Morgunblaðið - 08.12.1993, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
—-i—r~r '-’.&t’ uvir;—v , t\ í i r u—
íslandsdeild Norðurlandaráðs
Elín Flygenring ráð-
in forstöðumaður
ELÍN P. Flygenring hefur verið ráðin forstöðumaður íslandsdeildar
Norðurlandaráðs með aðsetur í Reykjavík og tekur hún við stöð-
unni 1. febrúar nk. Elín var valin úr hópi fjörutíu umsækjenda. Hún
tekur við af Snjólaugu Ólafsdóttur sem gegnt hefur starfi forstöðu-
manns sl. ár og tekur nú til starfa á skrifstofu Norðurlandamála í
forsætisráðuneytinu.
Elín útskrifaðist úr lögfræðideild
Háskóla íslands 1982 og starfaði
sem framkvæmdastjóri Jafnréttis-
ráðs frá 1982 til 1986. Sama ár
hélt hún út til framhaldsnáms í
samanburðarlögfræði við Stokk-
hólmsháskóla þaðan sem hún út-
skrifaðist 1988. Að loknu námi hóf
Elín störf sem ritari menningar- og
menntamálanefndar Norðurlanda-
ráðs á forsetaskrifstofu ráðsins og
hefur starfað þar síðan.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Elín að henni þætti það ánægjulegt
að geta starfað áfram að norrænum
Flygenring
málefnum og nú á
íslandi eftir sjö
ára búsetu í Sví-
þjóð. „Ég hef séð
í starfi mínu hvað
ísland hagnast á
þessu samstarfi
við Norðurlöndin,
þrátt fyrir að
margir haldi öðru
fram,“ segir Elín,
„og hef þá trú að
við munum hagn-
ast enn frekar í framtíðinni eftir
því sem hin Norðurlöndin fara
meira úr í evrópskt samstarf.“
Utlánsvextir banka og sparisjóða
Meðalextir á I. II. III og IV. ársfjórðungi 1993
LANDSBANKI
ISLANDSBANKI
Raunvextir
óverötryggð ra
skuldabréfalána
BÚNAÐARBANKI
14% ■
Raunvextir
verðtryggðra
skuldabrefalána
SPARISJÓÐIR
Vextir á óverðtryggðum skuldabréfalánum mjög sveiflukenndir á árinu
Raunvextir hafa sveifl-
ast frá 7,6% í 13,3%
Agúst Þór Arnason
ritstýrir Tímanum
STJÓRN Mótvægis hf., útgáfufélags Tímans, hefur ákveðið að fela
Ágústi Þór Árnasyni ritstjórn blaðsins um stundarsakir. Þór Jóns-
son, fyrrverandi ritstjóri, sagði starfi sínu lausu á mánudag.
Ágúst hefur
sinnt starfi fram-
kvæmdastjóra
Tímans undanfar-
ið og mun gera
það áfram ásamt
Bjama Þór Ósk-
arssyni, sem situr
í stjórn Mótvægis
hf. Ágúst Þór sit-
ur einnig í stjórn
Mótvægis sem
varamaður. Aðspurður
Ágúst Þór
Arnason
um það
hvort þær breytingar sem gerðar
voru á Tímanum í ritstjóratíð Þórs
Jónssonar, m.a. hinar útlitslegu,
myndu halda sér sagði Ágúst að
gaman gæti orðið að fylgjast með
Tímanum á næstunni, það væri
aldrei að vita hvað gerðist, en vildi
ekki segja til um hvort hann ætti
þar við ritstjórnarlegar eða útlits-
legar áherslur. Hann sagði þó að
ritstjórnarstefnan yrði áfram óháð.
„Þetta verður mjög erfítt en alls
ekki vonlaust og í raun lít ég svo
á að hér sé um alvöru tilraun að
ræða. Allt tal um að þetta sé farið
aftur til Framsóknar er ekki rétt.
Hér eru bara stærstu hluthafarnir,
og Framsókn er þeirra á meðal,
að klára það verk sem hafíð var.
Nú verður gripið til þeirra aðgerða
sem eru nauðsynlegar til þess að
blaðið haldi áfram að koma út,“
sagði.Ágúst.
Nam réttarheimspeki
í Þýskalandi
Ágúst nam heimspeki auk lög-
fræði og stjórnmálafræði á árunum
1985—1988 við Die Freie Universi-
tát í Berlín og var í magisternámi
í réttarheimspeki við sama skóla
til 1990. Auk ritstarfa hefur Ágúst
verið fréttaritari fyrir Bylgjuna og
Ríkisútvarpið og síðar fréttamaður
á Ríkisútvarpinu. I byrjun næsta
árs kemur út bók eftir Ágúst um
mannréttindi. Hún er gefin út á
vegum Rauða krossins, Amnesti
International, Bamaheilla, þjóð-
kirkjunnar, menntamálaráðu-
neytisins og Námsgagnastofnunar.
RAUNVEXTIR á óverðtryggð-
um skuldabréfalánum banka og
sparisjóða hafa verið mjög
sveiflukenndir á árinu og hafa
sveiflast frá því að vera lægstir
7,6% hjá Landsbankanum að
meðaltali á þriðja ársfjórðungi í
það að vera hæstir 13,3% hjá ís-
landsbanka á öðrum ársfjórðungi
ársins. Raunar er útlit fyrir að
raunvextir verði litlu lægri á síð-
asta ársfjórðungi ársins hjá inn-
lánsstofnunum miðað við að vext-
ir verði óbreyttir út árið og áætl-
aða hækkun lánskjaravísitölu í
desember eða á bilinu 12,3% í
Landssbanka í 12,9 til 13% hjá
sparisjóðunum, Búnaðarbanka
og Islandsbanka.
Að teknu tilliti til hækkunar láns-
kjaravísitölu kemur í ljós að raun-
vextir óverðtryggðra skuldabréfal-
ána hjá Búnaðarbanka og íslands-
banka eru á öllum ársfjórðungum
ársins hærri en vextir á verðtryggð-
um lánum, en raunvextir óverð-
tryggðra skuldabréfalána hjá
Landsbankanum og sparisjóðunum
fara niður fyrir vexti á verðtryggð-
um lánum á þriðja ársfjórðungi eins
og meðfylgjandi línurit ber með
sér. í upphafí ársins eru vextir
óverðtryggðra skuldabréfa tæpu
prósentustigi hærri en vextir á verð-
tryggðum lánum. Þessi munur vex
verulega og verður um 3.prósentu-
stig á öðrum ársfjórðungi hjá öllum
innlánsstofnunum. Á þriðja árs-
fjórðungi fylgja nafnvextir íslands-
Nýr aðili tekur við rekstri útvarpsstöðvarinnar FM 957
Lögbanns krafíst vegna vangold-
inna höfundarréttargreiðslna
NÝR aðili, TT-ráðgjöf hf, tók í gær við rekstri útvarpsstöðvarinn-
ar FM 957 af hlutafélaginu Útvarpsmiðlun. Hjá embætti sýslu-
mannsins i Reykjavík Iiggur beiðni sem ætlunin var að úrskurða
úm á morgun frá Stefi, Samtökum tónskálda og eigenda flutnings-
réttar, um lögbann við þvi að FM 957 sendi út tónlist sem háð
er ákvæðum höfundarréttar. Að sögn Eiríks Tómassonar hrl,
Iögmanns Stefs hefur Útvarpsmiðlun ekki staðið skil á höfundar-
réttargreiðslum allt þetta ár og nema vanskilin milljónum króna.
Sverrir Hreiðarsson fráfarandi framkvæmdastjóri FM 957 sagði
við Morgunblaðið í gær að Útvarpsmiðlun hf yrði tekin til gjald-
þrotaskipta þann 15.desember. Þá verður tekin fyrir í Héraðs-
dómi gjaldþrotaskiptakrafa Sambands flytjenda og hljómplötuút-
gefenda. Að sögn Hróbjarts Jónatanssonar hrl, lögmanns SFH,
skuldar Útvarpsmiðlun hf sambandinu 3-4 milljónir króna í rétt-
hafagreiðslur.
Sverrir Hreiðarsson sagði að
sér og Útvarpsmiðlun hf væri
rekstur FM 957 nú alveg óvið-
komandi og væntanlegt gjaldþrot
Útvarpsmiðlunar ætti á engan
hátt að snerta rekstur FM 957.
Hann kvaðst telja víst að TT-ráðg-
jöf hf hefði fengið útvarpsréttar-
leyfí hjá útvarpsréttamefnd og
heimild til útsendinga hjá Pósti
og síma. Sverrir sagði að Útvarps-
miðlun hefði skilað inn senditíðni
sinni og leyfi til útvarpsrekstrar.
Tækin seld og leigð
Hann sagði að hlutafélagið
Höndull hefði með samningi í
september sl keypt af Útvarps-
miðlun þau tæki sem notuð eru
við útsendingar hjá FM 957 og
leigt þau fyrirtækinu aftur. Nú
hefði TT-ráðgjöf væntanlega ann-
að hvort keypt eða tekið þau tæki
á leigu. Útvarpsmiðlun tók við
rekstri FM 957 1. nóvember 1992
af fyrirtækinu Fijálsum miðli hf,
sem var í eigu skyldra aðila.
Hvorki náðist í gær tal af Karli
Ragnarssyni, forsvarsmanni TT-
ráðgjafar, í gær né talsmanni út-
varpsréttarnefndar.
Eiríkur Tómasson hrl, sagði við
Morgunblaðið í gær, áður en frétt-
ist um breytingar á rekstri stöðv-
arinnar, að lögbannskrafa Stef
miðaðist við að lagt yrði bann við
því að FM 957 yrði bannað að
útvarpa tónlist sem háð er höfund-
arrétti. Flutningur allrar tónlistar
er háður höfundarrétti nema
meira en 50 ár séu frá andláti
höfundar.
Útlánsvextip 1. júlí tH 1. janúan
Mismunun_______Mismuuur:
*Meðalvextir. Miðað er við lánskjaravfsitölu, 3351 (janúar, og óbreytta vexti úl árið.
banka og Búnaðarbanka þeirri
verðbólgusveiflu sem varð á þriðja
ársfjórðungi í kjölfar gengisfelling-
arnar á sama tíma og vextir óverð-
tryggðra lána verða lægri en verð-
tryggðra hjá Landsbanka og spari-
sjóðunum. Á síðasta ársfjórðungi
eykst bilið aftur og til viðbótar kem-
ur að raunvextir á verðtryggðum
lánum lækka í kjölfar aðgerða
stjórnvalda til að lækka vextina.
Samaburður á vöxtum
Ef bornir eru saman vextir á
verðtryggðum og óverðtryggðum
lánum hjá hverri innlánsstofnun
fyrir sig á síðari hluta ársins frá
1. júlí til 1. janúar kemur í ljós að
vaxtakostnaður af verðtryggðu láni
er í öllum tilfellum lægri. Minnstur
er munurinn hjá Landsbankanum
1,3 prósentustig en mestur hjá ís-
landsbanka 2,5 prósentustig. Mis-
munur hjá sparisjóðunum er 1,5
prósentustig og mismunurinn hjá
Búnaðarbanka 2,2 prósentustig.
Rúmum þremur pósentustigum
munar á vöxtum hagstæðasta verð-
tryggða lánsins og óhagstæðasta
óverðtryggða lánsins. Forsendur
eru þær að vextir breytist ekki á
þeim tveim vaxtabreytingardögum
sem eftir eru á árinu og að láns-
kjaravísitala 3351 gildi í janúar.
Ef 100 þúsund króna skulda-
bréfalán hefði verið tekið um mitt
ár og borgað niður nú um áramótin
hefði vaxtakostnaðurinn verið
lægstur á verðtryggðu láni í Lands-
banka 6.476 krónur en hæstur á
óverðtryggðu láni í íslandsbanka
8.165 krónur. Munurinn er rúmar
1.700 krónur. Vaxtakostnaður af
verðtryggðu láni er lægri en á
óverðtryggðu hjá öllum bönkunum.
Munurinn er minnstur í Lands-
banka 779 krónur, næstminnstur í
sparisjóðunum 859 krónur, 1.209
krónur í Búnaðarbankanum og
mestur í íslandsbanka 1.362 kr.
KK-band nær sáttum
við Skífuna og Spor
STJÓRN Skífunnar hf. og KK-band sendu frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem segir að þessir aðilar harmi „þá atburði sem átt hafa sér
stað undanfarna daga og lýsa því hér með yfir að á milli þeirra sé
engin ágreiningur. Jafnframt vill stjórn Skífunnar hf. árétta að félag-
ið vill gott samstarf við alla tónlistarmenn um útgáfu þeirra.“ Und-
ir þetta rita Kristján Kristjánsson fyrir hönd KK-bands og Jón Ólafs-
son, stjórnarformaður Skífunnár, en KK-band stöðvaði sölu á plötu
sinni til verslanna Skífunnar og Spors fyrir skömmu vegna ágrein-
ings um uppstillingu hennar í búðunum. Að sögn Steinars Bergs
ísleifssonar mun Spor hf. senda frá sér samhljóða tilkynningu I dag.
Steinar Berg kveðst vona að um
fullar sættir sé að ræða og segist
telja að uppákoma sú sem hafi átt
sér stað hafi ekki verið neinum til
framdráttar. Aðspurður um hvort
þessar sættir þýði að jafn vel verði
gert við hljómplötur óháðra útgef-
enda í verslunum Spors hf. og út-
gáfu fyrirtækisins, segir Steinar að
smásala lagi sig að þeirri eftirspurn
sem myndist í markaðinum. „Við
munum að sjálfsögðu gera það sem
við höfum alltaf gert, sem er það
að þær plötur sem ganga vel njóta
’einhvers umfram aðrar. Krafan um
það að plötur sem ekki ganga vel
eigi að frá sérstaka útstillingu
gengur einfaldlega ekki upp. Við
munum vinna með fólki til að finna
lausnir og viljum ekki að neinn sé
óánægður en viljum heldur ekki að
neinar óraunhæfar væntingar séu
í gangi.“