Morgunblaðið - 28.10.1993, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Sverrir
Fréttaritarar og nokkrir starfsmenn á ritstjórn Morgunblaðsins stilla sér upp til myndatöku í lok aðal-
fundar Okkar manna.
MANNAMOT
Fréttaritarar fjölmenna
á aðalfund
"tpjöldi fréttaritara Morgunblaðs-
-i- ins hittist á aðalfundi fréttarit-
arafélagsins Okkar manna fyrir
helgi. Þar voru fréttaritarar heiðr-
aðir og rætt um málefni þeirra.
A fundinum afhenti fulltrúi
Morgunblaðsins 23 viðurkenningar
fyrir fréttir mánaðarins sem út-
nefndar hafa verið frá síðasta aðal-
fundi. Formaður félagsins tilkynnti
útnefningu þriggja nýrra heiðursfé-
laga en þeir eru Páll Pálsson á
Borg, Sveinn Guðmundsson í Mið-
húsum og Matthías Jóhannsson á
Siglufirði. Sveinn var á fundinum
og tók við heiðursfélagaskjali sínu.
I skýrslu stjórnar kom fram að
félagið stóð fyrir ljósmyndasam-
keppni meðal fréttaritara. Sýning á
verðlaunamyndum var hengd upp á
fjölförnum stöðum víða um land og
vaktrathygli. Þá kom fram að félag-
ið gefur út fréttabréf og stendur
fyrir ýmis konar starfi fyrir félaga
sína.
Að síðustu fóru fram almennar
umræður um málefni fréttaritara
eftir framsöguerindi sem Ágúst
Ingi Jónsson fréttastjóri og Helgi
Bjarnason blaðamaður fluttu. Eftir
fundinn var Morgunblaðið með boð
fyrir fundarmenn.
Stjórn félagsins var endurkjörin
en hana skipa Sigurður Jónsson
formaður, Jón Gunnlaugsson ritari
og Jón Sigurðsson gjaldkeri.
Harrison Ford ásamt eiginkonu sinni Melissu Mathison.
LEIKARAR
Var lagður í
einelti sem barn
Leikarinn Harrison Fordsegir að
það sé kaldhæðni örlaganna að
myndin „Flóttamaðurinn“ hafi verið
tekin upp í heimabæ hans, Chicago,
því sem barn hafi hann verið lagður
í einelti einmitt þar. Hann segir að
ráðist hafi verið á hann í skóla
vegna þess að hann tók aldrei á
móti. „Eftir skóla biðu svo stóru
strákarnir eftir mér og lúbörðu
mig,“ segir hann í nýlegu blaðavið-
tali og minnist æskuáranna ekki
með hlýhug. Hins vegar segist hann
fljótlega hafa fengið harða skel og
fullorðnast.
Hætti í skóla og fór til
HoIIywood í atvinnuleit
Harrison gekk námið erfiðlega,
fékk lélegar einkunnir, skrópaði oft
og var þunglyndur. Hann lauk ekki
námi en kvæntist þess í stað og fór
að Ieita hófanna í Hollywood. Hon-
um gekk ekki vel, hann þótti erfið-
ur í umgengni og fékk því aðeins
léleg hlutverk. Þá gafst hann upp
á leiklistinni og gerðist smiður.
Hann segir að það hafi bjargað fram
sínum.
Eftir tíu ár sem smiður
fékk hann loks hlutverk
Þegar hann hafði unnið sem
smiður í tíu ár fékk hann hlutverk-
ið í myndinni „American Graffitti“,
síðan í „The Conversation“ og loks
tókst honum að slá í gegn í Stjörnu-
stríðs-myndunum og síðar Indíana
Jones-myndunum. Á síðustu árum
hefur hann leikið hvert stórhlut-
verkið á fætur öðru.
Harrison Ford virðist ekki vera
mikið fyrir lúxuslífið með tilheyr-
andi skemmtunum í Hollywood.
Hann mætir aldrei á Óskarsverð-
launaafhendinguna og segir að
mesta unun hans í lífinu sé að dytta
að húsi sínu og rækta jörðina. Hann
býr á bóndabæ rétt fyrir utan
Wyoming ásamt síðari konu sinni
Melissu Mathison og syni þeirra
Malcom. Harrison á tvo uppkomna
syni frá fyrra hjónabandi.
LEIKARAR
Koo Stark fékk
demant í nefið
Leikkonan Koo Stark, sem var
einu sinni orðuð við Andrés
Bretaprins og var sett út á kaldan
klakann af kóngafjölskyldunni
bresku vegna þess að hún lék
nakin í kvikmynd, hefur nú trúlof-
;ast Gerald Way nokkrum. Þau
hittust í brúðkaupi sameiginlegra
vina í maí síðastliðnum og fékk
Gerald símanúmerið hjá Koo.
Hann lét þó ekkert í sér heyra
fyrr en með haustinu. Það tók þau
skötuhjúin ekki langan tíma að
ákveða sig og segja vinir hjóna-
leysanna að brúðkaupsklukkurnar
fari brátt að hringja. Koo fékk þó
ekki trúlofunarhring eins og venja
er heldur demant í nefið. En frum-
legt!
Koo Stark með demant í nefinu.
Marita og Leif Nors með dætrunum níu.
FJÖLSKYLDA
Nöfn átta dætra byija á C
Hjónin Marita og Leif Nors í
Svíþjóð eru 36 og 39 ára. Þau
eiga níu dætur og allar nema ein
heita nafni sem byijar á C. Yngstu
stúlkurnar eru tvíburar og þegar
kom að því að velja nafn á aðra
þeirra kom foreldrunum ekki í hug
fleiri nöfn með C svo að Sarah varð
fyrir valinu. Hinar átta heita Caro-
lirt-a 15 ára, Camilla 13 ára, Gatar-
ina 9 ára, Cecilia 8 ára, Charlotte
5 ára, Christine 3 ára, Carina eins
árs og að lokum tvíburinn Casja.
Það hefur að vonum vakið at-
hygli að hjónunum fæðist aðeins
stúlkubörn og segir faðirinn að eng-
in líffræðileg skýring finnist. „Eg
held að okkur sé ekki ætlað að eign-
ast son,“ segir hann. Maria segir
hins vegar að það sé óskaplega
þægilegt að börnin séu af sama
kyni vegna þess að fötin og leik-
föngin gangi beint í arf. „Það eru
aldrei nein vandræði með heimilis-
störfin, hins vegar fer í verra þegar
Leif vantar hjálp við erfiðisvinnu,
þá gæti hann hugsað sér að eiga
son,“ segir hún.
Marita vann utan heimilis þrátt
fyrir börnin sjö, en þegar tvíburarn-
ir fæddust þótti henni kominn tími
til að vera heima og sinna börnun-
um.