Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Pólitískur hrá-
skinnsleikur
eftir Ólaf
Steingrímsson
í Morgunblaðinu laugardaginn
13. nóvember birtist grein undir yfir-
skriftinni „Tekjutenging í heilbrigði-
skerfi — ekkert nýtt fyrir sjálfstæð-
ismenn“. Greinin er eftir Láru Mar-
gréti Ragnarsdóttur alþingismann
og þar er gerð tilraun til að bera í
bætifláka fyrir síðasta skrípaleikinn
í stjórnmálum heilbrigðismálanna.
Alþjóð er að sjálfsögðu ljóst að sjálf-
stæðismönnum er vandi á höndum
við að halda kosningaloforð um að
auka ekki skattaálögur á landsmenn
á kjörtímabilinu. Henni er einnig
ljóst að það er orðhengilsháttur að
kalla sumar þær álögur, sem til
umræðu hafa verið, annað en skatta.
Alþjóð er einnig ljóst að núverandi
heilbrigðisráðherra átti tveggja
kosta völ við að framfylgja stefnu
ríkisstjórnarinnar. Hann var neydd-
ur til að velja á milli niðurskurðar á
*" þjónustu sem allir eru sammála um
að ekki skuli skerða meira en orðið
er eða fjármögnunar vandans með
aðferðum sem ekki má nefna réttu
nafni. Þjóðin brosir alltaf út í annað
þegar stjórnmálamenn nota orð-
hengilshátt til að verja vanefndir
kosningaloforða en brosið stirðnar
þegar orðhengilshátturinn veldur því
að mikilsverðar ákvarðanir eru rang-
lega teknar. Öllum má vera ljóst að
hvorki þjóðin sjálf, heilbrigðisráð-
herrann né sjálfstæðismefín vilja
•4*- heilsukort. Hún ætlast til þess að
gripið sé til aðgerða sem duga til
frambúðar þó svo að forysta Sjálf-
stæðisflokksins verði að bíta í súrt
epli og viðurkenna að ekki hafi ver-
ið unnt að standa við gefin fyrirhe-
it. Lára Margrét gerir að umtalsefni
stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem
felst í endurvakningu tryggingahug-
taksins og „aftengingu“ framlaga
til heilbrigðismála. Hér er um að
ræða framfaramál, sem eru of mikil-
væg til þess að þeim sé skotið á
frest vegna þess að það hentar póli-
tík dagsins að hafa „skammtíma-/
langtímasjónarmið" sem liggja í
kross. Kjósendur Sjálfstæðisflokks-
ins ætlast til þess að stefnu flokks-
ins sé framfylgt og því verður vart
trúað fyrr en á reynir að Alþýðu-
flokkurinn fáist ekki til- samstarfs
um slíkt tryggingakerfi þar sem
bætur og iðgjöld eru tekjutengd.
Fjármögnun heilbrigðismála
í grein Láru Margrétar er rétti-
lega bent á að útgjöld til heilbrigðis-
mála hafa aukist til muna á síðustu
árum og spáð er aukningu enn um
hríð. Ekki skulu bornar brigður á
það. Slíkar spár vekja oft ugg í
bijósti stjórnmálamanna sem líta á
heilbrigðisþjónustuna sem óseðjandi
hít. Slíkur ótti stafar oft af misskiln-
ingi og vanþekkingu á tveimur
grundvaliaratriðum. Tekið skal fram
að undirritaður er ekki að ætla al-
þingismanninum slíka vanþekkingu
eða misskilning. Fyrra atriðið bygg-
ist á þeirri firru að framförum við
lækningar fylgi jafnan aukin útgjöld.
Tækniþróun við lækningar er
stundum skipt í þrjá flokka með til-
liti til hagkvæmni. í fyrsta flokki
er það sem réttast er að kalla lág-
tækni _eða tæknileysi (nontechno-
logy). í þessum flokki eru aðgerðir,
sem oftast breyta litlu eða engu um
gang sjúkdóma en beinast einkum
að því að bæta líðan sjúklingsins. Á
ensku hefur þetta verið nefnt „supp-
ortive care“ eða stuðningsmeðferð.
Þetta var það eina sem hægt var
gera fyrir sjúklinga með heilahimnu-
bólgu, mænuveiki og lungnabólgu
og aðra smitsjúkdóma áður en sýkla-
lyf og ónæmisaðgerðir komu til sög-
unnar og það eina sem enn í dag
Hiðrómaða
35 rétta jólahlaðborð
Shúía Hansen
Verð: í hádeginu kr. 1.695,
Á kvöldin kr. 2.395,-
Verið
velkomin á
Matreiðslumcistarar:
Skúli Hansen og
Jóbann Sveinsson.
SMIabru
Veitingahús við Austurvöll
Pantanir í síma 62 44 55
Canon >
REIKIMIVEL
með bleksprautuprentun
•orugg •hraövirk •hijóölát •ódýr
SKRIFVÉLINHF
SUÐURLANDSBRAUT 6, SlMI 685277, FAX 689791
stendur til boða sjúklingum með
heila- og mænusigg, sum krabba-
mein og vissa geðsjúkdóma svo eitt-
hvað sé nefnt. Kostnaður við aðgerð-
ir í þessum flokki er breytilegur, en
þó þær séu sjúklingum mikilvægar
er fjárhagsleg hagkvæmni oftast lít-
il. _
í öðrum flokki er það sem kalla
mætti hálftækni (halfway
technology). Hér falla undir aðferðir
sem eru notaðar til þess að draga
úr afleiðingum sjúkdóma og lengja
líf. Sem dæmi má nefna: líffæra-
ígræðslur, ísetningu gerviliða eða
annarra gervilíffæra. Margt af því
flókna kerfi sem tengist lækningum
á kransæðasjúkdómum fellur í þenn-
an flokk og sömuleiðis margar að-
gerðir gegn krabbameini. Oft er um
að ræða hluti sem byggjast á há-
tækni en eru frumstæðir að því er
varðar lausn á vanda sjúklingsins.
Tækninýjungar af þessu tagi vekja
oft mikla athygli fjölmiðla og er
hampað sem miklum framförum í
lækningum þó að oft hafi þær Iítil
áhrif á læknisfræði sem fræðigrein.
Oftast er hér um að ræða kostnað-
arsama hluti sem krefjast mikilla
spítalabygginga og fjölgunar starfs-
fólks.
í þriðja flokki er forvarnarstarf
sem kemur í veg fyrir sjúkdóma og
lækningar sem vinna bug á sjúkdóm-
um. Onæmisaðgerðir og lækningar
með sýklalyfjum má nefna sem
dæmi. Oft er um að ræða markviss-
ar og áhrifamiklar aðgerðir sem eru
lítið í sviðsljósi og taldar sjálfsagðar
en sem stundum eru vanmetnar og
jafnvel vanræktar. Gjarnan er um
að ræða tiltölulega ódýrar aðgerðir.
Mörg dæmi má nefna um verulega
minnkun kostnaðar þegar tæknin
færist af öðru stigi á hið þriðja.
Frægasta dæmið er líklega útrýming
lömunarveikinnar. Talið var að
Bandaríkjamenn hefðu árlega varið
einum milljarði bandaríkjadala til
stofnana, sem fórnarlömb veikinnar
voru vistuð á, fyrir daga bóluefnis-
ins. Lokaátak til að fullkomna bólu-
efnið kostaði um 40 milljónir dala
og notkun þess er ódýr. Besta ný-
lega dæmið er meðferð maga- og
skeifugarnarsára. Framan af öldinni
lést fjöldi sjúklinga af völdum blæð-
inga og lífhimnubólgu í kjölfar mag-
asára. Þegar leið á öldina þróuðust
skurðaðgerðir sem björguðu lífi
slíkra sjúklinga og hægðu á sjúk-
dómi þeirra. Einnig lágu slíkir sjúkl-
ingar langtímum saman á sjúkrahús-
um til þess að „græða magasárið"
með sérstöku matarræði og lyfjum.
Þessar aðgerðir áttu það sameigin-
legt að vera dýrar og ófullnægjandi.
Eftir miðja öldina komu síðan fram
lyf sem hemja sýrumyndun magans
og gerðu aðgerðir og spítalalegur
að mestu óþarfar. Þó að lyfin væru
dýr („dýru magalyfin") hlaust mikill
spamaður af notkun þeirra. Gallinn
var þó sá að þau læknuðu ekki allt-
VEGLA
Glersteinn á
góðu verði
f AjLFABORG"
KNARRARVOGI 4 • * 686755
Ólafur Steingrímsson
„Með tilliti til þess, sem
sagft hefur verið hér að
ofan, er skorað á Guð-
mund Arna Stefánsson
heilbrigðisráðherra að
stuðla að samstarfi heil-
brigðisnefnda Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðis-
flokks í því augnamiði
að koma á sjálfstæðum
almennum sjúkratrygg-
ingum að nýju og til að
endurskoða fjármögn-
un sjúkrahúsaþjón-
ustunnar.“
af sjúkdóminn þó að þau græddu
sárin og sjúklingum hætti til að fá
sár aftur. Nú eru lækningar þessa
sjúkdóms að færast á þriðja tækni-
stig því komið hefur í ljós að bakter-
ía að nafni Helicobacter pylori er
undirrót sjúkdómsins og lækning
hans er háð því að henni sé útrýmt
úr maga sjúklingsins. Þó að bakter-
ían sé næm fyrir fjölda sýklalyfja
ber meðferð með slíkum lyfjum ekki
alltaf fullkominn árangur. Innan tíð-
ar, þegar meðferð hefur verið full-
komnuð, mun meðferð þessa sjúk-
dóms ekki valda þjóðfélaginu um-
talsverðum útgjöldum.
Síðara atriðið, sem spár um aukin
útgjöld til heilbrigðismála eru stund-
um byggðar á, er sá misskilningur
að framlög til heilbrigðismála séu
forgangsstærð en ekki afgangs-
stærð. Stjórnmálamönnihn kann
stundum að finnast sem framlög til
heilbrigðismála séu forgangsstærð,
einkum þegar kröfur eru um fjár-
mögnun nýjunga eða þegar kemur
að endurnýjun dýrra eininga. En
framlög til heilbrigðismála eru af-
gangsstærð eins og sannfærast má
um með því að líta til annarra þjóða.
Hver þjóð sníður sínum heilbrigðis-
útgjöldum stakk eftir vexti. Ef litið
er til nokkurra þjóða í Suður-Amer-
íku sést að ef þessar þjóðir gerðu
kröfu um að allar konur skuli fæða
á fæðingarstofnunum líkt og hér á
landi yrði kostnaðurinn meiri en sem
nemur heildarútgjöldum þessara
þjóða til heilbrigðismála.
Þar sem framlög til heilbrigðis-
kerfisins eru afgangsstærð verða
lj'ármunir til ráðstöfunar alltaf tak-
markaðir. Því er brýnt að hag-
kvæmnis- og hagræðingarsjónarmið
ráði ferðinni þegar hugað er að
skipulagi og fjármögnun heilbrigðis-
mála. A sama hátt og huga ber nú
Wicanders Kork-o^Plast
EF ÞÚ BÝRÐ ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS
SÝNISHORN OG BÆKLING.
.Kork-o-Plast er með slitsterka vinylhúð' og notað á gólf sem mikið
mæðir á, svo sem flugstöðvum og sjúkrahúsum.
.Kork-o-Plast er auðvelt að þrífa og þægilegt er að ganga á því..
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640
að þeim grunnhugmyndum sem voru
undirstaða sjúkrasamlaganna, sem
gengið höfðu sér til húðar áður en
þau voru lögð niður, þarf nú að end-
urskoða fjármögnun sjúkrahúsanna.
Daggjaldakerfið hafði einnig gengið
sér til húðar og olli aukakostnaði
og sparnaður varð sennilega af því
að taka upp föst fjárlög þó engar
tölur séu tiltækar um það. Nú er
þörf á að kanna að nýju hvort stofn-
anir skuli fá framlög í samræmi við
afköst og framleiðni. Það þarf ekki
mikinn hagfræðing til þess að sjá
að sígildar sparnaðaraðferðir stofn-
ana, sem eru á föstum fjárlögum,
svo sem tímabundnar lokanir á ein-
stökum deildum, eru líkt og að pissa
í skóinn sinn og eins líklegar til að
valda auknum kostnaði eins og
sparnaði.
Skipulag sjúkrahúsþjónustu
á höfuðborgarsvæðinu
Eitt þeirra mála, sem nú krefjast
úrlausnar, er skipulag sjúkrahús- •
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Ákveðið hefur verið að fækka bráða-
sjúkrahúsum úr þremur í tvö en enn
hefur ekki verið fullmótuð stefna
um hvort eða að hve miklu leyti
sjúkrahúsin skuli starfa sem sjálf-
stæðar einingar eða hvort þau skuli
sameinuð eða starfa náið saman.
Fyrir tveimur til þremum árum stóð
til að Landspítalinn mótaði stefnu
um þróun sína næstu fímm árin, svo
sem gert er ráð fyrir í lögum. Fengn-
ir voru virtir erlendir ráðgjafar, sem
fljótt komust að þeirri augljósu nið-
urstöðu að ekki væri unnt að gera
áætlanir um starfsemi spítalans án
þess að taka mið af þróun hinna
spítalanna. Sérfræðingarnir komust
einnig fljótt að þeirri niðurstöðu að
sameining sjúkrahúsa væri líkleg til
að spara fé. Þeir höfðu ákveðnar
hugmyndir um hvernig að slíkri sam-
einingu skyldi standa en því miður
fengu tillögur þeirra lítinn hljóm-
grunn. Vafalaust yrði sjúkrahúsa-
þjónustan í borginni góð ef hér væru
tvö sjálfstæð sjúkrahús sem fengju
næga fjármuni til uppbyggingar.
Undirritaður frétti nýlega af lítilli
borg í miðríkjum Bandaríkjanna
(nokkru stærri en Reykjavík) þar
sem sameiningarumræður milli
sjúkrahúsa fóru út um þúfur. Nú
eru þar tvö öflug sjúkrahús í harðri
samkeppni og hafa bæði þyrlupall
og eigin þyrlu til að sækja sjúklinga
á slysstað eða í heimahús.
Það ætti að vera ljóst af reynslu
síðustu ára að það munu ekki fást
nægilegir fjármunir til þess að
byggja upp fullnægjandi þjónustu á
tveimur bráðasjúkrahúsum í Reykja-
vík. Allar götur síðan í ráðherratíð
Matthíasar Bjarnasonar, sem fyrstur
krafðist flats niðurskurðar, hefur
sorfið að sjúkrahúsum borgarinnar
og uppbygging þeirra hefur ekki
verið með eðlilegum hætti. Þetta á
við um Borgarspítalann og Landspít-
alann. Fjárskorturinn hefur því mið-
ur oft valdið því að gripið hefur ver-
ið til óhagkvæmra ráðstafana sem
valda auknum kostnaði. Það virðist
sýnt að öflug uppbygging hefst ekki
fyrr enn stefna um sameiningu eða
mjög náið samstarf sjúkrahúsanna
hefur verið mótuð.
Lokaorð
Með tilliti til þess, sem sagt hefur
verið hér að ofan, er skorað á Guð-
mund Árna Stefánsson heilbrigðis-
ráðherra að stuðla að samstarfi heil-
brigðisnefnda Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks í því augnamiði að
koma á sjálfstæðum almennum
sjúkratryggingum að nýju og til að
endurskoða fjármögnun sjúkrahúsa-
þjónustunnar. Einnig er hér með
skorað á heilbrigðisráðherra og
Markús Örn Antonsson, borgar-
stjóra Reykjavíkurborgar, að leita
sameiginlega eftir óháðri ráðgjöf frá
útlöndum um hagkvæmni þess að
sameina stóru sjúkrahúsin tvö í
Reykjavík eða koma á nánu form-
legu samstarfi þeirra á milli. Starfið
þarf að vinnast í samvinnu við
menntamálaráðherra, þar sem nið-
urstaðan varðar læknadeild háskól-
ans og aðrar kennslustofnanir heil-
brigðisstétta miklu.
Höfundur eryfirlæknir
sýklarannsóknadeildar
Landspítalans og
framkvæmdasijóri sýkla- og
veirufræðisviðs Ríkisspítala.