Morgunblaðið - 08.12.1993, Page 35
MQRGVNBI4mÐ MI9yiWPAWBt8„pES^E^,A^3
Selt fyrir 1,5 milljarða
eftir Eirík Ólafsson
„Hungurmörk, það er ekki hægt
að skerða okkur meira, við erum
komnir niður fyrir hungurmörk.“
Eða: „Það er alltaf ráðist á garð-
inn þa_r sem hann er lægstur.“
Eða: „Á að leggja litlu plássin eins
og Grímsey, Bakkafjörð eða Borg-
arfjörð eystri í eyði?“
Þessi slagorð hafa verið notuð
af smábátamönnum í gegnum tíð-
ina. Þessi slagorð hafa verið notuð
af hluta smábátamanna sl. tvö ár,
þ.e. af svokölluðum krókaleyfis-
mönnum. Þetta eru þau slagorð
sem „lobbýistar" trillukarla á Al-
þingi létu syngja í eyrum alþingis-
manna, þar til þeir létu blekkjast
við setningu laga um stjórn fisk-
veiða síðustu þijú skiptin. Trillu-
karlar eru þeir einu sem hafa gert
út „lobbýista“ á kerfisbundinn
hátt á Alþingi Islendinga og það
með góðum árangri.
Hungurmörk
Það verður að segjast eins og
er að einu bátarnir sem ekki hafa
verið skertir niður í eða niður fyr-
ir hungurmörk eru krókaleyfisbát-
ar. Allir smábátar sem hafa kvóta,
allir stærri bátar og allir togarar
eru komnir niður fyrir hungur-
mörk. Enda hafa menn neyðst til
að sameina veiðiheimildir sínar.
Fólk má ekki halda, þótt lítið heyr-
ist, að þessar miklu aflaskerðingar
komi ekki við eigendur eða sjó-
menn á áðurnefndum skipum.
Æðruleysi og að taka því sem að
höndum ber virðist vera þeirra
mottó.
Lög
Til hvers er verið að setja lög?
Til hvers er verið að setja tíma-
bundna aðlögun í lög? Við setningu
laga um stjórn fiskveiða fyrir
þremur árum var tekið sérstakt
tillit til félags smábátamanna og
opnað fyrir sóknarmark á þann
hóp smábáta sem ekki valdi sér
aflamark á báta sína. Þeir bátar
sem völdu sér sóknarmark (króka-
leyfi) lögðu aflaheimildir sínar í
einn pott og áttu síðan að keppa
um skiptingu úr þessum potti.
Allflestir trillukarlar sem hafa
haft atvinnu af sjósókn á litlum
bátum til margra ára völdu sér
aflamark og þá er búið að skerða
niður að hungurmörkum. Sumir
sem völdu sér aflamark seldu það
fyrir mikinn pening, og keyptu sér
krókaleyfisbát, þó að viðkomandi
hafi vitað fyrirfram að það væri
vonlaust að gera þann bát út eftir
að búið væri að skipta kökunni
sem krókaieyfisbátar eiga í heild-
arþorskaflamarkinu. Þá var
ákveðið að nota sömu slagorðin
og sama áróðurinn sem gafst svo
vel við að blekkja þingmennina.
Verst af öll þykir mér ef hið
háa Alþingi ætlar að færa ákveðn-
um mönnum á silfurfati hluta af
sameign þjóðarinnar til að selja í
jafnvel þriðja skiptið. Þarna á ég
við að menn sem áttu rúmlega tíu
tonna bát, þegar þeir gátu selt
sitt aflamark gerðu þeir það og
keyptu sér miklu stærri bát sem
var aðeins 9,9 tonn. Á þennan bát
öfluðu þeir sér aflareynslu á kostn-
að stærri skipa. Við breytingu á
lögum fengu þeir úthlutað afla-
mark og seldu það og keyptu sér
krókaleyfisbát sem þeir vilja núna
hafa fijálsa sókn á, eða fá úthlut-
að aflamarki til að geta selt það
í þriðja sinn.
Selt fyrir 1,5 milljarða
Smábátar fengu úthlutað af
aflamarki 1990 sem nam u.þ.b.
14,34% af úthlutuðum þorski. Þeir
hafa nú þegar selt 30% af því til
stærri skipa. Margir þeirra sem
seldu þessar aflaheimildir keyptu
sér aflóga trillur uppi á kambi og
úreltu þær í stað nýs báts og róa
nú fijálst á krókaleyfi. Þessir
frekjuhundar vilja nú áfram fá að
róa fijálst þegar búið er að skerða
aðra sem hafa þurft að lúta lögum
um stjórn fiskveiða um meira en
60% af þorskaflaheimildum. Eins
og fram kemur annars staðar í
greininni hafa þeir þegar selt
u.þ.b. 4,37% af heildarþorskafla-
marki, sem er 32% meira en þeir
hefðu átt að fá úhiutað, ef sama
hefði gengið yfir þá aðra. Þetta
Eiríkur Ólafsson
„Verst af öllu þykir mér
ef hið háa Alþingi ætlar
að færa ákveðnum
mönnum á silfurfati
hluta af sameign þjóð-
arinnar til að selja í jaf-
vel þriðja skiptið“.
hafa þeir selt fyrir 1,5 til 2 millj-
arða, og hveijir hafa borgað brús-
ann?
Ef þetta er réttlæti, þá veit ég
ekki hvað er réttlæti.
Krabbamein í kerfinu
Árið 1983 þegar kvótinn var
settur á, voru ýmis mein í kerfinu.
Það var reynt að skera þau úr
áður en þau yrðu illkynja. Það
hefur tekist að miklu leyti, þó svo
að margir á Alþingi hafi barist á
móti þeim lækningum. Enn
„grassera tvö mein“, annars vegar
tvöföldunin á línu í nóvember til
febrúar og hins vegar stóra mein-
&
ið, fijáls veiði smábáta, sem hefur
verið illkynja frá upphafi og ekk-
ert ráðist við, og lítur út fyrir að
það mein komi kerfinu fyrir katt-
arnef fyrr en seinna. Smábátar
höfðu 3,3% af heildarþorskafla á
viðmiðunarárunum.
Frá 1983 til ársins 1990 tókst
smábátum að auka aflahlutdeild
sína um 330%, auðvitað á kostnað
togara og stærri báta. Árið 1990
þegar átti að skera þetta illkynja
mein úr kerfinu, og setja öll skip
á aflamark grétu þessir menn út
breytingu á frumvarpinu. Það var,
að það væri fijálst val fyrir báta
undir sex tonnum að taka afla-
mark samkvæmt veiðireynslu ár-
anna á undan eða að setja sitt
aflamark í pott sem þeir bátar
mundu keppa um hlutdeild í. Þessi
pottur er tæplega 2,2% af heildar-
aflamarki þorsks. Það fór eins og
manni grunaði að gömlu bátarnir
sem stóðu uppi á kambi voru úrelt-
ir, fyrir aðra nýja hraðskreiða og
afkastamikla vélvædda krókabáta.
Og ekki var langt liðið á árið 1991
þegar þessir krókaleyfiskarlar
fóru að tala um óréttlæti laganna.,
það ætti að skera þá af o.s.frv. Á
síðasta fiskveiðiári veiddu króka-
leyfisbátar 450% meira en þeir
fengu úthlutað, og á kostnað
hverra? Allra sem hafa aflamark,
báta og togara sem hafa verið
skertir niður í 40% af þeim heim-
ildum sem þeir fengu úthlutað
fyrir fimm árum.
Læknirinn
Flestir læknar myndu reyna að
skera meinið í burtu, en yfir-
læknirinn, „sjávarútvegráðherr-
ann“, leggur til að meinið verði
áfram til staðar. Það á ekki að
skera það í burtu eins og lögin
gera þó ráð fyrir. Það á að leggja
fram lagabreytingu til að viðhalda
meininu.
Höfundur er formaður Útvegs-
mannafélags Austfjarða.
Duxinn kemur
í næstu viku ...
Líf Og list Karól ínu Lárusdóttur
í dag, miðvikudaginn 8. desember frá kl. 16 -18,
í bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18.
mmSSM
mmmmm
Ath! Sendum elnnuji
dritadar bœkur Cpódtkröfu
iMJJJJt
1U4uiInh1
Máls og menningar
LAUGAVEGI 18, SÍMI (91) 24240
Karólína Láriuidóttir og Jónína MichaeUdóttir árita bók oína: