Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
24. OLYMPIULEIKARNIR I EÐLISFRÆÐI I WILLIAMSBURG
Erfið keppni 198 úrvais-
nemenda frá 41 landi
17 ára Kínverji og 19 ára Þjóðverji efstir ogjafnir
Texti og myndir: Viðar Ágústsson.
„Þið hafið öll unnið stóran sigur
með því einu að hafa verið valin í
ykkar heimalandi til að sækja
þessa 24. Ólympíuleika í eðlis-
fræði“ sagði Leon Lederman, Nó-
belsverðlaunahafi og deildarstjóri
"•y í FermiLab í Chicaco við setningar-
athöfnina í hátíðasal College of
William and Mary. „Það er greini-
legt að eðlisfræðin dregur enn að
sér afburðaungmenni í öllum lönd-
um og ég óska ykkur allra heilla
á þeirri braut. Sum ykkar kunna
að færast yfír í efnafræði, aðrar
raungreinar eða enn annað og ég
fyrirgef ykkur það - bara á meðan
þið verðið ekki lögfræðingar“
24. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
voru að þessu sinni haldnir í Will-
iamsburg í Virginíu, frægri borg
sem státar af merkilegri sögu allt
aftur til 1633. Leikamir fóru fram
í College of William and Mary,
^ næstelsta menntasetri Bandaríkj-
Tanna, en skólinn hélt upp á_ 300
ára afmæli sitt nú í sumar. í ná-
grenni við skólahverfíð er gamli
nýlendubærinn endurrisinn og þar
er allt með sama sniði og var fyrir
200 árum, lágreist húsin hafa ver-
ið gædd lífi að nýju og starfsfólk
gengur um í fötum eftir fyrri tíma
tísku.
Eðlisfræðileikamir eru einstakl-
ingskeppni þar sem glímt er við
verkefni í fræðilegri og verklegri
eðlisfræði. Keppnisdagarnir eru
tveir, sá fyrri fyrir 3 fræðileg verk-
efni og sá síðari fyrir 2 verkleg
verkefni. Hvor keppnisdagur er 5
erfiðar vinnustundir fyrir keppend-
urna sem allir eru 19 ára eða yngri.
Eftir þessa vinnulotu er keppend-
um séð fyrir nægri skemmtun og
fræðslu til að létta þeim biðina þar
til úrslit verða kunn.
Að þessu sinni sóttu 198 kepp-
endur frá 41 þjóð Ólympíuleikana
í eðlisfræði. Að venju voru þar pilt-
ar í miklum meirihluta, aðeins 5
stúlkur vom meðal keppenda. Allir
eru keppendurnir valdir með svip-
uðum hætti í sínu heimalandi fyrir
förina; fyrst með landskeppni í
eðlisfræði, síðan úrslitakeppni og
loks em þeir þjálfaðir í nokkrar
vikur fyrir Eðlisfræðileikana.
Flestir koma þeir hingað í sumar-
leyfi sínu en Astralarnir þurftu að
fá frí úr skóla til að koma.
Framkvæmdanefnd 24. Ólymp-
íuleikanna í eðlisfræði vann gott
starf er hún undirbjó þennan al-
þjóðlega viðburð. Umgjörð leik-
anna var fögur og aðbúnaður kepp-
enda og fararstjóra til fyrirmynd-
ar. Boðið var upp á áhugaverða
fyrirlestra um nýjustu strauma í
bandarískri eðlisfræðikennslu,
sýnitilraunir og kynningu á fjöl-
verkakennsluforriti. Keppendur
fengu heilan dag í tívolí með rússí-
bönum og öðmm leiktækjum. Þar
framkvæmdu þeir tilraunir til gam-
ans og skiluðu skýrslum með niður-
stöðum sínum. Fyrir bestu skýrsl-
urnar voru síðan gefin verðlaun.
Famar vora skoðunarferðir í ný-
lendubæinn og heilum degi eyddu
keppendur á Virginíuströnd og
öðrum í ferðalög til NASA í Lan-
gley og CEBAF í Jamestown.
Verkefnin voru líka vel undirbúin,
frumleg, áhugavekjandi, erfið en
sanngjörn. Allt þetta er áætlað að
kosti um 1 milljón dollara.
Við hátíðlega verðlaunaafhend-
ingu kom í ljós árangurinn; efstir
og jafnir með 40,65 stig af 50
mögulegum urðu 17 ára Kínveiji
og 19 ára Þjóðveiji og fengu þeir
vegleg verðlaun, grafískar tölvur
frá Texas Instmment og hlaupa-
mæli með púlsteljara. Allir sem
Anthony French, höfundur 1.
fræðilega verkefnisins og for-
maður dómnefndar, afhendir
Ara Eiríkssyni frá MA verðlaun
fyrir bestu framkvæmd á tilraun-
inni um eðlisvarma niturs.
náðu árangrinum 50% af bestu
lausn eða meira, fengu verðlauna-
pening eða heiðursskjal eftir atvik-
um auk verðlauna af einhveiju
tagi. Óvænt verðlaun féllu í skaut
Ara Eiríkssonar þegar lausn hans
á eðlisvarma niturs fékk sérstaka
viðurkenningu fyrir afburðagóða
framkvæmd og nákvæma niður-
stöðu.
í glæsilegu riti sem gefið var
Efstir og jafnir með 40,65 stig,
Junan Zhang, 17 ára frá. Kína
og Harald Pfeiffer, 19 ára frá
Þýskalandi.
út fyrir lokaathöfn Ólympíuleik-
anna í eðlisfræði er kveðja til kepp-
endanna frá forseta Bandaríkj-
anna, Bill Clinton, þar sem hann
segir: „Afburðaárangur ykkar í
eðlisfræði sýnir þorsta eftir þekk-
ingu og skilningi sem mun koma
ykkur að gagni á framabraut ykk-
ar. Eg sendi ykkur mínar bestu
óskir um bjarta framtíð."
Yngsti keppand-
inn hlaut brons
aðeins 11 ára
„Eg fæddist á Indlandi en fluttist
síðan með pabba og mömmu til Ástr-
alíu“ segir Akshay feiminn þegar
hann er spurður um uppruna sinn.
„Pabbi er verkfræðingur en mamma
tölvufræðingur. Þau hvetja mig í
raungreinanámi en era alls ekki ýtin,
bara útvega mér þær bækur sem
mig langar í. Við búum í Perth og
í skólanum þar hef ég alltaf valið
alla þá stærðfræði og eðlisfræði sem
í boði hefur verið. Núna er ég kom-
inn í menntaskóla og bekkjarfélagar
mínir em 15 ára.“
Akshay er fæddur 21. nóvembei&'
1981 er því aðeins 11 ára að keppa
á erfíðu alþjóðlegu móti unglinga á
aldrinum 16-19 ára. Eðlisfræðin
virðist þó ekki vefjast fyrir honum
því hann náði bronsverðlaunum með
30,45 stigum og vantaði hann aðeins
0,55 stig til að fá silfurverðlaun.
Erfiðara virtist það reynast honum
að fjölmiðlafólk og samkeppendur
þyrptust að honum til að tala við
hann og taka af hönum myndir.
Fréttaritari Morgunblaðsins var sá
sjötti sem bað um formlegt viðtal
við Akshay svo hann hafði orðið
nokkra hugmynd um það sem fólk
hafði áhuga á í sambandi við hann.
„Ég tók þátt í landskeppni í eðlis-
fræði í menntaskólanum mínum en
ég veit ekki einu sinni hve mörg
stig ég fékk þar“ segir Akshay hóg-
vær. „Mér var bara boðið að koma
2 vikur í þjálfunarbúðir ásamt 14
öðrum menntaskólanemum. Við
fengum heimaverkefni og tókum
próf og svo var hópurinn minnkaður
niður í 5 nemendur og ég var ennþá
með í þeim hóp. Loks fengum við
þjálfun í 3 vikur.“
Akshay hefur samt áhugamál eins
og jafnaldrar hans. Á sumrin spilar
hann reglulega körfubolta með
strákaflokkunum en þar að auki
fínnst honum gaman að lesa vísinda-
skáldsögur. Hann lærði á fiðlu í 4
ár en er hættur því núna. Aðspurður
um Ólympíuleikana og framtíðará-
formin svarar Akshay hugsandi.
Akshay Venkatesa er aðeins 11
ára að keppa fyrir Ástralíu á
móti sér mun eldri unglingum.
Hann vill þó koma aftur og keppa
þá líka á Ólympiuleikunum í
stærðfræði.
v
„Mér gekk bara vel í fræðilega hlut-
anum en í verklega hlutanum fæ ég
örugglega mínusstig. Mig langar til
að koma aftur á Ölympíuleikana í
eðlisfræði en mig langar líka til að
fara á Ólympíuleikan í stærðfræði.
Ég klára menntaskólann líklega eft-
ir 2 ár og þá fer ég í háskólann til
að læra eðlisfræði. Kannski verð ég
kominn með doktorsgráðu þegar ég
20 ára“
íslenska keppnisliðið á 24. Ólympíuleikunum í eðlisfræði ásamt fararstjórunum: Ingibjörg Haralds-
dóttir, fararstjóri, Davíð Bragason frá MA, Styrmir Sigurjónsson frá MR, Guðjón I. Guðjónsson
frá MS, Arnar Már Hrafnkelsson frá MR, Ari Eiríksson frá MA og Viðar Ágústsson, aðalfararstjóri.
Án þeirra hefðum við ekki getað tekið þátt
Fjölmörg fyrirtæki og stofn-
anir styrktu íslendingana
Reglur Olympíuleikanna kveða
á um að ráðuneyti það sem send-
ir keppnislið skuli standa straum
af ferðakostnaði keppenda og far-
arstjóra til og frá keppnislandi.
En þátttökukostnaðurinn felst í
ýmsu öðru, ss að halda Lands-
keppni til að velja keppendur,
kaupa minjagripi, greiða fyrir
æfíngabúðir, bæta keppendum að
hluta sumarvinnutapið og greiða
þjálfumm smáþóknun. Óll önnur
störf við þátttökuna eru unnin í
sjálboðavinnu.
Landskeppni í eðlisfræði er
haldin til að velja keppendur til
þátttöku í Ólympíuleikunum í
eðslisfræði og fer hún fram í febr-
úar og mars í framhaldsskólum
landsins og Háskólanum. Land-
skeppnin í ár var sú 10. í röðinni
og tóku 164 nemendur víðsvegar
að af landinu þátt í henni. Frá
upphafi hefur Morgunblaðið stað-
ið straum af öllum kostnaði við
hana og flutt fréttir af verkefnun-
um og niðurstöðum keppninnar.
CASIO-umboðið Heimilistæki
gaf öllum keppendunum 5 vasat-
ölvur sem uppfylla reglur Ólymp-
íuleikanna og Sólarfílma aðstoð-
aði við að útvega minjagripi til
að gefa hinum erlendu keppend-
um og fararstjóram. Fjárfestinga-
félagið, íslandsbankinn og Seðla-
bankinn studdu þátttökuna með
fjárframlögum og sama gerðu
menntaskólarnir sem piltarnir
komu frá. Sveitarfélög piltanna,
Akureyri, Dalvík, Kópavogur,
Garðabær og Reykjavík styrktu
þátttöku þeirra. Menntamála-
ráðuneytið hafði milligöngu um
að útvega hluta af fararkostnaði
og síðast en ekki síst veitti Há-
skólinn ómetanlega aðstoð er
hann lánaði bæði sérfræðinga,
húsnæði og tæki við þjálfunina.
Öllum þessum aðilum vill ís-
lenska keppnisliðið þakka stuðn-
inginn sem ekki síst felst í hvatn-
ingu við að halda áfram að stuðla
að framgangi eðlisfræðinnar hér
á landi og sækja árlega viðmiðun
til annarra landa.