Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
11
Nýjar bækur
KARÓLÍNA
Kammersveit Reykjavíkur
Tveir Brandenburgarkonsert-
ar Bachs á jólatónleikum
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur sína árlegu jólatónleika í
Askirkju sunnudaginn 12. desem-
ber. Á efnisskránni að þessu sinni
verða eingöngu verk eftir J.S.
Bach.
Tónleikarnir hefjast á Branden-
burgarkonsert nr. II, þá verður flutt
brúðkaupskantatan „Weichet nur,
betrubte Schatten" og er það Marta
G. Halldórdóttir sópransöngkona
sem syngur einsöng.
Eftir hlé verður fluttur konsert
í d-moll fyrir 2 fiðlur og tónleikun-
um lýkur með Brandenburgarkon-
sert nr. V.
Einleikarar á tónleikunum verða
Jósef Ognibene, horn, Bernharður
Wilkinson, flauta, Daði Kolbeins-
son, óbó, Unnur María Ingólfsdótt-
ir, fiðla, Rut Ingólfsdóttir, fiðla, og
Helga Ingólfsdóttir, sembal.
Tónleikarnir verða í Áskirkju og
hefjast kl. 17. Á tónleikunum verð-
ur nýr geisladiskur Kammersveitar-
innar, ,,.Jólatónleikar“, til sölu á
kynningarverði.
Jónína Michaelsdóttir og Karólína Lárusdóttir.
Bók um líf og list Karólínu Lárusdóttur
Kammersveit Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Þorkell
ÚT ER komin bókin Karólína,
Líf og list Karólínu Lárusdótt-
ur. Jónína Michaelsdóttir ritaði.
Bókin er prýdd miklum fjölda
mynda og hefur m.a. að geyma
50 litmyndir af málverkum Kar-
HVOLPAVIT
Bókmenntir
Sigrún Klara Hannesdóttir
Þorsteinn Marelsson: Hvolpavit.
Reykjavík. Mál og menning
1993, 186 bls.
Þrándur Hreinn er ungur piltur
sem fer austur á land, bæði til að
vinna sér inn peninga í fiskvinnu
og til að hitta ástina sína hana
Ósk. Fyrir austan býr hann hjá
frænku sinni sem er sílspikuð,
góðhjarta kona sem hugsar um
lítið annað en að gefa honum nóg
að borða.
Sagan gengur að mestu leyti
út á samskipti piltsins og stúlk-
unnar þar sem þau feta sig um
ókunna stíga ástar og kynlífs. Inn
í söguna kemur þó best skrifaði
kafli bókarinnar sem fjallar um
meinta glæpi þótt lesandinn fái í
raun ekkert að vita um niðurstöðu
í því máli. Ýjað er að ósamkomu-
lagi foreldra piltsins og væntan-
legum skilnaði og Þrándur verður
vitni að því sem er í aðsigi. Sagt
er frá dykkjusamkomum á heimili
Sæmundar skipstjóra og fýllerísr-
öfli hans lýst, en skyndilega er
hann sviptur sjálfræði og sendur
á hæli fyrir drykkjumenn og kona
hans ætlar að skilja við hann.
Ekki hélt ég að menn væru svipt-
ir sjálfræði þótt þeir færu í afvötn-
un.
Aukapersónur eru mjög lítið
unnar. Vinur hans Pétur og vin-
kona hans Lísa koma aðeins fram
sem óskilgreindir unglingar. Sig-
rún sem hann eyðir með nótt án
þess að vita hvað hefur gerst er
alveg jafn óræð í sögulok og í
upphafi. Benni væntanlegur mág-
ur hans er hressilegur strákur en
pabbi Þrándar lætur einhver orð
falla um að hann muni fá pokann
sinn. Kári sem ætti að vera eini
keppinautur hans um hylli Óskar
er alger huldupersóna og er aðeins
nefndur í tengslum við Ósk. Allt
eru þetta litlausar persónur og
höfundur gerir enga tilraun til að
skapa þau og gefa þeim sjálfstætt
líf. Eina persónan sem fær líf er
Sigurlína frænka sem þó er gerð
afkáraleg með endalausri tilvísun
í bresku konungsfjölskylduna.
Frásögnin um samskipti ungl-
inganna er langdregin og hálf
leiðinleg. Endalaust er hamrað á
Rodin-sýning-
in framlengd
VEGNA mikillar aðsóknar á sýn-
ingu á verkum eftir franska
myndhöggvarann Auguste Rodin
sem staðið hefur yfir að Kjarvals-
stöðum hefur verið ákveðið að
framiengja hana um eina viku,
eða til sunnudagsins 12. desem-
ber.
Alls hafa nú um 25.000 manns
séð sýninguna. Á sýningunni eru
rúmlega 60 verk eftir Rodin fengin
að láni hjá Rodinsafninu í París og
eru þar á meðal mörg þekktustu
verka hans.
-----» ♦ ♦...
Þorsteinn Marelsson
feimni piltsins, venjulega í því
formi að han er sagður roðna þeg-
ar fiskikerlingarnar klæmast við
hann, eða hann veit ekki hvernig
hann á að útvega sér smokka.
Samtöl þeirra og samskipti eru
ósannfærandi og í raun fær les-
andinn aldrei að sjá inn í huga
stúlkunnar. Hún er aðeins verk-
færi til að gera þetta að unglinga-
sögu. Tæpt er á ýmiss konar mál-
um sem gætu verið verðugt við-
fangsefni í unglingabók en höf-
undur vinnur ekki nógu vel úr
þeim. Alls staðar í sögunni eru
lausir endar.
Kápumynd er ósmekkleg og illa
saman sett. Afkáraleg teikning af
berum kvenmanni framan á
bringu á andlitslausum karlmanni.
Nýjar bækur
M Út er komin bókin Manga með
svartan vanga eftir Ómar Þ. Ragn-
arsson fréttamann. Er þetta þriðja
bók Ómars. I kynningu útgefanda
segir: „Manga með svartan vanga
fjallar um sérstæða konu, Margréti
Sigurðardóttur, sem lengi var heim-
ilisföst að Hvammi í Langadal í
Húnavatnssýslu. Margrét var einn
af smælingjunum í íslensku samfé-
lagi og var einkum fræg fyrir hversu
ófríð hún var og að ganga á miðjum
þjóðveginum í dalnum og láta sig
bílaumferðina engu varða.“ Þessi
sérstæða kona átti sína örlagasögu
og hana rifjar Ómar upp í bókinni.
í bókinni segir Ómar einnig frá sér-
kennilegu mannlífi í Langadal.
Útgefandi er Fróði. Manga með
svartan vanga er 224 blaðsíður.
Bókin er prentunnin hjá G.Ben.
prentstofu hf. en kápuhönnun
annaðist Auglýsingastofan Orkin.
Bókin kostar kr. 2.980.
Kvennakór Reykjavíkur.
Jólasöngvar á aðventu
Kvennakór Reykjavíkur
og Bamakór Grensáskirkju
KVENNAKÓR Reykjavíkur hélt sína fyrstu aðventutónleika sunnu-
daginn 5. desember í Hallgrímskirkju. Húsfyllir var á tónleikunum.
Kórinn hefur ákveðið að halda aðra tónleika með breyttri dagskrá
í Áskirkju í dag, miðvikudaginn 8. desember, ásamt Barnakór Grens-
áskirkju.
Á tónleikunum verða sungin jóla-
og aðventulög frá ýmsum tímum
og hefjast þeir kl. 20.30. Stjórnandi
kórsins er Margrét J. Pálmadóttir,
raddþjálfari er Jóhanna Þórhalls-
dóttir og undirleikari er Svana Vík-
ingsdóttir.
Fasteignasala,
llj Suðurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - öryggl
NJ Hllmar Valdlmarsson.
SlMAR: 687828 og 687808
Kleppsvegur 118
Til sölu mjög falleg 3ja herb. 83 fm íb. á 3. hæð í lyftu-
húsi. Nýtt parket á stofu og gangi. Frábært útsýni.
Skipti á 2ja herb. íb. koma til greina.
Bragagata - laus
Til sölu 4ra herb. 103 fm íb. á 3. hæð í steinhúsi.
Góð eign. Laus nú þegar. Verð 7,8 millj.
ólínu, auk margra grafíkmynda
og ljósmynda sem tengjast lífi
hennar, ættingjum og samferð-
armönnum.
í kynningu útgefanda segir:
„Karólína Lárusdóttir kvaddi ís-
land fyrir tæpum þrjátíu árum og
hélt til myndlistarnáms í Bret-
landi, þar sem hún hefur á síðari
árum getið sér frægðarorð og hlot-
ið margvíslega viðurkenningu fyrir
list sína. Bókin skiptist í sex kafla
þar sem Karólína lýsir viðhorfum
sínum til lífs og listar og rekur
viðburði ævi sinnar, bernsku og
æskuár í Reykjavík, nám og bú-
setu í Englandi, einkalíf, vináttu
og viðurkenningar, áföll og sigra.
Hér er komið víða við sögu og
mun mörgum þykja fengur að
þeirri skörpu og skemmtilegu
mynd sem hún dregur af ömmu
sinni og afa, þeim Karólínu og
Jóhannesi Jósefssyni á Hótel
Borg.“
Útgefandi er Forlagið. Bókin
um Karólínu Lárusdóttur er 208
bls. Björn Br. Björnsson hann-
aði útlit, en Grafít hf. hannaði
kápu. Bókin er prentuð í prent-
smiðjunni Odda hf. Bókin kost-
ar 3.480 krónur.
51500
Hafnarfjörður
Hjallabraut
- þjónustuíbúð
Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir
Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á
4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj.
ca 3,2 millj. Verð 7,8 millj.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð I þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Arnarhraun
Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb-
húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv.
ca 1,5 millj.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Trönuhraun
Til sölu og/eða leigu efri hæð
ca 350 fm. Hentugt sem
kennsluhúsnæði, verslunar-
og/eða skrifsthúsnæði. Nánari
uppl. á skrifst.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hœð, Hfj.,
II símar 51500 og 51601.