Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
27
Fyrsta sending Nýja bautabúrsins til Japans
Um 70 hross pönt-
uð fram til jóla
NÝJA bautabúrið sendi í gær frá sér sína fyrstu sendingu af
hrossakjöti á Japansmarkað, en kjötið verður komið á markað þar
á föstudagsmorgun.
Sævar Hallgrímsson einn eig-
enda Nýja bautabúrsins sagði að
fyrir lægju pantanir á hrossakjöti
á þennan markað fram til jóla, en
Japanir pöntuðu slíka vöru ekki
langt fram í tímann. „Við erum
að vona að framhald verði á þess-
um viðskiptum eftir áramótin og
út febrúarmánuð," sagði Sævar.
Fram til jóla er áætlað að selja
kjöt af um það bil 70 hrossum,
en um er að ræða svokallaðar
„pístólur“, það er læri með hrygg-
lengjunni og er kjötið úrbeinað hjá
fyrirtækinu.
Fyrsta sendingin fór af stað frá
Akureyri síðdegis í gær, um 700
kíló sem ekið var með í gærkvöld
og nótt beint á Keflavíkurflugvöll
þar sem það var sett í flugvél, en
hún flaug í býtið til Lundúna. Þar
í borg var þessum fyrrverandi fák-
um komið fyrir í sérstakri flutn-
ingakælivél sem flogið var til Jap-
ans. „Pístólunum“ er síðan komið
á markað þar í landi og átti Sæv-
ar von á að væntanlegum við-
skiptavinum byðist þetta fitu-
sprengda akureyska hrossakjöt á
markaðnum hjá sér á föstudags-
morgun.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hrossakjöt til Japans
NÝJA bautabúrið sendi síðdegis í gær frá sér fyrsta farminn af
hrossakjöti á Japansmarkað og var ekið með það til Keflavíkur í
nótt, millilent í Lundúnum og síðan haldið austur á bóginn, en kjötið
á að vera til sölu á mörkuðum snemma á föstudagsmorgun.
Miðstöð fólks í atvinnuleit
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
verður með fjölbreytta dagskrá á
dag, en hún hefst kl. 15.00.
Jóhanna Valdimarsdóttir sem er
talsmaður samstarfshópsins „Hag-
ar hendur“ í Eyjafjarðarsveit mun
kynna starfsemi hópsins og hafa
sýnishorn meðferðis af þeim verk-
um sem unnin hafa verið á liðnum
mánuðum.
Þá mun Viðar Eggertsson leik-
hússtjóri kynna vetrarstarf Leikfé-
samverustundinni í dag, miðviku-
lags Akureyrar og spjalla við þátt-
takendur, en félagið hefur áður
lagt starfi Miðstöðvarinnar gott lið.
Ýmsar upplýsingar liggja
frammi og kaffi og brauð verður
á borðum eins og áður. Allir sem
misst hafa vinnu eru hvattir til að
mæta og nýta sér það sem í boði er.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Niðurstaðan kynnt
BJÖRGOLFUR Jóhannsson fjármálastjóri ÚA, Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri, Halldór Jónsson
formaður sljórnar fyrirtækisins og Erlingur Sigurðarson stjórnarmaður kynntu niðurstöðu fundar með
þýsku Einkavæðingarnefndinni í Berlín í gær.
Einkavæðingarnefndin tekur ekki þátt í taprekstri MHF
Hluthafarnir skoða til
hvaða ráða verður gripið
HLUTHAFAR þýska útgerðarfyrirtæksins Mecklenburger Hoch-
seefischerei, MHF, munu á næstu dögum skoða til hvað ráða
verður gripið í kjölfar mikils halla á rekstri félagsins á síðustu
mánuðum. Útgerðarfélag Akureyringa á meirihluta í félaginu
á móti þýskum aðilum og héldu forráðamenn þess fund með
Einkavæðingarnefndinni, Trauhandanstalt, í Berlín í Þýskalandi
á mánudag þar sem þeir gerðu nefndinni grein fyrir þeim vanda
sem félagið á við að etja eftir að áætlanir um rekstur þess hafa
brugðist. Einkavæðingarnefndin var ekki til viðræðu um að
taka þátt í taprekstri félagsins eins og vænst hafði verið.
Á fundi með Einkavæðingar-
nefndinni á mánudag var ákveðið
að framkvæmdastjórn þýska fé-
lagsins og fulltrúar Mecklenburg-
Vorpommern fylkis myndu fara í
saumana á rekstri þess og var þeim
falið að ganga frá greiðslu- og
rekstraráætlun félagsins fyrir
næsta ár. „Málið er til frekari
vinnslu hjá hluthöfunum og í fram-
haldi af þeirri vinnu skýrist væntan-
lega til hvaða ráða verður gripið í
sambandi við rekstur þessa þýska
félags,“ sagði Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa á fundi með blaða-
mönnum í gær.
Hurðum ekki skellt
„Það er vilji allra að málin skýr-
ist sem fyrst,“ sagði Halldór Jóns-
son formaður stjórnar ÚA. Hann
sagði Einkavæðingarnefndina ekki
hafa lokað á frekari viðræður
nefndarinnar og hlutahafa MHF,
en á grundvelli þeirrar rekstrar-
áætlunar sem fyrir liggur að gera
fyrir næsta ár yrði hægt að taka
málið fyrir að nýju. „Þó svo þeir
hafi svarað því þannig til á okkar
fundi á mánudag að þeir beri ekki
ábyrgð á taprekstri félagsins þá er
það ekki þannig að skellt hafi verið
hurðum á einn eða neinn,“ sagði
Halldór.
Hlutur ÚA ekki tapaður
Þrátt fyrir að mikið tap hafi ver-
ið á rekstri MHF síðustu mánuði
sagði Halldór að ekki mætti líta svo
á að peningum Útgerðarfélags Ak-
ureyringa væri kastað á glæ. ÚA
hefði keypt 60% hlut í félaginu á
240-50 milljónir króna, reikna
mætti með að tap félagsins á árinu
yrði 7,5 milljónir marka og eigið
fé þess þá komið niður í 22-23
milljónir marka í árslok úr tæpum
30 milljónum marka. Hlutdeild ÚA
í bókfærðu eigin fé fyrirtækisins
yrði á bilinu 900 til 1.000 milljónir
íslenskra króna sem á sínum tíma
hefðu verið greiddar um 250 millj-
ónir króna fyrir. „Ég sé því ekki
með hvaða rökum hægt er að halda
því fram að hlutur ÚA í þessu fyrir-
tæki sé tapaður," sagði Halldór og
bætti við að áætlað væri að staðan
í árslok yrði þannig að bókfært eig-
ið fé fyrirtækins væri meira en tvö-
falt það verðmæti sem Útgerðarfé-
lag Akureyringa kæmi til með að
borga fyrir sinn hlut.
Fram kom í máli Gunnars að það
væri ásetningur ÚA að reka félagið
áfram og væri verið að vinna að
ýmsum málum til að úrbóta, ís-
lenskur framkvæmdastjóri, Ingi
Björnsson, hefur störf um áramótin
og þá sagði hann að mikil vinna
að markaðsmálum að undanförnu
væri að skila árangri.
----♦ ♦ ♦----
Fyrirlestur um
atvinnumissi
Hermann Oskarsson félagsfræð-
ingur talar um atvinnumissi og við-
brögð fólks við slíkum missi í fyrir-
lestri sem hann heldur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 9. des-
ember kl. 20.30. Allir eru velkomn-
ir á fyrirlestur Hermanns.
SMÁKÖKUR
Œtc/ttu* ftr
i /ntfai*- oy
oúf/t/((//)( AB
ÍO 0:1
! O Z
7- :
o
: 0:-
7% 7?,:
70 70 ■
SMAATRIÐI SEM SKIPTA SKOPUM I MATARGERÐ
Smákökur inniheldur uppskriftir allt frá einföldum hafrakexkökum til glæsilegs sætabrauðs.
I bókinni eru yfir 100 uppskriftir (allar með myndum sem lýsa aðferðinni lið fyrir lið).
Sósur hefur að geyma nákvæmar leiðbeiningar um sósugerð, hvort heldur
algengar sósur, salatsósur eða eftirréttasósur.
Pönnukökur og eggjakökur setur fram girnilegar hugmyndir að áleggi og
fyllingum ásamt úrvali einstæðra uppskrifta að sætum og ósætum eggjakökum
víðsvegar að úr heiminum.
Salatsósur og kryddlegir qæða matinn spennandi
bragði og gera hann eftirsóknarveroan. Einstætt safn liðlega 100
uppskrifta sem allar eru glæsilega myndskreyttar.
ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF