Morgunblaðið - 08.12.1993, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
55
I
I
I
)
I
I
)
I
>
HX
HÆTTULEGT SKOTMARK HörkJ£pNe£"AaMm,^
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. Stranglega bönnuð i. 16 ára.
BÍÓMYNDIR & MYNDBÖND Tímarit
Gerist áskrifendur að góðu blaði. áhugafólks
Áskriftarsími 91 - 81 12 80. um kvikmynd.r
★ ★ V, G.E. DV.
★ ★’/, S.V. MBL.
PRINSAR í L.A.
Frábær grín- og
ævintýramynd.
Sýnd kl. 7.
LAUNRÁÐ
liUllM
Eaamaa
Frönsk spennu-
og grínmynd.
Sýnd kl. 8.55 og 11.
B. i. 16 ára.
HJÁLP
GIFTING
Nú ætlar einkadóttir
BJarna aö gifta sig.
Veislan skal vera vegleg
en hvar fást aurarnlr?
Frábær gamanmynd, full
af lóttum húmor
aö hættl Dana.
, 9 og 11.
(D TÓnLflKflR
QUL flSMJIfíflRRÖÐ
tlflSKÖLfi blöl
fimmtudaginn 9. desember, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Efnisskrá:
Ludwig van Beethoven: Egmont, forleikur
Franz Liszt: Les Preludes
Richard Strauss: Hetjulíf
Missið ekki af frumflutningi á einu af
risaverkum tónbókmenntanna. Hetjulífi,
eftir Richard Strauss.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
o/ZZob H 11ómtVe 11 olitg Itl.ndlnoa
Sími
622255
Keflavík
Morgunblaðið/Bjðrn Blöndal
Ljósin tendruð á jólatrénu
Keflavík.
KVEIKT var á jólatrénu sem er gjöf frá vinabænum
Kristiansand í Noregi við hátíðlega athöfn að vistöddu
fjölmenni á laugardaginn. Við þetta tækifæri fluttu
ávörp Öyvind Stokke sendiráðsritari Noregs á íslándi
og Drífa Sigfúsdóttir forseti bæjarstjórnar. Síðan
tendraði Rúnar Már Sigurvinsson nemandi í 6. bekk
Myllubakkaskóla ljósin á jólatrénu, sem að þessu sinni
er skreytt 720 litlum ljósum.
Við athöfnina lék Lúðra- sunnukirkjunni í Keflavík
sveit Tónlistarskólans í söng jólasálma. Þá komu
Kefivík aðventu- og jólalög jólasveinar í heimsókn og
og sönghópur frá Hvíta- nemendur í Holtaskóla buðu
viðstöddum uppá heitt kakó
og piparkökur. Helstu götur
bæjarins hafa nú verið
skreyttar í tilefni af jólahá-
tíðinni og hafa bæjarbúar
ekki látið sitt eftir liggja.
Mörg hús hafa verið fagur-
lega skreytt á liðnum árum
og hafa menn gert sér ferð
til að skoða fallegustu
skreytingarnar.
- BB
SÍMI: 19000
Lokað vegna lagfæringa
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Kvenfélag Grindavíkur heiðraði 6 konur fyrir farsæl störf í þágu félagsins. Þær eru
frá vinstri: Þórlaug Ólafsdóttir, Ingibjörg Þórarinsdóttir, Helga Jóelsdóttir, Fjóla
Jóelsdóttir, Dagmar Árnadóttir, Jóhanna Dagbjartsdóttir ásamt formanninum Gunn-
hildi Guðmundsdóttur.
Grindavík
Kvenfélagið 70 ára
Grindavík.
KVENFELAGIÐ í Grinda-
vík varð 70 ára þann 24.
nóvember síðastliðinn og
hélt nýlega upp á afmælið
með afmælishófi í Festi.
Þó að félagið sé-komið „á
aldur“ eru þó engin ellimerki
á því að fínna eins og glæsi-
leg afmælisdagskrá bar með
sér en þar komu fram
skemmtikraftar úr Tónlistar-
skólanum og víðar úr bæjar-
lífinu og skemmtu íjölmörg-
um gestum Kvenfélagsins.
Dagskráin hófst á sama
hátt og stofnfundurinn fyrir
70 árum með því að allur
salurinn tók undir í sálminum
„Þú, Guð sem stýrir stjarna-
her“. Gunnhildur Guðmunds-
dóttir formaður Kvenfélags-
ins rifjaði upp tilurð félagsins
sem þær Guðrún Þorvarðar-
dóttir og Ingibjörg Jónsdóttir
kennari höfðu frumkvæði af
og stofnuðu ásamt 23 konum
sem mættu á stofnfundinn.
Markmið félagsins var að
leggja þeim lið sem á ein-
hvern hátt voru hjálparþurfi
og að hlynna að kirkjulífi í
hreppnum.
Það kom fram hjá Gunn-
hildi að kirkjan hafi skipað
stóran sess hjá Kvenfélaginu
í gegnum árin og þó margir
segi að þau séu gamaldags
fyrirbæri sé Kvenfélagið lítið
farið að láta á sjá þrátt fyrir
háan aldur. Kvenfélög hafi
vissulega þurft að aðlaga sig
nýjum háttum en hafi sannað
tilverurétt sinn og segja megi
að þau hafi aldrei verið eins
þörf og nú á dögum. 1 Kven-
félagi Grindavíkur eru nú um
160 félagar og í tilefni af-
mælisins var ráðist í útgáfu
afmælisrits sem Guðfinna
Hreiðarsdóttir ritstýrði. Þá
voru 6 konur heiðraðar í til-
efni afmælisins.
Félaginu bárust margar
gjafir og heillaóskir í tilefni
dagsins og færði Eðvarð Júl-
íusson forseti bæjarstjómar
Grindavíkur því m.a. 150
þúsund króna gjöf frá
Grindavíkurbæ til húsgagna'
kaupa í nýuppgert húsnæði
í félagsheimilinu.
Eins og fyrr segir var fjöl-
breytt skemmtidagskrá. Þar
komu fram meðal annarra
blásarasveit Tónlistarskólans
1 Grindavík, barnakór
Grindavíkurkirkju og dans-
arar. Þá fluttu þau Dagbjart-
ur Einarsson, Valgerður Þor-
valdsdóttir og Haukur Guð-
jónsson kafla úr Gullna hliðin
eftir Davíð Stefánsson.
FÓ
Barnakór Grindavíkurkirkju söng á afmælishátíð Kvepfélags Grindavíkur.
Ný myndbönd
Skífan gefur út fyrir jólin
tólf nýjar teiknimyndaspól-
ur með íslensku tali og er
þetta í fyrsta sinn sem sér-
J stakar jólateiknimyndir
koma út hér á landi með
íslensku tali.
■ TOMMI OG JENNI
mála bæinn rauðnnn. Þetta
) er fyrsta kvikmyndin með
þeim félögum í fullri lengd
og nú tala þeir íslensku.
' Iængd 85 mín.
L ■ PRINSESSAN OG
DURTARNIR Ævintýri með
rómantísku ívafi. írena litla
kemmst í kynni við illskeytta
Durta sem búa undir kasta-
lanum hennar og ætla að
gifta hana Froskavör en með
hjálp ömmu sinnar og Kalla
tekst henni að bjóða þeim
birginn. Lengd 85 mín.
■ KÆRLEIKSBIRNIRN-
IR 2 í þessari mynd er sýnt
hvernir Kærleiksbirnirnir
fengu táknin á mallakúta
sína, þeir kynnast börnum í
sumarbúðum og sýna fram á
hvað kærleikur og vinátta
skiptir miklu máli. Lengd 80
mín.
■ SEX NÝIR TITLAR frá
Hannn-Barbera Á þessum
myndböndum koma fram all-
ar helstu persónur Hanna-
Barbera. Jógi Björn, Hökki
hundur, Fred Flintstone,
Bamey Rubble, Skúbí Dú
o.fl. tala nú aílir íslensku.
Leikararnir Þórhallur Sig-
urðsson, Örn Árnason, Saga
Jónsdóttir, Guðrún Þórðar-
dóttir, Magnús Ólafsson, Júl-
íus Bijánsson o.fl. ljá þeim
raddir sínar. Þýðandi er
Magnea J. Matthíasdóttir.
■ ÞOTUFÓLKIÐ Elli og
félagar & í skátatferð. Lengd
45 mín.
■ ÍÞRÓTTIR frá öllum
hliðum Teiknimyndir og leik-
ir sem fjalla um íþróttaiðkun.
Fred og fjölskylda ásamt
Jóga og Hökka koma fram í
myndinni. Lengd 85 mín.
■ STJÖRNUVITLAUS
Jógi og félagar fara í fjár-
sjóðsleit. Þeir fletta ofan af
ráðabruggi um að eyðileggja
þyngdarafl jarðarinnar o.fl.
Lengd 60 mín.
■ LEITIN að tapað fund-
ið Jógi og félagar í fjársjóða-
leit. Þeir komast í tæri við
draugalega útlaga og leysa
gátu um múmíu og forða
veröldinni frá ragnarökum.
Lengd 60 mín.
■ HÖKKI HUNDUR
Ljónsþjarta Hökki lögreglu-
hundur kemur fram í mörg-
um stuttum myndum að elt-
ast við bófa og illmenni.
Lengd 45 mín.
■ SKÚBÍ DÚ glefsur úr
hundalífi Skúbí Dú og félag-
ar lenda inn í ótal þekktum
ævintýrum. Lengd 85 mín.
■ HNOTUBRJÓTS-
PRINSINN Sígild saga sem
gerist í Leikfangalandi. Æv-
intýri um ástir, hetjudáðir og
alveg sérlega illskeytta mús.
Tónlist eftir Tchaikovskí leik-
in af Sinfóníuhljómsveit
Lundúna. Lengd 72 mín.
■ LITLI TRÖLLAPRINS-
INN Þessi saga segir frá litla
Tröllaprinsinum Bö sem upp-
götvar kærleik Guðs og berst
gegn mannvonsku fjölskydu
sinnar í öfugsnúnum smá-
tröllaheimi þar sem illt er
gott og ekkert orð finnst yfir
ást. Lengd 50 mín.
■ JÓLASAGA Lappi og
músin Lakkrís leita að Jóla-
sveininum til að koma til
hans bréfi frá Tomma litla.