Morgunblaðið - 05.10.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
Framleiðsla
Ullarvörur tengist íslandi
eins og vín Frakklandi
Framleiðendur og seljendur ullarvöru stofna samtök
NÝLEGA voru stofnuð samtök fyrirtekja í framleiðslu og sölu
uliarvöru. Samtökin kallast Ullarráð Islands, og eru stofnaðilar
þrjátíu fyrirtæki sem annað hvort framleiða eða selja ullarvörur
innanlands. I samþykktum félagsins segir að tilgangurinn sé að
gæta sameiginlegra hagsmuna félaganna, kynna ullarvörur og
koma fram fyrir félagana gagnvart stjórnvöldum, ferðamálaaðilum
og öðrum.
Endurklœbum húsgögn.
Gott úrval áklceba.
Fagmenn vinna verkib.
BólstninÁsgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 16807.
Aðdraganda að stofnun Ullar-
ráðs íslands má rekja til fundar
sem haldinn var sl. vor með aðilum
í ullariðnaði þar sem kom fram
mikill vilji fyrirtækja í greininni
fyrir því að þau hefðu með sér
samstarf í kynningu á ullarvörum.
í tilkynningu frá Ullarráði segir
að það sé álit þeirra sem að ráðinu
standa að sala á vörum til ferða-
manna hafi orðið rækilega undir í
allri umræðu og umfjöllun um
ferðamál á íslandi og að í fjölmörg-
um vönduðum bæklingum um Is-
BOKA-
ÚTGEFENDUR
Skilafrestur vegna auglýsinga
í íslenskum bókatíðindum 1993
rennur út 18. október nk.
Ritinu verður sem fyrr dreift á
öll heimili á íslandi.
Allar frekari upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Suðurlandsbraut 4a, sími 38020.
Skilafrestur vegna tilnefninga til
íslensku bókmenntaverðlaunanna 1993
rennur út 29. október nk.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
Kaupmenn athugið!
Frá og með 1. október ber ykkur skylda til að veita
lántakendum upplýsingar um kjör neytendalána.
Forritið Tryggur reiknar út lánsupplýsingar skv. nýju
lögunum.
Menn og mýs hf.
Tæknigarður, Dunhaga 5,
107 Reykjavík.
Sími: 91-694938, fax: 91-694991.
landi komi sjaldan fram að fram-
leiddar séu vörur hér á landi. Þessu
vill Ullarráðið breyta. Ennfremur
segir: „Mörg fyrirtækjanna í þess-
ari grein eru lítil og hafa ekki bol-
magn ein og sér til þess að standa
að umfangsmikilli kynningu á vör-
um sínum, og ekki styrk til þess
að standa fyrir máli sínu gagnvart
stjórnvöldum og hagsmunaaðilum
ýmiskonarv Sameinuð í félagi eins
og Ullarráði íslands þar sem bæði
framleiðendur og seljendur snúa
bökum saman myndast hins vegar
möguleiki á því að sækja fram og
vinna ullarvörum þann sess sem
þær eiga skilið.“ Þá segir að loka-
takmarkið sé að ullarvörur verði
eins tengdar íslandi og blóm eru
tengd Hollandi og vín Frakklandi.
Stjórn Ullarráðs íslands skipa
eftirtaldir: Logi Úlfarsson formað-
ur, Islenskum markaði, Guðjón
Kristinsson gjaldkeri, ístex, Valtýr
Valtýsson ritari, Foldu, Gerður
Hjörleifsdóttir meðstjómandi, ís-
lenskum heimilisiðnaði og Ágúst
Eiríksson meðstjórnandi, Icewe-
ar/Drífu.
Myndband
Starfsmenn
ogleiðir til
nð ná betri
árangri
MYNDBÆR hf. hefur hafið
dreifing-u á nýju myndbandi,
Starfsmaðurinn - leiðir til
betri árangurs. „Möguleikar
þjóðarinnar felast í að nýta
þekkingu og hæfni þjóðarinn-
ar betur en gert hefur verið.
Það er forsenda framfara og
myndbandinu er ætlað að
minna á þau atriði sem starf-
maðurinn þarf að tileinka sér
til að ná betri árangri,“ segir
Jóhann Briem hjá Myndbæ.
Jóhann sagði reynsluna sýna
að myndbandið nýttist betur ef
leiðbeinandi hefði ákveðinn for-
mála að sýningu hennar og tiltæki
jafnvel þau atriði sem hann vildi
leggja sérstaka áherslu á.
Meðal efnis í myndinni má
nefna starfsval, sjálfsmat einstakl-
inga og sjálfsvirðingu, áhuga,
dómgreind, framkomu, skipulag
og ábyrgð, geymslu upplýsinga og
flokkun, vinnustaðinn, kynningu,
frítíma, gæðamál og frammistöðu-
mat.
Stjórnun
Nýsköpun
Morgunblaðið/Emilía
HUGVITSFÓLK — F'orstjóri Kassagerðar Reykjavíkur af-
henti fulltrúum samstarfshóps um nýsköpunarkeppni grunnskólanem-
enda leiðbeiningabók fyrir unga hugvitsmenn nýlega, en Kassagerðin
styrkti útgáfu og gerð bókarinnar. Bókin gefur hugvitsmönnum upplýs-
ingar um fyrstu skrefin og sé leiðbeiningum hennar fylgt út í æsar
getur hún haft sönnunargildi varðandi einkaleyfisumsóknir. Bókin er
nefnd Bókin hans Braga eftir Braga Einarssyni hugvitsmanni sem tók
saman efni og teikningar. Á myndinni eru talin frá vinstri Bragi Ein-
arsson, Áslaug Brynjólfsdóttir, Guðrún Þórsdóttir og Stefán L. Aðal-
steinsson.
Morgunblaðið/RAX
KEPPNISSTJORINI — Á myndinni má sjá nokkra aðstand-
endur Samnorrænu stjórnunarkeppninnar á íslandi. Frá vinstri eru
Jóhann Friðleifsson, Hlynur Hreinsson og Eiríkur Aðalsteinsson.
Samnorræna stíórnun-
arkeppnin að hefjast
SKRÁNING í Samnorrænu sljórnunarkeþpnina stendur nú yfir, en
keppnin hefst um miðjan október nk. Keppnin á rætur sínar að rekja
til ársins 1983 þegar nemendafélag háskólans í Helsinki setti á fót
keppni fyrir stjórnendur fyrirtækja í heimalandi sínu. Síðar var
ákveðið að gefa stjórnendum á hinum Norðurlöndunum kost á að
taka þátt í keppninni. fslendingar tóku fyrst þátt í þessu samstarfi
árið 1987 þegar AIESEC tók að sér að skipuleggja keppnina hér á
landi.
Á íslandi er liðum skipt í riðla
og tvö efstu lið úr hveijum riðli
fara áfram í íslensku lokakeppnina
í mars á næsta ári. Tvö efstu liðin
þaðan mæta svo meisturum ann-
arra Norðurlanda í Kaupmannahöfn
í apríl nk.
Hver riðill er hugsaður sem sér-
stakur samkeppnismarkaður þar
sem hagkvæmni þeirrar ákvörðunar
sem hvert lið tekur fer eftir ákvörð-
unum hinna liðanna um sama efni.
í upphafi fá liðin í hendur upplýs-
ingar um ímyndað fyrirtæki, rekst-
ur þess sl. 3 ár auk upplýsinga um
aðstæður í hagkerfinu í heild. Hlut-
verk liðanna er síðan að reka þetta
fyrirtæki í sex ár, þar sem ein
keyrsla telst vera eitt ár, og safna
á þeim tíma sem mestum hagnaði.
Ákvarðanir sem liðin þurfa að taka
um reksturinn felast m.a. í vöru-
verði, fjárfestingum, sölumagni og
markaðsmálum.
Aðalmarkmiðið með keppninni
er að bæta samvinnu starfsmanna
og stjórnenda í ákvarðanatöku auk
þess sem henni er ætlað að víkka
sjóndeildarhring þátttakenda. Þátt-
tökugjald á hvert lið er 80 þúsund
krónur, og rennur hagnaður ef ein-
hver er, óskiptur til AIESEC.
Keppnisskráningu lýkur 14. októ-
ber og keppnin hefst degi síðar.
Skráning fer fram í síma 629932.
•t
< se/n /,
.. .
r lftt9
Hcilsukodda
Rúmbot nar
' Lystafjaðradýnur
Lystalatexdýnur
Lystasvampdýnur
"m
Opið lauyar-
daya hl. 10—14
ell
•ess
LYSTADÚN-SNÆLAND hf
Skútuvogi 11 • Sími 814655