Morgunblaðið - 08.12.1993, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Kapphlaup að hefjast um hlutabréf í SR-mjöli hf.
Valið stendur lík-
lega milli 2-3ja hópa
HARALDUR Haraldsson í Andra hf. og fleiri innlendir fjárfestar
hafa áhuga á að standa sameiginlega að kaupum á stofnhlutafé
SR-mjöls hf. Haraldur vildi ekki upplýsa hvaða aðilar þetta væru í
samtali við Morgunblaðið en hann sagði að eingöngu væri um inn-
lenda aðila að ræða, sem sumir störfuðu í sjávarútvegi. „Þetta eru
fjárfestingaraðilar sem ég hef unnið með í gegnum árin sem hafa
áhuga á því að fylgjast með því sem er að gerast," sagði hann. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur annar stór hópur kaupenda
tekið höndum saman um kaupin og eru það einkum loðnuútgerðar-
menn sem eiga ekki bræðslur.
Tveir greiði 500 þús.
í sekt fyrir brugg
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt tvo menn um þrítugt i
400 þúsund króna og 100 þúsund króna sektir, auk greiðslu málsvarn-
arlauna og sakarkostnaðar, fyrir að brugga og eima um 200 lítra
af landa hvor á bæ undir Eyjafjöllum. Bruggstarfsemi mannanna
var stöðvuð af lögreglumönnum frá Hvolsvelli og úr Breiðholtsstöð
Reykjavíkurlögreglunnar í júlí í sumar en hafði þá staðið frá ágúst-
lokum 1992, að því er fram kemur í ákæru.
Þegar lögregla gerði húsleit á
bænum fundust þar fjórar tunnur
undan gambra, fullkomin eimingar-
tæki, um 260 lítrar af gambra og
hálfunnum landa auk sykurs, gers
og annars til bruggunar.
Hjá lögreglu játuðu mennirnir á
sig fyrrgreinda starfsemi en fyrir
dómi drógu þeir til baka framburð
sinn að miklu leyti. Dóminum þótti
hinn breytti framburður og skýring-
ar mannanna um að hafa bruggað
nokkra tugi lítra til eigin neyslu og
til að bjóða nágrönnum í glas ekki
trúverðugar. í málinu kom fram að
annar mannanna hefði byijað að
brugga með það í huga að bjarga
bágum fjárhag sínum. Hins vegar
voru ekki færðar sönnur á sölu land-
ans til ákveðinna aðila en í dóminum
segir að framleiðslumagn og óljósar
skýringar mannanna bendi eindreg-
ið til þess að áfengið hafí ekki ein-
göngu farið til eigin nota heldur
hafí það einnig verið ætlað til sölu.
Hafa fulltrúar sveitarfélaga einnig
verið í samráði með loðnuútgerð-
armönnunum sem áttu fund með
nokkrum sveitarstjórum um hugs-
anleg kaup á fyrirtækinu í fyrradag.
Auk ofangreindra aðila hafa
starfsmannafélög og fleiri sýnt
áhuga á SR-mjöli hf. eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær en sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins er talið
að á endanum muni valið standa á
milli tilboða frá 2-3 hópum fjárfesta.
Hlutabréf félagsins sem boðin eru
til sölu í einu lagi eru 650 millj. kr.
að nafnvirði.
Frestur til mánudags
Verðbréfamarkaður íslandsbanka
hefur umsjón með sölunni og gaf í
gær þeim aðilum sem sýnt hafa
áhuga á að kaupa fyrirtækið frest
til 13. desember til að veita upplýs-
ingar um hveijir stæðu þeim að baki.
í framhaldi af því verður aðilum svo
boðið að gera tilboð í hlutabréfín.
Haraldur gagnrýndi að ekki héfðu
verið veittar upplýsingar um verð,
söluskilmála og fleiri þætti í tengsl-
um við sölu félagsins og sagði að
það yrði erfíðleikum háð að gefa
upplýsingar um alla aðila sem væru
viðriðnir málið áður en tiiboð yrðu
lögð fram vegna ýmissa viðskipta-
legra hagsmunatengsla sem þyrfti
að virða.
„Ég tél nauðsynlegt að þetta fyr-
irtæki komist í hendumar á mönnum
sem kunna, vilja og treysta sér til
að reka fyrirtæki í þessari grein,“
sagði Haraldur að lokum.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Heimtur úr helju
HALLDÓR Gíslason ásamt móður sinni, Ásgerði Soffíu Jóhanns-
dóttur, á heimili sínu i Höfnum í gær.
Ég man bara að
pabbi var að draga
mig undan bílnum
Kcflavík.
„ÉG MAN bara að ég ætlaði yfir götuna til að renna mér í brekk-
unni sem þar er og síðan ekki meir fyrr en pabbi var að draga
mig undan bílnum,“ sagði Halldór Gíslason sem á mánudagskvöld-
ið varð fyrir bíl í Höfnum og dróst með honum um 60 m vega-
lengd. Halldór, sem er sjö ára, slapp á undraverðan hátt, hann
var fluttur í sjúkrahúsið í Keflavík en fékk að fara heim eftir
læknisskoðun. Hann var rúmliggjandi í gær samkvæmt læknis-
ráði og er talsvert marinn í andliti og víða aumur.
Mikill snjór var á götunni þar
sem atburðurinn átti sér stað og
sagði Gísli Hjálmarsson, faðir
Halldórs litla, að snjórinn og að
hann hefði orðið vitni að slysinu
hefði orðið drengnum til lífs því
ólíklegt mætti telja að hann hefði
komist undan bílnum af eigin
rammleik.
- BB
Gagnrýnandi blaðsins Musical Opinion
Kjörvextir Iðnþróunarsjóðs og Iðnlánasjóðs 8,5% og 8,95%
Tónn Sigrúnar mikill
en samt ótrúlega tær
BRESKA tímaritið Musical Opinion birti í nóvemberhefti sínu
gagnrýni á tónleika Sigrúnar Eðvaldsdóttur í St. James’s á Picca-
dilly, sem haldnir voru 9. september sl.
Rifjar gagn-
rýnandi Musical
Opinion upp að
Sigrún hlaut
önnur verðlaun í
Carl Flesch-
keppninni og
segir að það eigi
ekki að koma á
óvart. Leikur
hennar beri vott
óvenju miklum
þroska og sam-
eini hún aðlaðandi sviðsfram-
komu með aðdáunarverðri spila-
mennsku. „Hún er tvímælalaust
hæfíleikaríkasti ungi fiðluleikari
sem ég hef rekist á frá því að
Vengerov skaut upp kollinum.
Tónn hennar er mikill en samt
ótrúlega tær; það er hrein unun
að sjá hana munda bogann og
tækni hennar virðist mér vera
gallalaus. En fyrst og fremst lif-
ir hún sig fullkomlega inn í allt
sem hún leikur . .. hún virðist
vilja segja áheyrendum sínum —
sem voru hugfangnir frá upphafí
— „hlýðið á þetta; er þetta ekki
of yndislegt til að tjá með orð-
um?“ segir gagnrýnandinn og
bætir við að það hafí það einmitt
verið, nefnilega yndislegra en orð
fái lýst.
Sigrún
Eðvaldsdóttir
Islenskt já takk
Greinilegur árangur af átakinu 4
VikingalottóiÖ vinsælt
Hlutfallslega mest selt af röðum
hér á landi 23
Breska konungsdæmið_____________
Efasemda gætir um konungdóm
Karls Bretaprins 29
Leiðarí
Framtíð Volvo 30
§s HSiSls -
Aflnm úr SmuRiinni 7.000 : . - -
tonnmu nicin en AcUad var
r
Ur verinu
► Aflinn úr Smugunni meiri en
áætlað var - Trollin of þung fyr-
ir Smuguna - Smá kropp á Halan-
um - Lítið selt af karfa í haust -
Góður gangur hjá Þórshamri
Lækkun vaxta hæg-
ari en hjá bönkunum
ÚTLÁNSVEXTIR á innlendum lánum Iðnþróunarsjóðs hafa lækkað
um 0,5 prósentustig að undanförnu en sambærilegir vextir Iðnlána-
sjóðs eru óbreyttir frá því sem var fyrir átak ríkisstjómarinnar til
þess að Iækka raunvexti um mánaðamótin október/nóvember, en síðan
þá hafa vextir á Verðbréfaþingi lækkað um nálægt tvö prósentustig.
Kjörvextir á innlendum lánum Iðnþrónarsjóðs eftir lækkun em 8,50%
og kjörvextir Iðnlánasjóðs 8,95%, en vemlegur hluti útlána sjóðanna er
í erlendri mynt og fylgir vaxtaþróun erlendis.
Snorri Pétursson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarsjóðs, sagði
að engin lækkun hefði ennþá fengist
fram á vöxtum af innlendu lánsfé
sjóðsins og því hefðu útlánsvextir
sjóðsins verið lækkaðir um hálft pró-
sentustig á eigin kostnað og vegna
væntanlegrar lækkunar á þeim vöxt-
um sem sjóðurinn þyrfti að greiða.
Hins vegar hefðu vextir á erlendum
lánum lækkað jafnt og þétt að und-
Myndosögur
► Fyrstu verðlaun í smásagna-
samkeppni - Teiknimyndasaga
Bjartmars Leóssonar - Eldvam-
argetraun bamsins - Jólaköttur-
inn - Pennavinir - Þrautír
anfömu. Hluti þeirra lána væri með
föstum vöxtum til fímm ára og jafn-
vel lengur. Þeir vextir myndu ekki
breytast og þar væri því ekkert svig-
rúm til að lækka. Vextirnir yrðu
endurskoðaðir þegar vaxtakjör sjóðs-
ins bötnuðu. Það mál væri til endur-
skoðunar hjá þeim aðilum sem hefðu
lánað sjóðnum, sem væm ýmsir sjóð-
ir og aðrir fjármagnseigendur. Að-
spurður sagðist hann ekki búast við
að niðurstaða fengist í málið í þessum
mánuði.
Margrét Jónsdóttir, fjármálastjóri
Iðnlánasjóðs, sagði að vextir á inn-
lendum lánum sjóðsins hefðu ekki
breyst og ástæðan væri sú að sjóður-
inn aflaði sér fjár á innlendum mark-
aði með sölu skuldabréfa sem bæru
tiltekna ávöxtunarkröfu sem ekki
væri hægt að breyta eftir á. Á næsta
ári myndi sjóðurinn taka ný lán og
þá myndi þetta breytast. Þetta tæki
lengri tíma en hjá bönkunum sem
gætu breytt innlánsvöxtum sínum
jafnhliða útlánsvöxtum.
Ekkert lánað í íslenskum
krónum
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins og stjóm-
armaður í Iðnlánasjóði, segir að und-
anfarið hafi ekkert verið lánað út
úr Iðnlánasjóði i íslenskum krónum.
Nokkuð sé um liðið síðan sjóðurinn
dró sig út af markaðnum hér og
hafí síðan eingöngu boðið erlend kjör.
Fjár til þeirra lána sem séu í gangi
hafi verið aflað á markaðnum áður
en til vaxtalækkunar kom og því séu
þeir sem séu með þau lán að borga
tiltölulega háa vexti. Hins vegar
megi gera ráð fyrir ef vaxtalækkun-
in verður varanleg að sjóðimir fari
aftur inn á markað hér og taki pen-
inga að láni og þá myndi það koma
fram í lækkandi vöxtum.
----♦-» ♦---
Bankaráð íslandsbanka
Málalykt-
umfagnað
KRISTJÁN Ragnarsson, for-
maður bankaráðs íslandsbanka,
kynnti bankaráðinu bréf sitt til
Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum á fundi ráðsins í
ftær> °g greindi frá málavöxtum
og því að deilum hans og
Vinnslustöðvarinnar væri með
bréfi þessu lokið. Að sögn Vals
Valssonar, bankastjóra Islands-
banka, var þessum málalyktum
fagnað í bankaráði íslands-
banka.
„Formaður bankaráðsins lagði
fram bréf sitt, greindi frá málinu
og að því væri lokið. Málalyktum
var bara fagnað af bankaráðs-
mönnum,“ sagði Valur í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Kristján Ragnarsson vildi ekkert
segja þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær.
f
1
I
1
I
1
I
t
(
(
(