Morgunblaðið - 28.10.1993, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
KNATTSPYRNA
Ingólfur Ingólfsson
Ingólfur
aftur í
Stjömuna
Ingólfur Ingólfsson, sem hefur leik-
ið með Fram síðustu tvö keppnis-
tímabil, hefur ákveðið að leika með
Stjörnunni í 1. deild knattspyrnunnar
næsta sumar. Hann lék með Stjörn-
unni áður en hann fór til Fram og
er því aftur kominn heim. „Astæðan
fyrir því að ég skipti er að ég hef
ekki verið sátturlngólfur Ingólfsson
Fram. Það leggst vel í mig að leika
aftur með Stjörnunni og vonandi næ
ég mér á strik aftur,“ sagði Ingólfur.
Stjörnumenn vonast einnig eftir
því að Valdimar Kristófersson gangi
til liðs við þá, en Valdimar gekk til
liðs við Fram úr Stjörnunni um leið
og Ingólfur. „Það er ekkert ljóst
hvað ég geri, hvort ég fer í Stjörn-
una eða verð áfram hjá Fram,“ sagði
Valdimar við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Ellefu ára draumur
miðherians í augsýn
FYRIR11 árum heillaðist 15 ára japanskur
drengur af knattspyrnusnillingnum Pele.
Draumurinn var að feta í fótsporið og leika í
úrslitum heimsmeistarakeppninnar íknatt-
spyrnu. Hann reyndi fyrir sér hjá fyrrum fé-
lagi Peles, Santos í Brasilíu, reyndi að líkja
eftir fyrirmyndinni og er nú 90 mínútum frá
því að sjá drauminn rætast.
Kazuyoshi „Kazu“ Miura er miðheiji japanska
landsliðsins og á stóran þátt í velgengi liðsins
í undankeppni HM. Það er efst í Asíuriðli og með
sigri gegn írak í dag leikur Japan í fyrsta sinn í
úrslitakeppni HM — og draumur Miura verður að
veruleika.
Miura tryggði sigur gegn Norður- og Suður-
Kóreu á dögunum. „Síðan ég var 15 ára hefur mig
dreymt um að leika í úrslitum HM og takmarkið er
í augsýn. Ég hef verið spurður hvort ég vilji skora
gegn Irak. Ég reyni að hugsa ekki um leikinn, en
auðvitað vil ég skora, þó ekki skipti máli hver skor-
ar svo framarlega sem við sigrum.“
1982 storkaði hann móður sinni og kennurum
með því að fara til Brasilíu, þar sem hann drakk í
sig töfra leiksins af snillingum íþróttarinnar. Hugs-
unin um frægð í knattspyrnunni var ofar öllu, heim-
þrá og einmannaleiki fengu þar engu um breytt.
Þegar hann var yngri hafði hann horft aftur og
aftur á videomyndir af Pele í leik og áfanga var
náð, þegar hann gerði samning við Santos. Samt
tókst honum ekki að tryggja sér sæti í liðinu, en lék
með nokkrum öðrum félögum til 1990, þegar hann
fór aftur heim.
Þegar japönsku deildinni var hleypt af stokkunum
í ársbyrjun var Miura réttur maður á réttum stað
og eftir að hafa gert níu mörk fyrir Japan í riðla-
keppni HM var hann orðinn þjóðhetja.
Leikirnir í Asíuriðlinum fara fram í Doha í Qatar
, og hefur Miura verið í sviðsljósinu. Hundruð kvenna
horfa á goðið í leikjum og skrækja og veina í hvert
sinn sem Miura snertir boltann. Um 300 japanskir
fréttamenn fylgja honum eftir hvert fótmál og skrá
vandlega niður allt, sem hann segir. Japanskir fjöl-
miðlar hafa gert að því skóna að Miura væri á leið-
inni til Juventus, en miðheijinn sagðist ekki vilja
Kazuyoshi „Kazu“ Miura er miðheiji japanska
landsliðsins.
festast í tali um félagaskipti rétt fyrir mikilvægasta
leikinn á ferlinum. „Ég veit ekkert um þetta mál.“
KÖRFUKNATTLEIKUR
FIBA og IMBA
stefnaaðHM
TALSMENN alþjóða körfuknatt-
leikssambandsins, FIBA, og
bandarfsku NBA-deildarinnar
vonast til að heimsmeistara-
keppni félagsliða í körfuknatt-
leik verði að veruleika 1995 og
komi f staðinn fyrir alþjóðlegt
boðsmót sterkustu liða, sem
hefur verið haldið annað hvert
ársfðan 1987.
Tveir gegn tveimur
Körfuboltamótið „Tveir á tvo“, sem
Veggsport gengst fyrir og styrkt er af
Sjóvá-Almennum tryggingum hf., fer fram
LVeggsporti um helgina. Keppt verður í
fjórum flokkum, karlaflokki (mfl., 1. fl. og
2. fl.), karlaflokki b (aðrir spilarar), kvenna-
flokki og unglingaflokki (16 ára og yngri).
Síðasta mót fór fram í mars s.l. og voru
keppendur þá liðlega 100, en nú er stefnt
að því að tvöfalda fjöldann. Keppni hefst
kl. 12 á laugardag, en skráning og nánari
upplýsingar í Veggsporti (s. 682111).
^jjugmyndin er að koma á keppni
bestu liða í Bandaríkjunum,
Evrópu, Suður-Ameríku og Ástralíu.
„Við ætlum að reyna að finna leið,
sem skuldbindur meistara NBA-
deildarinnar að taka þátt,“ sagði
David Stem framkvæmdastjóri
NBA. „Takmarkið er að næsta
keppni verði heimsmeistarakeppni
félagsliða, sem verði síðan á tveggja
ára fresti."
Borislav Stankovic, framkvæmda-
stjóri FIBA, sagði að félögin yrðu
að leika um sæti í keppninni og í
Evrópu yrði árangur í Evrópukeppn-
inni hafður til hliðsjónar.
Að þessu sinni tóku sex lið þátt í
boðsmótinu, sem fór fram í Miinchen
í Þýskalandi um síðustu helgi, og
hafa bandarísk lið ávallt sigrað, nú
síðast Phoenix Suns. Ekki hefur ver-
ið ákveðið hvar keppnin verður 1995.
Þjálfaranámskeið KSf
A-stigs námskeið verður haldið 5.-7. nóvember 1993.
B-stigs námskeið verður haldió 26.-28. nóvember 1993.
Námskeiðin eru bæði bókleg og verkleg.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ í síma 814444.
Góó þjálfun - betri knattspyrna
Freeósluneffnd KSÍ.
HANDKNATTLEIKUR
Samningurinn undirritaður; Ólafur B. Schram og Helgi Ingvarsson
við borðið, en fyrir aftan þá eru fulltrúar níu 1. deildarliða.
Ingvar Helgason aðal
stuðningsaðili 1. deildar karla
Íngvar Helgason hf. og Samtök 1. deildar félaga í handknattleik hafa
gert með sér samning sem felur í sér að Ingvar Helgason hf. verður
aðalstuðningsaðili 1. deildarinnar keppnistímabilið 1993-94, og mun 1.
deildin nefnd Nissan-deildin á gildistíma samningsins. Hér er um þriggja
ára rammasamning að ræða. Samningurinn var undirritaður á föstudag-
inn af Helga Ingvarssyni, framkvæmdastjóra, fyrir hönd fyrirtækisins og
Ólafi B. Schram, formanni HSÍ, fyrir hönd HSÍ og Samtaka 1. deildar
félaga.
KNATTSPYRNA
Hagur Hollendinga vænkast
Tyrkir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Pólveija 2:1 í 2. riðli HM í
gærkvöldi og fögnuðu Hollendingar gríðarlega því nú dugar þeim
aðeins eitt stig til að gulltryggja sér rétt til þátttöku í Bandaríkjunum
næsta sumar. Pólveijar komust yfir snemma í leiknum en í síðari hálf-
leik réðu Tyrkir gangi lðiksins og skoruðu tvívegis.
Hollendingar mæta Pólveijum á útivelli í síðasta leiknum og dugar
jafnetefli til að komast áfram og gætu hugsanlega mátt tapa. Á sama
tíma, 17. nóvember, mæta Englendingar liði San Marínó og þurfa að
vinna með sjö marka mun til að skjótast upp fyrir Hollendingana, svo
fremi Pólveijar vinni Hollendinga.
ÚRSLIT
HM í knattspyrnu
Nokkrir leikir voru í undankeppni HM [
knattspyrnu í gærkvöldi. Úrslit urðu:
2. riðill:
Tyrkland - Pólland.............2:1
Hakan Sukur (57.), Bulent Uygun (72.) -
Wojeiech Kowalczyk (16.).
Staðan:
Noregur 9 7 2 0 24:3 16
Holland 9 5 3 1 26:8 13
England 9 4 3 2 19:8 11
Pólland 9 3 2 4 9:12 8
Tyrkland 9 2 1 6 9:18 5
San Marino 9 0 1 8 1:39 1
■Þessi leikir eru eftir í riðlinum: 10. nóv.
Tyrkland - Noregur, 17. nóv. San Marino
- England, Pólland - Holland.
4. riðill:
Tékkóslóvakía - Kýpur.................3:0
(Petr Lubovsky 10., Pavel Habal 22., Tom-
as Skuhravy (76.).
5. riðill:
Ungverjaland - Luxemborg..............1:0
Lajos Detari (20.) 1.500
Staðan:
Rússland........7 5 2 0 15: 3 12
Grikkland.......7 5 2 0 9: 2 12
ísland..........8 3 2 3 7: 6 8
Ungveijaland....8 2 1 5 6: 11 5
Luxemborg.......8 0 1 7 2: 17 1
■Einn leikur er eftir í riðlinum. Grikkir
taka á móti Rússum þann 17. nóvember.
6. riðill:
Israel - Austurríki.................1:1
Ronnie Rosenthal (2.) - Hannes Reinmayr
(17.) 20.000
Staðan:
Svíþjóð 9 6 2 1 18:7 14
Frakkland 9 6 1 2 16:8 13
Búlgaría 9 5 2 2 17:9 12
Austurríki 9 3 1 5 14:15 7
ísrael 9 1 3 5 9: 24 5
Finnland 9 1 1 7 6: 17 3
■Þessir leikir eru eftir í riðlinum: 10. nóv.
Austurríki - Sviþjóð, ísrael - Finnland, 17.
nóv. Frakkland - Búlgaría.
Ítalía
Önnur umferð bikarkeppninnar á Ítalíu var
leikinn í gær.
2. umferð, fyrri leikur:
Inter - Lucchese...................2:0
2. umferð, síðari leikur. Lið feitletrað
sem kemst áfram:
Cremonese - Brescia............0:2 (2:4)
Cesena - Cagliari..............1:0 (2:1)
Feneyjar - Juventus.............:3 (5:4)
Ancona - Napoli..............3:2 (3:2)
Avellino - Lazio.............0:0 (2:0)
Roma-Padova..................1:0 (2:1)
Vincenza - AC Milan............1:1 (1:4)
Triestina - Foggia...........0:4 (2:6)
Atalanta - Cosenza.............4:2 (6:2)
Perugia - Piacenza...........1:0 (2:3)
Palermo - Parma..............0:2 (0:4)
Lecee - Udinese..............3:2 (3:4)
Reggiana - Fiorentina........0:0 (0:3)
England
Enski deildarbikarinn, 3. umferð:
Derby — Tottenham.................0:1
■Nick Barmby gerði sigurmark Tottenham
á 71. mínútu.
Liverpool — Ipswich...............3:2
■ian Rush gerði í gær fyrstu þrennu sína
í tvö ár fyrir Liverpool. Hann gerði síðast
þrennu gegn Crewe í deildarbikarnum árið
1991.
Man. United — Leicester...........5:1
Varnarmaðurinn Steve Bruce gerði tvö
marka Man. United.
Middlesbrough — Sheffield Wed..1:1
Nottingham Forest — West Ham...2:1
Q.P.R. — Millwall...............3:0
Wimbledon — Newcastle..........2:1
Þýskaland
Þýska bikarkeppnin, 4. umferð:
Werder Bremen - Hamborg..........4:2
Hamborg komst í 2:1 en Frank Neubarth,
sem kom inná sem varamaður og Ný-Sjá-
lendingurinn Wynton Rufer gerðu tvö mörk
á síðustu fjórum mínútum leiksins og
tryggðu sigur þýsku meistaranna í Bremen.
FH-Ármann 20:19
Kaplakriki, íslandsmótið í handknattleik —
1.' deild kvenna, miðvikudaginn27. okt.
1993.
Gangur leiksins: 0:7, 4:12, 4:15, 20:19.
Mörk FH: Arndís Aradóttir 7, Thelma
Árnadóttir 5, Björg Gilsdóttir 3, Björk
Ægisdóttir 3, Berglind Hreinsdóttir 1, Hild-
ur Páisdóttir 1.
Utan vallar: 12 mín.
Mörk Ármanns: Vesna Tomajek 8, María
Ingimundardóttir 3, Kristín Pétursdóttir 3,
Margrét Hafsteinsdóttir 2, Ásta Stefáns-
dóttir 2, Svanhildur Þengilsdóttir 1.
Utan vallar: 12 mín.
Dómarar: Rúnar Örn Marinósson og Hlyn-
ur Leifsson. ,
Guðrún R. Kristjánsdóttir
Fj. leikja U J T Mörk Stig
GROTTA 7 5 2 0 156: 117 12
VIKINGUR 7 6 0 1 159: 123 12
STJARNAN 5 4 0 1 118: 90 8
FRAM 5 4 0 1 102: 81 8
mv 5 3 0 2 113: 110 6
VALUR 5 2 1 2 105: 96 5
KR 6 2 1 3 93: 113 5
ARMANN 6 2 0 4 128: 134 4
HAUKAR 5 1 0 4 79: 102 2
FH 7 1 0 6 115: 141 2
FYLKIR 6 0 0 6 100: 161 0