og 622900
Þorvaldur Gylfason, prófessor.
Náttúrufræði og hag-
fræði
í septemberhefti Fréttabréfs Háskóla
íslands er umfjöllun um bók prófessors
Þorvaldar Gylfasonar, Hagkvæmni og
réttlæti, sem Hið íslenzka bókmenntafé-
lag gefur út. Staksteinar staldra í dag
við svipmynd úr þessari bók, sem birt er
í Fréttabréfinu, þar sem skyggnst er á
skemmtilegan hátt í bakgrunn hagfræði
og náttúrufræði - hagfræðinga og nátt-
úrufræðinga.
Fræðileg rök
og reynsla
Úr bókiimi Hag-
kvæmni og réttlæti:
„Náttúrufræðingar eru
yflrleitt umhverfisvernd-
arsinnar. Hvemig ætti
annað að vera? Þeim hlýt-
ur að vera sérstaklega
umhugað um náttúruna,
land og sjó, umhverfi
okkar allra. Þess vegna
lögðu þeir stund á nátt-
úrufræði í skóla. Þess
vegna viiuia þeir flestir
við náttúrufræðileg við-
fangsefni af ýmsu tagi að
loknu námi. Það stendur
þeim næst að vara al-
menning og stjórnvöld við
hvers kyns umhverfis-
spjöllum, þegai- svo ber
við, og leggja á ráðin um
náttúruvemd til sjós og
sveita. Til þess hafa þeir
upplag, þjálfun og þekk-
ingu.
Með líku lagi em hag-
fræðiugar yfirleitt fijáls-
lyndir. Hagfræðin sjálf
gerir þá flesta fijáls-
lynda, ef þeir vom það
ekki fyrir. Með þessu á
ég einfaldlega við það, að
hagfræðingar em yf-
irleitt hlynntir markaðs-
lausnum á aðskiljanleg-
um efnahagsvandamál-
um, þegar slikum lausn-
um verður við komið á
annað borð. Þeir tclja
með öðmm orðum, að
ráðstöfun takmarkaðra
gæða þessa heims verði
allajat'na hagfelldust af
sjónarhóli almennings,
þegar verð á vömm og
þjónustu af flestu eða öllu
tagi er ákveðið á óper-
sónulegum markaði án
íhlutunar stjómvalda eða
hagsmunasamtaka. Þeir
gera sér þó jafnframt
grein fyrir því, að stund-
um getur markaðuriim
bmgðist, þannig að af-
skipti almamiavaldsins
em nauðsynleg á afmörk-
uðum sviðum, eins og til
dæmis til að halda uppi
lögum og reglu, til að
tryggja viðunandi félags-
legt öryggi og til að
styrlqa listir, menntir og
vísindi, svo sem tíðkast
um allan heim."
„Umhverfis-
spjöll“ í efna-
hagsmálunum
„Þessi sameiginlega
skoðun hagfræðinga er
reist á fræðilegum rökum
og reynslu, sem ná næst-
um tvö hundrað og tutt-
ugu ár aftur í tímann, eða
allar götur aftur til Ad-
ams Smiths, föður hag-
fræðinnar, sem birti bók-
ina góðu, Auðlegð þjóð-
anna, árið 1776. Þessi
arfleifð mótar sameigin-
leg viðhorf alls þorra
góðra hagfræðinga til
efnahagsmála um allan
heini, þótt hagfræðinga
geti að sjálfsögðu greint
á um stjórnmál ekki síður
en annað fólk, en það er
önnur saga.
111 meðferð almanna-
fjár og fátækt orka á
hagfræðing nokkura veg-
inn eins og umhverf-
isspjöll og uppblástur
orka á náttúrufræðing.
Hagfræði kennir mönn-
um að bera virðingu fyrir
verðmætum, alveg eins
og náttúrufræði kennir
mönnum að bera virðingu
fyrir umhverfinu. Hag-
fræðingar em andvígir
viðskiptahöftum og
skömmtun og alls kyns
öðnim spjöllum á gang-
verki markaðshagkerfis-
ins með sams konar rök-
um og sama hugarfari og
náttúrufræðingar, sem
em mótfallnir mengun og
náttúruskemmdum.
Fellir hagfræðingur
gildisdóm, þegar hann
gagnrýnir stjórnvöld fyr-
ir ákvarðanir sem hann
telur bitna á afkomu fólks
og fyrirtækja? Fellir nátt-
úmfræðingur gildisdóm,
þegar hann leggst gegn
ráðstöfunum sem myndu
spilla náttúmnni? Fer eðl-
isfræðingur út fyrir vald-
svið sitt, þegar hann var-
ar yfirvöld við afleiðing-
um kjamorkuspreng-
inga? Em fræðimenn
famir að skipta sér af
stjómmálum í þessum
þremur dæmum? Nei, það
þarf ekki endilega að
vera. Þeir em yfirleitt
þvert á móti að gegna
fræðaskyldum sinum
gagnvart almenningi,
hver á sínu sviði. Oðm
máli gegnir hins vegar
um eðlisfræðing sem
leggur á ráðin um efna-
hagsmál, eða um hag-
fræðing sem blandar sér
í umræður um atóm-
sprengjur: það em stjóm-
mál.“
Útbob ríkisvíxla
fer fram mibvikudaginn 6. október
Nýtt útbob á ríkisvíxlum fer fram á
morgun. Um er aö ræöa 19. fl. 1993 í
eftirfarandi verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaöa
meö gjalddaga 7. janúar 1994. Þessi
flokkur veröur skráöur á Veröbréfa-
þingi íslands og er Seðlabanki íslands
viöskiptavaki ríkisvíxlanna.
Ríkisvíxlarnir veröa seldir með
tilboösfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð
samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu
er 5 millj. kr. og lágmarkstilboö í
meðalverð samþykktra tilboöa er
1 millj. kr.
Löggiltum veröbréfafyrirtækjum,
verðbréfamiðlurum, bönkum og
sparisjóöum gefst einum kostur á aö
gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt
tiltekinni ávöxtunarkröfu.
Aörir sem óska eftir aö gera tilboö í
ríkisvíxla eru hvattir til aö hafa
samband viö framangreinda aöila,
sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá
og veita nánari upplýsingar. Jafnframt
er þeirn sjálfum heimilt aö bjóöa í
vegiö meðalverð samþykktra tilboða
(meöalávöxtun vegin með fjárhæö).
Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa
að hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14 á morgun, miövikudaginn
6. október. Tilboösgögn og allar
nánari upplýsingar eru veittar hjá
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6,
- í síma 62 60 40.
Athygli er vakin á því aö
8. október er gjalddagi á 13. fl.
ríkisvíxla sem gefinn var út
7. júlí 1993.
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.