Morgunblaðið - 08.12.1993, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DBSEMBER 1993
Nýjar bækur
Benedikt Jónsson á Auðnum
ÚT er komin ævisaga Benedikts
á Auðnum skráð af Sveini Skorra
Höskuldssyni.
í kynningu útgefanda segir:
„Benedikt Jónsson, sem kenndur
er við Auðnir í Laxárdal, lifði svo
sannarlegar tvenna tíma. Hann
fæddist að Þverá í Suður-Þingeyjar-
sýslu árið 1846 og lést á Húsavík
snemma árs 1939. Alla sína löngu
ævi var Benedikt með ólíkindum
starfsamur og tók öflugan þátt í
því mikla uppbyggingarstarfi ís-
lensks samfélags og menningar sem
fram fór á þessu t.ímabili. Áratug
fyrir andlátið kallaði Halldór Lax-
ness hann „föður Þingeyinga" í
tímaritsgrein, „af því að hann er
faðir þingeyskrar alþýðumenning-
ar“. Benedikt lét til sín taka í stjórn-
málum, bann var lífið og sálin í
starfsemi Kaupfélags Þingeyinga
um langt skeið, hann byggði upp
stórmerkilegt sýslubókasafn á
Húsavík og hann átti merkan þátt
í varðveislu íslenskra þjóðlaga.“
Sveinn Skorri Höskflldsson hefur
um langt árabil rannsakað ævi og
verk Benedikts á Auðnum, eftir
prentuðum heimildum sem óprent-
uðum, og hefur hér dregið saman
niðurstöður sínar. Bókin er ríkulega
myndskreytt.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 607 bls., unnin í G.
Ben. prentstofu hf. Kápu hannaði
Erlingur Páll Ingvarsson. Bókin
kostar 3.880 krónur.
Bókasafn Kópavogs
Tónlist og upplestur
JOLAKYNNINGAR eru að hefj-
ast I Bókasafni Kópavogs og á
morgun, fimmtudaginn 9. desem-
ber, koma fjórir höfundar og lesa
úr verkum sínum. Kynningin
hefst kl. 17. með því að Kór aldr-
aðra syngur.
Þessir höfundar lesa; Árni
Björnsson les upp úr bókinni Saga
daganna, Birgir Sigurðsson les úr
bókinni Hengiflugið, Jóhanna Krist-
jónsdóttir les úr bókinni Perlur og
steinar og Steinunn Sigurðardóttir
les úr bókinni Ástin fiskanna.
Laugardaginn 11. desember
verður svo kynning á barna- og
unglingabókum. Hefst hún með
söng Skólakórs Hjallaskóla kl.
13.30. Þar lesa þessir höfundar úr
bókum sínum; Áðalsteinn Ásberg
Sigurðsson les úr bókinni Álagaeld-
ur, Andrés Indriðason les úr bók-
inni Tröll eru bestu skinn, Guðrún
Helgadóttir les úr bókinni Litlu
greyin og Iðunn Steinsdóttir les úr
bókinni Er allt að verða vitlaust.
Gestur og Rúna
Gestur og Rúna.
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Hjónin Gestur Þorgrímsson og
Sigrún Guðjónsdóttir héldu á síð-
asta ári umfangsmikla yfirlitssýn-
ingu í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarljarðar. Þar
fékkst góð yfirsýn yfir viðfangsefni
þeirra síðustu ár jafnt sem á löng-
um ferli þeirra, og var ljóst, að
jöfn og stöðug þróun hefur ein-
kennt feril þeirra alla tíð.
En þó haldin 'sé ýfirlitssýning,
er ekki þar með sagt að listamenn
setjist í helgan stein og láti staðar
numið. Öðru nær. Nú hafa þau
Gestur og Rúna opnað sýningu í
vinnustofunni að Austurgötu 17 í
Hafnarfirði. Húsnæðið þar er
rýmra og bjartara eftir viðamiklar
breytingar á síðasta ári, og er síst
lakara til sýningarhalds en ýmsir
þeir litlu sýningarsalir, sem halda
uppi reglulegri starfsemi.
Þessi vinnustofusýning er nokk-
uð í anda breytinga, sem hafa ver-
ið að eiga sér stað í sýningarhaldi
víða um lönd undanfarin ár. Nokk-
uð hefur borið á því, t.d. í Banda-
ríkjunum, að hefðbundnir sýningar-
staðir hafi horfið af vettvangi, en
í stað þeirra hafa komið opinberar
sýningar á vinnustofum lista-
manna, og jafnvel á heimilum
þeirra eða listunnenda, sem eru
reiðubúnir að leggja húsnæði sitt
undir slíkt um einhvern tíma. Þessa
hefur séð nokkuð merki hér á landi,
og eru helstu dæmin starfsemi
Gailerí Gangs á heimili Helga Þorg-
ils Friðjónssonar myndlistarmanns,
en þar hafa verið haldnar sýningar
árið um kring um langt árabil, þó
hljótt fari; annað dæmi er sýningar-
hald listafólks í vinnustofum að
Álafossi í Mosfellsbæ, sem hafa
verið reglulegar nokkur síðustu
sumur.
Gestur og Rúna dvöldu í Kjar-
valsstofu í París um tveggja mán-
aða skeið á síðasta vori, og er sýn-
ingin nú að nokkru afrakstur þess
tíma, sem þau nýttu ekki síður til
að vinna að eigin listsköpun en til
að skoða þau stórvirki listasögunn-
ar, sem heimsborgin býður upp á.
Gestur sýnir hér sextán högg-
myndir, flestar unnar í marmara,
en einnig koma fyrir önnur efni
eins og basalt, granít og gabbró.
Málmar gegna einnig nokkru hlut-
verki í sumum verkanna, en aðeins
þijú eiginleg málmverk eru á sýn-
ingunni, og af þeim er bronsmynd-
in „Pas des Deux“ (nr. 4) einkar
skemmtileg. Gestur hefur í marm-
araverkum sínum einkum leitað
eftir að láta steininn njóta sín,
bæði hvað varðar lit og þann línu-
dans, sem æðarnar í marmaranum
mynda. Þetta sést einna best í
„Andstæðuspil" (nr. 7), þar sem
línurnar í bleikum og hvítum
marmara vinna ágætlega saman.
Stærsta verkið, „Moby Dick“ (nr.
16), er stílhreint og nær ágætlega
að endurspegla þau minni, sem
saga Melville vekur upp.
Rúna sýnir myndverk unnin á
japanskan pappír, svo og brenndar
leirmyndir, sem hún hefur verið
þekkt fyrir í gegnum árin. Eins og
oft áður eru það litbrigði blárra lita,
sem eru mest heillandi í meðförum
listakonunnar. Þetta sést vel í
myndum eins og „Álfakirkja“ (nr.
4) og „Grámosinn glóir“ (nr. 6); í
seríunni „Birtubrigði“(nr. 14-16)
koma inn skemmtileg form í björt-
um, appelsínugulum litum. Hér
getur einnig að líta hrífandi per-
sónugerð í „Jómfrúin" og „Hafgú-
an“ (nr. 1 og 2), sem ber vott um
mikla þolinmæði í vinnslu þess
mynsturs, sem einkennir myndirn-
ar. Smágerðar leirmyndirnar eru
afar stílhreinar, og litir og form
komast vel til skila. „í töfrabirtu"
(nr. 21) er gott dæmi um mynd,
þar sem allir þættir ná að vinna
fullkomnlega saman.
Hér er á ferðinni góð sýning frá
ágætum listamönnum, sem hafa
náð að heiga sig listinni alfarið, og
njóta þess í stöðugt öflugri listsköp-
un á þeim sviðum, sem þau hafa
valið sér.
Sýning Gests og Rúnu í vinnu-
stofu þeirra að Austurgötu 17,
Hafnarfirði, stendur til sunnudags-
ins 19. desember, og er rétt að
benda fólki á að líta við.
Edda Erlendsdóttir fær
góða dóma í Frakklandi
EDDA Erlendsdóttir hlaut mikið
lof tónlistargagnrýnenda í
frönsku blöðunum Le Monde de
la musique og Repertoire fyrir
geisladiskinn með verkum C.P.E.
Bach, sem kom út hjá Skífunni
árið 1991. Hér á eftir koma
greinarnar þýddar úr frönsku:
Þó að C.P.E. Bach hafi samið
flestar sónötur sínar fyrir píanó-
forte eða klavíkord hafa mjög fáir
píanóleikarar sýnt þessu tónskáldi,
sem er fyrirrennari Haydns og
Mozarts, nokkurn áhuga. En þrátt
fyrir að Bach frá Berlín eða Ham-
borg (eftir því hvaða tímabil maður
tekur til greina) sé frumkvöðull, er
tónlist hans samt ótrúlega heil-
steypt.
Verkin sem Edda Erlendsdóttir
hefur valið að spila eru ekki úr
safni sembalverkanna (Prussa og
Wurtenbourg sónötur) heldur úr
seinni heftunum, þar sem rondó,
sónötur og fantasíur eru hlið við
hlið. í þessum verkum tókst C.P.E.
Bach að ná fram jafnvægi á milli
þeirrar löngunar að ná fram skýru
formi og miklu hugmyndaflugi.
Edda Erlendsdóttir spilar þessi
ótrúlegu verk á mjög skýran hátt
með tilfinningaríkri næmni og nær
vel fram hinum dramatísku og tján-
ingarríku þögnum. Leikur hennar
er mjög fágaður og nýtur sín sér-
staklega vel í hægu köflunum (Poco
Adagio Wq 55/4, Rondo Silber-
mann) en tekst einnig að fá fram
mikilli gleðistemmningu í fjörugu
köflunum.
Mjög heillandi og innileg túlkun,
óralangt frá hljómi sembalsins.
Michel Laizé
Tækni: Mjög næm falleg og fal-
leg upptaka.
Edda fær einkunnina 8 hjá þess-
um tónlistagagnrýnanda, sem þykir
frábært. (Repertoire okt. 1993.)
Það þarf vissulega ákveðið hug-
rekki og áræðni til að spila C.P.E.
Bach á nútímapíanó í dag, og ganga
þannig fram hjá sembal, klavíkord
og píanóforte. Þetta hefur þó Eddu
Erlendsdóttur, íslenskum píanóleik-
ara, sem býr í París og kennir í
CNMS í Lyon, tekist. Hún nýtir sér
fullkomlega möguleika píanósins,
einkum í blæbrigðum og áslætti.
Mismunurinn á CPE Bach og
Haydn er þó að sá síðamefndi nýt-
ur sín betur á nútímapíanói, einnig
í æskuverkunum.
Diskur Eddu Erlendsdóttur
breytir ekki þessari skoðun, alla
vega ekki við fyrstu sýn. En það
er góðri túlkun og góðri tónlist að
þakka að maður sannfærist.
Meðal eftirtektarverðustu sónat-
anna eru „stóru“ í A dúr (H 186,
áður hljóðritað af Giles) og í f moll
(H 173) og þó ótrúlegt sé, hljómar
rondo í e moll H 272 („Kveðjuóður
mjög vel á Steinway flygil.
Marc Vignal -
Edda fær 3 stjörnur hjá Marc
Vignal og einkunnin 8 er gefin fyr-
ir tækni. Hvoru tveggja þykir mjög
gott. (Le Monde de la Musique. okt.
1993.)
Háspennu píanó
Edda Erlendsdóttir er einn af
fáum píanóleikurum sem þekkist á
nokkrum sekúndum af því hvernig
hún fraserar, hvernig hún byijar
verkin og af kraftinum. Heniii var
boðið af Tónlistarsamtökum Locle
í Sviss að halda tónleika í Temple
og er minningin um þessa tónleika
ennþá geislandi.
Það eru margir píanóleikarar í
dag sem búa yfir frábærri tækni,
sem gerir þeim kleift að renna yfir
verkin eins og sannkallaðir íþrótta-
garpar nótnaborðsins. Aftur á móti
eru næmir hugmyndaríkir píanó-
leikarar sem eru færir um að láta
tónlistina glitra mjög sjaldgæfir.
Edda Erlendsdóttir er einn af þeim.
Á mánudagskvöldið urðu áheyrend-
ur fyrir hreinni tónlistarupplifun og
heilluðust af því hve auðveldlega
Edda Erlendsdóttir kom til skila
kjarna þeirra verka sem hún túlk-
aði.
Menn voru búnir að bíða lengi
eftir því að einhver myndi sýna
hljómborðsverkum C.P.E. Bach ein-
hvern áhuga, sem hafa algjörlega
1 horfið af efnisskrám. Sónata í f
moll, fantasía í C, hafa aldrei heyrst
túlkaðar með slíkum glæsibrag. Og
það var svipað með sónötu Schub-
erts í a moll sem fylgdi strax á eftir.
Seinni hlutinn sem var helgaður
tónlist norðursins hófst með gleði-
stemmningu í verki íslenska tón-
skáldsins Sveinbjörns Sveinbjörns-
sonar, en það er einmitt hér, sem
stíll Eddu Erlendsdóttur kemur best
fram. Með innsæi og tækni nær hún
fram mjög litauðugum blæbrigðum,
sem gera Holbergssvítu Griegs að
draumi sterkra andstæðna.
Það var líka tvöföld ánægja að
uppgötva og heyra kraftmikla túlk-
un á „sjö ljóðrænum smálögum“
eftir Grieg.
D. de C.
(L’Impartial 12. feb. 1993.)
Þýðing Laufey Helgafdóttir.
Nýjar bækur
■ Út er komin ferðasagan Kría
siglir um Suðurhöf eftir Þorbjörn
Magnússon og Unni Jökulsdóttur.
í kynningu útgefanda segir: „Kría
siglir um Suðurhöf er einstök ferða-
saga. Höfundarnir sigldu skútu sinni
Kríu frá Panama-skurðinum til Ástr-
alíu, og voru ár á leiðinni. Á þessum
tíma upplifðu þau ómælisvíðáttu
Kyrrahafsins, sigldu vikum saman
án þess að sjá annað en himin og
haf, en höfðu líka viðkomu á ótal
eyjum frá Galapagos til Fiji.“ Bókin
er prýdd íjölda litmynda úr ferðinni.
Kría siglir um Suðurhöf er sjálfstætt
framhald bókarinnar Kjölfar Kríunn-
ar. _
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 335 bls., unnin í Prent-
smiðjunni Odda hf. Björn Brynj-
ólfur Björnsson hannaði kápuna.
Verð kr. 3.880.
■ Út er komin bókin Uppeldi til
árangurs, eftir Árna Sigfússon. I
kynningu útgefanda segir að bókin
sé „unnin af Árna Sigfússyni, fjög-
urra barna föður, framkvæmdastjóra
og stjórnmálamanni. Auk uppeldis-
fræðimenntunar hefur Árni mikla
reynslu á sviði stefnumótunar
Reykjavíkurborgar í málefnum
bama. Hann var formaður Félags-
málaráðs Reykjavíkurborgar 1986-
1990 og gegnir nú formennsku í
Skólamálaráði. Bókin fjallar um til-
raunir hans og aðferðir til þess að
tryggja að fjölskyldan hafi forgang
þrátt fyrir annríki og mikilvæg verk-
efni sem foreldrar sinna á öðrum
sviðum."
Útgefandi er Almenna bókafé-
lagið. Bókin er prentuð hjá Grá-
skinnu, er um 140 blaðsíður og
kostar 2.190 krónur.
í
I
i
í
í
í
í
í
í
í
í
í
(
í