Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
Atiiði úr myndinni Gefðu mér sjéns.
Gefðu mér sjens
í Sambíóunum
Dagmæður í Reykjavík stofna Friðarsamtökiii barnavistun
Kæra formami Samtaka dag-
mæðra fyrir leikfangastuld
Formaðurinn segir að safnið sé á sínum stað
HÓPUR dagmæðra í Reykjavík hefur kært núverandi formann Sam-
taka dagmæðra, Höllu Hjálmarsdóttur, fyrir stuld á leikfangasafni í
eigu dagmæðra. I kærunni er krafist rannsóknar á meintum þjófnaði
og áskilja eigendur leikfangasafnsins sér rétt til að krefja núverandi
formann Samtaka dagmæðra um skaðabætur fyrir afnotamissi safnsins
og hugsanlegar skemmdir á því. Halla segir að leikfangasafnið sé á
sínum stað og hún hafi engu stolið
SAMBÍÓIN sýna um þessar
mundir gamanmyndina Gefðu
mér sjéns eða „Give Me A Break“
með Michael J. Fox í aðalhlut-
verki.
Myndin segir frá Michael Chap-
man (Fox), fyrrum barnastjörnu úr
sjónvarpsmyndaflokknum „Life
With Mikey“. Hann óx úr grasi
fyrir framan augu bandarísku þjóð-
arinnar allt til 15 ára aldurs eða
þar til tökum á þáttunum var hætt.
Frægðarljóminn fölnaði fljótt eftir
að hætt var að sýna þáttaröðina.
Nú þegar Michael er orðinn 31 árs
á hann í hinum mesta basli með
að láta enda ná saman hjá fyrir-
tæki sínu Chapman og Chapman
sem hann rekur í félagi við bróður
sinn Ed. Þetta er þriðja flokks
umboðsskrifstofa fyrir barnaleikara
en enginn þeirra þykir sýna neina
eftirtektarverða hæfileika.
Allt útlit er fyrir að fyrirtækið
fari endanlega í vaskinn ef þeim
bræðrum tekst ekki að hafa upp á
lítilli krúsídúllu til að leika í smá-
kökuauglýsingu. Heppnin er með
þeim þegar þeir góma lítinn vasa-
þjóf sem gert hefur sig heimakom-
inn í vasa Michael. Þetta er lítil
stúlka, Angie að nafni, sem er
bæði klók og brögðótt og fer létt
með að bræða hjörtu auglýsenda.
Eins og áður segir er það hinn
vinsæli gamanleikari Michael J. Fox
sem fer hér með aðalhlutverkið en
honum til fulltingis eru þau Nathan
Lane, söngkonan Cyndi Lauper og
Christina Vidal. Leikstjóri er James
Lapine.
í kærunni segir að umrætt safn
sé í eigu 100 einstaklinga, sem allir
séu eða hafi verið starfandi dagmæð-
ur í Reykjavík. Eigendurnir hafi lagt
fram stofnfé til kaupa á leikföngum
en Reykjavíkurborg styrkt framtakið
með fjárframlögum án beinnar
eignaraðildar. Reykjavíkurborg hafi
lagt safninu til húsnæði endurgjalds-
laust í leikskólanum Laugaborg.
Þá segir að safnið hafi alla tíð
verið rekið á vegum dagmæðra án
þess að Samtök dagmæðra eða stjórn
samtakanna hefði umráð yfir safn-
inu, enda ekki eigandi þess.
I kærunni segir að þegar Ijóst
hafi verið að kærða hafði tekið safn-
ið hafi eigendur þess verið boðaðir á
fund og mættu 26 af um 100. 21
þeirra fól lögmanni að leggja fram
kæru vegna málsins til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. í kærunni segir að
kærendur séu reiðubúnir að falla frá
kærunni ef kærða skilar safninu í
heild til réttra eigenda og viðurkenn-
ir formlega brot sitt.
Ný samtök stofnuð
Ný samtök dagmæðra, Friðarsam-
tökin bamavistun, voru stofnuð form-
lega 13. október sl. í fréttatilkynningu
frá samtökunum segir að tilgangur
félagsins sé að vinna að hagsmunum
dagmæðra í Reykjavík í friði og með
sóma sem sæmir uppeldishlutverki
dagmæðra. Forsvarsmaður samtak-
anna er Guðbjörg Ellertsdóttir.
Halla Hjálmarsdóttir, formaður
Samtaka dagmæðra, sagði að leik-
fangasafnið væri á sínum stað í
Laugaborg. „Það hefur verið fært til
á milli herbergja. Þessar konur eiga
ekki þetta leikfangasafn og Samtök
dagmæðra hafa rekið það síðan
1986. Þó að konur hafi starfað við
safnið um árabil geta þær ekki tekið
hluta af því með sér þótt þær hætti
í starfi,“ sagði Halla.
Hún sagði að safnið hefði alla tíð
verið inni í rekstri Samtaka dag-
mæðra. „Mér finnst þetta með ólík-
indum og ótrúlegt ef hægt er að
taka út úr rekstri heils félags hlut
af starfseminni. Ég hef aldrei stolið
leikfangasafni eða nokkrum öðrum
hiut á ævinni. Það hafa allir aðgang
að safninu eins og alltaf hefur ver-
ið,“ sagði Halla.
-------------
Unglinffa-
dagurí
Kópavogi
UNGLINGADAGUR verður hald-
inn í Kópavogi í dag, fimmtudag-
inn 28. október, í Félagsheimilinu
Fannborg á vegum Kópavogsbæj-
ar og hefst kl. 13. Fjölbreytt dag-
skrá verður með efni sem ung-
lingar hafa undirbúið. Einnig
verða umræður um unglingamál
milli sveitarsljórnarmanna og
unglinga. Um kvöldið verður
dansleikur í félagsmiðstöðinni
Ekkó með Sniglabandinu.
Á dagskrá í Félagsheimilinu verð-
ur m.a. söngur, leikatriði, látbragðs-
atriði, spurningakeppni á milli skóla-
stjóra o.fl. efni sem unglingarnir
hafa undirbúið. Umræður á milli
sveitarstjórnarmanna úr öllum
flokkum og unglinga frá öllum skól-
um munu ij'alla um málefni sem
varða unglinga í bæjarfélaginu. Þar
verður íjallað um félagsmiðstöð í
austurbæ, útivistartíma unglinga og
afslátt fyrir unglinga í sund, strætis-
vagna o.fl. Þarna verður væntanlega
um spennandi upplýsinga- og skoð-
anaskipti að ræða sem komið geta
bæði unglingum og sveitarstjórnar-
mönnum til góða.
Deginum lýkur með dansleik með
hinu sprellfjöruga Sniglabandi í fé-
lagsmiðstöðinni Ekkó í Þinghóls-
skóla og hefst hann kl. 20. Rútuferð-
ir verða úr austurbæ og úr Sæbóls-
hverfi á dansleikinn og heim aftur
að honum Ioknum á milli kl. 23.30
og 24.
íslendingar óheppn-
ir gegn Armenum
Frá Margeiri Péturssyni í Sviss.
EFTIR góðan sigur á Rússum
á mánudaginn var islenska
sveitin afar óheppin að ná ekki
a.m.k. jöfnu gegn Armeníu á
þriðjudag. Helgi Ólafsson
(2.530) hafði yfirspilað Mina-
sjan (2.535) stórmeistara, en
voru mislagðar hendur í tíma-
hraki. Helgi hafði hvítt og átti
leik í þessari stöðu.
Hvítur lék: 34. Dc7? - Rxe4,
35. Hcl - Dd3, 36. Dxe5 -
Rd2, 37. Re3? og nú náði svart-
ur fullnægjandi mótspili með
37. - Bxh3! og skákinni lauk
með jafntefli.
Helgi missti af vinningsleið-
34. Hxc8! - Hxc8, 35. Dxa6
og vinnur lið, því svartur getur
ekki bæði forðað hróknum á c8
og riddaranum á f6.
Sigurskák Margeirs tefldist
þannig:
Hvítt: Lpujan, Armeníu
Svart: Margeir Pétursson
Bogo-indversk vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- Bb4+, 4. Rbd2 - b6, 5. e3 -
Bb7, 6. Bd3 - 0-0, 7. 0-0 - d5,
8. a3 - Bxd2+
(8. - Be7 er mun algengara.)
9. Bxd2 - dxc4, 10. Bxc4 -
Rbd7, 11. De2 - c5, 12. Hfdl -
De7, 13. dxc5 - Rxc5, 14. Rd4
- Rfe4, 15. f3 - Rxd2, 16. Hxd2
- a6, 17. b4 - Rd7, 18. Df2 -
Re5, 19. Bfl - Hac8, 20. e4 -
Hc3!, 21. Re2??
(Fellur í gildruna.)
21. - Hxf3!
(Nú er 22. gxf3 - Dg5+, 23. Rg3
svarað með 23. - Dxd2, 24. Dxd2
- Rxf3+, 25. Kf2 - Rxd2 og vinn-
ur. Hvítur reyndi:)
22. Dxb6 - Dg5!?
(Einfaldara var 22. - Rc4)
23. Dxb7 - Hh3!, 24. Da7
(24. Khl - Hxh2+, 25. Kxh2 -
Dh4+, 26. Kgl - Rg4, 27. Dc7
- e5 vinnur, én hvítur átti að
reyna 24. Kf2, þó svartur vinni
eftir 24. - Dh4+, 25. g3 - Df6+,
26. Kg2 - Rg4!!, 27. Kxh3 - Re3)
24. - Rf3+, 25. Kf2 - Rxd2
og hvítur gaf.
SKEMMTANIR
■ ROSENBERG-
KJALLARINN í kvöld,
fimmtudaginn 28. október,
verður upptaka á mynd-
bandi með hljómsveitinni
Bone China frá kl. 20.30
og er áætlað áð tökunni
ljúki um kl. 11. Kl. 11 hefj-
ast tónleikar með hljóm-
sveitinni. Gestaspilarar
kvöldsins verða Jet Black
Joe en þeir koma til með
að spila efni af væntanleg-
um geisladiski.
■ TVEIR VINIR Föstu-
dagskvöldið 29. okt verður
Salsahátíð og leikur
hljómsveitin Sniglabandið
fyrir gesti. Yfirskrift hátíð-
arinnar er Sveifla & Galsi
en það er einmitt heiti á
nýjasta lagi hljómsveitar-
innar sem_ frumflutt var í
þættinum Á tali hjá Hemma
Gunn sl. miðvikudagskvöld.
Á laugardag er það svo
hljómsveitin Sigtryggur
- dyravörður sem skemmtir
gestum.
■ BERLÍN Hið árlega
Radíuskvöld verður í
kvöld, fimmtudag. Leiðtog-
ar hópsins eru þeir Steinn
Ármann Magnússon og
Davíð Þór Jónsson. Þeir
félagar munu lýsa samborg-
urum sínum og meðbræð-
rum á sinn eigin hátt.
■ KERLINGAFJALLA-
BALL verður haldið laugar-
daginn 30. okt. í Átthaga-
sal Hótels Sögu. Borðhaldi
er sleppt að þessu sinni en
húsið opnar kl. 21. Hljóm-
sveit skíðaskólans, Skíða-
brot, sér um Kerlingafjalla-
stemmninguna í söng og
dansi. Verð aðgöngumiða
er 900 kr.
■ PLÁHNETAN leikur á
ísafirði um helgina. Hljóm-
sveitin leikur í Sjallanum
föstudags- og laugardags-
kvöld. Hljómsveitina skipa
Stefán Hilmarsson, Sig-
urður Gröndal, Ingólfur
Guðjónsson, Friðrik
Sturluson og Ingólfur
Sigurðsson.
■ POPPINS Föstudaginn
26. okt. heldur hljómsveitin
Poppins miðnæturtónleika í
Þjórsárveri, rétt austan
við Selfoss. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni mikillar
hamingju og lífsgleði sem
liggur í loftinu fyrir austan
flall, segir í tilkynningu.
Hljómsveitina skipa: Jó-
hann Bachman, Gunnar
Ólason, Steinar Erlingz
og Siggi Poppins.
■ HÓTEL SAGA Á laug-
ardagskvöld í Súlnasal
verður framhaldið sýning-
unni Er það satt sem þeir
segja um landann? með
þeim Ladda og félögum.
Hljómsveitin Saga Class
leikur fyrir dansi að aflok-
inni sýningu til kl. 3.
■ ÖRKIN HANS NÓA
leikur laugardagskvöldið á
Laugafelli, Hellu.
■ SAGTMÓÐIGUR leik-
ur í Veitingahúsinu 22 í
kvöld, en tónleikarnir eru
meðal annars haldnir til að
minnast forðum gítarleik-
ara hljómsveitarinnar. Upp-
hitunarhljómsveit verður
Tilburi. Sagtmóðigur hefur
legið í einskonar dái í sum-
ar, meðal annars vegna
brotthvarfs gítarleikarans,
en nú þegar hann er að
fullu horfinn á braut heldur
hljómsveitin um hann þessa
minningartónleika. Upphit-
unarsveitin Tilburi hefur
ekki heldur látið á sér kræla
um hríð, en treður nú upp
með nýjum söngvara. Tón-
leikarnir eru á efri hæð
Veitingahússins 22 á
Laugavegi 22 og hefjast kl.
23.00.
■ HÓTEL ÍSLAND
Aðalsalur Hótels íslands er
lokaður föstudagskvöld
vegna einkasamkvæmis en
laugardag er húsið opið frá
kl. 24. Hljómsveitirnar
Gömlu brýnin og Páll Ósk-
ar og Milljónamæringarn-
ir leika fyrir dansi til kl.
3. Föstudags- og laugar-
dagskvöld verður diskótek
fyrir unglina í Kamelljón-
inu, Norðursal Hótels Is-
lands. Aldurstakmark er 16
ár og er aðgangseyrir 1.000
kr.
■ GAUKUR Á STÖNG í
kvöld, fimmtudag 28. okt.,
leikur hljómsveitin Lestin
brunar. Föstudags- og
laugardagskvöld eru svo
lokatónleikar hljómsveitar-
innar Undir tunglinu.
Sunnudag og mánudag
leika svo félagarnir í Jet
Black Joe og þriðjudag og
fimmtudag leikur Rokka-
billyband Reykjavíkur.
■ GILDRAN leikur laug-
ardagskvöld í Telinu,
Akranesi. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar eru Karl Tóm-
asson, Birgir Haraldsson,
Þórhallur Árnason og
Sigurgeir Sigmundsson.
■ DANSBARINN Föstu-
dags- og laugardagskvöld
leikur hljómsveitin Karniv-
al til kl. 3 báða dagana.
Opinn míkrafónn verður
fimmtudags- og sunnu-
dagskvöld milli kl. 21-23
og Ieikur trúbadorinn Einar
Jónsson til kl. 1.
■ TODMOBILE halda
tónleika í kvöld í Festi,
Grindavík kl. 21, föstudag
í Bíóhöllinni, Akranesi, kl.
21, sunnudag í Iþróttahús-
inu, ísafirði kl. 21. Mánu-
dag 1. nóv. verða tónleikar
í Bifröst Sauðárkróki kl.
21, þriðjudag í Leikhúsinu
Akureyri kl. 20 og 22.30
og miðvikud. verða tónleik-
ar á Hótel Tanga, Vopna-
firði kl. 21.
■ SNIGLABANDIÐ leik-
ur föstudagskvöld á Tveim-
ur vinum og á laugardags-
kvöldið í Hótel Borgarnesi.
I BAROKK Föstudags-
og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin J.J. Soul-
Band. Á efnisskránni eru
soul-, jass- og blúslög.
■ HÓTEL LOFTLEIÐIR
Næstu helgar mun verða
boðið upp á Villibráðahlað-
borð í Blómasal. Pálmi
Gunnarsson söngvari,
veiðimaður og gleðimaður
mun vera gestgjafi og segja
lygasögur af sér og álíka
veiðimönnum. Allir gestir
taka þátt í happdrætti.
■ VINIR DÓRA í kvöld,
fimmtudag, heldur hljóm-
sveitin tónleika í Bifröst,
Sauðárkróki, frá kl. 21 til
23. Föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur hljómsveit-
in á Hótel Læk, Siglufirði.