Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Morgunblaðið/Júlíus
Bakað fyrirjólin
JÓLABAKSTUR er hafínn hjá flestum fjölskyldum. Elías Andri
og systir hans Dilja Anna hjálpuðu til við piparkökubaksturinn
um síðustu helgi.
Greinilegur árangur af
átakinu Islenskt, já takk!
ÁRANGUR af átakinu íslenskt, já takk! sem staðið hefur síðustu vikur
er greinilegur. Bæði hefur sala á íslenskum vörum aukist og einnig
hafa framleiðendur og aðstandendur átaksins, sem eru Samtök iðnaðar-
ins, VSÍ, ASÍ, BSRB og íslenskur landbúnaður, fundið fyrir viðhorfs-
breytingu hjá almenningi. Að sögn Línu Atladóttur hjá Samtökum iðnað-
arins eru neytendur að gera sér betur grein fyrir gæðum ísienskrar
vöru og hversu vel samkeppnisfær hún er við erlendar vörur.
Lína hefur verið í sambandi við
innlenda framleiðendur meðan átakið
hefur staðið og segir hún þá sam-
mála um að það hafi skilað verulegum
árangri. Fæstir framleiðenda hafi
sölutölur fyrir nóvember á reiðum
höndum en aukning sé þó greinileg.
»
Viðhorfsbreyting
„í viðtölum mínum við þessa aðila
hefur mjög áberandi komið fram að
átakið hefur skilað árangri í sölu og
auk þess finnst þeim ekki síður mikil-
vægt að það hefur styrkt ímynd ís-
lensks iðnaðar. Hún er nú mun já-
kvæðari en hún hefur verið. Fólk
gerir sér betur grein fyrir því hversu
VEÐUR
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma hitl veAur Akureyri +4 alskýjað Reykjavík +2 léttskýjað
Bergen 2 skúr
Helsinki 4 þokumóða
Kaupmannahöfn 4 rigning
Narssarssuaq +19 iéttskýjað
Nuuk +10 léttskýjað
Osló 4 léttskýjað
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Þórshöfn 2 léttskýjað
Algarve 14 helðsklrt
Amsterdam B léttskýjað
Barcelena 10 hálfskýjað
Beriín 3 skýjað
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 6 jrakumóða
Frankfurt 3 rígning
Glasgow 2 snjóél
Hamborg 4 rigníng
London 4 léttskýjað
LosAngeles 18 mistur
Lúxemborg 2 rigning
Madrid vantar
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 9 léttskýjað
Montreal 2 snjókoma
NewYork 10 skýjað
Orlando 22 léttskýjað
Parls 6 skýjað
Madeira 19 skýjað
Róm 17 rigning
Vín +3 snjókoma
Washington 9 alskýjað
Winnipeg +8 léttskýjað
gæði íslenskrar framleiðslu eru mik-
il. Húsgagna- og innréttingafram-
leiðendur hafa ekki enn fundið fyrir
söluaukningu, enda eru þeirra við-
skipti oft stærri í sniðum og flóknari
en þeirra framleiðenda sem eru á
neyterrdavörumarkaðinum. Þeir hafa
hins vegar fundið fyrir viðhorfsbreyt-
ingu hjá kaupendum, sem í mörgum
tilfellum eru stofnanir. Innan þeirra
hefur líka verið unnið í þessum mál-
um og því kemur þetta örugglega
til með að skila sér þar einnig,“ sagði
Lína.
30% söluaukning
Lína hefur fengið staðfestar tölur
frá nokkrum framleiðendum, t.d.
hefur 0. Johnson & Kaaber selt 30%
meira kaffi í nóvember í ár en í sama
mánuði í fyrra og sama aukning
hefur mælst hjá niðursuðuverksmiðj-
unni Ora. Forsvarsmenn Kornax
segjast hafa fundið fyrir söluaukn-
ingu allt þetta ár vegna svipaðs átaks
sem gengist var fyrir á sama tíma
í fyrra og segjast þeir ekki vera í
vafa um að hafa notið góðs af því
að vera að selja íslenska framleiðslu.
í nóvember var aukning hjá þeim
um 20%.
Að sögn Línu skilaði átakið í fyrra
mesturn árangri í matvælaiðnaði en
þar mældist 5% veltuaukning á síð-
asta ársfjórðungi meðan samdráttur
varð í öllum öðrum iðngreinum.
Sjö starfsmenn
Samútgáfunnar
ráðnir til Fróða
Höfundar tveggja tölublaða fá ekki
greidd ritlaun fyrir efni í blöðin
HÖFUNDAR greina í 24. tbl. Vikunnar og 7. tölublaði Húsa og híbýla
sem út komu á vegum Fróða hf. í síðustu viku munu ekki fá greitt
fyrir greinar sínar frá fyrirtækinu. Magnús Hreggviðsson stjórnarfor-
maður Fróða hf. segir að fyrirtæki sitt hafi keypt útgáfurétt á tímarit-
um Samútgáfunnar Korpuss að ofangreindum tölublöðum, sem ekki
voru komin út, meðtöldum. í samningi um kaupin yfirtók Fróði hf.
engar ógreiddar kröfur og þar af leiðandi ekki heldur vegna fyrr-
greindra tölublaða. Fróði hefur ráðið til sín tvo af eigendum Samútgáf-
unnar Korpuss, Þórarin J. 'Magn sson og Sigurð Fossan, auk fimm
fyrrverandi starfsmanna fyrirtækisins.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið að tímaritin hefðu verið
keypt með einni greiðslu. Hefði hann
viljað taka hluta hennar til að greiða
ritlaun fyrir greinar í fyrrgreindum
tölublöðum en það hefði ekki verið
talið ráðlegt ef ske kynni að Samút-
gáfan Korpus lenti í þrotum, sem
ekki var endanlega ljóst þegar kaup-
in voru gerð. Lögfræðingar Samút-
gáfunnar hefðu sagt að með því
væri verið að mismuna kröfuhöfum,
sem orkaði tvímælis lagalega. Hins
vegar mun Fróði hf. greiða allan
kostnað í framtíðinni, þar með talin
ritlaun, vegna annarra tímarita sem
Fróði keypti af Samútgáfunni og síð-
ar verða gefin út.
Veiðar glæð-
ast í Smugunni
VEIÐAR hafa heldur glæðst í
Smugunni en þar eru nú tvö ís-
lensk skip að veiðum, Otto Wathne
NS og Stakfell ÞH. Þriðja skipið,
Stofnun Áma
Magnússonar
Embætti for-
stöðumanns
auglýst
EMBÆTTI forstöðumanns Stofn-
unar Árna Magnússonar á íslandi
hefur verið auglýst laust til um-
sóknar, en Jónas Kristjánsson for-
stöðumaður stofnunarinnar lætur
af störfum fyrir aldurs sakir í Iok
apríl næstkomandi. Umsóknar-
frestur er til 1. janúar næstkom-
andi.
Jónas Kristjánsson hefur gegnt
embætti forstöðumanns Stofnunar
Árna Magnússonar frá ársbyrjun
1971. Hann er annar maðurinn sem
gegnir þessu embætti, en fyrsti for-
stöðumaður stofnunarinnar var Ein-
ar Ólafur Sveinsson sem gegndi
embættinu frá 1962 til 1971.
Óttar Birtingur, er á leiðinni
þangað. Hæglætis veður er á þess-
um slóðum eftir hvassviðri í síð-
ustu viku.
Að sögn Páls Ágústsonar skip-
stjóra Otto Wathne hafa ve’iðar held-
ur glæðst og fást að jafnaði tvö tonn
í hali. Hann sagði að aflinn væri
vænn boltaþorskur og hefði aðeins
1% aflans reynst undirmálsfiskur
þegar Normenn komu um borð og
mældu á sunnudag.
Suðvestan hvassviðri hamlaði
veiðum á þessu svæði í tvo daga í
síðustu viku en síðan hefur verið
hæglætis veður og veiðarnar gengið
betur. Páll sagði skipin héldu sig nú
sunnantil í Smugunni. Reynt hefði
verið að veiða á norðursvæðinu, þar
sem mikið fiskaðist fyrir nokkru,
með litlum árangri en ís er ennþá
yfir hluta svæðisins.
Vetrarveiðar
Aðspurður sagði Páll að ekkert
væri því til fyrirstöðu að stunda vetr-
arveiðar í Smugunni. Þó ekki væri
hægt að leita vars í stórviðrum væri
ísingarhætta ekki mikil á þessum
slóðum. Sagðist hann telja að veðurf-
ar væri mun erfiðara víða á ís-
landsmiðum yfir veturinn. Otto Wat-
hne hefur verið í Smugunni í 18
daga og er ætlunin að halda veiðun-
um áfram þar fram undir jól.