Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1998
9
Fatav
Opið frá kl. 7.30*1$
Qg laitgardagafM kl W-
Garðatorgi 3,
Eitt áreiðanlegasta
spamaðarfonnib í
þrjá áratugi
í nærri þrjá áratugi hafa spariskírteini
ríkissjóös verið ein öruggustu
verðbréfin á markaðnum. Og þau eru
alltaf jafn vinsæl sparnaðarleið enda fá
verðbréf sem standa þeim jafnfætis í
öryggi, arðsemi og sveigjanleika:
Þú getur komib í Þjónustumibstöö
ríkisveröbréfa og keypt spariskírteini
fyrir litlar sem stórar fjárhæbir í
almennri sölu.
Þú getur tekiö þátt í mánaöarlegum
útboöum á spariskírteinum meö
aöstoö starfsfólks
Þjónustumiöstöövarinnar.
Þú getur keypt spariskírteini í
mánaöarlegri áskrift og þannig
sparaö reglulega á afar
þægilegan hátt.
Gulltryggðu sparnaðinn með
spariskírteinum ríkissjóðs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Ákærur á lækna
Staksteinar staldra í dag við grein í
Læknablaðinu um ákærur á lækna eftir
Jón Hilmar Alíreðsson, formann Félags
íslenzkra kvensjúkdómalækna.
Hættur við
aðgerðir
Jón Hilmar Alfrcðsson
segir í grein í Lækna-
blaðinu:
„Læknar þurfa að var-
ast vissar fallgryfjur. Eitt
er það, að læknum er
tamt að hampa vísindum
sínum og tækni, þótt
skilningur okkar á gang-
verki líkamans sé í raun
ekki meiri en það sem
upp úr stendur af ísjaka.
Okkur láist e.t.v. umfram
erlenda starfsbræður að
vara við hættum af að-
gerðum og vekja athygli
á ófullkomleika rann-
sókna. Hversu ófullkom-
ið er ekki hjartsláttarrit
sem vísbending um
ástand barns í fæðingu.
Leikmanni er þvi brugðið
þegar slys verður í must-
eri visinda og hátækni...
Annað mikilvægt at-
riði er gott persónulegt
samband við sjúkling og
gjaman aðstandanda.
Aðgerðir á áður ókunn-
um sjúklingi ætti að forð-
ast til hins ýtrasta. I
bráðaþjónustu svo sem
fæðingarhjálp ber vanda
upp á nóttu sem degi...
A neyðarstundu er af-
ar þýðingarmikið að
bregðast ffjótt við og
víkja ekki frá sjúklingi...
Á bráðaspítala er gerð
sú krafa, að læknir sé
ávallt tiltækur og að
hann sé hæfur...“
Greiða á fyrir
rannsóknum
„Áður en kæra er stað-
reynd, má í sumum tilvik-
um sjá hana fyrir. Þá ber
viðkomandi lækni að til-
kynna yfirmanni sínum
um málið. Mikilvægt er
að huga að gögnum í
sjúkraskrá, þannig að all-
ar upplýsingar liggi fyrir.
Þá er lækninum þörf á
læknisfræðilegri og lög-
fræðilegri ráðgjöf frá
upphafi.
Læknir, sem sakaður
er um mistök í starfi beint
eða óbeint, er í öllum til-
vikum miður sín. Dæmi
eru á Norðurlöndum um
sjálfsvíg í tengslum við
ákærur.
Læknir má ekki skil-
yrðislaust játa sig sekan,
eingöngu vegna sorgar
og sektarkenndar. Slík
játning gefin í fljóti'æði
verður trauðla aftur tek-
in. Sláandi er dæmið um
mænudeyfingu, sem
leiddi til varanlegrar löm-
unar í ganglimum. Lækn-
irinn játaði auðvitað á sig
augljós mistök en ekki
var látið hér við sitja,
heldur fór fram nákvæm
rannsókn. Þá kom í Ijós
að fenól hafði blandast
deyfingarlylínu í geymslu
vegna örsmárra
sprungna í umbúðum.
Þetta gat læknirinn ekki
vitað um.
Vel þekkt eru einnig
dæmin um börn, sem fæð-
ast með heilasköddun.
Vitað er nú, að slík börn
sýna oft afbrigðileg hj;ul-
sláttarit í fæðingu beinlín-
is vegna skaðans, sem
orðið hefur löngu áður í
meðgöngunni og er í sum-
um tilfellum bundiim arf-
gengi...
Á hinn bóginn skyldi
læknir ekki á nokkum
hátt þvertaka fyrir hugs-
anleg mistök eða reyna
að hylma yfir atriði máls-
ins, né að aftra viðkom-
andi frá að óska rann-
sóknar“.
Treysta
verður öryggi
„... 1 sumum tilfellum,
þegar illa fer, er tæplega
við nokkurn mannlegan
mátt að sakast; í öðrum
er það næsta augljóst að
um handvömm eða van-
rækslu er að ræða og svo
er þriðji fiokkurinn til-
felli þarna á milli... Þá
kemur til kasta úrskurða-
raðila...
Erlendis hefur verið
bent á að læknurn sé
stundum i slíkum úr-
skurðum eða dómum ætl-
aður ótrúlegur hæfileiki
að sjá fyrir óorðna hluti.
Þetta á ekki sízt við um
gang fæðingar, sem
gjarnan tekur nokkrar
klukkustundir. Dómsúr-
skurður byggist gjarnan
á því, að illa hefur til tek-
izt og aðgerðum hefði
mátt haga á annan hátt,
með táUiti til þess hvernig
fór.
Nú verður það ekki
sannað, hvemig farið
hefði, ef önnur leið hefði
verið valin í að leiða fæð-
ingu. Þá kemur að svo-
kallaðri sönnunarbyrði,
sem merkir nánast
skylduna að sanna hið
ósannanlega...
Óhjákvæmilegt verður
að treysta og auka öryggi
á hinum áhættusömu fæð-
ingardcildum. Tryggja
þarf að vel hæfir læknar
veljist þar til starfa, þrátt
fyrir áhættuna og einmitt
vegna hennar. Víða er-
lendis merkja menn at-
gervisfiótta frá hinum
erfiðari og áhættusamari
læknisstörfum. Áhættu-
þáttur á laun og sérstök
bakvakt er kostnaðarsöm
nauðsyn."
Ein milljón kr. til læknisfræðibókasafns
FYRIR tíu árum stofnaði stjórn Búnaðarbankans sjóð, er nefndur
var Tækjakaupasjóður Landspítalans. Tilefnið var ákveðin tíma-
mót í starfsemi bankans. Sjóður þessi hefur síðan verði í vörslu
bankans en ekki verið tilefni til úthlutunar úr honum, segir í frétt
frá læknaráði Landspítalans.
Á ársfundi Ríkisspítala, 3. des.
sl., afhenti formaður sjóðsstjórnar,
Jón Adolf Guðjónsson, bankastjóri,
formanni læknaráðs, prófessor
Ásmundi Brekkan, úthlutun úr
sjóðnum, að upphæð ein milljón
króna.
Þessir peningar eiga að fara til
uppbyggingar kennslu- og nýsi-
gagna við læknisfræðibókasafn
Landspítala og tölvu- og nýsi-
gagnaver spítalans, auk umbóta á
tölvukerfi bókasafnsins.
Læknaráð Landspítalans þakkar
þessa gjöf sem mun renna enn
styrkari stoðum undir þá fræða-
og upplýsingastarfsemi sem rekin
er á Landspítalanum.
HLUTABRÉFASJÓÐUR VÍB HF.
Mikil hækkun á hlutabréfum
—.— ---------1120
1991 1 1992 1 1993
Frá ársbyrjun 1991 hefur gengi hlutabréfa
lækkað um 10,2%. A sama tíma hefur
sölugengi HVIB hækkað um 15%. Sjóður-
inn er því vel yfir meðalávöxtun á
markaðnum.
Mikil viðskipti hafa verið á hlutabréfa-
markaði að undanförnu og er gengi
hlutabréfa þegar tekið að hækka. Hluta-
bréfasjóður VIB er góður kostur fyrir þá
sem vilja ávaxta sparifé sitt, auk þess að
tryggja frádrátt frá tekjuskatti. HVIB
fjárfest.ir í öllum stærstu hlutafélögum á
markaðnum og er því góð áhættudreifing.
Rádgjafar VIB váta frekari upplýsingar um
HVIB og einnig er hægt að fá sendar
upplýsingar í pósti.
Verii) velkomin í VIB!
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
I Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími: 68 15 30. Myndsendir: 68 15 26. _I