Morgunblaðið - 08.12.1993, Qupperneq 10
ir
10
pppf fíHHMffS&Q .8 HUöAQIJHJV’ÖIM ffJ0/ ÍHVHJOJIOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
ALAGAELDUR
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Höfundur: Aðalsteinn Ásberg
Signrðsson. Hönnun kápu: Re-
bekka Rán Samper. Prent-
vinnsla: G. Ben. prentstofa hf.
Utgefandi: Almenna bókafélagið
hf.
Sögusviðið er dæmigert ísienzkt
sjávarþorp við krappan fjörð, á
þeirri tíð er aðalgatan ein er malbik-
uð, og enn til fullorðið fólk, í smiðju
eða á fjörukambi, sem hefir tíma
og nennu til að ræða við unga
hnokka og hnátur, tengja þau
sagnasjóði kyndslóðanna, svo orðin
verða tundur til gátu og ævintýrs.
Kobbi gamli, járnsmiður í Litlu-
vík, kann þessa list. Hann segir
vinum sínum Óðni og Loga, 12 ára
stráklingum, frá Ráðhiidi ríku, er
eitt sinn bjó í Litluvík. Víst átti hún
mann, en hann lá í víking. Er aldur
færðist yfir, mæddist karl, og mikið
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
fley sigldi inn fjörðinn. Dularfullt
fley, sem Ráðhildur var sögð hafa
grafið í hól, handan fjarðar, með
gersemum miklum, þá bóndi hennar
var allur. En hún lagði svo á, að
yrði hreyft við hólnum, þá brynni
bærinn Litlavík. Var furða, þó
strákunum yrði ekki svefnsamt
næstu nætur?
Æsist nú leikur. Inná sviðið eru
leiddir Danni sljói og Óli danski
svona til að minna okkur á að dæma
vægt þá er við þekkjum aðeins af
orðspori, og höfum aldrei bros sýnt.
Hrafnar boða válega atburði, að
sögn ömmu, og spenna ævintýrsins
heldur lesanda föngnum, þar til
saga er öll.
Höfundur segir mjög vel frá,
hratt og lipurt. Kennarasonurinn
Óðinn og sjómannssonurinn Logi
eru vinir okkar í lok bókar. Lífið
hafði mótað þá á ólíkan hátt, en
báðir eru þeir efnispiltar í klifi í
þroskans fjall. Spurnum er velt upp
og lesanda rétt efni til svara. Því
er þetta mjög góð bók, — kannske
ekkert frumleg, en hún er vafin
þránni ti! að leiða til þroska. Mér
leiðast orðskrípi eins og: „Fullt af
einhveiju"; „Pæla í“; „Húkka sér
far“; „Missa út úr höndunum á sér“,
skil hins vegar að þetta eru stíl-
brögð, til þess að greina milli æsku
og elli. Tel Aðalstein svo snjallan
stílista, að hugsun hans hæfi spari-
klæði. Próförk er vel lesin, — þó
er ekki samræmi í notkun tví-
punkts, og á síðu 40 læðist „a“ úr
orðinu vasaklútur, og nokkru síðar
(65) stendur krakkalakkar. Ef þetta
er nýyrði, þá er rétt í stafað. Skipt-
ing orða milli h'na er sumum tölvu-
forritum erfið, spillir góðri bók.
Kemur hér ekki oft fyrir, stingur
því í augu (t.d. 72).
Prentverk vel unnið, utan að
þráður bókbands, í minni bók, er
losaralegur.
Kápa mikil bókarprýði. Frábær.
Vel sagt, skemmtilegt ævintýri,
sem gleðja mun lesendur.
Sverrir Guðjónsson og Snorri Örn Snorrason.
Söngtónleikar
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Kontratenorsöngvarinn Sverr-
ir Guðjónsson og Snorri' Örn
Snorrason lútuleikari, héldu tón-
leika í forsal Þjóðminjasafnsins
sl. sunnudag. Á efnisskránni voru
íslensk þjóðlög og ensk 17. aldar
söng- og lútutónlist eftir Pelham
Humfrey, Henry Purcell, John
Dowland og Henry Lawes.
Islensku lögin voru Sumarið
þegar setur blítt, Stóðum tvö í
túni, Bar svo til í byggðum, Ver-
öld fláa, Grafskrift Sæmundar
Klemenssonar og Einsetumaður
einu sinni, sem eftir efni voru
tengd og blandað saman við
ensku lögin á mjög smekklegan
máta og það sem mest er um
vert, frábærlega vel sungin af
Sverri.
Þá var flutningur Sverris á
ensku lögunum einstaklega góð-
ur, t.d. I Where the Bee sucks,
eftir Humfrey og Fine knacks for
ladies og því dapurlega söngv-
erki, In darkness Iet me dwell,
en tvö síðastnefndu lögin eru
eftir snillinginn Dowland.
Snorri Örn Snorrason lék einn
á lútuna, tvö verk eftir Dowland,
Fantasíu og Galliard jarlsins af
Essex. Snorri er leikinn á lútuna
en hefur oft verið helst til hæglát-
ur í leik og túlkun en sýndi nú
oft skemmtileg tilþrif, sérstak-
lega í galliardinum og víða í sam-
leik sínum við Sverri.
Af fslensku Iögunum voru Ein-
setumaðurinn og Bar svo til i
byggðum sérlega skemmtilega
flutt en í heild voru þetta athygl-
isverðir tónleikar, bæði hvað
snertir efnisval og ekki síður fyr-
ir vandaðan flutning. Trúlega er
vandfundinn jafn góður kontr-
atenorsöngvari og Sverrir, jafn-
vel þó víða sé til leitað, og er
sérstaða Sverris enn ein sönnun
þess hve sönglistin er okkur ís-
iendingum létt til leiks og list-
rænna átaka.
irio Keykjavikur.
TRIO REYKJAVIKUR
_________Tónlist
Jón Ásgeirsson
Tríó Reykjavíkur hélt tónleika
sl. sunnudag í Hafnarborg og hafði
fengið til liðs við sig hörpuleikar-
ann Elísabetu Waage og Guðrúnu
Birgisdóttur flautuleikara. Félag-
arnir í TR eru Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðluleikari, Gunnar Kvar-
an, sellóleikari, og Halldór Har-
aldsson, píanóleikari. Á efnis-
skránni voru frönsk, ensk og
spönsk tónverk, þar sem hörpunni
er ætlað stórt hlutverk í margvís-
legum kammersamleik og eitt ein-
leiksverk. ----
Tónleikarnir hófust á Tríói fyrir
fiðlu, selló og hörpu, eftir Ibert,
en því miður var samleikur
strengjanna á köflum einleikandi
og of frekur við hörpuna og ekki
ávallt hreinn, einkum ef leikið var
sterkt.
Impromtu op. 86 eftir Faure er
fallegt einleiksverk fyrir hörpu og
þar sýndi Elísabet að hún er vax-
andi hörpuleikari. Ágæti hennar
kom ekki síður fram í tveimur
samleiksverkum fyrir selló og
hörpu, þremur næturljóðum eftir
Marius Flothúis og umskrift á hinu
fræga Pavane, eftir Ravel.
Samleikur á píanó og hörpu var
skemmtilegur áheyrnar í klassísku
verki eftir Thomas Rawlings
(1775-1850) og tilbrigðin eftir
Turina.
Lokaverk tónleikanna var „tríó-
sónatan“ fræga fyrir flautu, lág-
fiðlu og hörpu, sem margir vilja
telja eiginlegan svanasöng De-
bussy. Verkið er eins og „spurning
um dulda dóma lifsgátunnar", þar
sem óræði, tærleiki og blæbrigða-
ríkur skáldskapur „ríkir ofar
hverri kröfu“. Romain Rolland
sagði um Debussy: „Hann er sá
eini sem gæddi tónlist okkar tíma.
fegurð“ og það á svo sannarlega
við um „tríósónötuna", sem var á
margan hátt vel leikin af Guðrúnu
Birgisdóttur á flautu, Guðnýju
Guðmundsdóttur á lágfiðlu og El-
ísabetu Waage á hörpu. Það sem
helst vantaði í samleik þeirra, var
sú dulúðuga tónum, sem á svo vel
við þetta ljúfsára verk. Það vill
segja, að tónmótun einstaka tón-
hendinga hafi á köflum verið of
frökk og of skýrt fram sett, í stað
þess að slá þessar tónhendingar
dulúð hins óræða.
í heild voru þetta góðir tónleik-
ar og sérstaklega fyrir sérlega
skemmtilegan og góðan hörpuleik
Elísabetar Waage, sem með þess-
um tónleikum tekur sér stöðu
meðal fremstu tónlistarmanna
okkar íslendinga.
Hvolsvöllur
Skagfirska söngsveitin í heimsókn
Hvolsvelli.
SKAGFIRSKA söngsveitin kom
við í Rangárvallasýslu á söng-
ferðalagi sínu og gladdi Rangæ-
inga með söng sínum. Sveitin
hélt tónleika fyrir fullu húsi
áheyrenda í Félagsheimilinu
Hvoli á Hvolsvelli ásamt Karla-
kór Rangæinga og kvennakórn-
um Ljósbrá.
Það voru hátt á annað hundrað
kórsöngvarar sem sungu fyrir á
þriðja hundrað áheyrendur, bland-
aða dagskrá. Mest bar á íslenskum
sönglögum en Skagfirska söng-
sveitin söng einnig óperukóra og
nokkrir einsöngvarar komu fram
með kórnum. Stjórnandi'Skagfirsku
söngsveitarinnar er Björgvin Þ.
Valdimarsson, stjómandi Karlakórs
Rangæinga er Gunnar Marmunds-
son og stjómandi Kvennakórsins
Ljósbrár er Stefán Þorleifsson. Kvennakórinn Ljósbrá á tónleikum á Hvolsvelli.
Nýjar bækur
Eiríkur Kristófersson skipherra segir frá
Eiríkur Kristófersson og Gylfi Gröndal.
UT er komin bókin Eldhress í
heila öld eftir Gylfa Gröndal.
Bókin er byggð á viðtölum þeirra
Eiríks Kristóferssonar skipherra
sem orðinn er 101 árs.
í kynningu útgefanda segir: Ei-
ríkur Kristófersson er hress í bragði
þrátt fyrir háan aldur og lætur
engan bilbug á sér fínna. Hann er
tvímælalaust einn merkasti sjó-
garpur á þessari öld. Fjórtán ára
gamall gerðist hann skútukarl, nam
í Stýrimannaskólanum, var farmað-
ur um skeið, en starfaði síðan hjá
Landhelgisgæslunni frá upphafi. í
þorskastríðinu fyrsta varð hann
þjóðhetja vegna vasklegrar fram-
göngu sinnar í viðureign við breska
sjóherinn."
Gylfi Gröndal hefur að sögn
kynnst mörgum góðum Sögumönn-
um, en telur Eirík skipherra í hópi
hinna bestu.
Útgefandi er Forlagið. Eld;
hress í heila öld er 232 bls. í
bókinni er mikill fjöldi mynda.
Grafit hf. hannaði kápu. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði. Verð
2.980 krónur.