Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 18

Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993 AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON Tæpur helmingur allra ofbeldis- verka framinn í miðbænum SKRÁNING Iögreglu gefur ekki til kynna að ofbeldisverkum i miðborg Reykjavíkur fari fjölgandi frá því sem var fyrir 3-4 árum en hins vegar eru bæði lögregla og læknar á slysadeild sammála um að aðfarir ofbeldismanna verði-sífellt harkalegri og áverkar hættulegri. Rétt tæpur helmingur ofbeldisverka sem upplýsingar eru til um á skrá hjá Iögreglu í Reykjavík það sem af er þessa árs hefur verið framinn í miðbænum. I haust hefur tvíveg- is litlu mátt muna að fórnarlömb líkamsárása í miðbænum hafi komist lifandi undir læknishendur; annars vegar þegar 17 ára piltur beitti hnífi þegar hann ásamt fleirum réðst á mann á þrít- ugsaldri í Austurstræti og hins vegar um helgina þegar tvær 14 og 16 ára gamlar stúlkur gengu I skrokk á 15 ára stúlku þannig að blæddi inn á heila hennar og hún missti meðvitund í lögreglu- bíl á leið á slysadeild. Fyrstu níu mánuði ársins hafa lögreglunni í Reykjavík borist til- kynningar um 290 líkamsárásir og -meiðingar hvers kyns. 143 hafa verið framdar í miðbænum, þ.e.a.s. á svæðinu milli Lækjar- götu og Aðalstrætis, hafnarinnar og Skothúsvegar, að viðbættum Laugavegi vestan Hlemmtorgs. Um er að ræða árásir og átök utan dyra sem innan, á veitinga- húsum, heimilum eða á almanna- færi. Allt síðasta ár voru 227 meiðingar og árásir skráðar á þessu svæði. í þeim 290 málum sem kærð hafa verið í borginni í ár hafa 330 einstaklingar verið handteknir. Fimm þeirra eru yngri en 14 ára, 44 eru 15-18 ára, 132 eru 19-24 ára, 126 á aldrinum 25-60 ára og 23 kærð- ir ofbeldismenn voru 61 árs eða eldri. Aldursflokkun frá saman- burðartímabilum var ekki tiltæk í gær. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns er ljóst að fólk um og undir tvítugu kemur oftast við sögu árásarmála sem eiga sér stað utandyra en eldra fólk á veit- ingastöðum eða í heimahúsum. Alvarlegustu líkamsmeiðingamál- in eru send RLR til rannsóknar og af um 60 líkamsmeiðingum sem þangað bárust og framdar voru í Reykjavík árið 1992 voru 23 taldar alvarlegar. Árið 1989 voru hins vegar 39 meiðingar í Reykjavík taldar alvarlegar og áríð 1990 voru þær 35 en 20 á síðasta ári. - Hending að fleiri liggja ekki í valnum Í þessari opinberu skráningu endurspeglast þannig ekki það sem viðmælendur Morgunblaðsins í lögreglu, rannsóknarlögreglu og á slysadeild Borgarspítalans telja sig allir merkja og málin sem komist hafa undanfarið í hámæli eru til marks um, það er að aðfar- ir ofbeldismannanna verði sífellt miskunnarlausari og áverkarnir sem af hljótast hættulegri. Sífellt fleiri ungmenni gangi með hnífa upp á vasann og beiti þeim í átök- um með þeim afleiðingum að hendingu einni megi þakka að ekki hafí fleiri hlotið bana af en raun ber vitni. Lögreglan í Reykjavík telur, að sögn Ómars Smára Ármannsson- ar, að átak sem gert var í lög- gæslu í miðborginni á árinu 1990 hafí skilað nokkrum árangri í þá átt að fækka líkamsárásum og vísar hann í fyrrgreindar tölur í því sambandi, en árið 1990 fjölg- aði kærðum líkamsárásum um 19% á sama tíma og komum á slysadeild vegna líkamsmeiðinga fækkaði um 11%, samkvæmt tölum lögreglunnar. Auk þess tel- ur Ómar Smári að áróður sem ætlað var að hafa áhrif á almennt viðhorf ungmenna til ofbeldis hafi skilað nokkrum árangri. Þeir sem hvorki eru börn né afbrotamenn detta á milli Hins vegar hafi gengið seint að knýja fram úrbætur í málum hluta ungmenna sem búi við erfið- ar félagslegar aðstæður og lög- reglan sjái smám saman leiðast út í sífellt meiri óreglu og afbrot. Fullyrt er að mjög oft eigi þeir sem þannig er ástatt um hlut að alvarlegum líkamsárásum. Lög- reglumenn sem Morgunblaðið ræddi við segjast telja að annað- hvort virki ekki þau úrræði sem barnaverndaryfirvöld eiga til að grípa inn í mál unglinga sem ekki nái fótfestu í samfélaginu eða þá að tregðu gæti við að beita þeim. Erfiðast sé að fá gripið inn í mál einstaklinga sem hvorki teljast ófullveðja börn né fullharnaðir afbrotamenn. Rannsóknarlögreglumaður sagði í samtali við Morgunblaðið að augljóslega væru afleiðingar alvarlegra líkamsárása sífellt að verða alvarlegri. Ekki taldi hann að væri hins vegar unnt að full- yrða að sérstök vatnaskil væru að verða í þessum efnum um þess- ar mundir og minnti á að auk þess sem umræður um ástandið í miðborginni hefðu orðið árlega haust og vor undanfarin ár væru aðeins um það bil tvö ár frá því að ungur maður var drepinn í ráni sem tvö ungmenni frömdu í miðbænum eftir að hafa fyrr um nóttina rænt og slasað annan mann. Órannsakaður „ofbeldiskúltúr" Viðmælandi blaðsins sagði að þótt sér virtist sem hlutfallslega margir þeirra sem við sögu kæmu í þessum árásarmálum byggju við erfiðlega félagslega stöðu hefðu ekki nægar rannsóknir verið gerð- ar á félagslegum aðstæðum, hug- arheimi og bakgrunni þeirra ung- menna sem sæktu í miðbæinn til þess að unnt væri að fullyrða um þá hluti og segja að úrbóta væri fremur þörf á einhveiju ákveðnu sviði öðrum fremur. Læknir á slysadeild Borgarspít- alans sagði við Morgunblaðið að sér virtist að augljóslega hefði orðið breyting á þessum málum undanfarin ár. Engin heildarrann- sókn hefði farið fram á orsökum og meiðslum en tilfinning manna væri tvímælalaust sú að yngra fólk en áður ætti hlut að árásar- málum, áverkar væru alvarlegri en fyrr og hnífum væri meira beitt en áður. Til dæmis væri ljóst að hending ein hefði ráðið því að stúlkan sem varð fyrir árás nú um helgina hefði ekki dáið og svipað mætti segja um fleiri nýleg árásarmál. Þegar litið væri yíir langt tíma- bil virtist sem einhvers konar „of- beldiskúltúr" væri að ná fótfestu í þjóðfélaginu. „Fyrir nokkrum árum voru nokkrir bandíttar sem gengu lausir og slógu fólk. Það var hægt að telja þá á fingrum sér og lögreglan vissi um þá en núna er það að sýna sig að ungt fólk er farið að koma svona fram og gera af sér hluti sem fólk hefði ekki trúað fyrir nokkrum árum. Þetta eru svo alvarlegir hlutir að það þarf þjóðfélagsumræðu á breiðum grundvelli um þetta og hvort það er hægt að finna skýr- ingar á þessu.“ Lokun Gunnarsholtsheimilisins Yistmenn munu fá sömu þjónustu „ÞARNA er elnfaldlega verið að hagræða. Það er hægt að sinna sömu þjónustu við þessa skjólstæðinga með jafn góðum hætti en fyrir minni fjármuni og þess verður gætt að enginn vistmanna lendi á götunni ef sannanlega er þörf á áframhaldandi meðferð," sagði Guðmundur Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra þegar hann var spurður um ástæður iokunar Gunnarsholtsheimilisins. Ýmis meðferðarúrræði fyrir hendi Að sögn Guðmundar verður gert nákvæmt vistunarmat á öllum vist- mönnum í Gunnarsholti, en í for- könnun sem var gerð áður en ákvörðunin um að loka vistheimil- inu var tekin kom í ljós að ýmis úrræði komu til greina um vistun. „Suma er hægt að útskrifa, sumir hafa verið heimilisfastir í Gunnars- holti um árabil og heyra ekki undir virka áfengismeðferð. Sveitarfélög- in munu koma inn í áframhaldandi vistun þeirra ef þörf er á. Þeir sem eru í virkri meðferð geta_ farið á Vífílsstaði, á stofnanir SÁÁ og í athvörf á höfuðborgarsvæðinu sem hafa komið inn í þjónustu við þetta fólk. Væntanlega verður meðferð einhverra þeirra sem eru í Gunnars- holti nú iokið fyrir áramót. Sem betur fer eru ýmsir valkostir til staðar og við getum borið höfuðið hátt varðandi meðferðarúrræði fyr- ir áfengissjúklinga. Biðlistar þeirra sem þurfa á áfengismeðferð að halda hafa ekki verið langir, fólk hefur komist tiltölulega fljótt að og ég vænti þess ekki að á því verði mikil breyting til áramóta,“ sagði Guðmundur Árni. Aðspurður um yfírlýsingu starfs- mannaráðs ríkisspítalanna þar sem heilbrigðisráðherra er hvattur til að draga ákvörðunina til baka sagðist hann hafa skilning á því að þarna væri einnig um störf fólks að ræða. „Vissulega er erfítt með alla hag- ræðingu og sparnað af þessum toga en verkefnið er fyrst og síðast að sinna þeim sem á vistun þurfa að halda og ég hygg að það verkefni megi leysa,“ sagði Guðmundur Árni. Sparnaður 43 milljónir á ári Guðmundur Árni sagði að sparn- aður af lokun Gunnarsholtsheimilis- ins yrði 43 milljónir á ári og ekki væri reiknað með neinum viðbótar- útgjöldum. Þá sagði hann að nú væri í athugun hvernig nýta mætti húsnæði og tækjabúnað þann sem fyrir hendi er í Gunnarsholti en þar gæti ýmiss konar starfsemi farið fram. Morgunblaðið/Sverrir Nýir þingmenn ÞRIR nýir þingmenn hafa tekið sæti á Alþingi, allir fyrir Alþýðu- flokkinn. Þau eru Gísli R. Einars- son, sem tekur sæti Eiðs Guðna- sonar í Vestuylandskjördæmi, Guðmundur Ámi Stefánsson heil- brigðisráðherra, sem tekur sæti Jóns Sigurðssonar í Reykjanes- kjördæmi, og Petrína Baldurs- dóttir, sem tekur sæti Karls Stein- ars Guðnasonar, einnig í Reykja- neskjördæmi. Á myndinni sjást Guðmundur Árni og Petrína. Fundur utanríkis-og fjármálaráðherra um 50 þjóðríkja í Washington Lýst yfir stuðningi við frið- arþróun í Mið-Austurlöndum JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríki|ráðherra, sat ráðstefnu sem stjórnir Bandaríkjanna og Rússlands efndu til í Washington fyrir helgi, en þar þinguðu utanríkisráðherra, fjármálaráðherrar og aðrir fulltrúar tæplega 50 þjóðríkja. Fundurinn lýsti yfir jákvæðum við- brögðum við áskorun um að styðja friðarþróun í Mið-Austurlöndum og af hálfu Norðurlanda kom fram staðfesting á framlögum upp að allt að 150 milljónum Bandaríkjadala. Jón Baldvin sagði í samtali við Morgunblaðið að ísland myndi greiða sinn hlut samkvæmt reikniregl- um norræns samstarfs og hafi íslensk stjórnvöld samþykkt framlög að allt að 90 milb'ónum íslenskra króna en ekki hafi verið skilgrcint á hversu löngum tíma þær verði greiddar. Á ráðstefnunni kom fram að vil- yrði þjóða heims fyrir styrkjum til uppbyggingar ríkis Palestínumanna næmu nú 600 milljónum dollara á fyrsta ári stúðningsins, en að sögn Jóns Baldvins telur Alþjóðarbankinn að fjárþörf uppbyggingarinnar á næstu fímm árum sé um 2,5 millj- arðar dollara. Á blaðamannafundi sem haldinn var að lokinni ráðstefn- unni lýsti Lloyd Bentsen, fjármála- ráðherra Bandaríkjanna, því yfír að útlit væri fyrir að takast myndi að afla þeirra fjármuna á næstu fímm árum. „Yfirlýsing Bentsen skiptir sköpum að því er varðar vonir manna um að friðarviðleitni í Mið- Austurlöndum haldist," segir Jón Baldvin. „Það er mikilvægt að Pa- lestínuarabar og sérstaklega þeir sem búsettir eru á Gaza-svæðinu verði þess fljótlega áskynja að friður borgi sig. Því skiptir máli að fram- lög verði greidd sem fyrst og gert verði samkomulegt hið fyrsta um á hvaða hátt aðstoðin verði fram af hendi reidd.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.