Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 28
< - ■
MAJÍIVfTiíígOM
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Framkvæmdaráð allra kynþátta Suður-Afríku tekur til starfa
Fær neitunarvald í ýmsum
rnálum fram að kosningum
Höfðaborg. Reuter.
FRAMKVÆMDARÁÐIÐ, TEC, sem annast skal undirbúning og
framkvæmd lýðræðislegra kosninga með þátttöku allra kynþátta
í Suður-Afríku, tók til starfa í Höfðaborg í gær. Sljórn F.W. de
Klerks forseta mun sitja fram að kosningunum sem verða 27.
apríl en TEC mun hafa mikil áhrif og í sumum tilvikum neitunar-
vald á sviðum landvarna, löggæslu, fjármála og utanrikismála.
Samið hefur verið um að samsteypustjórn kynþáttanna verði við
völd fyrstu fimm árin eftir kosningar.
Deila völdum
PRAVIN Gordhan (t.h.) og Dawie de Villiers, formenn Framkvæmda-
ráðsins nýja i Suður-Áfríku, á fyrsta fundi ráðsins í gær.
„Nöfnin“
neita boði
Lloyds
NÖFNIN svonefndu, sem bera
ótakmarkaða sjálfskuldar-
ábyrgð hjá Lloyds tryggingafé-
laginu neituðu í gær boði fyrir-
tækisins um 900 milljóna punda
greiðslu til þeirra sem töpuðu
fjármunum vegna tapreksturs
Lloyds. Boðið var háð því að
nöfnin, um 17.000 talsins, féllu
frá málsókn á hendur Lloyds
vegna tapsins, sem nam um 5,5
milljörðum punda.
Friðhelgi
Tapie afiétt
FRANSKA þingið samþykkti í
gær að aflétta friðhelgi Bern-
ards Tapie, fyrrverandi ráð-
herra, sem þ'ingmanns svo
hægt yrði að sækja hann til
saka fyrir meint fjármálamis-
ferli. Tillagan var samþykkt
með 432 atkvæðum gegn 72.
Forseti
Fílabeins-
strandarinnar
látinn
FELIX Huophouet-Boigny, for-
seti Fílabeinsstrandarinnar,
lést í gær, 88 ára að aldri.
Hafði hann setið lengst allra
Afríkuleiðtoga á forsetastóli,
frá árinu 1960. Banamein Hu-
ophouet-Boigny var krabba-
mein. Óvíst er hver tekur við
af honum.
Líffæradeila
leyst
DEILA ríkisspítalans í Kaup-
mannahöfn og sjúkrahússins í
Árósum um líffæraígræðslur
hefur nú verið leyst. Mikil sam-
keppni um ígræðslumar var á
milli sjúkrahúsanna og brigsl-
uðu yfirlæknar í líffæraflutn-
ingum hvor öðrum um van-
hæfni í starfi, m.a. að eyði-
leggja líffæri er þau væru fjar-
lægð úr líffæragjöfum. Nú hef-
ur verið ákveðið að líffæri verði
ekki flutt á milli landshluta,
heldur komi líffæri frá Jótlandi
Jótum til góða á Árósaspítala
en Kaupmannahafnarspítali
sjái um Sjáland og Fjón.
Friðarviðræð-
ur við Sýrlend-
inga í janúar?
ÍSRAELAR sögðu í gær að
Sýrlendingar væru reiðubúnir
að taka þráðinn upp að nýju í
tvíhliða friðarviðræðum. Lögðu
bandarískir og ísraelskir emb-
ættismenn til að viðræðumar
hæfust í janúar en þær hafa
legið niður í fjóra mánuði. í
einu opinberra málgagna Sýr-
landsstjómar sagði í gær að
ísraelar yrðu að falla frá kröf-
um um Gólanhæðir áður en
viðræður gætu hafist. Warren
Christopher, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna er á ferð um
Mið-Austurlönd og hefur átt
viðræður við Sýrlendinga og
ísraela.
Banda aftur
til valda
ÚTVARPIÐ í Malaví sagði í
gær frá því að Kamuzu Banda,
forseti landins hefði tekið við
völdum á nýjan leik. Þriggja
manna ráð hefur farið með
stjóm landsins þar sem Banda
gekkst undir heilauppskurð
fyrr á árinu. Hann er á tíræðis-
aldri.
„Koma okkar hingað merkir að
við erum búin að dauðhreinsa
þennan sal af gamla fnyknum,“
sagði Cyril Ramaphosa, fram-
kvæmdastjóri Afríska þjóðarráðs-
ins, ANC, er ráðið koma saman.
Dawie de Villiers er einn af ráð-
hermm Þjóðarflokksins er setti
aðskilnaðarstefnuna í lög þegar
flokkurinn náði völdum 1948 en
nam hana úr gildi síðustu þrjú
árin undir forystu de Klerks. De
Villiers var ekki jafn skáldlegur.
„Þetta em endalok minnihluta-
stjómarinnar", sagði hann.
Alls eiga 19 flokkar fulltrúa í
TEC, þar á meðal ANC sem er
undir forystu Nelsons Mandela og
Þjóðarflokkur F.W. de Klerks. Ink-
París. Reuter.
í ÞVÍ stríði, sem nú stendur
um GATT-samningana, berst
franska stjórnin á þrennum
vígstöðvum, við Bandaríkin,
önnur aðildarríki Evrópu-
bandalagsins og almennings-
álitið í Frakklandi, og tilgang-
urinn er sá að tryggja sem
best sérhagsmuni Frakka.
Hefur henni í raun tekist að
notfæra sér reiði franskra
bænda til að styrkja stöðu sína
við samningaborðið og þótt
margir frammámenn í öðrum
EB-ríkjum séu henni reiðir, þá
geta þeir' ekki að sér gert en
dást að henni um leið.
„Frakkar hafa sýnt mikla
kænsku við að neyða Bandaríkja-
menn til að endurskoða landbún-
aðarkaflann og. hræða félaga
sína innan EB og þeir hafa æst
svo upp almenningsálitið í Frakk-
landi, að Frakkar eru reiðubúnir
að sætta sig við hvora niðurstöð-
una sem er, samning eða ekki
samning," sagði einn evrópsku
samningamannanna í GATT-við-
ræðunum en hann bætti við, að
hætta væri á, að þeir gengju of
langt.
Kröfur í allar áttir
Að sögn þessa samninga-
manns eru aðferðir Frakka í því
fólgnar að þvinga EB til að ná
því fram, sem hægt er, gagnvart
Bandaríkjunum og krefjast þess
um leið, að önnur EB-ríki bæti
frönskum bændum það upp, sem
ekki er hægt að heija út úr
Bandaríkjamönnum. Um leið er
þessi aðferð vel fallin til að sýna
almenningi í Frakklandi, að
stjómin berjist um hvern þuml-
ung lands ef svo má segja og
það er líka nauðsynlegt eigi henni
að takast að fá þingið til að sam-
þykkja hugsanlega GATT-samn-
inga.
atha-frelsishreyfingin, sem zúlú-
leiðtoginn Mangosuthu Buthelezi
stjórnar, hafnaði þátttöku í ráðinu
en Buthelezi vill að Suður-Afríka
verði sambandsríki þar sem hvert
hérað hafí mikla sjálfsstjórn í eig-
in málum. Sama sinnis eru margir
hægrisinnar meðal hvítra og öfga-
menn úr þeirra röðum vilja stofna
sérstakt ríki hvítra, skipta landinu
milli kynþáttanna.
Fyrstu hvítu landnemarnir sett-
ust að í Höfðaborg fyrir 341 ári
og komu þeir frá Hollandi; afkom-
endur Hollendinganna nefnast nú
Búar en þriðjungur hvítra er af
breskum stofni. Kynblendingar og
Asíumenn fengu takmarkaðan
Jean Puech, landbúnaðarráð-
herra Frakklands, skýrði frá
þessari stefnu frönsku stjórnar-
innar í útvarpsviðtali í gær. Sagði
hann, að nú væri það komið und-
ir öðmm EB-ríkjum að ábyrgj-
ast, að ræktun yrði ekki hætt á
einum einasta hektara lands og
nautgriparæktendur sköðuðust
ekki á GATT-samningunum.
Þessar ábyrgðir yrðu að liggja
fyrir samhliða samningunum.
Kenna Bandaríkjunum um
Þverðmóðska Frakka hefur
borið þann árangur, að Banda-
ríkjamenn hafa tekið upp Blair
House-samkomulagið um land-
búnaðarmálin og gefið verulega
eftir hvað varðar niðurgreiðslur
kosningarétt fyrir nokkrum árum
en svertingjar fá að kjósa í fyrsta
sinn í í sögu landsins í apríl. Þeir
eru fjórum sinnum fleiri en hvítir
á korni, nautakjöti, kjúklingum
og mjólkurafurðum en samt sem
áður sagði Alain Juppe, utan-
ríkisráðherra Frakka, í gær, að
þeir gætu ekki fallist á Iandbún-
aðarsamninginn og sakaði
Bandaríkjamenn um að standa í
vegi fyrir árangri.
Embættismenn Evrópubanda-
lagsins í Brussel segja, að Frakk-
ar hafi náð miklu fram en nú
verði þeir að fara varlega, eigi
þeir ekki að ganga fram af félög-
um sínum í EB. Segja þeir, að
Þjóðveijar hafi mikinn vara á sér
og ætli sér ekki að láta Frakka
teyma sig út í hatursáróður gegn
Bandaríkjunum eða baráttu fyrir
aukinni vemdarstefnu.
menn en skiptast í allmargar þjóð-
ir og eru zúlúmenn og xhosar, sem
einkum styðja ANC, stærstar
þeirra.
Brandenburg
PDSvarð
íöðrusæti
Bonn. Reuter.
FLOKKUR fyrrum austur-
þýskra kommúnista, PDS, varð í
öðru sæti í kosningum í sam-
bandslandinu Brandenburg í
austnrhluta Þýskalands um helg-
ina. I frétt Morgunblaðsins í gær
sagði að PDS hefði orðið í þriðja
sæti og flokkur kristilegra demó-
krata (CDU) í öðru sæti. Þegar
öll atkvæði höfðu verið talin kom
hins vegar hið gagnstæða í ljós.
Lokaniðurstöður kosninganna
eru þær að Jafnaðarmannaflokkur-
inn fékk 34,5% atkvæða, PDS
21,2% atkvæða og CDU 20,5% at-
kvæða.
Kristilegir demókratar fara með
völd í þremur sambandslöndum í
austurhluta Þýskalands, Mecklen-
burg-Vorpommern, Thúringen og
Sachsen-Anhalt. Eru taldar yfir-
gnæfandi líkur á að þeir muni tapa
kosningum í þeim öllum á næsta ári.
--------♦ ♦ ♦----
Skáti er
ekki guð-
leysingi
Washingion. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
kvað upp þann úrskurð á mánu-
dag, að skátahreyfingin hefði
leyfi til að vísa burt tíu ára göml-
um dreng, sem neitaði að viður-
kenna, að hann hefði skyldum
að gegna við guð almáttugan.
Dómurinn felur í sér, að alríkislög
um bann við trúarlegri mismunun
taka ekki til skátanna. Allt frá
stofnun skátahreyfingarinnar fyrir
86 árum hefur nýjum félögum ver-
ið gert að sveija eið og lofa að reyna
af fremsta megni að gera skyldu
sína við guð.
Fyrir fjórum árum sagði hins
vegar maður nokkur þegar hann
sótti um inngöngu í skátafélag fyr-
ir tíu ára gamlan son sinn, að þeir
feðgarnir væru guðleysingjar og því
gæti strákurinn ekki lofað guði
neinu.
Fellur GATT á hags-
munabaráttu Frakka?
Krefjast auk þess bóta til bænda frá öðrum EB-ríkjum
„Framleiðsla föðurlandsins“
BÆNDUR eru víða mjög andvígir nýjum GATT-samningi um
aukin heimsviðskipti og hafa þeir mótmælt honum með ýmsum
hætti. Hér eru bændur í Suður-Kóreu að mótmæla, klæddir í
útfararklæðnað eins og hann tíðkast þar i landi, en á spjöldunum
eru skráð nöfn á ýmissi framleiðslu eða landbúnaðarafurðum
föðurlandsins. Bændur í Suður-Kóreu og Japan óttast einkum,
að hrísgijónamarkaðurinn í löndunum verði opnaður fyrir inn-
flutningi.