Morgunblaðið - 28.10.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
33-
Það sem vitað er um geimverur
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
í framhaldi af ráðstefnu okkar
geimveruvina í Háskólabíói fyrir
stuttu hefur gætt hefðbundins mis-
skilnings í túlkun á hvað geimverur
eru og hvers eðlis slík fyrirbæri virð-
ast vera. Og hvað hugsandi menn
telja sig vita um þær og farartæki
þeirra í grófum dráttum.
í stuttu máli virðast vera tvær
tegundir fyrirbæra sem við köllum í
daglegu tali geimverur og/eða fljúg-
andi furðuhluti.
Flokkur A — efnislegu
geimverurnar
í fyrsta lagi, / flokki A sem við í
TRF (Tilraunafélaginu) köllum svo,
er um að ræða efnisleg geimför með
efnislegum, snertanlegum lífverum
innanborðs, að því er virðist frá öðr-
um menningarsamfélögum utan okk-
ar hnattar. Þessar verur og geimför
geta allir jarðarbúar bæði við menn
og hin dýrin séð greinilega og snert
þegar svo ber undir. Lögun, hraði
og hröðun þessara hluta eru óyggj-
andi sannanir þess að um vitsmuna-
-leg farartæki annars staðar frá úr
geimnum sé að ræða. Að ógleymdri
ólíkri líkamsbyggingu þessara lífvera
miðað við okkur að sögn þeirra sem
séð hafa.
Af þessum fyrirbærum eru til þús-
undir kyrrmynda; litmynda og svart-
hvítra, og hreyfimynda; kvikmyndaf-
ilma og segulkvikmynda (vídeóupp-
taka), bæði teknar af fagmönnum
og áhugamönnum um þessi mál. Um
þetta þarf ekki að deila.
Til eru líka þúsundir á þúsundir
ofan af frásögnum fólks sem ýmist
hefur séð þessi för og/eða verur, eða
hreinlega haft efnisleg samskipti við
þær hér á jörðu niðri af einu eða
öðru tagi.
Reyndar flokkumst við jarðarbúar
hér undir flokk A (við erum jú
geimbúar líka), þar sem við erum
eingöngu efnislegar verur. Til eru
þó undantekningar á þessari reglu
sem öðrum í þessum málum.
Flokkur B — „orkulegu/
huglægu“ geimverurnar
í öðru lagi er um geimverur að
ræða sem við í TRF flokkum í B-
flokk, og köllum n.k. orkulegar eða
huglægar verur. Það eru geimverur
frá öðrum menningarsamfélögum en
móðir jörð að því er álykta má. Virð-
ast þær hafa á sér annað form en
efnislegan líkama sem við höfum og
köllum svo. Þessar geimverur geta
aðeins þeir séð sem hafa til þess
gerða eða þjálfaða skyggnisýn.
í daglegu tali kallast slíkir hæfi-
leikar skyggnigáfur og eru af sama
flokki og þeim þegar fólk sér álfa,
huldufólk og tröll og aðrar slíkar
verur hér á þessum hnetti sem all-
mikið virðist til af. Enda flokkast
nær allar hulduverurnar á jörðinni
undir flokk B. En ekkert þessara
fýrirbæra, hvorki „orkulegu“ geim-
verurnar né huldubúarnir, er sjáan-
legt flestu venjulegu fólki og þá líka
yfirieitt ekki myndfestanlegt. Þó eru
til undantekningar á því einnig.
Þær undantekningar virðast vera
myndir af sama flokki og þegar fólk
fer til Ijósmyndamiðla og lætur taka
af sér mynd, og inn á filmuna koma
framliðnir ástvinir og ættingjar án
þess að neinn þeirra hafi verið við-
staddur né nein filma eða mynd hafí
verið notuð af þeim við vinnslu mynd-
Magnús Skarphéðinsson
„Menn verða að hætti
sannra vísindamanna að
reyna að fikra sig áfram
eftir þeim vísbendingum
sem við höfum um hvort
þessar verur séu raun-
verulega til, hvers eðlis
þær séu og hvort við gæt-
um haft eitthvert vitrænt
samband við þær ef svo
væri og ef þær vildu.“
anna. Þegar slíkar myndir eru síðan
framkallaðar og stækkaðar er yfir-
leitt eitt eða fleiri aukaandlit á þeim
þótt engin þessara aukapersóna hafi
„setið fyrir“ hjá ljósmyndaranum.
Þessi fyrirbæri eru vel þekkt og
margsönnuð í spíritismanum.
Geimskip sjást á um 15
mínútna fresti
Flokkur B með huglægu eða orku-
legu geimverunum er margfalt stærri
en flokkur A með efnislegu geimver-
unum. Á því er engin skýring til.
En menn hafa giskað á að líklega
séu þessar geimverur á slíku þróun-
ar- eða tæknistigi að þær geti flutt
sig á milli hnatta í einhveiju öðru
orkuformi en hinu efnislega eða or-
kulega sem við fávísir jarðarbúarnir
þekkjum. Þ.e. geti og hafi ferðast
eða haft samband við þennan smá-
hnött okkar í allt öðru formi en við
flest getum skilið í dag.
Einnig virðast þessar verur geta
ferðast á allt öðrum hraða og með
allt annani hröðun innan andrúmslofts
hnattar okkar en við kunnum nokkra
skýringu á. Um eðlisfræðiþekkingar-
stig þessara vera er lítið sem ekkert
hægt að segja til um ennþá. En fyrir-
bærin eru til og ýmist skynjast eða
sjást reglulega allt um hnöttinn. Um
það þarf heldur ekki að deila.
Skv. bráðabirgðaúttekt geimveru-
vinafélaga víðs vegar um veröldina
er áætlað að einhver jarðarbúi eða
-búar sjái efnislegt geimskip eða
geimverur (þ.e. af flokki A) á um
15 mínútna fresti að staðaldri. Og
að yfir 1.000 þessara fara takist að
festa á filmur þegar aðstæður bjóða
upp á slíkt. Margfalt fleiri telja sig
sjá eða skynja för eða verur úr flokki
B að staðaldri.
Rétt er að geta þess í tengslum
við væntanlega alþjóðlega geimveru-
móttökuathöfn á Snæfellsnesi 5. nóv-
ember nk. að nær öruggt má telja
að eingöngu geimverur af tegund B
muni þar sjást, þ.e. að aðeins komi
verur sem eingöngu „skyggnir" jarð-
arbúar muni geta barið augum. Sem
LJósmynd/Björg Sveinsdóttir
Allt heila klabbið
Hljémplötur
Árni Matthíasson
Ein helsta hljómsveit íslenskr-
ar rokksögu er S/H Draumur,
sem lagði upp laupana fyrir fimm
árum eftir þriggja ára starf.
Hljómsveitin sendi frá sér kas-
settur, 7“, 10“, 12“ og breiðskífu
áður en yfir lauk og snemma
sumars var öllu efni sveitarinnar
safnað saman í einn veglegan
pakka, sem fékk heitið Allt heila
klabbið, alls 25 lög á 76 mínútum
rúmum.
Lögin á Klabbinu eru nánast
öll eftir Gunnar Hjálmarsson, sem
leikur á bassa og syngur, og þar
má finna fjölmargar perlur sem
sanna stöðu Gunnars sem eins
helsta laga- og textasmiðs ís-
lenskrar rokksögu, og þá sérstak-
lega lögin sem Erðanúmúsík gaf
út með breska fyrirtækinu Lake-
land á plötunni Goð 1987. Þá
má segja að S/H Draumur hafi
verið á hátindinum sem hljóm-
sveit, hljóðfæraleikur allur eins
og best varð á kosið, hvort sem
var gríðarlega tæknilegur og
kraftmikill trommuleikur Birgis
Baldurssonar, kyngimagnaður og
útpældur gítarleikur Steingríms
Birgissonar, eða drífandi þéttur
bassaleikur Gunnars. Goð fékk
góða kosningu { vali Rásar 2 á
plötum áratugarins fyrir nokkru
og að vonum. Bestu lögin þar eru
til að mynda Mónakó, Helmút á
mótorhjóli, sem einnig var gefíð
út á smáskífunni Drap mann með
skóflu, Engin ævintýri, þar sem
sjómannsrómantíkin er afgreidd
á skemmtilega órómantískan
hátt, Öxnadalsheiðin, og svo Sý-
rubælið brennur, þar sem hipp-
isminn fær viðeigandi meðferð.
Næsta plata á eftir Goð var
12“ Bless, kveðjustund, sem ber
þess merki að sveitin var hætt
störfum þegar platan var tekin
upp, þó hún hafi haldið einhveija
tónleika þar á eftir. Þar á er þó
ein perla, Dýr á braut, sem var
miðpunktur tónleika S/H Draums
undir það síðasta. Fyrir aðdáend-
ur eru svo þijú lög sem ekki hafa
komið út áður, tekin upp á tón-
leikum og í æfingaplássi sveitar-
innar, en bæta litlu við þó gaman
sé að hafa þau á disknum.
Með útgáfum sem þessari gefst
gott tækifæri til að meta hvað
það sem stóð uppúr; hvaða hljóm-
sveitir voru að gera eitthvað sem
skiptir máli. S/H Draumur var
ein þeirra.
Prinsar í Ameríku
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Prinsar í L.A. („Surf Ninja“).
Sýnd í Laugarásbíói. Leikstjóri:
Neal Israel. Aðalhlutverk: Ernie
Reyes, Rob Schneider, Leslie
Nielsen.
Gamanmyndin Prinsar í Los
Angeles er sárasaklaus endaleysa
um bræður tvo sem alist hafa upp
í Bandaríkjunum en þegar í ljós
kemur að þeir eru prinsar frá fjar-
lægu eyríki verður skyndilega allt
yfirfullt af ninja-hermönnum í
stúdíósamfestingum sem reyna að
drepa þá. Kosturinn við myndina
er að hún tekur sig aldrei hátíðlega
heldur skopast sífellt að sjálfri sér
og fáránlegum söguþræðinum og
stundum tekst henni að vera fyndin.
Maðurinn á bak við hana er Neal
Israel sem áður gerði viðlíka gal-
tómar myndir eins og „Bachelor
Party“ og lögregluskólamyndirnar
og er sjálfur ek. prins draslmynd-
anna. Hér tekst honum að búa til
kyndugar persónur sem eru ekkert
of klárar á hlutverkum sínum sem
bardagamenn og prinsar og hafa
um það nokkrar athugasemdir, í
bland við skoplegar kringumstæður
þar sem Leslie Nielsen af öllum er
vondi kallinn með hálft andlitið úr
járnarusli og í sífelldu kapphlaupi
við símsvarann sinn. „Hringdir þú
í símsvarann minn og lagðir á án
þess að skilja eftir skilaboð," spyr
hann ógnandi.
Myndin virkar blessunarlega eins
og skopstæling á öllum þessum
óþolandi ninja-myndum sem gerðar
hafa verið og ganga útá að sýna
her manna með lambhúshettur falla
auðveldlega í valinn fyrir amerískri
hetju. Söguþráðurinn og persónurn-
ar í þessum myndum eru svo fárán-
legar að það er ekki hægt annað
en að skopast að því og Israel ger-
ir slíkt í gamanfantasíu sinni.
Strákarnir sem hann hefur feng-
ið til að leika prinsana eru ágætlega
með á nótunum, ekki ósvipað og
Bill og Teddy í öðrum og betri
myndum. Sá yngri er „sjáandinn"
sem þýðir að hann er með fram-
vindu myndarinnar í tölvuleiknum
sínum. Nielsen, frægur hrakfalla-
bálkur úr Beint á ská-myndunum,
er einvaldur sem maður hlær að
og þótt myndin sé ein þvæla út í
gegn nýtir hún þvæluna sér til
framdráttar ef eitthvað er og gerir
hana spaugilega.
NÝTT!
NÝTT!
Metsölu-
sælgæti
í U.S.A. '92
Logondi
brjóstsykur
loksins
komið til
íslands
sterkur
{XLfö
heildverslun - símar 641005-06.
þýðir í reynd opinberlega í þessu
efnishyggjusamfélagi okkar að ekk-
ert hafi gerst og enginn hafí komið,
og geimveruvinir hafí komið heim
með öngulinn í rassinum. Og mun
það rétt vera á sinn hátt. Því óneitan-
lega eru geimverur af flokki A (hin-
ar efnislegu) margfalt tilkomumeiri
og öruggari sönnun slíkra fyrirbæra
en eingöngu hinar „dulrænu" af
flokki B.
Þröngsýni „raunvísinda
mannanna" óþolandi í málinu
Menn verða að hætti sannra vís-
indamanna að reyna að fikra sig
áfram eftir þeim vísbendingum sem
við höfum um hvort þessar verur séu
raunverulega til, hvers eðlis þær séu
og hvort við gætum haft eitthvert
vitrænt samband við þær ef svo
væri og ef þær vildu.
Um hingaðkomu og þar af leið-.(
andi tilvist þessara vera eru ansi
margar og miklar vísbendingar.
Miklu fleiri en svo að nokkur opinn
og heiðarlega hugsandi maður geti
ýtt slíku frá sér og afgreitt sem
hugarburð allra sem sjá þessi fyrir-
bæri og að allar efnis- og skjalfestu
sannanirnar fyrir tilvist þeirra og
hingaðkomu, allar myndirnar, allir
sjónarvottarnir og radarmælingarn-
ar, ásamt hinum meintu efnislegu
leifum þeirra sem óstaðfestar sagnir
fara sífellt af, séu fölsuð gögn og að
í gangi sé alþjóðlegt samsæri gegn
„sannleikanum" eins og skilja má oft
á máli fulltrúa efasemdarmannanna
í umræðum um þessi mál.
Slíkar samsæriskenningar eru alls
ekki boðlegar í umræðu á borð við
þessa raunverulegu hluti þótt flestir
raunvísindamenn hafí gert sig illilega
seka um slíka fordóma í margan veg.
Höfundur er nemi í sagnfræði við
HI og fundarstjóri Tilrauna-
féiagsins, félags um m.a.
vísindalegar tilraunir á
miðilsstarfsemi.
Sýnishorn úr söluskrá:
MMC Pajero, stuttur, V-6 '92,
rauöur, ekinn 17 þ. km., upp-
hækkaður, 33“ dekk, álfelgur,
aukaljós. Verð 3 millj., sk. á ód.
M. Benz 380 S6L '83, kóngablár, ek.
210 þ. km., hlaðinn aukabúnaði þ.á.m.:
Topplúga, rafm. í sætum, rafm. i rúðum,
ABS bremsukerfi, hleðslujafnari, centr-
al læs., loftræsting, álfelgur o.m.fl.
Verð 1990 þús.
MMC Lancer GLXi 4x4 '91, hlaðbak-
ur, hvítur, ek. 49 þ. km. Verð 1150 þús.
Toyota Hi Lux, Ex cab, '91, rauður, ek.
73 þ. km., upphækkaður, 36“ dekk,
lækkuð drifhlutföll, læst drif að aftan,
auka bensin- tankur, álfelgur, auka Ijós,
plasthús o.fl. Verð 1850 þús.
Ford Aerostar XLT '91, gullsans, ek.
39 þ. km., upphækk., 36“ dekk, álfelg-
ur, 230 I. bensíntankur, loftkerfi, loftl-
æsingar framan, no spin aftan, loft-
púðar aftan, lækkuð drif o.fl Verð 2.950
þús.
Nú er rétti tíminn til
að kaupa eða selja
Vantar allar gerðir bif-
reiða á skrá og á staðinn.
BILASALAN
BÍLDSHÖFDA 3
S. 670333