Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
7
Risavaxið nýra úr borgfirsku lambi
Nýrað slagaði upp
í þyngd skrokksins
Vaðbrekku, Jökuldal.
RISAVAXIÐ nýra kom úr lambi einu sem slátrað var á dögunum
í sláturhúsinu á Fossvöllum í Jökulsárhlíð. Nýrað vó 12,5 kg og
var næstum því jafn þungt og skrokkur lambsins sem vó 14,4 kg.
Hitt nýrað var af eðlilegri stærð.
Ríkislögmaður skoðar mál tryggingalækna
Metur áhrif meintra
skattsvika á starfshæfí
Heilbrigðisráðherra hefur beðið ríkislögmann um að meta hvaða
áhrif meint skattsvik tryggingalækna hjá Tryggingastofnunar ríkis-
ins hafi á starfshæfi þeirra.
Andrés Björnsson, bóndi á Gils-
árvölium í Borgarfirði eystra, átti
lambið. Það hefur vegið um 35
kíló á fæti og nýrað verið rúmlega
þriðjungur af þyngd þess. Nýrað
var farið að há lambinu því það
var magurt, lá mikið og var þungt
á sér sem vonlegt var.
Gárungarnir í sláturhúsinu vildu
falast eftir nýranu, sögðu það
duga í matinn handa öllu starfs-
fólkinu. Ekki fékk þessi hugmynd
hljómgrunn og var nýranu fleygt
sem og öllum skrokknum.
Borgarráð samþykkir
133 millj.
viðbótar-
fé í Sorpu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að leggja fram rúmlega 133
miiyónir í stofnfjáraukningu í
Sorpu. Stjórn Sorpu hefur sam-
þykkt að óska eftir samtals 200
milljónum í viðbótarstofnfé frá
eigendum byggðasamlagsins.
í bókun stjórnar Sorpu kemur
fram að Iðnlánasjóður hefur fallist
á tvöföldun lánstímans að því til-
skildu að eigendur leggi fram auk-
ið stofnfé. Gert er ráð fyrir að
framlagið greiðist með jöfnum
greiðslum á árunum 1994, 1995
og 1996 og taki breytingum í sam-
ræmi við byggingarvísitölu á
greiðsludegi.
í samræmi við samþykkt stjórn-
ar Sorpu, leggur Reykjavík fram
66,511% eða samtals 133,022
millj., Hafnarfjörður 10,623% eða
samtals 21,246 millj., Kópavogur
11,104% eða samtals 22,208 millj.,
Garðabær 4,861% eða samtals
9,722 millj., Seltjarnarnes 2,974%
eða samtals 5,714 millj., Mosfells-
bær 2,974% eða samtals 5,948
millj., Bessastaðahreppur 0,744%
eða samtals 1,488 millj. og Kjalar-
neshreppur 0,326% eða samtals
652 þúsund.
-----♦ ♦ ♦
Blöðrunýra
Sigurður Sigurðarson, dýra-
læknir á Tilraunastöð Háskólans
í meinafræði, segist verða að fá
nýrað til að geta sagt til um ástæð-
ur stærðar þess. Taldi hann þó lík-
legast að þetta væri svokallað
blöðrunýra, sem stafaði af því að
vökvi safnaðist fyrir í nýranu
vegna vansköpunar. Sagði hann
ekki óalgengt að fram kæmu lömb
Ljósmynd: Þórður Sigvaldason
Risanýra
Hér sést nýrað risavaxna sem
fannst í borgfirska lambinu. Til
samanburðar hefur heilbrigða
nýranu verið komið fyrir ofan á
því. Miðinn er 5 sinnum 9 sentí-
metrar að stærð.
með blöðrunýru og blöðrulifur, en
taldi sjaldgæft að svona stór nýru
mynduðust.
Sig. Að. •
Guðmundur Árni Stefánsson
heilbrigðisráðherra sagði, að ríkis-
lögmaður hefði verið beðinn að
meta hvaða áhrif þetta mál hefði á
starfshæfi þriggja tryggingalækna
sem eru opinberir starfsmenn. Guð-
mundur Árni sagði að málin væru
misjafnlega á vegi stödd þótt lög-
reglurannsókn sé lokið. Máli eins
læknis er lokið, ákæra hefur verið
gefín út gegn öðrum en mál trygg-
ingayfirlæknis er enn hjá yfír-
skattanefnd.
Um er að ræða þrjá lækna sem
eru opinberir starfsmenn, trygg-
ingayfírlækni, læknaprófessor og
sjálfstætt starfandi lækni sem hafa
metið örorku fólks. Fjórði læknirinn
er trúnaðarlæknir tryggingafyrir-
tækis. Telja skattyfírvöld að lækn-
arnir hafi ekki gefið upp til skatts
tekjur sem þeir fengu frá Trygg-
ingastofnun eða tryggingafélögum
fyrir að meta örorku fólks. Máli
eins tryggingalæknis Trygginga-
stofnunar lauk fyrir skömmu með
dómssátt en honum var gert að
greiða 1,3 milljónir í sekt auk þess
sem hann þurfti að greiða 2 milljón-
ir í viðbótartekjuskatt.
A i
N Y H A N D B Ó K F V R I R S Æ L K E R A 1
• •
Olvuná
dansleik MH
í Stapanum
MIKIL ölvun og ólæti voru við
veitingastaðinn Stapann i
Njarðvík aðfaranótt miðviku-
dags þegar Menntaskóiinn í
Hamrahlíð hélt þar dansleik.
Alls voru níu manns vistaðir í
fangageymsium lögreglunnar í
Keflavík og á Keflavíkurflug-
velli.
Skólafólkið kom með nokkrum
rútum á staðinn og var töluvert
ónæði fýrir íbúa í nærliggjandi
húsum vegna ölvunarláta í ung-
mennunum.
Auk þess stöðvaði lögreglan í
Keflavík ökumann sem hafði haft
ökupróf í einn dag fyrir hraðakst-
ur. Pilturinn var sviptur ökuskír-
teini á staðnum.
Matreiðslubók
þessi er gefin út
í tilefni af
35 ára afmæli
Osta- og
smjörsölunnar sf.
í þessa bók höfum við
valið úrval uppskrifta,
sem hafa verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi
Osta- og smjörsölunnar.
Það er von okkar,
að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi.
OSTA- OG SMJORSALAN SF