Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Kjartan Jónsson skrifar frá Kenýu
Lýðræði á brauðfótum
Herra Daniel arap Moi sver forsetaeiðinn í janúar sl. eftir að hafa borið signr úr býtum í fyrstu
lýðræðiskosningum í sögu Kenýu.
Mörg þúsund Kenýumenn eru flóttamenn í sínu Efnahagsörðugleikar koma harðast niður á al-
eigin landi vegna þjóðflokkaeija, sem hafa bloss- menningi. fjöldi betlara hefur aukist mikið. Auðg-
að af mikilli heift á nokkrum svæðum. unarbrotum hefur einnig fjölgað stórum.
„Ef stjómarandstaðan lætur
ekki af sinni niðurrífandi gagn-
rýni, er hætta á að Kenýa leysist
upp í mörg smáríki." Þetta vora
orð forsetans, herra Daniels arap
Moi, 20. september 1993. Tveimur
dögum síðar hvatti hann vestræn-
ar þjóðir til að vera hreinskilnar
og draga til baka efnahagsaðstoð
sína ef þær væru ekki ánægðar
með ástandið í landinu.
Það er bráðum eitt ár síðan
kosið var undir fjölflokkakerfi í
fyrsta sinn í sögu Kenýu. Þetta
var gert að miklu leyti vegna
þrýstings vestrænna þjóða. Þær
stöðvuðu um 350 milljóna dollara
efnahagsaðstoð í nóvember sl. til
að knýja á um þetta og vegna,
að þeirra sögn, gerræðislegra
stjómarhátta og mikillar óreiðu
og spillingar í efnahagskerfinu.
Féð rann í vasa stjómmálaleið-
toga. Vegna þess hve efnahagur
landsins var upp á þessa aðstoð
komin áttu yfirvöld fárra annarra
kosta völ en að svínbeygja sig og
gera grandvallarbreytingu á
stjómarkerfinu.
Mikið gekk á mánuðina á undan
kosningunum. Óeirðir bratust
víða út, sérstaklega á landsvæð-
um, er frá fomu fari tilheyra þeim
þjóðflokkum, sem hafa myndað
uppistöðu ríkisstjórnarinnar, sk.
Kalenjin-þjóðflokkar. Fólki af öðr-
um þjóðflokkum, sem keypt háfa
land á þessum svæðum, var sýnd-
ur yfirgangur. Mörg hundrað
manns létu lífið.
Landsmenn vora að vonum
mjög spenntir um framvindu mála
eftir"kosningar. Margir óttuðust
að forsetinn myndi hefna sín á
þeim, sem kusu hann ekki. Hann
hefur hins vegar undirstrikað að
hann sé forseti allra landsmanna
og beri hag þeirra allra fyrir
bijósti.
Efnahagur Kenýu hefur verið
í miklu lamasessi eftir kosningar.
Gengi gjaldmiðils landsins, shill-
ingsins, hefur verið fellt um meira
en 60%. Hluti orsakarinnar er, að
sögn stjórnarandstöðunnar, að
ríkisstjómin lét prenta peninga-
seðla að verðgildi um 11 milljarða
shillinga (sem var á þeim tíma
um 20 milljarðar ísl. króna) án
þess að efnahagslegur grandvöllur
væri fyrir hendi. Þetta var gert til
að múta og kaupa menn í kosn-
ingabaráttunni. Forvígismenn rík-
isstjómarinnar era líka sakaðir um
að hafa stolið allt að 2,5 milljörðum
Bandaríkjadollara úr ríkiskassan-
um á sama tíma og landið átti
næstum engan gjaldeyri.
Það liðu margir mánuðir þar
til erlend ríki hófu á ný að veita
efnahagsaðstoð. Alþjóðabankinn
setti ýmis skilyrði fyrir lánveiting-
um, m.a. þau, að hömlur á gjald-
eyrisviðskiptum yrðu minnkaðar
stórlega, verðlag yrði gefið fijálst
á mat- og byggingavöram, útgjöld
hins opinbera yrðu minnkuð,
stjórnun ríkisfyrirtækja yrði stó-
rendurbætt og eitthvað raunhæft
yrði gert varðandi spillingu meðal
embættismanna ríkisins.
Ný ríkisstjórn kom til móts við
nokkrar af þessum kröfum og
allt verðlag hækkaði hröðum
skrefum. Þessir erfiðleikar koma
harðast niður á almenningi, sem
hefur lítið handa á milli.
Stj óraarandstaðan
„Sundraðir féllu þeir“ var lýs-
ingin, sem stjórnarandstaðan fékk
eftir kosningar. Því miður hefur
stjómarandstaðan ekki verið
sannfærandi í málarekstri sínum.
Áætlanir hennar hafa verið óljósar
og mesta orka leiðtoga hennar
hefur farið í innri valdabaráttu.
Allir leiðtogar hennar eru fyrrver-
andi ráðherrar og varaforsetar úr
ríkisstjóm KANU, flokks forset-
ans. Margir era því efíst um að
þeir yrðu minna spilltir eða rækju
landið betur þótt þeir næðu völd-
um. Það hefur ýtt undir þessar
efasemdir að nokkrir stjórnarand-
stöðuþingmenn hafa hlaupist und-
an merkjum og gengið yfir í
KANU. Þeir era sakaðir um að
hafa verið keyptir. Hins vegar era
nú komnir fram á sjónarsviðið,
bæði í ríkisstjórn og stjórnarand-
stöðu, ungir vel menntaðir menn,
sem vilja stunda stjómmál af aí-
vöra án þjóðflokkahyggju og spill-
ingar. Margir binda vonir við þá.
Alvarlegt ástand
Níu mánuðum síðar er ástand
þjóðmála enn alvarlegt. Hið nýja
lýðræði hefur síður en svo bætt
hag landsmanna. Þó að allir séu
ánægðir með að hafa málfrelsi,
er friður og efnahagsöryggi miklu
meira virði, Oeirðir á milli þjóð-
flokka hafa ekki hætt og fólk er
sífellt drepið. Tugir þúsunda
landsmanna era flóttamenn í eigin
landi vegna þess að þeir hafa
verið hraktir af jörðum sínum,
sem era í héröðum, sem frá fornu
fari hafa tilheyrt öðram þjóðflokk-
um þótt þeir hafi keypt þær á
löglegan hátt. Yfirvöld eru sökuð
um aðgerðarleysi og jafvel aðild
að þessu.
Olöglegur stjómmálaflokkur
„Hið nýja lýðræði hef-
ur síður en svo bætt
hag landsmanna. Þó
að allir séu ánægðir
með að hafa málfrelsi,
er friður og efnahags-
öryggi miklu meira
virði. Óeirðir á milli
þjóðflokka hafa ekki
hætt og fólk er sífellt
drepið.“
múslima hefur efnt til margvís-
legra mótmælaaðgerða og óeirða.
Fyrir nokkram dögum varð mjög
alvarlegur árekstur á milli tveggja
hópa múslima í ferðamannaborg-
inni Mombasa. Tveir létu lífið,
margir slösuðust og 50 bílar voru
brenndir. Talið er að notuð hafi
verið vopn frá Sómalíu.
Borgarastyijöldin í Sómalíu
hefur valdið miklu óöryggi í. hér-
uðunum, sem liggja að landinu.
Landamærin era opin og því auð-
velt að komast á milli landanna.
íbúarnir á þessu svæði era flestir
Sómalir. Mikið magn vopna hefur
streymt inn í Kenýu og selt ódýrt
á svörtum markaði.
Fjármálahneyksli koma alltaf
öðra hvora upp á yfirborðið. Ný-
lega var flett ofan af því alvarleg-
asta í sögu landsins. Maður af
indverskum uppruna er sagður
hafa svikið um 9 milljarða shill-
inga út úr ríkiskassanum. Það
hefur skapað mikla reiði, að eng-
inn ráðamaður hefur vérið gerður
ábyrgur fyrir þessu misferli og
ýmsir eru taldir viðriðnir málið.
Þetta er dæmi um þá stórfelldu
fjármálaspillingu, sem ríkir í land-
inu. Hún virðist hafa aukist á síð-
ustu misserum, þannig að þjón-
ustu hins opinbera hrakar stöð-
ugt.
Til að auka á byrðar lands-
manna hefur uppskera þessa árs
bragðist að miklu leyti. Ónógri
rigningu er kennt um og spillingu
í fyrirtækinu, sem framleiðir ma-
ísútsæðið. Það var lélegt eða
ónýtt.
Almenningur kennir nú fy'öl-
flokkakerfinu um flest, sem af-
laga fer í þjóðfélaginu. E.t.v. er
það þetta, sem ráðamenn vilja.
Forsetinn hefur löngum haldið því
fram, að verði fjölflokkakerfið
innleitt í Kenýu, muni þjóðflokka-
eijur magnast og landið liðast í
sundur í mörg lítil þjóðflokkaríki.
Ymsir saka forsetann um að
standa að baki hrakandi innan-
landsástandi og bíða eftir að það
verði nógu slæmt svo að hann
geti lagt lýðræðið af og stjórnað
einn, eins og hann gerði fyrir
kosningar. Sannleiksgildi þessara
ásakana ættu að koma í ljós á
næstu mánuðum.
Höfundur er kristniboði.
Allir sitji við sama borð
Svar til Hallgríms Indriðasonar fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga
eftir Jóhannes
ísleifsson
í grein þinni í Morgunblaðinu
þann 25. nóvember síðastliðinn gerir
þú að umtalsefni meintar ásakanir
Félags garðplöntuframleiðenda á
hendur opinberum og hálfopinberum
gróðrarstöðvum.
Því miður verður að segjast að
trúverðugleiki orða þinna er ákaf-
lega rýr, allavega þegar horft er til
þess er sannara reynist.
Er það að minnsta kosti ekki rétt
að þú sem framkvæmdastjóri þess-
arar gróðrarstöðvar takir á móti
meginhluta launa þinna frá Akur-
eyrarbæ? Eru framkvæmdastjórar
annarra einkarekinna gróðrarstöðva
ef til vill líka á launum hjá Akur-
eyrarbæ, eða kannski landbúnaðar-
ráðuneytinu?
Er það ekki rétt, að þegjandi sam-
komulag hefur ríkt um það, að
Gróðrarstöð Skógræktarfélags Ey-
firðinga greiddi ekki lögbundin
sjóðagjöld af sínum afurðum þrátt
fyrir það að hafa fengið fyrir-
greiðslu frá Stofnlánadeild landbún-
aðarins?
Er ekki rétt að Gróðrarstöð Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga hafi getað
selt veralegan hluta afurðá sinna á
markaði sem einkareknum gróðrar-
stöðvum hefur ekki staðið til boða,
markaði þar sem ríkið er kaupandinn
og kaupverðið á einingu er mun
hærra en það sem þekkist á hinum
almenna markaði?
Svona mætti halda lengi áfram,
en að halda því fram, Hallgrímur,
að Gróðrarstöð Skógræktarfélags
Eyfirðinga keppi við aðrar gróðrar-
stöðvar á jafnréttisgrandvelli er
hreint bull.
Félag garðplöntuframleiðenda er
í sjálfu sér ekki í neinni krossferð
gegn starfsemi Skógræktarfélags
Eyfirðinga og við drögum ekki í efa
að þar hefur verið unnið nytsamt
starf gegnum árin.
En þess ber að gæta að fyöldi fólks
byggir afkomu sína á sams konar
rekstri og þessi gróðrarstöð gerir.
Jóhannes ísleifsson
„Fjöldi fólks byggir af-
komu sína á sams konar
rekstri.“
Það rekstrarumhverfi sem þetta
fólk býr við er gjörólíkt því sem
þarna um ræðir.
Það er lágmarkskrafa okkar að
þeir aðilar, sem hafa atvinnu sína
af þessari starfsemi, sitji við sama
borð, annað er gjörsamlega óþolandi.
í niðurlagi greinar þinnar ræðst
þú mjög ósmekklega að Sædísi Guð-
laugsdóttur, formanni Félags garðp-
löntuframleiðenda.
Svona vinnubrögð þjóna þeim til-
gangi einum að hleypa illu blóði í
þá umræðu sem á sér stað um þessi
málefni, sé það ekki tilgangur þinn,
er eflaust skynsamlegt að sýna lág-
marks kurteisi og biðjast afsökunar.
Höfundur er garðyrkjubóndi í
Hveragerði.