Morgunblaðið - 28.10.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTOBER 1993
25
Reuter
Kaþólikkar og mótmælendur syrgja
KAÞÓLIKKAR sem eru andvígir yfirráðum Breta yfir Norður-írlandi fjölmenntu í gær á ótför 22 ára
gamals IRA-manns, sem beið bana þegar sprengja sem hann var að koma fyrir sprakk í fiskbúð í Belf-
ast um helgina. Auk tilræðismannsins biðu níu manns bana í sprengingunni, aðallega mótmælendur,
og fimm fórnarlamba hans voru borin til grafar í Belfast í gær. Myndin er af likbílum með kistur sjö
ára gamallar stúlku og foreldra hennar sem biðu bana í fiskbúðinni.
Byssan stóð á sér og kom
í veg fyrir fiöldamorð
Belfast. Reuter.
LITLU munaði að öfgamaður úr röðum mótmælenda á Norður-
Irlandi fremdi fjöldamorð á bar í fyrrakvöld en til allrar hamingju
fyrir bargestina stóð byssa hans á sér.
Maðurinn var með grímu fyrir
andlitinu og ruddist inn á bar sem
er vinsæll meðal kaþólikka í bænum
Lisburn, suðvestur af Belfast. Hann
reyndi að skjóta á gestina með lít-
illi vélbyssu, en hún stóð á sér og
maðurinn lagði á flótta.
Útlæg öfgasamtök mótmælenda,
Frelsisflokkur Uisters, sögðu að
maðurinn hefði verið á þeirra veg-
um og átt að „taka nokkra þjóðern-
issinna af lífi“.
Mikil spenna er á Norður-
írlandi, enda hafa 14 manns verið
drepnir þar á fjórum dögum. Þetta
er blóðugasta vika á Norður-írlandi
í sex ár. John Hume, leiðtogi hóf-
samra mótmælenda, kvaðst þó ætla
að halda áfram leynilegum viðræð-
um við Gerry Adams, leiðtoga Sinn
Fein, stjórnmálaarms írska lýðveld-
ishersins (IRA).
Málaferli vegna gjaldþrots BCCI-bankans
Bótagreiðslur tefj-
ast fram á næstu öld
Lúxemborg. Reuter.
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Lúxemborg úrskurðaði í gær að
skiptaforsljórar Bank of Credit and Commerce International
(BCCI) hefðu ekki haft heimild til að semja um bætur til þeirra
sem töpuðu fé vegna gjaldþrots bankans. Þessi úrskurður verð-
ur að öllum líkindum til þess að málaferli vegna uppgjörs bank-
ans munu standa fram á næstu öld.
BCCI var einn af stærstu einka-
bönkum heims en varð gjaldþrota
eftir að hann var sakaður um viða-
mikið fjármálamisferli í júlí 1991.
Áður en honum var lokað námu
eignir hans um 20 milljörðum dala,
1.400 milljörðum króna, og hann
var með útibú í 89 ríkjum.
Skuldareigendur unnu mál
fyrir dómstólum í Luxembourg
Stærsti eigandi bankans, stjórn-
in í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum, hafði samið um bætur
til skuldareigenda í Bretlandi,
Lúxemborg og Cayman-eyjum.
Nokkrir þeirra fóru í mál við bank-
ann og unnu það fyrir dómstólnum
í Lúxemborg.
Dómarinn sagði að samningur-
inn gengi í berhögg við lögin og
mismunaði hluthöfum í bankan-
um. Stjórnin í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum var líka einn af
lánardrottnum bankans og átti að
fá 1,7 milljarða dala, 119 milljarða
króna, í bætur samkvæmt samn-
ingnum.
Einn af skiptastjórunum sagði
að þetta gæti tafið bótagreiðslurn-
ar í tíu ár. Samkvæmt samningn-
um áttu skuldareigendurnir að fá
30% af því fé sem þeir töpuðu en
nú er líklegt að þeir fái aðeins um
10%.
Yfirmaður
Stasi dæmdur
ERIK Mielke, yfirmaður austur-
þýsku öryggislögreglunnar,
Stasi, um 32 ára skeið, var
dæmdur á þriðjudag í Berlín í
sex ára fangelsi fyrir aðild að
morði tveggja lögreglumanna
árið 1931. Atti atburðurinn sér
stað á síðustu dögum Weimar-
lýðveldisins, rétt áður en nas-
istar tóku völdin í Þýskalandi,
en Mielke var þá orðinn ákafur
kommúnisti. Var málið gegn
honum að sumu leyti byggt á
réttarhöldum, sem nasistar
efndu til, en Mielke tókst að
flýja til Sovétríkjanna.
Hann á einnig yfir höfði sér dóm
fyrir ýmiss konar mannréttinda-
brot. í viðtali við tímaritið Der
Spiegel í fyrra sagði Mielke, að
Austur-Þýskaland hefði hrunið
vegna efnahagslegra mistaka og
vegna þess, að ráðamenn þar
hefðu ekki viljað leyfa honum að
grípa til „viðeigandi ráðstafana“
gegn andstæðingum ríkisins. Mi-
elke lagði fátt til málanna við rétt-
arhöldin en hann er nú hálfníræð-
ur að aldri.
ERUÐ ÞIÐ SÁTTIRVIÐ AÐ LÆKKA KJÖR YKKAR MEÐ ÞÁTTTÖKU í KVÓTABRASKINU?
HVERS VEGNA ERU KJARASAMNINGAR YKKAR LAUSIR?
Á FISKVINNSLAN AÐ SKAMMTA YKKUR LAUN MEÐ EINHLIÐA FISKVERÐSÁKVÖRÐUN?
Þessar og fleiri spurningar verða til umræðu á fundum með sjómönnum næstu vikurnar.
Fyrstu fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Akranes: Fimmtudaginn 28. október kl. 20.30.Fundarstaður: Kirkjubraut 40.
Ólafsvík: Föstudaginn 29. október kl. 20.30.Fundarstaður: Versalir.
Patreksfjörður: Laugardaginn 30. október kl. 17.00.Fundarstaður: Félagsheimilið Patreksfirði.
ísaflörður: Sunnudaginn 31. október kl. ló.OO.Fundarstaður: Stjórnsýsluhúsið, 4. hæð.
Aðrir fundir verða auglýstir síðar.
Forystumenn Farmanna- og fiskimannasambands íslands, Sjómannasamband íslands og Vélstjórafélags íslands mæta á fundina.
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS
FFSI
Borgartúnl 18 - 105 Reyk|av(k - Slml 610769
4^.
VF VétetJórafélag Islands