Morgunblaðið - 08.12.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
43
Kínverjar bjóða
keppnisliðum
frá 45 löndum
Austur-Evrópubúar og Kínverj-
ar sigursælir á Ólympíuleiknum
Á síðasta fundi Ólympíuráðsins sem í eiga
sæti allir fararstjórar þátttökulandanna er fjall-
að um úrslit keppninnar og verðlaunum er rað-
að á efstu keppendur. Besta lausn er skilgreind
sem meðaltal lausna þriggja efstu keppendanna
og í þetta sinn var hún aðeins 40,5 stig af 50
mögulegum, 4 stigum lægri en í fyrra. Gullverð-
laun fá þeir keppendur sem ná 90% eða meira
af bestu lausn en til þess þurfti að fá 36 stig.
Silfurverðlaun fá þeir keppendur sem ná 78 -
89% af bestu lausn og til þess þurfti að fá 31
stig. Bronsverðlaun fá þeir keppendur sem ná
65-77% af bestu lausn en heiðursviðurkenningu
fá þeir sem ná 50% af bestu lausn.
Keppendum frá hinum keppnisvönu austan-
tjaldslöndum vegnaði vel sem oft áður og af
17 gullhöfum voru 13 “að austan“. í þeirra
hópi voru 3 frá Ungvetjalandi, 3 frá Rúss-
landi, 2 frá Kína, 2 frá Rúmeníu, 2 frá Tékkíu,
1 frá Þýskalandi, 1 frá Bretlandi 1 frá Banda-
ríkjunum, 1 frá Tyrklandi og 1 frá Úkraínu.
Silfurverðlaunahafar voru 16 og af þeim
voru 10 „að austan“. 1 var frá Búlgaríu, 2 frá
Kína, 1 frá S-Kóreu, 2 frá Rússlandi, 2 frá
Bretlandi, 2 frá Úkraínu, 2 frá Þýskalandi, 1
frá Slóvakíu, 2 frá Tékkíu og 1 frá Bandaríkjun-
um. 23 keppendur hlutu bronsverðlaun og 47
keppendur náðu nægum stigafjölda til að fá
heiðursviðurkenningu. í þeirra hópi var Davíð
Bragson, nýstúdent frá MA. Er þetta í 4. sinn
sem íslendingur nær þeim árangri á Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði að fá heiðursviðurkenn-
ingu.
Þó Eðlisfræðikeppnin sé einstaklingskeppni,
reikna fararstjórarnir gjarnan meðalstigafjölda
keppenda frá hveiju landi og fá þannig óopin-
beran lista yfir sigurþjóðirnar. Efst á þessum
lista að þessu sinni var Rússland með með-
alstigafjöldann 35,39 en fast á hæla þeirra kom
Kína með 35,17 stig. í þriðja sæti lenti Þýska-
land með 32, 97 stig, þá Ungveijaland með
32, 29 stig og Tékkía með 31,82 stig. í næstu
5 sætum lentu þjóðirnar í Joessari röð: Rúmen-
ía, Bretland, Bandaríkin, Úkraína og Búlgaría.
Aðeins 3 vestrænar þjóðir voru því meðal 10
efstu þjóða að þessu sinni sem heldur lakari
árangur en oft áður en samt ekki ósvipaður.
Vegna nýrra reglna Ólympíuleikanna í eðlis-
fræði um að ekki eru gefin út opinberlega stig
þeirra keppenda sem hafa lakari árangur en
50%, er ekki hægt að reikna hvar ísland hefði
lent í þessari röð þjóðanna. Meðalstigafjöldi
íslensku keppendanna var 14,37 sem er sami
stigafjöldi og td. Norðmenn náðu. Sem viðmið-
un má taka að ísland lenti í 27. sæti af 37
með 13,6 stig að meðaltali í fyrra. Vegna pláss-
leysis er ekki hægt að birta verkefni 24. Ólymp-
íuleikanna í heild hér en hægt er að fá ljósrit
af verkefnunum hjá fararstjórunum, Ingibjörgu
og Viðari.
Davíð Bragason, nýstúdent frá MR, náði
nægum stigafjölda til að fá heiðursviður-
kenningu og hlaut að launum tvo leysiljós-
penna frá Delores Mason.
25. Olympíuleikarnir í eðlisfræði í Kína á næsta ári
KÍNVERJAR hafa tekið þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði í
aðeins 4 ár en árangur þeirra hefur verið frábær. Iðulega
hafa þeir átt keppendur í efstu sætum og í fyrra fengu allir
Kínveijarnir 5 gullverðlaun og liðið í heild varð langefst í
óopinberum samanburði þjóðanna. Þrátt fyrir stutta þátttöku-
sögu hafa Kínverjar tekið að sér að halda þetta alþjóðlega mót
á næsta ári og til undirbúnings leikunum mættu alls 7 fulltrú-
ar frá Kína til að kynna sér framkvæmd leikanna í Bandaríkj-
unum þetta árið.
Einn af áheyrnarfulltrúunum,
Shixuan Shang, er eðlisfræðikenn-
ari við kennarháskólann í Peking.
Hann er í undirbúningsnefndinni
fyrir 25. Ólympíuleikana í eðlis-
fræði og ræddi hann við fréttarit-
ara Morgunblaðsins um undirbún-
inginn. „Þó Kínveijar séu nýir
meðal þátttökuþjóðanna viljum við
leggja okkar lóð á vogarskálamar
til að styðja svona alþjóðlega
menningarviðburði. Kínverska rík-
ið hefur sýnt þátttökunni mikinn
áhuga eins og fjöldi kínverskra
áheyrnarfulltrúa sannar.“ segir
Shixuan Shang áhugasamur.
„Vísindasamtök Kína eru ábyrg
fyrir 25. Ólympíuleikunum í eðlis-
fræði en raungreinakennarafélag-
ið sér um framkvæmdina segir
Shixuan Shang. “Kostnaður við
mótshaldið er áætlaður um hálf
milljón bandaríkjadala og það er
kínverska menntamálaráðuneytið
sem greiðir kostnaðinn með sam-
þykki fjármálaráðuneytisins. Eðl-
isfræðileikarnir verða haldnir í
háskólanum í Peking og standa
yfir í 8 daga.“
Fyrir utan að það verður ævin-
týri líkast fyrir unglinga hvað-
anæva að úr heiminum að ferðast
til Kína, munu mótshaldarar bjóða
keppendum til margs konar skoð-
unarferða. „Við munum fara að
skoða Múrinn mikla og ganga
spölkorn eftir honum. Við munum
líka skoða neðanjarðarhöllina í
Peking og ferðast um nágrenni
borgarinnar." segir Shixuan
Shang. „Við erum stoltir af alda-
gamalli menningu og hefðum í
Kína og ég er viss um að þið
munuð kunna að meta það Kína
sem þið sjáið“. Shixuan Shang
býst við að 45 þjóðir munu til-
kynna þátttöku sína á 25. Ólymp-
íuleikunum í eðlisfræði því að öll-
um núverandi þátttökuþjóðum
verður boðið ásamt öllum þeim
þjóðum sem sent hafa áheyrnar-
fulltrúa.
Aðspurður um hveiju hann
þakkaði góðan árangur kínversku
keppendanna á Eðlisfræðileikun-
um frá upphafi þátttöku þeirra
svaraði Shixuan Shang. „Meðalár-
angur nemenda í kínverskum
menntaskólum er að vísu hár en
sérstaða okkar hér á Eðlisfræði-
leikunum felst fyrst og fremst í
því að við getum valið keppendur
úr fleiri milljónum en nokkur önn-
ur þátttökuþjóðanna. Landskeppn-
in í Kína fer fram á vegum hvers
landshluta og í ár tóku um 100
þús nemendur þátt í henni. Af
þeim komu nokkrar þúsundir nem-
enda í úrslitakeppni. Af um eitt-
hundrað nemendum sem tóku sér-
próf eftir það voru 5 þeir bestu
valdir og þjálfaðir í 2 mánuði í
háskólanum í Peking. Það er því
bara eðlilegt að okkur gangi vel
hér á Eðlisfræðileikunum“ sagði
Shixuan Shang brosandi að lokum.
April Baugher, 25 ára eðlis-
fræðingur í doktorsnámi, var
leiðsögumaður íslensku
keppendanna um Williams-
burg og nágrenni.
„Islensku
strákarnir
sjálfstæðari
Á Ólympíuleikunum í eðlis-
fræði fær hvert keppnislið sér
til aðstoðar innfæddan leiðsögu-
mann, oft ungmenni með áhuga
á eðlisfræði eða því landi sem
keppendurnir eru frá. Að þessu
sinni fengu íslensku strákarnir
sér til halds og trausts 25 ára
stúlku frá Williamsburg, April
Baugher. Hún lagði sig fram um
að þeir nytu dvalarinnar og
kæmust á alla þá staði sem þá
langaði til að skoða.
„Ég fékk miða í hólfið mitt í
College of William & Mary eins
og fleiri skólafélagar mínir þar
sem mér var boðið að verða leið-
sögumaður á 24. IPhO. Ég sló
til og mér var úthlutað íslandi
7 ég hefði ekki valið betur sjálf.
íslensku strákamir eru hressir
og skemmtilegir og miklu sjálf-
stæðari og þroskaðri en banda-
rískir jafnaldrar þeirra“ segir
April sem sannarlega reyndist
strákunum góður ieiðsögumað-
ur. „í vetur var ég með umsjón
með nokkrum bandarískum
krökkum og ég mátti ekki sleppa
af þeim hendinni því þá voru
þeir ráðvilltir og hjálparlausir".
April hefur lært eðlisfræði í 6
ár og eftir tvö og hálft ár von-
ast hún til að klára Phd. í eðlis-
fræði frá College of William &
Mary. Rannsóknarverkefni og
lokaritgerð hennar verður um
fljótandi tvívetnis kristalla. Að
því loknu getur hún vel hugsað
sér að kenna eðlisfræði. „Ég hef
Iítið ferðast og aldrei komið til
Evrópu en nú gæti ég vel hugs-
að mér að koma til íslands eftir
að hafa kynnst strákunum. Þeir
hafa sagt mér margar skemmti-
legar sögur frá Islandi - sér-
staklega um pólitíkina.“
Stúlkurnar 5 sem kepptu á eðlisfræðileikunum koma víðsvegar að úr heiminum og þær vöktu athygli
þegar þær söfnuðust saman til myndatöku í kvöldveislu á háskólalóðinni. Carla Ramires Savilenguine
er frá Mexíkó, Christina Moser frá Austurríki og Alyaa Aboud Abdul Aziz Al-Mansour, Aisha Mo-
hammad Hasan og Sherreen Mohammad Redha eru frá Kúwæt.
3 af stúlkunum
voru frá Kúveit
Sammerkt með eðlisfræðikeppn-
um hér heima og erlendis er að stúlk-
ur eru í miklum minnihluta kepp-
enda. Af 164 keppendum í Lands-
keppninni á íslandi í ár voru 23 stúlk-
ur en á Ólympíuleikunum í Banda-
ríkjunum voru stúlkurnar aðeins 5,
jafnmargar og í fyrra. Skýringar á
þessu mikla ójafnvægi liggja ekki
fyrir þó margir hafi reynt að spá í
ástæðumar.
Carla Ramires Savilenguine er 17
ára stúlka frá Mexíkó og hún hefur
engan sérstakan áhuga á eðlisfræði.
Henni finnst hins vegar gaman að
mála myndir og notar þá gjarnan
olíu. „Það er eitthvað sem ég gæti
hugsað mér að gera í framtíðinni“
segir Carla og er alveg frábitin því
að læra frekari eðlisfræði.
Christina Moser er 18 ára stúlka
frá Tyrol í Austurríki. Hún var að
klára stúdentspróf frá eðlis- og
stærðfræðideild og í haust fer hún í
háksólann í Innsbruck til að læra
eðlisfræði. „Ég hef mjög gaman af
eðlisfræði og mig langar til að kenna
hana þegar ég hef klárað háskólann"
segir Christina sem hefur líka lært
á þverflautu í 7 ár. Hún hefur meira
að segja spilað á flautuna á opinber-
um tónleikum.
Stúlkurnar 3 frá Kúveit vöktu
mikla athygli fyrir að vera ávallt
kappklæddar með slæður þegar aðrir
keppendur voru í ermalausum bolum
og stuttbuxum. Þær eru allar 18 ára
og voru að klára menntaskólann í
vor. í haust fara þær í framhaldsnám
og engin þeirra ætlar í eðlisfræði.
Alyaa Aboud Abdul Aziz Al-Mansour
hefur reyndar gaman af eðlisfræði
en ætlar samt að fara í læknisfræði.
Aisha Mohammad Hasan hefur líka
gaman af eðlisfræði og ætlar líka í
læknisfræði en þar að auki hefur hún
gaman af því að mála og lesa ljóð.
Sherreen Mohammad Redha er alls
ekki hrifin af eðlisfræði en í haust
byijar hún í efnaverkfræði í Kúveit.
Fararstjóri Kúveit liðsins, Tareq
Abdel Reda, sagði að það væri engin
tilviljun að í liði Kúveit væru 3 stúlk-
ur en aðeins einn piltur. „í Lands-
keppninni í Kúveit voru stúlkurnar
miklu fleiri en piltarnir og þær eru
mun áhugasamari um raungreina-
námið. Piltarnir í Kúveit eru einfald-
lega latari" bætti hann hlæjandi við.
Af 198 keppendum voru aðeins 5 stúlkur