Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 48
/>l .- - ■■■ ,
48 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Guðmundur Einar
Guðmundsson fyrrv.
bryti - Minning
Fæddur 5. desember 1906
Dáinn 30. nóvember 1993
Hinn 30. nóvember sl. andaðist á
Dvalarheimili aldraðra sjómanna á
Hrafnistu hér í borg Guðmundur
Einar Guðmundsson, fyrrum bryti á
Lagarfossi og fleiri skipum Eim-
skipafélags Islands.
Guðmundur Einar Guðmundsson
var fæddur á Hólum í Dýrafirði 5.
desember 1906. Foreldrar hans voru
hjónin Margrét Guðmundsdóttir,
sem ættuð var úr Selárdal í Arnar-
firði, og Guðmundur Bjarnason frá
Gufudal í Barðastrandarsýslu. í
mannskaðaveðri hinn 5. apríl 1906,
er Guðmundur var ófæddur, tók föð-
ur hans út af skútu þar vestra og
drukknaði. Margrét stóð þá uppi
ekkja, vanfær með ungan son, Guð-
bjart Ragnar, sem var fæddur alda-
mótaárið 1900.
Nokkru eftir að Guðmundur Einar
fæddist vistaðist Margrét móðir hans
með Guðmund að Meðaldal til hjón-
anna Helgu Bergsdóttur og Krist-
jáns Andréssonar, sem var þekktur
skútuskipstjóri og sjósóknari á Vest-
ijörðum. Kristján hafði lokið stýri-
mannaprófi frá Stýrimannaskólan-
um i Bogö í Danmörku árið 1884
og kenndi ungum sjómönnum í
Dýrafirði og víðar að stýrimanna-
fræði og seglasaum á vetrum. Guð-
mundur Einar ólst upp með móður
sinni hjá þeim hjónum í Meðaldal,
þar sem Margrét dvaldist fram á
elliár og andaðist.
Eins og flestir Vestfirðingar fór
Guðmundur Einar kornungur á sjó-
inn og stundaði sjóróðra frá Meðal-
dal og Haukadal á opnum bátum.
Síðar var hann til sjós á línuveiður-
um frá Þingeyri við Dýrafjörð, sem
sigldu með ísvarinn fisk yfir hættu-
svæði heimsstyijaldarinnar til Bret-
lands. Arið 1941 var Guðmundur
Einar háseti á línuveiðaranum Fróða
ÍS 454, rúmlega 120 rúmlesta skipi
sem var gert út frá Þingeyri. Hinn
11. mars 1941, þegar Fróði var á
leið til Englands með fullfermi af
ísuðum fiski, gerði óþekktur kafbát-
ur fólskulega árás á skipið með þeim
hörmulegu afleiðingum að fimm
skipvetjar biðu bana og einn særðist
alvarlega. Þeir sem féllu í árásinni
eða létust síðar af sárum áður en
Fróði náði landi voru skipstjórinn,
stýrimaðurinn og þrír hásetar, aliir
sveitungar Guðmundar nema stýri-
maðurinn, sem var frá Hrísey. Áður
en Gunnar Árnason skipstjóri frá
Brekku í Þingeyrarhreppi andaðist
af skotsárum fól hann Guðmundi
Einari stjórn skipsins og sigldi Guð-
mundur skipinu til Vestmannaeyja
þangað sem það kom illa út leikið
með brúna sundurskotna hinn 12.
mars. Sex skipveijar lifðu af árásina
og var einn þeirra alvarlega særður
og var lagður inn á Sjúkrahús Vest-
mannaeyja.
Eftir þennan hörmulega atburð
var Guðmundur Einar til stríðsloka
á togaranum Belgaum, sem sigldi
eins og allir íslensku togararnir á
þeim árum með aflann til Bretlands.
í byijun desember 1945 réðst
Guðmundur sem 2. kokkur á e.s.
Brúarfoss. Hann varð síðan búrmað-
ur, matsveinn og bryti á skipum
Eimskipafélagsins og sigldi sam-
fieytt á fossunum í yfir 30 ár, lengst
af eða samfleytt í 20 ár bryti á m/s
Lagarfossi.
Guðmundur var á sjónum fram
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR,
Bakkavegi 25,
Hnffsdal,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði þann 6. desember.
Ágúst Guðmundsson,
R. Margrét Ágústsdóttir,
Ástþór Ágústsson, Józefa Nieduzak,
Trausti M. Ágústsson, Þóra Baidursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, + SÓLVEIG MAGNÚSDÓTTIR,
Fetlsmúla 4, áður Hagamel 6,
lést 6. desember síðastliðinn.
Ingunn Ólafsdóttir, Auður Ólafsdóttir.
Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR JÓN STEFÁNSSON,
lést í Borgarspítalanum þann 6. desember.
Margrét Jóna Jónasdóttir,
Jónas P. Sigurðsson, Ólöf María Guðbjartsdóttir,
Karl Á. Sigurðsson, Bera Pétursdóttir,
Steinunn H. Sigurðardóttir, Alfreö Alfreðsson,
Stefán E. Sigurðsson, Bára Baldursdóttir,
Ágústa G. Sigurðardóttir, Sigurður Jóhannesson,
Aron Þ. Sigurðsson, Kristín Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðursystir mín,
INGUNN ANNASDÓTTIR,
Asparfelli 8,
lést í Borgarspítalanum 1. desember.
Jarðsett verður frá Tjörn á Vatnsnesi laugardaginn 11. desember
kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Jóhannsdóttir.
yfxr sjötugt og leysti af sem bryti í
nokkra túra, m.a. í langri ferð til
Nigeríu veturinn 1977. Hann var
stjórnsamur og vel látinn í störfum
sínum, en starf bryta var á þessum
árum umfangsmikið, skipin með 25
til 30 manna áhöfn og farnar langar
sjóferðir. Iðulega var siglt með far-
þega, en skip eins og Lagarfoss
gátu tekið 12 farþega í klefa. Auð-
velt var þó að fjölga kojum þegar á
þurfti að halda og gátu farþegar hér
fyrr á árum stundum verið mun
fleiri.
Hinn 5. apríl 1942 kvæntist Guð-
mundur Einar Elínborgu Jónsdóttur
frá Höll í Haukadal við sunnanverð-
an Dýrafjörð. Elínborg var dóttir
hjónanna Ástríðar Eggertsdóttur og
Jóns Guðmundssonar sem bjuggu
myndarbúi í Höll. Elínborg og Guð-
mundur byijuðu búskap í Höll, höfðu
þar nokkurn bústofn og nytjuðu
hluta jarðarinnar, en Guðmundur
stundaði sjó og siglingar á vertíðum.
Miklar þjóðfélagsbreytingar voru á
þessum árum og varð því stutt í
búskapnum hjá þeim í Haukadal.
Árið 1945 fluttu þau hjónin suður
til Reykjavíkur og áttu þar síðán
heimili.
Guðmundur og Elínborg voru sér-
stakar gæðamanneskjur og mann-
kostafólk. Ekki er unnt að minnast
annars þeirra hjóna án þess að þau
komi bæði upp í hugann. Þau voru
samhent, bæði rausnarleg og trygg-
lynd og höfðingjar heim að sækja.
Yfir heimili þeirra var menningar-
bragur og það bar með sér hlýju
húsráðenda.
Guðmundur Einar var vel gefinn,
mikill bókamaður og las mikið; átti
hann og þau hjón gott safn bóka
og málverka.
Elínborg og Guðmundur Einar
eignuðust tvo syni; Grétar, áður
stýrimann, nú fulltrúa á Launaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins, sem er
kvæntur Maríu Rögnvaldsdóttur og
eiga þau tvö böm, og Jón, fasteigna-
sala, sem er í sambúð og á eina
dóttur.
Mjög hlýtt var á milli þeirra
bræðra Guðmundar Einars og Ragn-
ars, sem bjó lengi góðu búi ásamt
konu sinni Kristínu Sveinbjörnsdótt-
ur að Lokinhömrum og Hrafnabjörg-
um í Arnarfirði. Elínborg og Guð-
mundur sýndu börnum þeirra Ragn-
ars mikla gestrisni og vináttu og
stóð heimili þeirra þeim opið er þau
komu til Reykjavíkur hvort sem var
til styttri dvalar eða náms. Sömu
gestrisni og hlýju nutu fjölskyldur
systkinanna frá Hrafnabjörgum og
við sem tengdumst því fólki.
Ég reyndi Guðmund Einar og El-
ínborgu að mikilli rausn og gjafmildi
við börn okkar Aniku, bróðurdóttur
Guðmundar, þegar við bjuggum í
Vestmannaeyjum og ætíð er við
heimsóttum þau hér í Reykjavík með
ærslafenginn' barnahóp, sem í þá
daga kunni vel að meta sælgæti og
annað góðgæti frá fjarlægum lönd-
um.
Guðmundur Einar var ræðinn og
skemmtilegur; margfróður maður
sem sagði stundum prýðilega frá
viðburðaríkri ævi.
Síðustu árin voru honum erfið og
fætur hans höfðu alveg gefið sig
eftir langar stöður á sjónum. Árið
1987 seldu þau hjón ágæta íbúð í
Skaftahlíð og voru eitt ár í þjónustu-
íbúð á Hrafnistu. Hinn 8. mars 1991
andaðist Elínborg eftir nokkra van-
heilsu og var Guðmundur Einar þá
kominn í hjólastól.
Eins og alltaf verður við fráfali
góðra manna skilja þeir eftir rúm
sem ekki verður fyllt í hugum þeirra
sem þá þekktu og voru þeim sam-
tíma. Áreiðanlega hefur hvíldin verið
kærkomin öldnum manni sem var
farinn að heilsu og hafði skilað góðu
dagsverki. Guðmundar Einars er
sárt saknað af hans nánustu ættingj-
um, stórum hópi vina og vanda-
manna. í dagsins önn urðu ferðir á
hans fund færri en skyldi og er minn
skaðinn.
Við Anika og fjölskylda okkar
sendum sonum Guðmundar Einars,
fjölskyldum og öllu þeirra fólki og
vandamönnum, einlægar samúðar-
kveðjur, en í dag fer fram útför
hans frá Fossvogskirkju. Blessuð
veri minning Guðmundar Einars
Guðmundssonar.
Guðjón Ármann Eyjólfsson.
í dag verður sunginn til moldar
frá Fossvogskirkju Guðmundur Ein-
ar Guðmundsson, föðurbróðir minn,
sem dó á Hrafnistu í Reykjavík
þriðjudaginn 30. nóv. sl.
Guðmundur fæddist á Hólum i
Dýrafirði 5. desember 1906 og hefði
því orðið 87 ára sunnudaginn sem
þessar línur eru settar á blað. For-
eldrar hans voru Guðmundur
Bjarnason og Margrét Guðmunds-
dóttir. Guðmundur Einar sá aldrei
föður sinn því að hann tók út af fiski-
bát og drukknaði áður en drengurinn
kom í heiminn. Foreldrar hans voru
búsettir á Hólum þegar þetta hörmu-
lega slys varð en Margrét fluttist
að Meðaldal, næsta bæ fyrir utan
Hóla, með Guðmund á öðru ári og
Ragnar bróður hans sem var sex
árum eldri. Hún gerðist vinnukona
í Meðaldal hjá hjónunum Kristjáni
Andréssyni og • Helgu Bergsdóttur
sem tóku syni hennar að sér. Kall-
aði Guðmundur Kristján fóstra sinn.
Margrét átti heima í Meðaldal til
æviloka.
Guðmundur gekk í barnaskóla (í
Haukadal) eins og lög gerðu ráð
fyrir á þeim tíma, frá 10 til 14 ára.
Fór hann snemma að stunda sjó-
mennsku og varð ungur formaður á
báti Andrésar, sonar Kristjáns í
Meðaldal. Seinna var hann á ýmsum
bátum þar vestra og má til dæmis
nefna Fróða frá Þingeyri sem hann
gerðist háseti á 1932. Var hann á
Fróða á styijaldarárunum þegar
hann varð fyrir skothríð frá þýskum
kafbáti í mars 1941, með fiskfarm
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
KRISTÍN GUÐRÍÐUR
KRISTJÁNSDÓTTIR
fyrrverandi ijósmóðir,
er lést 5. desember sl., verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtu-
daginn 9. desember, kl. 13.30.
Þorkell J. Sigurðsson,
Ingibjörg Þorkelsdóttir,
Sigurður E. Þorkelsson,
Guðríður J. Þorkelsdóttir Svendsen,
Þórkatla Þorkeisdóttir Donnelly,
Gísli Þorkelsson,
Kristín G. Jóhannsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
á leiðinni til Fleetwood í Englandi.
Skipstjóri og stýrimaður voru meðal
þeirra sem féllu í þessari árás en
Guðmundur slapp með skerta heyrn
og tvo skotgöt á ullarpeysunni sem
hann var í. Hafði hann veg og vanda
af að stýra bátnum til lands í Vest-
mannaeyjum, um 190 sjómílna leið.
Árið 1942 kvæntist Guðmundur
Einar Elínborgu Jónsdóttur frá
Haukadal í Dýrafirði. Þau bjuggu
hjá foreldrum Elínborgar þar til þau
fluttust búferlum tif Reykjavíkur
árið 1945 og áttu þar heima upp frá
því. Elínborg, sem var tíu árum yngri
en Guðmundur, dó fyrir tæpum þrem
árum.
Skömmu eftir að þau hjónin flutt-
ust suður gerðist frændi minn starfs-
maður hjá Eimskipafélagi íslands.
Hafði hann aflað sér matsveinsrétt-
inda með því að vera kokkur á fiski-
bátum og sækja námskeið. Hann
byijaði sém matsveinn á Fossunum
og var síðan lengst af bryti á Lagar-
fossi eða þar til hann lét af störfum,
kominn vel yfir sjötugt.
Þau Guðmundur og Elínborg áttu
tvo drengi: Grétar sem fæddist 1953
og Jón sem er tveim árum yngri.
Grétar tók farmannapróf í Stýri-
mannaskólanum árið 1979 og- var
um þriggja ára skeið stýrimaður á
Fossum Eimskipafélagsins. Hann
starfar nú sem fulitrúi í fjármála-
ráðuneytinu. Kona hans er María
Rögnvaldsdóttir og eiga þau tvö
börn. Jón er menntaður sem iðn-
rekstrarfræðingur og starfar nú sem
fasteignasali. Hann er ókvæntur en
á eina dóttur.
Guðmundur Einar var með af-
brigðum greiðvikinn og hjáipsamur
maður. Vil ég endurtaka efnislega
það sem ég sagði í minningarorðum
um Elínuborgu og átti við um þau
hjón bæði: Aðalsmerki þeirra var að
mínum dómi gestrisni, höfðings-
skapur og hjálpsemi. Hvað þetta
varðar er ekki unnt að nefna annað
þeirra án þess að geta hins líka.
Mér er nú efst í huga þakklæti
til frænda míns fyrir þá miklu og
ómetanlegu íjárhagsaðstoð sem
hann veitti mér þegar ég var við nám
erlendis og einnig fyrir góðan viður-
gerning á námsárum mínum í
Reykjavík. Pau Guðmundur og El-
ínborg reyndust líka Grétari heitnum
bróður mínum ákaflega vel þann
stutta tíma sem honum entist aldur
við nám í menntaskóla. Og Bergþóra
systir mín rifjar það upp með þakkl-
átum huga að hún átti gott athvarf
hjá þeim á sínúm námsárum.
Guðmundur Einar var meðalmað-
ur á hæð, grannvaxinn, kvikur á
fæti og féll sjaldan verk úr hendi.
Var að honum þungbærara en orð
fá lýst að vera bundinn við hjólastól
síðustu 5-6 ár ævinnar. En hann
hélt skýrleika í hugsun fram undir
það síðasta. Hann var vel greindur,
prýðilega laghentur og smiður góð-
ur. Mér er það i barnsminni þegar
hann var að hjáipa Ragnari bróður
sínum í Lokinhömrum að smíða fjár-
hús og hlöðu. Var kært með þeim
bræðrum og talaði frændi minn allt-
af með sérstakri virðingu um föður
minn.
Guðmundur var dulur maður og
bar ekki tilfinningar sínar á torg.
Hann sagði fátt en sýndi í verki
hvern hug hann bar til fólks. Með
honum er genginn til moldar mikill
höfðingi og drengskaparmaður.
Ég votta sonum hans og vensla-
fólki innilega samúð.
Gunnar Ragnarsson.
Mídrykkjur
(ilíjfsileg kíttíi-
Íilaðborð í;ille”ir
síilir ogmjög
góö þjömista,
ilp|)lýsingar
í síma 2 23 22