Morgunblaðið - 08.12.1993, Qupperneq 1
72 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
280. tbl. 81. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
• •
Ofgamenn í S-Afríku
Fonifrægt
Búavirki
hemumið
Fort Schanskop í S-Afríku. Reuter.
UM 30 öfgafullir hægrimenn í
Suður-Afríku lögðu í gær und-
ir sig fornfrægt Búavirki,
Schanskop, nálægt höfuðborg-
inni Pretoríu. Markmiðið var
að mótmæla stofnun Fram-
kvæmdaráðsins nýja, TEC,
sem skipað er fulltrúum allra
kynþátta og á að hafa hönd í
bagga með stjórn landsins
fram að kosningum á næsta
ári.
Mennirnir voru vopnaðir en leið-
togi þeirra gaf þó í skyn að ekki
væri ætlunin að reyna að beijast
til þrautar heldur væri um að
ræða táknræn mótmæli gegn
valdaafsali hvítra sem hafa stjórn-
að S-Afríku í meira en þijár aldir.
Hann sagðist vona að hægt yrði
að ná takmarkinu, sjálfstæðu ríki
hvítra, „án þess a,ð efna til styij-
aldar“.
Stjórnvöld sendu 150 svarta
hermenn á vettvang en ekki hafði
komið til átaka er síðast fréttist.
Sjá „Fá neitunarvald í ýmsum
málum“ á bls. 28.
Mannfjölgun-
arvoðinn minni
en menn töldu
Lundúnum. The Daily Telegraph.
VOÐINN, sem mönnunum stafar af „mannfjölgunarsprengjunni" sem
svo er kölluð, er ekki jafn mikill og óttast var að mati þriggja banda-
rískra sérfræðinga. Segja þeir í nýjasta hefti tímaritsins Scientific
American, að fæðingum hafi fækkað gífurlega mikið í fátækustu
löndunum og spá því, að mannfjöldinn muni stöðvast við 10 millj-
arða fyrir lok næstu aldar.
Reuter
Átök vegna 250 ára kastaníu
TUGIR manna særðust, þar af tveir alvarlega, í átökum sem blossuðu
upp í Lundúnum í gær þegar borgarbúar söfnuðust saman við 250
ára gamalt kastaníutré til að mótmæla áformum um að saga það
niður svo hægt yrði að leggja hraðbraut. Fólkið reisti kofa á trénu
og raðaði sér í hring til að veija það. 350 lögreglumönnum og öryggis-
vörðum tókst þó að lokum að koma fólkinu í burtu.
Leo Morris, prófessor við Sjúk-
dómavarnamiðstöðina í Atlanta í
Georgíu, og samstarfsmenn hans
segja, að hvarvetna í þróunarlönd-
unum, jafnvel í Kína og Afríku,
hafi barnsfæðingum fækkað veru-
lega og þakka það fyrst og fremst
aukinni notkun getnaðarvarna.
Nefna þeir sem dæmi, að frá-átt-
unda áratugnum sé fækkunin 26%
í Botswana, 18% í Zimbabwe og
35% í Kenýa, jafnvel þótt það sé
samgróið menningu þessara þjóða
að fjölskyldur séu stórar.
í Tælandi hefur fijósemin minnk-
að um helming á 12 árum, úr 4,6
börnum á konu 1975 í 2,3 1987; í
Indónesíu hefur hún minnkað um
46%, í Marokkó um 31% og í Tyrk-
landi um 21%. Það, sem kemur
mest á óvart, er, að fjölskyldur í
þriðja heiminum ætla ekki að bíða
eftir að betri hagur verði tii að
Verulegur árangur í samningaviðræðum Bandaríkjamanna o g EB
Vongóðir um GATT-sam-
komulag á næstu dögum
Brussel. Reuter.
SAMNINGAMÖNNUM Banda-
ríkjanna og Evrópubandalags-
ins (EB) í GATT-viðræðunum
varð verulega ágengt í mikil-
vægum málaflokkum, svo sem
landbúnaðarmálum, á 23
stunda fundi sem lauk í gær.
Þeim tókst samt ekki að leysa
deiluna um myndiðnaðinn og
ríkisstyrki til flugvélafram-
leiðenda og Frakkar sögðu að
samkomulag um landbúnaðar-
málin væri ekki enn í höfn.
Sir Leon Brittan, sem fer með
utanríkisviðskipti innan fram-
kvæmdastjórnar EB, kvaðst
þó „algjörlega sánnfærður"
um að samkomulag næðist á
næstu dögum.
Brittan og Mickey Kantor, við-
skiptafulltrúi Bandaríkjanna,
sögðu eftir fundinn að verulegur
árangur hefði náðst í mörgum af
erfiðustu málunum. Frakkar virt-
ust hafa fallist á meginatriði nýs
landbúnaðarsamnings Bandaríkj-
anna og EB eftir verulegar tilslak-
anir af hálfu Bandaríkjamanna.
Aiain Juppe, utanríkisráðherra
Frakklands, sagði að samninga-
menn Bandaríkjanna og EB hefðu
samið um mikilvægar breytingar
á svokölluðum Blair House-samn-
ingi þeirra í landbúnaðarmálum til
að koma tii móts við kröfur
Frakka. „Blair House-samningur-
inn er dauður," sagði hann. Juppe
bætti þó við að nýr landbúnaðar-
samningur væri þó ekki í höfn.
„Við sjáum nú drög að söguleg-
um samningi meira en 110 ríkja
- umfangsmesta viðskiptasamn-
ingi sögunnar, sem skapa mun
vöxt í efnahagslífi heimsins,"
sagði Kantor.
Ekki náðist þó samkomulag í
deilunni um myndiðnaðinn, sem
snýst um inrifiutning kvikmynda
og myndbandsspóla, auk ágrein-
ingsins um ríkisstyrki til flugvéla-
framleiðenda.
Sjá „Fellur GATT á hags-
munabaráttu ...“ á bls. 28.
minnka fjölskyldustærðina eins og
þróunin var ,í Evrópu og Norður-
Ameríku, heldur sýna þær æ meiri
skilning á því, að skynsamlegar fjöl-
skylduáætlanir geta hugsanlega
verið forsenda bættrar afkomu.
Þessar niðurstöður ganga í ber-’
högg við dómsdagsspár síðustu ára
en nefna má sem dæmi, að fyrir
um 30 árum var reiknað út, að eft-
ir 260 ár yrðu jarðarbúar 400 millj-
arðar; þijár billjónir eftir 370 ár
og þannig áfram. Nú hljóðar spáin
upp á 10 milljarða eftir eina öld en
annað er, að ekki eru allir vissir
um, að jörðin geti framfleytt þeim
fjölda.
♦ ♦ ♦
Norðursam-
bandið á Ítalíu
Gjaldker-
inn hand-
samaður
Mílanó. Reuter.
ALESSANDRO Patelli, gjaldkeri
Norðursambandsins á Ítalíu, var
handtekinn í gær vegna gruns
um að hann hefði brotið lög um
fjármögnun stjórnmálaflokka.
Þetta er mikið áfall fyrir Norður-
sambandið, sem hefur til þessa
stært sig af því að vera saklaust
af spillingunni sem tröllriðið hefur
ítölskum stjórnmálum undanfarna
áratugi. Flokkurinn hefur aukið
fylgi sitt verulega á Norður-Ítalíu
með gagnrýni á spillingu ráða-
manna í Róm og kröfum um aukna
sjálfstjórn norðurhlutans og að ítal-
ía verði sambandsríki.
Bhutto víkur móður sinni frá
Lahore í Pakistan. The Daily Telegrapli.
BENAZIR Bhutto, forsætisráðherra Pakistans, hefur undir-
strikað enn frekar klofninginn í fjölskyldu sinni með því að
reka móður sína úr stöðu formanns stjórnarflokksins og taka
sjálf við. Segir móðirin, Begum Nusrat Bhutto, að um sé að
ræða samsæri dótturinnar gegn sér.
Benazir Bhutto kallaði mið- Begum að þetta væri rétt en
stjórn Þjóðarflokksins, sem fer
með völd í Pakistan, til neyðar-
fundar á sunnudagskvöld og
keyrði í gegn breytingar sem
gera hana að formanni. Litlir
kærleikar eru með móður og
dóttur og óttaðist Benazir að
móðir hennar myndi skipa son
sinn, Murtaza, bróður Benazir,
formann flokksins. Viðurkenndi
sagði að sonurinn, sem er í fang-
elsi í Karachi sakaður um hryðju-
verk, hefði neitað boðinu.
Begum hefur verið flokks-
formaður frá því að maður henn-
ar, Zuifiqar Ali Bhutto, var
hengdur. Sagði Begum að eng-
inn gæti vikið henni frá völdum
þar sem maður hennar hefði
skipað sig í embætti fyrir lífstíð.
Krafðist hún þess að flokksmenn
gengju til kosninga hið snarasta
en það hefur ekki verið gert frá
árinu 1967.
Stjórnarandstaðan hefur vak-
ið athygli á framkomu Benazir,
sem þeir segja miskunnarlausa,
og spyija hvernig hún muni
koma fram við landsmenn fyrst
að hennar eigin móðir hljóti því-
líka meðferð. Fullyrða stjórnar-
andstæðingar að brottreksturinn
sé merki um það að eiginmaður
Benazir, Asif Ali Zardari, hafi
tekið völdin.
Benazir Bhutto