Morgunblaðið - 05.10.1993, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
39
* f
Minna eftirlit er með hrossum í hausthögnm og þau spakari og auðveldari viðureignar fyrir óprúttna þjófa.
Tölvuskóli Reykiavíkur
ill Borgartúni 28, sími 91-616699
Tölvunám fyrir börn og
unglinga 10-16 ára
Tölvuskóli Reykjavíkur heldur 24 klst. námskeið
þar sem megin áhersla er lögð á að nýta tölvuna
sér til gagns.
Kennt er á PC tölvur. Farið er í fingrasetningu,
vélritunaræfingar, Windows, stýrikerfi, ritvinnslu,
teikningu, almenna tölvufræði, töflureikni og
leiki. Kennsla fer fram á laugardögum kl. 12-16.
Innritun er hafin í síma 616699.
hesta í hestaþætti Morgunblaðsins
en svo virðist sem það sé það sem
koma skal í merkingum. Er þá kom-
ið fyrir örmerki í hnakkabandi hesta
sem hefur að geyma númer sem
skráð er hjá einum ákveðnum aðila.
Til þess að sjá númerið eftir að það
er komið í hestinn er notað sérstakt
aflestrartæki sem borið er að þeim
stað þar sem merkið er. Kosturinn
við þessi merki er sá að ekki sést
hvort hrossið sé merkt og ef til að
mynda helmingur eða stór hluti
hrossa verður merktur með þessum
hætti má telja hrossaþjófnaði alveg
úr sögunni þar sem þjófurinn myndi
taka mikla áhættu á að lenda á ör-
merktu hrossi. Ljóst er að ein ákveð-
in tegund merkja verður notuð á
gæludýr og hesta í Evrópu í framtíð-
inni en meðan örmerking er ekki
orðin opinber er frostmerking besta
vömin gegn þjófum. Auk þess sem
bæði frostmerking og örmerking
veita mikið öryggi ef hrossin týnast
á annan hátt.
Evrópumótshesturinn hvarf á
ögurstundu
En svona í lokin er við hæfi að
láta fylgja hér til gamans eina dag-
sanna sögu um frægt hesthvarf sem
átti sér stað í júlí 1981 á Mánagrund
í Keflavík þar sem fram fór val á
landsliði íslands sem keppa skyldi á
Evrópumótinu í Larvík í Noregi.
Rétt er að taka fram að að hér var
um að ræða misgrip en ekki þjófnað.
Eftir æsispennandi keppni náði
Reynir Aðalsteinsson sem keppti á
hestinum Fleyg frá Stokkhólma að
tryggja sér sæti í liðinu. Að lokinni
keppni fer hann með Fleyg yfir að
hesthúsunum og skilur hann eftir út
í gerði við hesthúsið en fer sjálfur
yfir á mótssvæði til að fylgjast með
útreikningum því spennan var í há-
marki og ekki alveg ljóst hveijir
færu utan. Þegar svo úrslitin eru
kunn eru hinir útvöldu beðnir að
sækja hesta sína svo hægt sé að
taka myndir af liðinu saman. En þá
kemur babb í bátinn; hestur Reynis
er gersamlega horfinn, eins og jörðin
hafí hreinlega gleypt hann. Hefst nú
mikil leit en ekki finnst hesturinn
og ljóst að ekki verður lengur beðið
með myndatökuna og fær Reynir því
lánaðan hest sem er grár eins og
Fleygur og myndimar teknar. En
leitin heldur áfram eftir myndatöku
og leitað er fram á nótt í næsta
nágrenni við hesthúsahverfið. Kall-
aðar voru út björgunarsveitir og haf-
in skipulögð leit um næsta nágrenni
Keflavíkur en þetta J)ótti með ein-
dæmum dularfullt. A mánudegi er
leit haldið áfram en á þriðjudag um
miðjan daginn fínnst hesturinn í
hesthúsi Hjartar Egilssonar í Víði-
dal. Hafði hann gert hestakaup við
Trausta Tómasson sendiferðabíl-
stjóra og átti að fá gráan hest sem
var suður í Keflavík og hafði Trausti
óvart tekið rangan hest og fært Hirti.
Hjörtur prófaði hestinn á mánudeg-
inum og hugðist fara með hann dag-
inn eftir austur í Rangárvallasýslu
þar sem hann var með hrossin sín.
Líkaði honum að vonum vel við hest-
inn og taldi sig hafa gert feikna góð
kaup en Adam var ekki lengi í Para-
dís því mistökin uppgötvuðust á
þriðjudeginum og Hjörtur fékk rétta
hestinn en Reynir fór á Evrópumótið
með Fleyg!
VETRARSKOÐUN
Heftir þu hugleitt að fá
pípulagningamanninn til að stilla
hitakerfið í húsinu fyrir veturinn?
Þannig gœtir þú komisthjá
óþægindum og Lekkað
orkureikninginn.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
Hjó okkur eru gömlu tœkln mlklls vlrðl. t.d. þegar keypt
er nýtt Sony stereo sjónvarp tökum vlð gamla tasklð sem
---^ ®_____M ___ V___M V_____W * M _ króna
Innborgun. og þö sklptir engu móli hvort toekið sé í lagi.
joað elna sem skiptir möU er eitt sjónvarp upp í sjónvarp.
Hi—Black THnitron hágœöa skjár, Nicam
stereo. fslenskt textavarp. ásamt fjölmörgum
tengimögulelkum s.s. 2 scart—tengi. tengi
fyrlr myndbandsvél að framan. Super VHS
tengi. einnlg aðgengileg og fullkomin
fjarstýring.
taeki sem atvinnumenn maela með
SONY KVX-2963