Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Steinbrjótur
A ARSFUNDI rikisspítalanna fór fram kynning á svokölluðum steinbrjóti til meðferðar á þvagfærasteinum.
Ársfundur ríkisspítala
Fimm ára vísinda- og
rannsóknaáætlun
STJÓRNARNEFND ríkisspítala og læknadeild Háskóla íslands
hafa hleypt af stokkunum vísinda- og rannsóknaáætlun til fimm
ára að því er kom fram í máli Davíðs Á. Gunnarssonar, forstjóra
rikisspítala, á ársfundi á föstudag. Hann sagði að tilgangur átaks-
ins væri að í landinu þróaðist sú menning og þekking á sviði heil-
brigðismála að í framtíðinni yrði íslensk heilbrigðisþjónustu gæða-
hugtak, hér á landi og meðal íbúa annarra þjóða. „Þannig rennum
við stoðum undir íslenska atvinnustarfsemi og þar með sjálfstæði
þjóðarinnar,“ sagði Davíð í ræðu sinni.
Á ársfundinum afhenti yfir- og eldhús og aðalbyggingar.
stjóm mannvirkjagerðar á Gangurinn er liður í fram-
Landspítalalóðinni formlega nýjan kvæmdaáætlun K-byggingar og
tengigang á milli tæknimiðstöðvar er hann forsenda fyrir því að unnt
Kirkjur
landsins
ákortum
NÝJAR víddir hófu á þessu ári
útgáfu á kortaflokki með ís-
lenskum kirkjum í samvinnu við
sóknarnefndirnar. Kortin eru
með vetrarmyndum eftir Ingi-
björgu Bimu Steingrímsdóttur.
Aftan á kortunum eru fróðlegar
upplýsingar um viðkomandi
kirkjur.
Kirkjukortin fást bæði sem jóla-
kort og tækifæriskort og þá eink-
um tengd atburðum sem eiga sér
stað í kirkjunni. Þau eru kjörin sem
boðskort t.d. í fermingar og brúð-
kaup. Umsjón með hönnun kort-
anna hefur Kristín Þorkelsdóttir
hjá Nýjum víddum.
Kort með eftirtöldum kirkjum
eru komin út: Dómkirkjunni, Þing-
vallakirkju, Hallgrímskirkju,
Laugarneskirkju, Bústaðakirkju,
Háteigskirkju, Árbæjarkirkju,
Kristkirkju, Fríkirkjunni í Reykja-
vík, Seltjarnameskirkju, Blöndu-
Eitt kortanna sem gefin hafa
verið út, Dómkirkjan.
óskirkju, Ytri-Njarðvíkurkirkju,
Grenivíkurkirkju og Grindavíkur-
kirkju.
Verð kirkjukortanna er 100
krónur og nýtur Hjálparstofnun
kirkjunnar góðs af sölu þeirra á
almennum markaði og sölu Nýrra
vídda til fyrirtækja. Sóknamefndir
kirknanna ráðstafa tekjum af eig-
in sölu til kirkjustarfs.
sé að steypa upp sjálfa K-bygging-
una. í ganginum verður starfs-
mannainngangur, símaþjónusta,
línudreifing o.fl.
Steinbrjótur
Steinbijótur við meðferð þvag-
færasteina var kynntur á ársfund-
inum. Meðferð með honum byggist
upp á hljóðbylgjum sem hafa verið
kallaðar höggbylgjur. Þvagfæra-
steinnin er fyrst staðsettur með
röntgenskyggningu eða hljóð-
bylgjum. Síðan er höggbylgjum
beint að staðnum og steinninn
brotinn. Hægt er að fylgjast með
steinbrotinu á ómsjá á meðan á
aðgerðinni stendur. Sjúklingurinn
fær hvorki svæfingu né deyfingu
en vanalega er gefíð verkjalyf í
æð. Gert er ráð fyrir að sjúklingar
geti farið heim tveimur klukku-
stundum eftir aðgerðina.
Blóðbanki
Á ársfundinum var þess sér-
staklega minnst að í ár eru liðin
40 ár frá stofnun Blóðbankans.
Starfsemi bankans hefur farið
stöðugt vaxandi og á síðasta ári
töldust nýir blóðgjafar alls 1074.
Umfangsmikil rannsóknar- og
kennslustarfsemi fer fram í Blóð-
bankanum. Þar er m.a. unnið að
þróun tölvuvinnslu, aukinni sjálf-
virkni og eflingu samstarfs erfða-
fræðideildar við aðrar deildir.
Fram koma á fundinum að
rekstur ríkisspítala hefur ein-
kennst að umtalsverðri aukningu
á starfsemi síðastliðin ár. Engu
að síður hafí náðst 470 milljón
króna raunlækkun á útgjöldum
milli áranna 1991 og 1992. Inn-
lögnum á deildir Landspítalans
hafi fjölgað um 7,5% milli ára,
fæðingum úr 2.558 í 2.913 eða
um tæp 14% og tekið hafí verið á
móti 232 fleiri skjólstæðingum á
bráðamóttökudeild.
Landlæknír um hagræðingn á spítölum
Draga ber úr
hraða og skapa
þarf vinnufrið
Segir slys hafa orðið sem rekja megi til álags
ÁLAG á heilbrigðisstarfsfólk er mikið og kvartanir um streitu í starfi
hafa aukist verulega frá 1980 samkvæmt upplýsingum frá landlækn-
isembættinu sem birtar eru í desemberhefti Læknablaðsins. Einnig
hefur embættið undir höndum upplýsingar um slys sem rekja má
til mikils vinnuálags á sjúkrahúsum. Biðlistar hafa ekki styst að
sama skapi á Islandi og í nágrannalöndunum þrátt fyrir framfarir
í skurðtækni og svæfingum og að minni aðgerðir hafi flust á göngu-
deildir og sérfræðingsstofur utan sjúkrahúsa. Landlæknir sagði i
samtali við Morgunblaðið að hagræðing á sjúkrahúsum hefði leitt
margft gott af sér en nú væri mál
vinnufrið.
Ólafur Ólafsson staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að upp hafí komið
slys sem rekja megi til vinnuhraða
og álags. Ekki fékkst uppgefíð
hversu mörg tilvikin eru. Ólafur sagði
stærstu mistökin verða á stóru
sjúkrahúsunum þar sem stórar að-
gerðir eru gerðar og örtröðin er
mest. „Farið er ofan í slík tilvik og
þau skoðuð vandlega. Við höfum átt
fundi með starfsmönnum heilbrigði-
skerfísins og rætt þetta. í Ig'ölfarið
hafa ýmsar vinnureglur, t.d. um
framkvæmd og undirbúning aðgerða,
verið hertar og endurskoðaðar í sam-
ráði við heilbrigðisyfírvöld," sagði
Ólafur. Landlæknir sagði einnig að
35-50% lækna, hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða kvarti um mikla streitu
í starfí og kvartanir hafí aukist veru-
lega frá 1980.
Ólafur sagði einnig að hagræð-
ingin væri af hinu góða en nú sé
mál að draga úr hraðanum og skapa
starfsfólkinu vinnufrið. í Lækna-
blaðinu segir að menn verði að
hægja á hagræðingunni vegna
að draga úr og skapa starfsfólki
langra biðlista og á þessu stigi geti
það haft slæmar afleiðingar að loka
velbúnum skurðstofum á Landa-
kotsspítala. St. Jósepsspítali geti
ekki tekið við hlutverki Landakots-
spítala og aðrir spítalar geti ekki
tekið við sjúklingum af biðlistum
sem stendur. Loks segir að málið
þoli enga bið vegna vinnuálags á
sjúkrahúsum í Reykjavík.
Biðlistar sérgreinasjúkrahúsa
(bæklunarlækningar) hafa staðið í
stað síðastliðin tvö ár. Biðlistar
Landakotsspítala hafa flust yfir á
Borgarspítalann (bæklunardeild),
Landspítalann (þvagfæraskurð-
lækningar) og á St. Jósepsspítala í
Hafnarfírði. Biðlistar eftir krans-
æðaaðgerðum hafa lengst lítillega
vegna launadeilu við svæfinga-
lækna sem nú er lokið. Einnig kem-
ur fram að lengri bið virðist vera
eftir sérgreinaaðgerðum á íslandi
en í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Hollandi. Til dæmis sé bið eftir
bæklunar- og þvagfæraskurðað-
gerðum 6-12 mánuðir.
Biðlistar
Tafla. Yfirlit frá landlæknisembættinu yfir biðlista sér-
greinasjúkrahúsa 1. september 1991 til 1. september 1993.
1.9. 1991 1.9. 1992 1.9. 1993
Bæklunardeild
Landspítali 460 214 177
Borgarspítali 496 434 512
Landakotsspftali 134 17 5
St. Jósefssp. Hf. 0 120 108
FSA 70 135 111
Alls 1.160' 920 913
Hjartaskurðlækningar
Landspítali 66 68 82
Hjartaþræðingar
Landspítali - 86 70
Borgarspítali - 53 50
Alls 100 139 120
Háls-, nef- og eyrnadeild
Borgarspitali - 837 841
St. Jósefssp. Hf. - 132 102
Alls 837 969 943
Þvagfæraskurðlækningar
Landspftali 450 395 444
Borgarspítali 28 96 60
Landakotsspítali 92 69 34
St. Jósefssp. Hf. - 20 60
Alls 570 580 598
Endurhæfing *
Reykjalundur - 455 511
Kristnes . 35 25
HNLFÍ - 0 67
Alls 418 490 603
Biðlistar án
lýtalækn. 3.151 3.166 3.259
Lýtalækningar2
Landspítali 1.000 1.330 652
St. Jósefssp. Hf. 0 154 102
Borgarspítali_______-______-_____180
Alls 1.000 1.484 962
1) Eftir 1991 voru biðlistar „hreinsaðir“ eða
samkeyrðir. Þeir sem höfðu beðið fímm ár eða
lengur voru „afskráðir", margir höfðu gengið
undir aðgerðir annars staðar.
2) Biðlistar eftir lýtalœkningaaðgerðum eru
ekki nægilega vei unnir auk þess sem greiðslu-
ákvæði hafa breyst og því er þeim sleppt hér,
enda mest um minni háttar fegrunaraðgerðir
að ræða.
Danmörk
Kransæðaaðgerðir
TUR-aðgerðir á blöðru
Mjaðmaaðgerðir
TUR-aðgerðir á blöðruhálskirtli
Noregur
Kransæðaaðgerðir
Svíþjóð
Kransæðaaðgerðir
Hnéaðgerðir
Holland
Kransæðaaðgerðir
3.3 mán.
2.4 mán.
6,6 mán.
4,0 mán.
4,0 mán.
3-5 mán.
7-8 mán.
2-3 mán.
IÖ1
DESIGNSInc.'
AMERISK RUM
í rúmunum eru hinar vönduðu amerísku Sioringwair
dýnur sem kírópraktorar mæla með. Þær eru byggðar
upp eftir MULTILASTIC PLUS kerfinu, sem tryggir jafnan
stuðning og beinan hrygg í svefni.