Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 1
72 SIÐURB/C
245. tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Mælt fyrir 1.336 síðna frumvarpi
BILL Clinton Bandaríkjaforseti mælti í gær fyrir 1.336 síðna frum-
varpi sínu um uppskurð og endurbætur á heilbrigðiskerfinu. Sagði
hann við það tækifæri að hann væri opinn fyrir breytingum en kvaðst
þó aldrei skrifa undir frumvarp sem ekki tryggði öllum bandarískum
þegnum fulla heilsugæslu, í fyrsta sinn í sögunni. Hillary Rodham
Clinton forsetafrú stjórnaði nefnd sem undirbjó frumvarpsgerðina og
tók hún þátt í kynningu þess í þinginu. Myndin var tekin er hún lauk
ræðu sinni. Milli forsetahjónanna standa Bob Dole, leiðtogi repúblikana
í öldungadeildinni, George Mitchell, leiðtogi meirihlutans, og Thomas
Foley, forseti fulltrúadeildarinnar.
Ásakanir Sameinuðu þjóðanna á hendur Bosníu-Króötum
Morðalda
í Búrundí
Karuzi, Búrundí. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna hafa verið
myrtir í átökum Hutu- og Tutsi-
þjóðflokkanna í Búrundí í kjöl-
far byltingartilraunar í landinu
fyrir viku, að sögn sjónarvotta.
Hermt er að heilu þorpin hafi
verið brennd til grunna í dreif-
býli.
Fréttamenn fóru um landið í
gær í þyrlum og höfðu viðkomu á
nokkrum stöðum. Stóð fjöldi þorpa
í björtu báli og hvarvetna sem
þeir höfðu viðkomu voru þeim
sagðar sögur af grimmdarlegum
hrannvígum. Lágu lík sem hráviði
út um allt.
♦ ♦ ♦----
Frjálst að
kaupa og
selja land
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
upprætti sextíu ára gamalt bann
við að kaupa og selja land með
tilskipun í gær. Með þessu er
ætlunin að hraða sölu ríkisjarða
og samyrlyubúa og greiða fyrir
efnahagslegum umbótum.
í tilskipuninni sagði að rúss-
neskum þegnum væri héðan í frá
frjálst að kaupa, selja, erfa eða
leigja land. Engar hömlur væru
fyrir slíku lengur og menn gætu
látið land í skiptum fyrir annað
ef svo bæri undir. Útlendingum
er heimilt að taka land á leigu til
langtíma en ekki kaupa.
Jeltsín gaf einnig út tilskipanir
varðandi fjárlög og sakaruppgjöf
vegna skattamála en Interfax-
fréttastofan sagði að ekki yrði
skýrt frá efni þeirra fyrr en í dag.
Hindra könnun
Dönsk kenning um endalok risaeðlanna byggir á íslenskum gögnum
Rökstudd með gosefni úr Heklu
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
RISAEÐLUR eru ekki aðeins verkefni kvikmyndagerðarmanna,
heldur einnig vísindamanna, sem aldrei hafa getað skýrt endalok
þeirra til hlítar.
Nú hefur Hans Jörgen Hansen
á dönsku jarðfræðistofnuninni sett
fram kenningu um hvers vegna
eðlurnar hafi dáið út og styður
hana meðal annars með sýnishorni
úr Heklugosinu 1991. Gengur hún
út á að eðlurnar hafi dáið út á
löngum tíma, vegna mikils magns
í umhverfinu af þungmálmum frá
eldgosum, en ekki skyndilega
vegna áreksturs loftsteins, eins og
gjarnan hefur verið haldið fram.
Hans Jörgen Hansen álítur að
risaeðlurnar hafi dáið út á 600
þúsund árum. Þær hafi fyrst dáið
út þar sem nú sé Frakkland, en
síðan í Kanada, Norður-Ameríku
og Kína. í jarðlögum, þar sem risa-
eðluleifar hafa fundist, hafa gjarn-
an verið öskulög við. Þeir sem
aðhyllast loftsteinakenninguna
benda á að askan stafi af skógar-
bninum í kjölfar árekstursins.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Hans Jörgen Hansen að sam-
kvæmt kenningu hans sé þarna
um eldgosaösku að ræða, en erfitt
hafi verið að fullyrða að svo væri.
Álitið hafi verið að við eldgos
myndist frjáls kolefnasambönd, en
þau séu agnarlítil og erfitt að festa
hendur á þau. Hann sagðist hafa
reynt að ryksuga eldfjallaösku við
ýmis eldgos, en aldrei tekist að
einangra ösku sem hann hafi getað
verið viss um.að ekki kæmi annars
staðar frá, þar sem til dæmis oft
brenna hús og skógar í eldgosum
á Filipseyjum og víðar.
Þegar Hekla gaus 1991 var
snjór yfir og á hann lagðist askan.
Síðan snjóaði strax yfir öskulagið,
sem þar af leiðandi lokaðist inni í
snjónum. Hans Jörgen Hansen
náði slíku sýni, sem gerði honum
kleift að renna að því stoðum að
askan við risaeðlubeinin væri eld-
fjallaaska, en ekki aska eftir skóg-
arbruna. Kenning hans er að það
hafi verið þungmálmar úr stöðug-
um eldgosum sem hafi gert það
að verkum að egg risaeðlanna
klöktust ekki út. Það séu því eld-
gosaaska, en ekki skógarbruna-
aska við leifarnar. Því yngri sem
risaeðluleifararnar eru, því fleiri
óútklakin egg finnast, sem gæti
stutt kenningu Hans Jörgens
Hansens.
Danski vísindamaðurinn undir-
strikar að hann eigi ekki hugmynd-
ina að baki kenningarinnar. í
Kanada eru vísindamenn sem trúa
heldur ekki á loftsteinakenning-
una. Framlag hans er að rökstyðja
að risaeðlurnar hafi ekki dáið út
skyndilega vegna loftsins, heldur
á löngum tíma vegna þungmálma-
mengunar. Þar skiptir Hekluaskan
miklu máli.
á stríðsglæpum
Genf, London, Vitez í Bosníu. Reuter.
TALSMENN SÞ segja að króatískir hermenn hafi margsinnis
haft í frammi hótanir og hindrað störf sænskra friðargæsluliða
sem kanna meint fjöldamorð Króata á múslimum í smáþorpi
nálægt Vares í Mið-Bosníu. Sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna í
Bosníu, Thorvald Stoltenberg, sakaði í gær múslima um að hafa
skotið á bílalest SÞ sem var á ferð með hjálpargögn í grennd
við borgina Novi Travnik á þriðjudag. Flóttamannastofnun SÞ
stöðvaði hjálparstarf sitt í miðhluta landsins vegna málsins og
sagðist Stoltenberg myndu ræða það við Alija Izetbegovic, for-
seta Bosníu.
Verið er að leita að sönnunar-
gögnum um stríðsglæpi á allmörg-
um stöðum í Bosníu með stríðs-
glæparéttarhöld í huga og sagði í
yfirlýsingu SÞ að lögreglumenn,
eftirlitsmenn Evrópubandalagsins
og fulltrúar alþjóðlegra hjálpar-
og mannréttindastofnana myndu
kanna ástandið í umræddu þorpi,
Stupni Do. Sænskir friðargæslu-
Stúdentar mótmæla skólagjöldum
Keuter
TUGÞÚSUNDIR spænskra háskólastúdenta mótmæltu hækkun skólagjalda í gær. Fjölmennust voru mót-
mælin í Madríd þar sem um 20.000 stúdentar létu að sér kveða.
liðar komust loks inn í þorpið á
þriðjudag. Fulltrúar SÞ segja að
hermennirnir hafi fundið gögn sem
sanni að Bosníu-Króatar hafi myrt
fjölda óbreyttra borgara úr röðum
múslima í árás sem gerð var sl.
laugardag.
„Norræna hersveitin komst að
því að öll 52 húsin í þorpinu höfðu
verið brennd til ösku. Samkvæmt
síðustu skýrslu voru friðargæslu-
liðarnir búnir að leita í helmingi
húsanna og höfðu fundið lík 15
manna sem annaðhvort höfðu ver-
ið skotnir eða brenndir til bana,“
sagði í skýrslu SÞ.
Talsmaður hers Bosníu-Króata
viðurkenndi í símtali við frétta-
mann Reuters-fréttastofunnar í
gær að fjöldamorð virtust hafa
verið framin í Stupni Do en sagði
fjölda fórnarlambanna minni en
staðhæft væri. Króatískir embætt-
ismenn hafa á hinn bóginn vísað
því á bug að stríðsglæpir hafi ver-
ið framdir í þorpinu; árásin hafi
haft að markmiði að koma í veg
fyrir áhlaup herliðs múslima á
Vares.
Gert var ráð fyrir að breskir
hermenn kæmu Svíunum til að-
stoðar í gær. Embættismaður SÞ,
er ekki vildi láta nafns síns getið,
sagði að í innanhússkýrslu sam-
takanna kæmi fram að leiðtogi
króatísku hermannanna á staðn-
um hefði sagt að yfirgæfi norræna
hersveitin ekki þorpið myndi hann
biðja yfirmenn sína um leyfi til
að beita valdi gegn þeim. Króatar
hafa sakað embættismenn SÞ um
að styðja múslima í átökunum í
Bosníu. Þótt sænsku hermennirn-
ir, um 100 manns, hafi aðeins
verið í landinu í viku hefur þegar
verið skotið á herbíla þeirra og
varpað að þeim handsprengjum.