Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Ég vona að þú sért auðmjúkur
að eðlisfari. Okkur vantar
mann til að níðast á.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Skiptir þín skoðun einhveiju máli?
Frá Sigurði Sigurðssyni:
Nú er borgarstjórinn í Reykja-
vík með hverfafundi sem ber yfir-
skriftina: „Þín skoðun skiptir
máli.“ Þar er farið yfir verk meiri-
hlutans á kjörtímabilinu og íbúar
spurðir hvað betur megi fara.
í Grafarvoginum eru nokkur
mál á dagskrá sem skipta íbúana
miklu máli, þó að ekki hafi þau
öll farið hátt á hverfafundinum
sem haldinn var í félagsmiðstöð-
inni Fjörgyn laugardaginn 6. nóv-
ember. Eitt þessara mála er veit-
ing byggingarleyfis fyrir söluturn
og bensínstöð á horni Gagnvegar,
Fjailkonuvegar og Hallsvegar.
Sem stendur er eitt af því sem
síst vantar í hverfið annar söluturn
og bensínstöð. Um 600 metrum
ofar við Gagnveg höfum við
bensínstöð með söluturni og um 1
kílómetra neðar við Fjallkonuveg
er önnur bensínstöð með sölu-
turni, auk þess er söluturn í versl-
unarmiðstöðinni Torginu við
Hverafold. Á skipulagi eru 2 stöðv-
ar í Borgarholtshverfi skammt
norðan við fyrirhugaða stöð. Af
þessu sést að af söluturnum og
bensínstöðvum höfum við nóg auk
þess sem fyrirhugað er að reisa
hverfaverslun, 500 metrum ofar
við Gagnveg, þar sem væntanlega'
verður kvöldsala.
Á fyrirhuguðum byggingarstað
er samkvæmt deiliskipulagi úti-
vistarsvæði. Þarna rétt við er hin
nýja íþróttamiðstöð Fjölnis og
Húsaskóli auk þess er leikskólinn
Brekkuborg og hjúkrunarheimilið
Eir þarna skammt frá. Á hveijum
degi koma um 600 börn og ungl-
ingar í íþróttamiðstöðina auk full-
orðinna og um 350 nemendur eru
nú í Húsaskóla. Stór hluti fólksins
sem sækir þessa staði þarf að fara
yfir eina eða fleiri af þessum þrem-
ur áðurnefndu götum.
Söluturn með bílalúgum og
bensínstöð dregur alltaf að sér
umferð og aukin umferð skapar
aukna hættu. Til að komast að
og frá stöðinni þarf að fara um
Gagnveg. Gatnakerfið á þessum
stað er ekki hannað fyrir aukna
umferð þar sem bæði Gagnvegur
og Fjallkonuvegur eru safngötur
fyrir íbúðahverfi.
Mér finnst skjóta skökku við að
í öllu talinu um bætt fæði skóla-
barna, tannvernd þeirra og örugg-
ara umhverfi skuli eiga að byggja
söluturn rétt við nefið á þeim. Er
þetta kannski aðal kúnnahópurinn
sem á að krækja í?
Samkvæmt samtali sem ég hef
átt við einn af skipuleggjendum
hverfisins hefur hann fyrir hönd
teiknistofu sinnar mótmælt harð-
lega til borgarskipulags þessum
áætlunum. Einnig hafa borist
harðorð mótmæli frá ungmennafé-
laginu Fjölni, íbúasamtökum Graf-
arvogshverfa og fleiri aðilum.
Og ekki má gleyma undirskrift-
um tæplega 2.000 íbúa í Grafar-
vogi, en það er um 50% íbúa þar
á kosningaaldri, þar sem farið er
fram á að byggingarleyfið verði
afturkallað og svæðinu haldið
óbreyttu samkvæmt skipulagi.
Þessum undirskriftum var safnað
á stuttum tíma af nokkrum for-
Frá Jens í Kaldalóni:
MARGIR hafa bjartir geislar skin-
ið frá sjónu og orðum okkar ást-
sæla og elskulega biskups herra
Sigurbjarnar Einarssonar, en þó
sjaldan skærari og tilfinningarík-
ari en sú ljómun sem skrýddi
Morgunblaðið í grein hans 23.
nóvember, „Hýsum hælislausan“.
Þar telur hann ekki hægt að
„veija það fyrir nokkrum dómstóli
að henda aftur út í brimið strand-
manni, sem hefur í örvæntingu
látið berast uppá fjöru hér og ligg-
ur þar fyrir fótum okkar“. Þetta
er mannlega mælt og af næmri
tilfinningu um þá einstæðings-
kennd sem óhjákvæmilega ristir
djúpt í vitund þess manns sem
hvergi á heima og leggur líf sitt
og tilveru alla í sölurnar til að finna
sér griðland frá þeim ósköpum og
einmanaleika sem umlykur að-
stöðu hans alla og tilveru.
Ég veit líka að það eru flestir
íslendingar þeim göfugu tilfinn-
ingum gæddir innra með sér og
þann bróðurlega kærleika með sér
bera, að hér um með bróðurlegum
eldrum í Húsa- og Foldahverfi.
Sé virkilega þörf á að úthluta
lóðarumsækjendanum pláss fyrjr
söluturn og bensínstöð vil ég
benda á ágætis staðsetningu á
væntanlegum gatnamótum þar
sem Hallsvegur á að mæta Vestur-
landsvegi norðan Iðntæknistofn-
unar.
Nú er það í höndum borgarstjór-
ans, borgarráðs og skipulags-
nefndar að endurskoða afstöðu
sína í þessu máli og láta sjá hvort
vegur þyngra, mótmæli okkar íbú-
anna og hagsmunir barnanna okk-
ar eða hagsmunir lóðarumsækj-
andans og þess olíufélags sem er
með honum í þessu og vitna ég
því aftur í hina ágætu yfirskrift
sem borgarstjórinn notar á hverfa-
fundum sínum: „Þín skoðun skipt-
ir máli. “
SIGURÐUR SIGURÐSSON,
tæknifræðingur og í stjórn Félags
sjálfstæðismanna í Grafarvogi.
líknarhuga vildu þeir hver og einn
af mörkum leggja þann dreng-
skaparlega kærleika sem duga
skyldi til framtíðarúrlausnar því
hrellda strái sem hér um ræðir,
og veltist sem einstæðustrá í þeim
alltof miklu hvirfilvindum sem
stroka um veröld víða. En þótt
einhvern tímann hafi verið svo
ómannlega' að málum staðið að
einum hafi verið á óguðlegan hátt
vísað úti algera auðn tilveru
sinnar, sannar það ekkert um það
að skulum við aftur upp taka, en
miklu frekar að það mætti svo
sannarlega okkur til varnaðar
verða.
Ég skrifa þessar fáeinu línur til
þess að þakka okkar fyrrverandi
og elskulega biskupi fyrir hans
kærleika og tilfinningu fyrir þessu
máli, og vona það dugi til að svo
megi þjóðin gott gera að einum
okkar minnstu bræðrum verði ekki
útá klakann vísað, því að ekkert
munar þjóðina um að veita honum
það skjól sem allir þurfa.
JENS í KALDALÓNI.
Þakkaróður
HOGNI HREKKVISI
1J
i
t
i
I
I
I
í
i
i
i
Víkverji skrifar
að er svo sem ekki við öðru
að búast, þegar svo skammur
tími er til jóla, en allar verslanir
séu fullar og mikið sé að gera hjá
verslunareigendum, hvort sem um
virka daga er að ræða, eða helg-
ar. Víkveiji átti leið í Hagkaup í
Kringlunni síðdegis síðastliðinn
föstudag, og undraðist hann fólks-
fjöldann sem saman var kominn í
þessu mikla verslunarhúsnæði.
Það var bókstaflega eins og mörg
þúsund manns væru samankomin
á göngum, í kaffihúsum og
verslunum Kringlunnar. Víkveija
varð á að hugsa hvort fólkið þyrfti
ekki að vera í vinnu sinni. En svo
skilst Víkveija að það sem hann
sá í Kringlunni á föstudag, hafi
verið harla lítið og ómerkilegt í
samanburði við það sem var á
laugardag og sunnudag. Fólk hafi
beinlínis þurft að olnboga sig
áfram í mannmergðinni. Raunar
vekur það forvitni hvað fólkið er
allt að gera. Er þetta nýja tegund-
in af því að drepa tímann með fjöl-
skyldunni á laugardags- og sunnu-
dagseftirmiðdögum? Koma
Kringluferðir með fjölskyldunni í
stað þess sem áður var sunnudags-
bíltúr og kannski ís hjá Dairy
Queen? Varla eru öll þessi þusund
að versla, því ef marka má upplýs-
ingar um samanburð verslunar á
þessum árstíma í ár, miðað við
árið í fyrra, þá virðist um veruleg-
an samdrátt að ræða, enda væri
annað ótrúlegt, í því árferði sem
nú ríkir.
xxx
að var annars konar jólaundir-
búningur en búðarráp sem
kom Víkveija í svolitla jóla-
stemmningu nú um helgina, en
það voru jólatónleikar eins tónlist-
arskóla borgarinnar. Ungir nem-
endur Tónskóla Sigursveins í
Breiðholti buðu til jólatónleika í
kennsluhúsi skólans við Hraun-
berg í Breiðholti, eftir hádegi á
sunnudag. í gullfallegum tónleika-
sal skólans, komu nemendurnir
fram einn af öðrum og léku lítil
tónverk fyrir gesti sína sem líklega
voru flestir foreldrar, afar, ömm-
ur, frændur, frænkur, vinir og vin-
konur. Líkast til voru yngstu flytj-
endurnir ekki eldri en sjö eða átta
ára, en aldurinn breytti engu um
það að hvert andlit ljómaði af ein-
beitingu, leikgleði og innlifun á
meðan á tónlistarflutningnum
stóð. Ef feilnóta var slegin, þá var
því ekki fyrir að fara að ungu lista-
mennirnir gæfust upp, eða sýndu
einhver merki taugaveiklunar: Það
var bara byijað aftur, eins og ekk-
ert hefði í skorist og laginu Iokið.
Víkveiji telur að þeir sem eldri
eru, gætu lært ýmislegt af þeim
sjálfsaga og sjálfstjórn sem þessir
ungu tónlistarmenn hafa ræktað <•
með sér, væntanlega í náinni sam-
vinnu við kennara sína.
i
i
i
i