Morgunblaðið - 05.10.1993, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1993
51
Lou Diamond Phillips ScottGlenn
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK
4. október 1993
Alls eru færðar 578 bók-
anir í dagbókina um helgina.
Þar af er 86 bókanir um
bein afskipti af fólki vegna
ölvunarástands þess, 2
vegna umferðarslysa, 34
vegna annarra umferðaró-
happa, 12 vegna innbrota, 7
vegna þjófnaða, 16 vegna
skemmdarverka, 9 vegna
rúðubrota, 9 vegna líkams-
meiðinga, 10 vegna ölvuna-
raksturs og 162 vegna
ýmissa umferðarlagabrota.
Á föstudag varð maður á
reiðhjóii fyrir bifreið á Soga-
vegi. Meiðsl hans reyndust
minniháttar. Þá varð þann
dag drengur fyrir bifreið á
Stekkjarbakka. Meiðsl hans
reyndust einnig minniháttar.
Á sunnudagsmorgun var
tilkynnt um að bát hefði
verið stolið úr höfninni í
Keflavík einhvern tíma um
nóttina. Skömmu fyrir kl.
10 var bátnum siglt inn í
Reykjavíkurhöfn. Skipstjór-
inn, ungur maður, var hand-
tekinn og vistaður í fanga-
geymslu.
Margir ökumenn voru
kærðir fyrir of hraðan akst-
ur um helgina, eða 106 tals-
ins. Það telst til tíðinda að
af þeim voru á þriðja tug
leigubifreiðastjórar, sem
virtust vera að flýta sér
umfram venju á föstudags-
og laugardagskvöld. í átta
bifreiðanna voru radarvarar,
sem virtust ekki koma eig-
endum sínum að gagni.
Nokkrir þeirra voru ósáttir
við afskipti lögreglunnar af
þeim þar sem þeir töldu sig
vegna anna þurfa að aka
hraðar en leyfileg hraðatak-
mörk segja til um. Einn og
einn þurfti að ausa svívirð-
ingum yfir lögreglumenn
þegar þeir reyndu að koma
þeim í skilning urn að
ákvæði umferðariaganna
um leyfilegan ökuhraða gilti
jafnt um þá og aðra.
Alls var tilkynnt um 9 lík-
amsmeiðingar um helgina. Á
föstudagsmorgun var maður
handtekinn í húsi í Hlíðunum
eftir slagsmál og minnihátt-
ar meiðsl. Aðfaranótt
laugardags var sparkað í
höfuð liggjandi ungrar
stúlku á Lækjartorgi. Hún
var flutt á slysadeild alvar-
lega slösuð. Gerendur, stúlk-
ur á svipuðum aldri, voru
handteknar daginn eftir. Við
söluturn í Ármúla var spark-
að í andlit manns er flytja
þurfti á slysadeild. Gerand-
inn var handtekinn og vi-
staður í fangageymslu.
Flytja þurfti mann á slysa-
deild eftir minniháttar
áverka, sem honum var veitt
á Lækjartorgi og flytja
þurfti tvo pilta úr Austur-
stræti með minniháttar
áverka á slysadeild. Aðfara-
nótt sunnudags var maður
handtekinn eftir slagsmál á
Austurvelli og annar fluttur
á slysadeild með áverka.
Undir morgun voru þrír
menn um tvítugt handteknir
eftir að hafa sparkað illilega
í liggjandi mann á svipuðum
aldri í Hafnarstræti við Póst-
hússtræti. Flytja þurfti hinn
slasaða á slysadeild þar sem
í Ijós kom að hann hafði
verið kjálkabrotinn auk ann-
arra meiðsla.
Þrátt fyrir að alvarlegum
líkamsmeiðingum hafí
fækkað á löggæslusvæði
lögreglunnar í Reykjavík
undanfarin ár, úr 39 árið
P989 í 20 árið 1991 og 23
árið 1992, hefur heildarfjöldi
skráðra minniháttar líkams-
meiðinga aukist. Mest hefur
fækkun alvarlegra meiðinga »
orðið í miðborginni, en þar
eiga jafnframt flestar minni-
háttar meiðingarnar sér
stað. Þær eru oftast afleið-
ingar slagsmála, ryskinga
9g átaka á milli ölvaðs fólks.
í hlutfallslega flestum tilvik-
unum er um ungmenni eða
yngra fullorðið fólk að ræða.
Síðan löggæslan var aukin
í miðborginni árið 1990 hef-
ur þróunin þar þó orðið já-
kvæð þegar á heildina er lit-
ið, en betur má ef duga skal.
Allir geta verið sammála um
að ástandið sé langt frá því
að vera nógu gott. Komið
er að því að aðrir hlutaðeig-
andi aðilar en lögreglan, ein-
staklingar og viðkomandi
yfiwöld, taki ákvörðun um
með hvaða hætti þeir vilja
að þessi mál þróist í náinni
framtíð og með hvaða hætti !'
þeir vilja hafa áhrif á þá
þróun.
- . .. a * XJLMJL. ■ Mi '-I SÆÍ
PÍANÓ
Sigurvegari Cannes-
hátíöarinnar 1993.
Fyrir hverja svarta nótu
á píanóinu viidi hann fá
að njóta ástar með
henni.
Hún gekk að því en ...
Aðalhlutverk: Holly Hunter,
Sam Neill og Harvey Keitel.
Ein stórkostlegasta
mynd allra tíma.
Sýnd kl. 4.50, 6.50,
9og 11.15.
Mynd um SIS sérsveitina íL.A. lögreglunni.
Sýnd 5,7,9 og 11.
Stranglega bönnuð innan 16 ára
BORGARLEIKHUSIÐsími 680-680
LEIKFÉLAG REYKJAVIKUR
Stóra svið kl. 20:
• SPANSKFL UGAN e. Arnold og Bach
Sýn. fim. 7. okt., fáein sæti. Fös. 8. okt, uppselt. Lau. 9.
okt., uppselt. Fim. 14. okt. fáein sæti laus. Fös. 15. okt.,
uppselt. Lau. 16. okt., uppselt. Sun. 17. okt.
Litla svið kl. 20:
• ELÍN HELENA e. Árna Ibsen
Frumsýning miðv. 6. okt. uppselt. Sýn. fim. 7. okt., uppselt, fös.
8. okt., uppselt, lau. 9. okt., uppselt, sun. 10. okt., uppselt.
Mið. 13. okt. uppselt, fim, 14. okt., uppselt. Fös. 15. okt.
Athugið! að ekki er hægt að hleypa gestum inn i salinn eftir
að sýning er hafin.
Stóra svið kl. 14:
• RONJA RÆNINGJADÓTTIR e. Astrid Lindgren
Sýn. sun. 10. okt. fáein sæti laus, lau. 16. okt., sun. 17. okt.
Ath. aðeins 10 sýningar!
ÁRlÐANDI!
Kortagestir með aðgöngumiða dagsetta 2. okt., 3. okt. og 6.
okt. á Litla sviðið, vinsamlegast hafið samband við miðasölu
sem fyrst.
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20.
Tekið á móti miðapöntunum í sfma 680680 frá kl. 10-12 alla
virka daga. Bréfasími 680383. - Greiðslukortaþjónusta.
Munið gjafakortin okkar - tilvalin tækifærisgjöf.
Síöustu sýninar
Lau. 9. okl. kl. 20.30
eftir Árna Ibscn. Leikarar: GuAriín Ás-
munds., Ólafur Guðm., Ari Matt., Aldís B.
Sýnt í íslcnsku
Operunni
Mlðasalan cr opin daglcga frá kl. 17 * 19 og
sýnlngardaga 17 - 20:30. Mlðapantanir í s: IN75
og 650190. n
l6 LEIKHÓPURINN
Meira en þiigeturímyndad þér!
Námskeið
um gæða-
kerfi
Endurmenntunarstofn-
un Háskólans stendur fyrir
námskeiði 7. og 13. október
nk. um uppbyggingu gæða-
kerfa og handbókargerð.
Námskeiðið er ætlað
stjórnendum fyrirtækja sem
eiga að stjórna og taka þátt
í uppbyggingu gæðakerfis og
handbókargerð. Gert er ráð
fyrir að þátttakendur hafi
sótt námskeið um gæða-
stjórnun eða hafi kynnt sér
aðferðir gæðastjórnunar og
kröfur ISO-9000 staðlanna.
Markmið námskeiðsins er
að gera þátttakendur færa
um að taka þátt í skipulagn-
ingu, stjórnun og uppbygg-
ingu gæðakerfis og skrán-
ingu á því í handbók. Fjallað
verður um nauðsynlegan
undirbúning, skipulagningu
og aðferðir við að byggja upp
gæðakerfi og skjalfesta það
í gæðahandbók í samræmi
við kröfur ISO-9000. Einnig
verður fjallað um forsendur
fyrir því að ná árangri.
Leiðbeinandi á námskeið-
inu verður Haukur Alfreðs-
son, rekstrarverkfræðingur
og rekstrarráðgjafi hjá Nýsi
hf.
Endurmenntunarstofnun
Háskólans veitir allar nánari
. upplýsingar.
Áreitni
Hún var skemmtileg, gáfuð og
sexí. Eini gallinn við hana var
að hún var bara 14 ára og stór-
hættuleg.
Aðalhlutverk: Alicia Silverstone, Cary
Elwes.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
ÞRÍHYRNINGURINN
★ ★ ★ ★ Pressan
★ ★★'/aDV
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
Super Mario Bros.
„Algjört möst“ - Pressan
Sýnd kl. 5 og 7.
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ Á DAUÐASVEITINA OG TVEIR TRUFLAÐIR...
HINIR ÓÆSKILEGU
Menace II Society
eftir Hughes-bræð-
urna
er kannski besta
frumraun leikstjóra
í
sögu kvikmynd-
anna.
Ég fór út úr kvik-
mynda-
húsinu í sjokki.
David Denly - NEW YORK
„Það er engin spurn-
ing að Hinir óæski-
legu er einhver áhrifa-
ríkasta og beinskeytt-
asta mynd sem sést
hefur...“ SV Mbl.
HLAUTVERD-
1AUN í CANNES
1993 FYRIR
LEIKSTJÓRN.
Mynd sem hefur komið gífurlega á óvart. Hispurslaus frásögn af götulífi stórborgar þar sem glæpir
og jafnvel morð flokkast undir afþreyingu.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Frábær grlnmynd fyrir unglinga á öllum aldri.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Red Rock West
★ ★ ★ Pressan
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stranglega bönnuð
innan 16 ára.
Tveir truflaóir •••
og annar verri
SALT’N’ PEPA
H0USE0FPAIN
ICE-T
KRISS
KROSS
SÍMI: 19000
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Á ALLAR MYNDIR NEMA „PÍANÓ“
Á TOPPNUM
UM ALLA EVR-
ÓPU:
LOFTSKEYTAMAÐURINN
★ ★ ★ GE-DV ★ ★ ★ Mbl.
Margföld verðlaunamynd.
Sýnd kl. 9 og 11.
HX