Morgunblaðið - 19.10.1993, Side 14

Morgunblaðið - 19.10.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1993 FAGOR FAGOR FE-83 Magn af þvotti 5 kg. Þvottakerfi 17 Vinduhraði 850 sn/mín Sér hitastillir *-90°C Ryðfrí tromla 42 I Sparneytin Hraðþvottakerfi Áfangaþeytivinda Sjálfvirkt vatnsmagn Hæg vatnskæling Hljóðlát RONNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 6Ó Kynningarfundur DALE CARNEGIE* Þjálfun Miðvikudagskvöld ki. 20.30 að Sogavegi 69 Námskeiðið Guðrún Jóhannesdóttir D.C. kennari I Eykur hæfni og árangur einstaklingsins -■ Byggir upp leiðtogahæfnina Hi Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn I Skapar sjálfstraust og þor I Árangursríkari tj á n i n g I Beislar streitu og óþarfa áhyggjur I Eykur eldmóðinn og gerir þig hæfari í daglegu lífi Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. Innrítun og upplýsingar í síma: 812411 O 3 CE STJÓRNUNARSKÓLINN Konrád Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegies námskeiðin. Skólp og siðferði eftir Magnús Jón Arnason Sinnaskipti Þorgils Óttar Mathiesen bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Hafn- arfirði fór mikinn í fréttatímum rík- issjónvarpsins og Stöðvar tvö sunnu- dagskvöldið 5. september. Þar kall- aði hann rammasamning við fyrir- tækið Hagvirki-Klett hf. um útrásir siðlausan og taldi þ,að skyldu sína við kjósendur að berjast gegn samn- ingnum. Seint á ferðinni Þessum sinnaskiptum Þorgils Óttars fagna ég innilega og þykir mér held- ur ánægjulegt að fá hann sem liðs- mann í baráttuna. Hann er reyndar nokkuð seint á ferðinni því að um- fjöllun um þetta mál hefur nú tekið hart nær heilt ár í bæjarstjóm Hafn- arfjarðar. En betra er seint en aldrei og alltaf er gott að bæta við sig fylg- ismönnum. Að vísu vil ég ekki, kurteisinnar vegna, ganga svo langt að kalla samninginn siðlausan, því að siðlausa samninga gera aðeins siðlausir menn. Og það er. ansi harkalegt að kalla flokkssystkin Þorgils Óttars í bæjarstjóm Hafnarfjarðar siðlaus. Hvort þau eru siðlaus læt ég aðra um að dæma, enda ætla ég mér ekki að taka þátt í deilum á þeim bæ. Tillaga um útboð En þó að ég fagni því að Þorgils Óttar-skuli nú loksins vera þeirrar skoðunar að þetta verk skuli bjóða út þá tel ég rétt að greina Hafnfirð- ingum frá því hve langan tíma það tók bæjarfulltrúann að ná þessari niðurstöðu. Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 29. október 1992 vartil umfjöll- unar fráveitumannvirkj við Vestur- götu, Heijólfsgötu og Óseyrarbraut. Höfundur þessarar greinar, bæj- arfulltrúi Alþýðubandalagsins, lagði til að verkið yrði boðið út. Þá tillögu felldu fiokksfélagar Þorgils Óttars og fulltrúar Alþýðuflokksins í bæjar- ráði. Þess í stað samþykktu þeir til- lögu bæjarstjóra þess efnis’fcð bæjar- félagið óski eftir „tilboði frá Hag- virki-Kletti um hönnun fyrirkomulag og kostnað við verkið." Þá strax mátti ljóst vera hvert stefndi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks vora búnir að ákveða að afhenda fyrirtækinu samninginn á silfurfati. Þegar ég tók málið upp á næsta fundi bæjarstjómar spunnust um það allmiklar umræður og á þeim fundi var Þorgils Óttar andvígur útboði og taldi ekki ástæðu til að bjóða verkið út. Andvígur útboði Á bæjarráðsfundi þann 21. janúar 1993, var lagt fram tilboð frá Hag- virki-Kletti um hönnun og gerð út- rása. Bæjarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins ítrekaði þá tillögu sína um að verkið yrði boðið út. Þorgils Óttar VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS SACHS SACHS KÚPLINGAR I ' FARARBRODDI ■' PJÖRUTÍU ÁR! MAN - BENZ - VOLVO - SCANIA Framleiðendur vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota SACHS kúplingar og höggdeyfa sem upprunalega hluta í bifreiðar sínar . Það borgar sig að nota það besta! Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84 VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VELADEILD FÁLKANS sat þann fund sem varafulltrúi Jó- hanns Gunnars Bergþórssonar. Á fundinum var Þorgils Ottar andvígur útboði, veitti tillögunni ekki stuðn- ing, hvorki þá né á bæjarstjórnar- fundum þar á eftir. Á næstu mánuðum var fráveitan af og til í umræðu bæjarfulltrúa. Þorgils Óttar þagði þunnu hljóþi allan tímann. Hann varð ekki var við sið- leysið og hann var óviss um skyldur sínar við Hafnfírðinga. Hann taldi ekki ástæðu til að bjóða verkið út. Samningrir samþykktur Rammasamningnr við Hagvirki- Klett var lagður fram á fundi bæjar- ráðs Hafnarfjarðar þann 20. ágúst 1993. Bæjarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins lagði enn á ný til að verkið yrði boðið út. Bæjarráðsmenn Sjálf- stæðisflokksins lögðu til að tillagan yrði felld. Bæjarráðsmenn Alþýðu- flokksins lögðu til að afgreiðslu yrði frestað. Óg skrípaieikurinn varð ofan á. Afgreiðslu var frestað. Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins lagði þá til að embættismönnum bæjarins væri falið: „að kanna fjár- hagsstöðu og getu Hagvirkis-Kletts hf. til að fullnusta samninginn. Að lokinni þeirri athugun verði tekin endanleg ákvörðun." Bæjarráðs- menn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks samþykktu að vísa þessari tillögu frá með þeim rökstuðningi að hún væri: „óþörf“! Þessir ábyrgu fulltrúar kom- ast að þeirri gagnmerku niðurstöðu að óþarfi sé að kanna ijárhagsstöðu fyrirtækis sem er í greiðslustöðvun og hefur nýverið náð nauðasamning- um við kröfuhafa. Þeir viti allt um það og þess vegna sé sjálfsagt að afhenda fyrirtækinu samning sem hljóðar upp á 200-250 milljónir króna. Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins lagði þá til að vegna stærðar og umfangs málsins yrði því vísað til bæjarstjórnar, æðstu stofnunar Hafnarfjarðarbæjar. Bæjarráðsmenn Sjálfstæðis- og Álþýðuflokks vísuðu einnig þeirri tillögu frá. Síðan sam- þykktu þeir rammasamning við Hag- virki-Klett hf. sem mun kosta hafnf- irska skattgreiðendur 200 til 250 milljónir króna. Með útboði Eftir 10 mánaða umhugsunartíma skilur Þorgils Óttar loksins um hvað málið snýst og kemst að þeirri niður- stöðu að réttast sé að bjóða verkið út. Þann 26. ágúst síðastliðinn, viku eftir að bæjarráðið hafði staðfest rammasamninginn við Hagvirki- Klett um útrásir, sendi Þorgils Óttar Mathiesen bæjarráði bréf þar sem m.a. segir: „Ég er andvígur að geng- ið sé til samninga við umrætt verk- takafyrirtæki án undangengis al- menns útboðs...“ Þessa síðbúnu skoðun sína ítrekar hann síðan á bæjarráðsfundi þann 2. september með bókun sem er sam- hljóða bréfi hans frá 26. ágúst. En ennþá hefur Þorgils Óttar Mathiesen ekki reynt að hnekkja ákvörðun bæjarráðs. Hann lætur sér nægja að bóka andstöðu sína við samninginn. Hann hefur aldrei lagt til að verkið væri boðið út og aldrei ljáð tillögu þess efnis atkvæði sitt. Stundum og stundum ekki Auðvitað ber að fagna þvi að Magnús Jón Árnason „Þessum sinnaskiptum Þorgils Óttars fagna ég innilega og þykir mér heldur ánægjulegt að fá hann sem liðsmann í baráttuna. Hann er reyndar nokkuð seint á ferðinni því að umfjöll- un um þetta mál hefur nú tekið hart nær heilt ár í bæjarsljórn Hafn- arfjarðar. En betra er seint en aldrei og alltaf er gott að bæta við sig fylgismönnum“ bæjarfulltrúinn skuli hafa komist að þessari niðurstöðu en það hlýtur að valda kjósendum Þorgils Óttars Mat- hiesens nokkrum áhyggjum hve lengi hann er að átta sig á hlutunum. Frá því að mál koma fram í bæjarkerfinu þarf bæjarfulltrúinn að minnsta kosti 10 mánaða umhugsunartíma til að komast að niðurstöðu. Ef einhver stórmál, segjum 100 til 200 milljónir, koma fyrir bæjar- stjóm á næstunni, þá er eins víst að Þorgils Óttar hugsi og hugsi, - og komist ekki að niðurstöðu fyrr en á miðju næsta ári. Og þá fá kjósendur Sjálfstæðisflokksins væntanlega ekki að vita hvað Þorgils Óttar er að hugsa fyrr en eftir kosningar. Ef þeir kjósa hann þá á annað borð. En hvað varðar rammasamninginn við Hagvirki-Klett, þar hefur Þorgils Óttar náð farsælli niðurstöðu eftir nær heils árs umhugsunartíma og því ber að fagna. Við getum þá snú- ið bökum saman í baráttunni gegn siðleysinu sem Þorgils Óttar segir ríkja í herbúðum Sjálfstæðis- og Al- þýðuflokksins í Hafnarfirði. Hitt er svo annað mál hvort við eigum samleið þegar baráttan hefst við hræsnina, sem felst í því að hafa stundum þessa skoðun og stundum hina, allt eftir því hvort prófkjör eða önnur mannvíg eru framundan. Höfundur er bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði. Bókaútgefendur álykta Tilræðið við William Ny- gaard alvarleg áminning STJÓRN Félags íslenskra bóka- útgefenda harmar það svívirði- lega tilræði sem forstjóra Asche- houg-forlagsins í Noregi, William Nygaard, var sýnt þann 11. októ- ber sl. í ályktun frá félaginu seg- ir að atburður þessi sé þeim mun alvarlegri þar sem margt bendi til að liann tengist útgáfu Nyga- ards á bók Salman Rushdie, Söngvum Satans. Reynist sá grunur á rökum reistur er það alvarleg áminning til ráða- manna á Vesturlöndum að snúast gegn þeim dauðadómi sem ráðamenn í íran hafa kveðið upp yfir Rushdie, þýðendum hans og útgefendum, af meiri festu og heilindum en hingað til, segir í ályktuninni. þá segir ennfremur: „Gera verður stjórnvöldum í íran ljóst að önnur lönd munu aldrei sætta sig við eða umbera þennan fráleita dóm. Stjóm Félags íslenskra bókaútgefenda skorar á íslensk stjórnvöld að beita sér af fyllstu alvöru í þessu máli.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.