Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
49
Róshildur Hávarðs-
dóttír — Minning
Róshildur Hávarðsdóttir á
Hörgslandi lést þriðjudaginn 23.
nóvember og var jarðsungin frá
Prestbakkakirkju á Síðu laugardag-
inn 27. sama mánaðar. Kallið kom
óvænt og fyrirvaralaust. í hugum
okkar sem nú stöndum eftir á
ströndinni var ekkert slíkt í nánd.
Hún var svo ung og jákvæð í hugs-
un og viðmóti og full atorku. Þó
vissum við vel að hún hafði lifað í
80 ár.
Rósa eins og hún var kölluð af
sínu fólki fæddist í Mörtungu á
Síðu 29. apríl 1913, dóttir hjónanna
Guðlaugar Ólafsdóttur frá Mör-
tungu og Hávarðar Jónssonar frá
Króki í Meðallandi. Þau Guðlaug
og Hávarður bjuggu í Króki en
Rósa ólst upp að miklu leyti hjá
ömmu sinni og afa í Mörtungu,
Ragnhildi Eiríksdóttur og Ólafi
Jónssyni. Þessu mun hafa valdið
langvarandi vanheilsa Guðlaugar
móður Rósu. Bræður Rósu voru
fjórir, þeir Ólafur, Eiríkur, Halldór
og Hávarður. Nú lifir Halldór einn
þeirra systkina og býr í Króki.
Rósa hélt til Reykjavíkur Alþing-
ishátíðarárið 1930 og var þar í vist
næstu vetur en jafnan heima á
sumrin. Einnig var hún í Vest-
mannaeyjum í tvö ár við fiskvinnu
og matreiðslu. Það var svo árið
1937 að Rósa fluttist til mannsefn-
is síns, Jakobs Bjarnasonar, að
Hörgsdal á Síðu. Þar bjuggu þau í
húsmennsku næstu ár eða til 1941
er þau eignuðust Kálfafellskot í
Fljótshverfi og bjuggu þar næstu
19 ár. í Hörgsdal eignuðust þau
fyrstu dótturina, Sigurveigu, og í
Kálfafellskoti þær Ólafíu og Jónu.
Þar er afskaplega faliegt eins og
margir vita og árnar Laxá og Brú-
ará falla sín hvorum megin túns.
Árnar eru matarkistur frá hausti
til vors og þetta nýttu þau sér vel.
Túnin þurfti að stækka en skilyrði
til þess voru býsna óaðgengileg.
Þarna var hraun fyllt af foksandi
og dálítið gróið, þó var yfirborðið
nærri samfellt grjót. Það er ekki
heiglum hent að rækta slíkt land
en þolinmæði og eljusemi eru dijúgt
veganesti í því sem öðru enda urðu
þar falleg tún.
Glöggskyggni húsráðenda á
margt í lífi dýranna, bæði húsdýra
og villtra dýra, leiddi til marghátt-
aðra atvika sem skrifa mætti um
langar frásagnir. Öll dýrin skyldu
fá aðhlynningu, mýsnar sitt,
krummi sitt að ólgeymdum bústofn-
inum. Ekki veit ég hvað olli því að
hægt var að láta gamlan hrafn sem
settist upp hjá þeim éta úr sama
dallinum og hanann á bænum. Helst
hallast ég að því að þar hafði ráðið
merkilegur heimilisandi sem þau
sköpuðu bæði Rósa og Jakob og
var slíkur að tæpast er hægt að
minnast Rósu einnar heldur verður
að skrifa um þau bæði í einu.
Kjarval var hjá þeim sumarlangt
og fór út á morgnana með trönur
sínar og málaði. Svo kom hann
heim á kvöldin og þokaði þá gjarn-
an kúnum með sér. Hann vildi að-
eins mjólk úr þeirri gráu, enda var
hún sækýr. Þegar rigndi setti hann
upp trönur sínar í litla herberginu
uppi, þar sem hann svaf og málaði
Lómagnúp sem hann vissi af þarna
í skýjaþykkninu. Þarna hefur meist-
aranum liðið vel hjá vinum sínum
sem virtu hann sjálfan og list hans.
Svona var þetta á fleiri bæjum aust-
ur þar og myndir Kjarvals prýða
heimili víða og auðga |íf fólksins
eins og kynnin við Kjarval gerðu á
sinni tíð.
Það var svo 1960 að þau fluttust
að Hörgslandi á Síðu og bjuggu þar
síðan myndarbúi í sambýli við dótt-
ur sína og tengdason, og seinna hóf
þar búskap dóttursonur þeirra með
sína fjölskyldu. Allt gekk þetta eins
og best varð á kosið og hinn góði
andi elstu hjónanna varð alveg eins
hjá næstu ættliðum. Ég veit það
varð þeim mikil ánægja að fylgjast
með þroska afkomenda sinna og sjá
hvern ættlið af öðrum fara í sömu
skápana hjá Rósu og leika sér eins
og með sömu pottana.
Snyrtimennska utanhúss og inn-
an, dæmafá rausn og hógværð hús-
ráðenda var það sem mér þótti at-
hyglisverðast þegar ég kynnsti þeim
fýrst, Rósu og Jakobi. Ekki dró úr
því við aukin kynni heldur stækk-
uðu þau jafnt og þétt í mínum aug-
um. Þessi sérstaka virðing fyrir öllu
sem lifir og hrærist birtist í ótal
myndum. Gamla jörðin Kálfafells-
kot var nýtt samhliða Hörgslandi
og íbúðarhúsið endurbættu þau og
snyrtu svo að það nýttist þeim sjálf-
um meðan á heyskap og öðrum
nauðsynjaverkum stóð. Þess utan
var þetta og er orlofsstaður vina
og vandamanna hvenær sem þeir
óska. Húsið er hitað árið um kring
og er það og umhverfi þess snyrti-
legt svo að af ber. Líklega hefði
Eyjólfur á Hvoli orðað það svo að
þau væru „vandfisa". Sjálfur hef
ég notið margs þarna í „Kotinu"
og sama gildir um fólk mitt.
Sérkennilegt getur verið að
kynnast því að eftir því sem maður
nýtur meira yndis á annarra kostn-
að og er borinn á höndum, því
skuldugra verður þetta sama fólk
manni sjálfum, en einmitt þannig
var höfðingslund þeirra hjóna.
Sem fyrr getur eignuðust þau
Rósa og Jakob þijár dætur. Elst
er Sigurveig. Hennar maður er Óli
Jósepsson, þau eiga þijú börn og
búa í Reykjavík. Næst er Ólafía.
Hennar maður er Kristinn Siggeirs-
son, þau eiga fjögur börn og búa á
Hörgslandi. Yngst er Jóna. Hennar
maður er Hörður Hauksson. Þau
eiga tvö börn og búa í Reykjavík.
Barnabörnin eru orðin fimm og
naut allur hópurinn umhyggju Rósu
til síðasta dags.
Það verða lok þessa greinarkorns
að þakka forsjóninni fyrir að hafa
fengið að kynnast Rósu á Hörgs-
landi og njóta vináttu hennar um
árabil.
Jakobi og öllu þeirra fólki votta
ég einlæga samúð mína og fjöl-
skyldu minnar.
Sigurður Pálsson.
KVENNADEILD Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavík
er með jólafund í Drangey,
Stakkahlíð 17, sunnudaginn
12. des. sem hefst með borð-
haldi kl. 19. Uppl. hjá Sól-
veigu í síma 32853.
KATTHOLT, Stangarhyl 2.
Sunnudaginn 12. des. verður
basar og flóamarkaður í Katt-
holti sem hefst kl. 14. Allur
ágóði rennur til óskiladýra.
KVENFÉLAGIÐ Aldan
heldur jólafund á morgun
fimmtudag í Borgartúni 18
sem hefst með borðhaldi kl.
19.30 stundvíslega.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Norðurbrún 1. Á morgun kl.
14 rútuferð í bókabúð Máls
og menningar, Síðumúla.
Ath. síðustu forvöð að skrá
sigí jólamatinn 10. desember.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
Konukvöld í kvöld kl. 20.30.
Bragðað á jólakonfekti. Opið
öllum konum.
VÍÐISTAÐASÓKN. Starf
aldraðra: Kl. 14 í dag les
Linda Róbertsdóttir upp úr
bók Róberts Arnfinnssonar
leikara í safnaðarheimilinu.
Söngur og jólakaffi.
SILFURLÍNAN - sími
616262. Síma- og viðvika-
þjónusta fyrir eldri borgara
alla virka daga milli kl. 16
og 18.
BÓKSALA Félags kaþ-
ólskra leikmanna er opin á
Hávallagötu 14 kl. 17-18.
BÚSTAÐASÓKN. Félags-
starf aldraðra í dag kl. 13.
NESSÓKN. Kvenfélag Nes-
kirkju er með opið hús í dag
kl. 13-17 í safnaðarheimil-
inu. Boðið upp á kínverska
leikfimi, kaffi og spjáll. Fót-
snyrting og hárgreiðsla á
sama tíma. Iíóræfing Litla
kórsins kl. 16.15 í dag í um-
sjón Ingu Backman og Reynis
Jónassonar. Nýir félagar vel-
komnir.
KIRKJUSTARF____________
ÁSKIRKJA. Samverustund
fyrir foreldra ungra barna i
dag kl. 10-12. 10-12 ára
starf í safnaðarheimili í dag
kl. 17.
BÓMKIRKJAN: Hádegis-
bænir kl. 12.10. Orgelleikur
frá kl. 12. Léttur hádegis-
verður á kirkjulofti á eftir.
Opið hús í safnaðarheimili í
dag kl. 13.30-16.30.
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld-
og fyrirbænir í dag kl. 18.
L AN GHOLTSKIRK J A.
Foreldramorgunn í dag kl. 10.
Aftansöngur kl. 18.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Kyrrðarstund kl.
12. Söngur, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður
í safnaðarheimili. Kl. 17-18
er opið hús til kyrrðar og
íhugunar við kertaljós.
ÁRBÆJARKIRKJA: Opið
hús í dag kl. 13.30. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára TTT í
dag kl. 17. Mömmumorgunn
í fyrramálið kl. 10-12«
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á há-
degi. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður
í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Unglingastarf (Ten-Sing)
í kvöld kl. 20.
HJALLAKIRKJA: Starf fyr-
ir 10-12 ára börn TTT kl. 17
í kirkjunni í dag.
KÁRSNESSÓIÍN. Mömmu-
morgunn í dag kl. 9.30-12 í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir
10-12 áraídagkl. 17.15-19.
HAFNARFJARÐAR-
KIRKJA: Kyrrðarstund kl.
12 á hádegi og léttur hádegis-
verður í safnaðarathvarfinu,
Suðurgötu 11 að stundinni
lokinni.
Guðmundur Jóns-
son - Minning
Kveðja frá Listahátíð
í Hafnarfirði
Við mikil sorgartíðindi setur
menn jafnan hljóða. Orð verða lítils
megnug, en minningar taka að
hrannast upp.
Þetta voru einnig viðbrögð okkar
félaganna í stjórn Listahátíðar í
Hafnarfirði, þegar við fengum frétt-
ir af ótímabæru fráfalli vinar okkar
og samstarfsmanns Guðmundar
Jónssonar vélsmiðs.
Við Hafnfirðingar höfum á und-
anförnum árum lagt mikinn metnað
í að skapa listum og menningu í
Hafnarfirði þann sess sem fyrir
löngu var tímabært. Það var því
óhjákvæmilegt framhald þessarar
vinnu, að við eignuðumst okkar eig-
in listahátíð. Arið 1990 hófst af
fullum krafti undirbúningurinn að
þessari fyrstu hátíð, sem haldin
skyldi í júnímánuði 1991. Þegar svo
mikið stendur til, er mikils um vert
að öllum bestu kröftum byggðar-
lagsins sé saman safnað til starfans.
Fljótlega var tekin sú ákvörðun,
að hátíðin legði megináherslu á
höggmyndalistina, og var ákveðið
að smíða fjölda höggmynda eftir
alþjóðlegan hóp listamanna, sem
síðan skyldu mynda kjarnann í
fyrsta höggmyndagarði þjóðarinnar
á Víðistaðatúni j Hafnarfirði. Ef
vanda ætti verkið, þurfti að fá bestu
járnsmiði sem völ væri á. Að þeirri
vösku sveit snillinga ólastaðri, bar
nafn Guðmundar fyrst á góma,
enda löngu þekktur sem mikill hag-
leiksmaður.
Þetta var upphafið á vinskap og
sérlega ánægjulegu samstarfi
stjórnar Listahátíðar í Hafnarfírði
og Guðmundar, sem átti ásamt vini
sínum og samstarfsmanni Bjarna
Bjarnasyni eftir að vinna ómetanleg
störf í þágu menningarbyltingar-
innar í Hafnarfirði. Það var engu
líkara en að ekkert vandamál væri
svo stórt að þeir félagarnir fyndu
ekki lausn á því og aldrei var glað-
værðin langt undan. Þeir Guðmund-
ur og Bjarni áttu enda eftir að
stofna fyrirtækið Suðulist, sem sér-
hæfir sig í smíði listaverka. Ekki
spillti það fyrir, að báðir tveir fengu
ríflega í vöggugjöf hina einu sönnu
listrænu taug sem allar götur síðan
hefur gert okkur Hafnfirðingum
kleift að eignast stórkostlegt safn
höggmynda, ókomnum kynslóðum
til yndisauka um alla framtíð, svo
að aldrei verður fullþakkað. Þessi
verk munu lengi lofa sína smiði,
jafnt og höfunda.
Stjórn Listahátíðar í Hafnarfirði
vill með þessum fátæklegu orðum
votta aðstandendum Guðmundar
sína dýpstu samúð á stundu sorgar
og missis, í vissu um að öll él birt- .
ir upp um síðir og þá mun hlýja
minninganna ylja þeim sem nú
syrgja.
Megi algóður Guð blessa minn-
ingu góðs drengs og mikils lista-
manns.
F.h. stjórnar Listahátíðar í Hafn-
arfirði,
Sverrir Ólafsson,
fr amkvæmdastj ór i.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HULDA HARALDSDÓTTIR,
Garðaflöt 13,
Garðabæ,
verður jarðsett frá Garðakirkju föstu-
daginn 10. desember kl. 13.30.
Helgi Þorkelsson,
Ásta Helgadóttir, Haraldur Helgason,
Ólafur Helgason, Guðrún Helgadóttir,
Andri Már Helgason,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við fráfall
HLÖÐVERS ÞÓRÐAR HLÖÐVERSSONAR,
Björgum,
Ljósavatnshreppi.
Ásta Pétursdóttir,
Hlöðver P. Hlöðversson, Kornína B. Óskarsdóttir,
Sólveig B. Hlöðversdóttir, Friðrik Ari Friðriksson,
Þorgeir B. Hlöðversson, Sigríður Jónsdóttir,
Kristjana G. Hlöðversdóttir
og barnabörn.
' t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginkonu minnar, móð-
\ ur okkar, tengdamóður, systur, mág-
lconu og ömmu, x
GIGRÍÐAR ANDRÉSDÓTTUR,
Stóragerði 8.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar
32-A á Landspítalanum og Kvenfélags
I Árbæjarsóknar.
Svavar G. Guðnason,
Andrés Svavarsson, Þóra Stephensen,
ECristfn S. Svavarsdóttir, Viðar Gislason,
Guðni B. Svavarsson, Kristín Óiafsdóttir,
Rannveig E. Svavarsdóttir, Þorbjörg Andrésdóttir,
Unnur Andrésdóttir, Teitur Guðmundsson
og barnabörn.